Tíminn - 07.06.1988, Page 10
10 Tímirin
Þriðjudagur 7. júní 1988
Þriðjudagur 7. júní 1988
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrnuliö Leifturs
í deildakeppninni:
Töpuðu
síðast
heima
1985!
Leiftursmenn hafa verið fast-
heldnir á stigin á heimavelli ■
dcildakeppninni í knattspyrnu á
undanförnum árum. Þeir hafa
staöið sig mjög vel í fyrstu þremur
uniferðunum í I. dcildinni og
gert jafntefli við ÍA, Val og Þór
á heimavelli. Heimavöllurinn á
Ólafsfirði er greinilega Heim-
avöllur með stórum staf því það
þarf að fara aftur til ársins 1985
til að finna þar tap í deildakeppn-
inni. í fyrra þegar Leiftursmenn
tryggðu sér sæti í 2. deildinni
töpuðu þeir engum leik á heinia-
velli og heldur ekki sumarið 1986
þegar þeir sigruðu í 3. dcild. Árið
1985 lék Leiftursliðið í 2. deild og
gekk ekki sem best. Þeir féllu í 3.
deild eftir tap á heimavelli í næst
síðustu umferð, máttu lúta í lægra
haldi fyrir liðinu sem endaði í 5.
sæti það árið, Skallagrími. Þetta
var 7. septcmber 1985 og síðan
hafa Ólafsfirðingarnir ávallt feng-
ið a.m.k. eitt stigá mularvellinum
sínum - í 3., 2. og 1. dcild.
Þess má geta að lokatölur í
tapleiknum urðu 3-4 og mörkin
gerðu Hafsteinn Jakohsson, Jó-
hann örlygsson og Helgi Jó-
hannsson. Murkaskorarar Skalla-
grims í þcssum lcik hafa síðan
allir haldið á aðrar slóðir - og
liðið niðtir á við. Þeir voru Björn
Jónsson (nú FH), Gunnar Orra-
son (nú Fylki), Björn Axclsson
(nú Selfossi) og Gunnar Jónsson
(nú ÍA). - HÁ
Norðurlandamót
fatlaðra í boccia:
Silfur og
brons til
íslands
Islendingar fengu ein silfur-
verðlaun og ein bronsverðlaun á
Norðurlandamóti fatlaðra í
bocciu sem haldið var í íþrótta-
húsinu Digranesi í Kópavogi um
helgina.
fslenska sveitin hafnaði í þriðja
sæti í liðakeppninni með 6 stig
cins og Danir sem urðu ■ 2. sæti
cn Norðmenn sigruðu með 7 stig.
Sveit Islands skipuðu þeir Sigurð-
ur Björnsson ÍFR, Haukur
Gunnarsson ÍFR og Halldór
Guðbergsson fFR.
Sigurður Bjömsson varð í 2.
sæti í einstaklingskeppni ■ flokki
RBl (sitjandi). Bertel Lindrup
frá Noregi sigraði en IJIIa-Britt
Brattström frá Svíþjóð varð í
þriðja sæti.
Kcppcndur á mótinu voru um
60 talsins frá Danniörku, Finn-
lundi, Noregi, Svíþjóð og fslandi.
- HÁ
íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
Enn jafnt á
Ólafsfirði
- Steinar Ingimundarson gerði fyrsta 1,
deildarmark Leiftursmanna
Frá Erni Þórarinssyni frcttaritara Tímans:
Enn eitt jafnteflið varð á Ólafs-
firði þegar Leiftur og Þór áttust við
í 1. deildinni á laugardaginn. Úrslitin
urðu 1-1 og náðu þar með bæði lið
að skora sitt fyrsta mark í deilda-
keppninni ■ ár. Leiftursmenn eru því
enn ósigraðir eftir þrjá heimaleiki en
spurning er hvernig þeim tekst til í
útileikjunum sem verða að öllunl'
líkindum leiknir á grasi, sá fyrsti
gegn Víkingi verður á morgun.
Verður fróðlegt að vita hvernig
þeirri viðureign lyktar.
Það er ekki hægt að segja að
leikurinn á Ólafsfirði hafi verið sér-
lega skemmtilegur á að horfa. Lítið
var um samspil og enn minna um
marktækifæri. Þórsarar léku undan
dálítilli norðangolu''í fyrri hálfleik.
Þeir réðu meira um gang leiksins
framanaf. Þó átti Hörður Benónýs-
son góða rispu upp kantinn alveg
upp að endalínu en reyndi þá skot
úr vonlítilli aðstöðu sem fór framhjá.
Rétt áeftirátti Kristján Kristjánsson
hörkuskot af nokkuð löngu færi í slá
Leiftursmarksins. Þar slapp Þorvald-
ur markvörður sem í þessu tilviki var
staðsettur of framarlega með
skrekkinn.
Á 28. mín. kom fyrra markið.
Þórsarar sóttu upp vinstra kantinn,
boltinn var sendur inn í vít’ateig
Leifturs og dómarinn dæmdi um-
svifalaust vítaspyrnu. Ekki var auð-
velt að sjá frá áhorfendum á hvað
var dæmt enda margmenni í víta-
teignum. Þar var um bakhrindingu
að ræða. Úr vítaspyrnunni skoraði
Júlíus Tryggvason.
Á 44. mín. varði Þorvaldur síðan
vel hörkuskot frá Jónasi Róberts-
syni.
Leiftursmenn mættu mjög
ákveðnir til leiks eftir hléið og sóttu
ákaft fyrstu mínúturnar. Þeir fengu
strax á 50. mín. aukaspyrnu rétt
utan vítateigs Þórs. Upp úr henni
átti Hafsteinn Jakobsson gott skot
rétt yfir. Tveimur mínútum síðar var
enn aukaspyrna á sama stað. Upp úr
henni varð mikil þvaga í vítateig
Þórs, boltinn barst manna á milli þar
til Steinar Ingimundarson náði að
senda hann í netið og jafna 1-1.
Áhorfendur fögnuðu ákaft þessu
fyrsta marki heimaliðsins í deildinni.
Leiftur náði ekki að fylgja þessu
marki eftir. Framherjar Þórs,
einkum Hlynur Birgisson og Guð-
mundur Valur, fóru nú að gerast
ágengir við Leiftursmarkið og áttu
nokkrar sóknarlotur sem vörn Leift-
urs átti fullt í fangi með að verjast.
Þá sýndi hinsvegar Þorvaldur mikið
öryggi í markinu og varði hvað eftir
annað vel. Ekki síst á 90. mín. er
Guðmundur Valur skaut úr ágætu
færi í vítateignum.
Eins og áður stóð vörn Leifturs
vel fyrir sínu í leiknum. Hins vegar
náði liðið ekki nægilegum tökum á
miðjunni. Liðið beitti skyndisóknum
og átti nokkrar allþokkalegar en án
þess að um afgerandi marktækifæri
væri að ræða. Erfitt er að nefna einn
sérstakan sem upp úr stóð, e.t.v.
Þorvald markvörð. Ujá Þór bar
mest á Hlyn Birgissyni en lítið fór
fyrir Halldóri Áskelssyni sem var í
gæslu Árna Stefánssonar allan leik-
inn.
Jafntefli voru kannski sanngjörn
úrslit en ekki virtust Þórsararnir
ánægðir með þá niðurstöðu í leiks-
lok.
Mörkin, Leiftur: Steinar Ingimundar-
son 52. Þór: Júlíus Tryggvason víti 28.
Gul spjöld: Guðmundur Garðarsson
og Hörður Benónýsson.
Dómari: Ólaíur Sveinsson.
'?' VP9I ..
Guðmundur Stcinsson sendir knöttinn með utanfótarskoti framhjá Guðmundi Hreiðarssyni
markverði Víkinga og hleypur fagnandi frá en Víkingar setja upp mæðusvip. Guðmundur
Steinsson átti mjög góðan leik á sunnudagskvöldið, sinn besta í langan tíma, og skoraði að auki
þrjú mörk. Framarar verða ekki auðsigraðir í deildinni í sumar leiki þeir áfram eins og gegn
Víkingum. Á sama hátt verða Víkingar mjög auðsigraðir leiki þeir áfram eins og gegn Fram.
Tímamynd Pjetur.
Opna franska meistaramótið í tennis:
Wilander og Graf
unnu léttan sigur
Staðan í 1. deild
Fram......................... 3 3 0 0 5-0 9
KR .......................... 3 2 1 0 8-3 7
ÍA........................... 3 2 1 0 3-1 7
KA .......................... 2 2 0 0 3-1 6
ÍBK.......................... 3 1 0 2 5-6 3
Leiftur ..................... 3 0 3 0 1-1 3
Þór...........................2 0 11 1-2 1
Valur ....................... 3 0 1 2 0-2 1
Víkingur..................... 3 0 1 2 2-6 1
Völsungur.................... 3 0 0 3 2-8 0
íslandsmótið í knattspyrnu, Fram-Víkingur 3-0:
EINSTEFNA
- Guðmundur Steinsson með þrennu en Guðmundur Hreið-
arsson bjargaði Víkingum frá enn stærra tapi
Algerir yfirburðir, burst, hlaupið
yfir Víkinga, þeir teknir í bakaríið,
kennslustund, nú eða þá í nefið. Það
þyrfti að fletta upp í orðabók til að
flnna nægilega sterkt lýsingarorð
yfir yflrburði Framara á Laugardals-
vellinum á sunnudagskvöldið. Þeir
unnu Víkinga 3-0 í 1. deildarknatt-
spyrnunni og hefðu getað gert gott
betur en það ef ekki hefði komið til
stórkostleg markvarsla Guðmundar
Hreiðarssonar.
Sé rennt yfir gang leiksins í ör-
stuttu máli þá skaut Pétur Ormslev
í stöng úr^jtukaspyrnu (11. mtn.),
Guðmundur Steinsson skallaði rétt
yfir (14.) en sendi Unöttinn í markið
með föstu utanfótarskoti úr víta-
teignum eftir sendingu frá Steini á
18. mín, 1-0. Arnljótur skaut rétt
framhjá (23.) og Pétur Arnþórsson
sömuleiðis (24.) áður en Víkingar
áttu sitt fyrsta (eða fyrra) færi þegar
Hlynur skaut rétt yfir á 26. mín.
Birkir varði vel frá Trausta í blá-
horninu niðri á 29. mín. og þar með
fengu Víkingar ekki fleiridauðafæri.
Pétur Ormslev átti gott skot (33.),
Pétur Arnþórsson skaut í stöng eftir
að hann komst einn í gegn (34.) og
Guðmundur varði vel aukaspyrnu
frá Pétri Ormslev (41.). Loks skaut
Arnljótur rétt yfir áður en flautað
var til leikhlés. Seinni hálfleikur var
fárra sekúndna gamall þegar Fram-
arar voru komnir í stórsókn en á 47.
mínútu bætti Guðmundur Steinsson
öðru markinu við og tók sér til þess
góðan tíma. Nafni hans Hreiðarsson
í Víkingsmarkinu varði stórkostlega
(55.) eftir hörkusókn sem hófst með
samvinnu Guðmundar Steinssonar
og Péturs' Arnþórssonar, Ormarr
tók knöttinn viðstöðulaust og þrum-
aði að marki en Guðmundur varði í
þrígang. Framarar fengu óbeina
aukaspyrnu (56.) í vítateignum sem
ekkert varð úr og Guðmundur
Steinsson komst einn í gegn (57.) en
Guðmundur Hreiðarsson varði. Enn
átti Ormarr þrumuskot (67.) sem
Guðmundur varði og Kristinn R.
Jónsson átti góða stungusendingu á
Guðmund Steinsson (83.) sem iagði
knöttinn fyrir sig á mjög svo yfirveg-
aðan hátt og sendi rakleiðis í netið,
3-0. Enn áttu Framarar stórhættu-
legt færi áður en flautað var af en
mörkin urðu þrátt fyrir allt aðeins
þrjú.
Vörn Víkinga var eins og gatasigti
NBA-körfuboltinn
Áhorfendur fengu helst til lítið fyrir aurana
sína en þau Steffi Graf og Mats Wilander húirfu
á brott með sem svarar tæpum 22 milljónum
íslenskra króna á opna franska meistaramótinu
sem lauk um helgina, Úrslitaleikirnir í einliða-
leik voru ótrúlega ójafnir, Wilander lagði
Henri Leconte 7-5, 6-2, 6-1 á 1 klst. og 52 mín.
og Steffi Graf tók sér 34 mínútur í að vinna
Nataliu Zverevu 6-0, 6-0. „Ég veit að Steffi’
Graf sagðist vera leið yfir því hvað þetta tók
fljótt af en ég er það ekki, ég er himinlifandi,"
sagði Wilander eftir leikinn. - HÁ/Reuter
Ólafsflrðingar fagna fyrsta marki sínu í 1. deild, frá vinstri: Árni Stefánsson,
Steinar Ingimundarson sem skoraði, Gústaf Ómarsson og Hafsteinn
Jakobsson. Tímamynd Örn.
Celtics úr leik
- Lakers og Pistons keppa til úrslita um meistaratitilinn
Steffl Graf.
Mats Wilander.
Detroit Pistons tryggðu sér um
helgina sigur í Austurdeild NBA-
körfuboltans með því að vinna Bost-
on Celtics 95-90 í sjöunda leik lið-
anna. Celtics komast þvf ekki í úrslit
en þar hafa þeir leikið síðastliðin
fjögur ár. Núverandi meistarar, LA
Lakers, unnu aftur á móti sannfær-
andi sigur á Dallas Mavericks, 117-
102, í úrslitaleik Vesturdeildarinnar
og freista þess nú að verja meistara-
titil sinn. Það hefur engu liði tekist
frá árinu 1969 þegar Celtics unnu
það afrek.
Pistons voru komnir með 17 stiga
forskot í fjórða fjórðungi áður en
Celtics minnkuðu muninn í 90-94.
Þar urðu þeir að láta staðar numið
og Pistons bættu við einu stigi fyrir
lok. Larry Bird skoraði aðeins 16
stig og þótti eiga dapran leik. Þá
meiddist Robert Parish á hné og
þurfti að fara útaf strax í fyrsta
fjórðungi. Hjá Pistons var Vinnie
Johnson stigahæstur með 24 stig og
Adrian Dantley gerði 22.
Til slagsmála kom undir lok leiks-
ins þegar Brad Lohaus og Dennis
Rodman flugust á eftir átök um
knöttinn. Þeir lentu í áhorfenda-
stæðunum og veltust um á gólfinu
áður en þeir voru báðir sendir í
sturtu.
Lakers notuðu sem jafnan fyrr
hraðaupphlaup gegn Dallas en gest-
irnir náðu þó að halda í horfinu fram
yfir leikhlé þegar staðan var 54-53. í
þriðja fjórðungi dró sundur og með
15-6 lokakafla var sigur Lakers í
höfn. Mark -Aguirre var stigahæstur
í Dallasliðinu með 24 stig en Earvin
“Magic“ Johnson gerði 24 stig, tók 9
fráköst og átti 11 stoðsendingar í liði
Lakers.
Úrslitaviðureignin hefst í dag og
verður keppt þar til annað liðið
hefur sigraði í fjórum leikjum.
„Það verður gaman að keppa við
Isiah Thomas í Detroit og að koma
heim til Michigan,“ sagði Magic sem
varð háskólameistari með Michigan
State áður en hann gekk til liðs við
Lakers. - HÁ/Reufer
í leiknum. Réttara væri kannski að
segja að hún hafi verið eins og
ekkert sigti því Framarar gengu út
og inn og gerðu bókstaflega það sem
þeim sýndist. Sömu sögu er að segja
um framgöngu leikmanna allsstaðar
á vellinum, yfirburðir Framara voru
algerir og vart hægt að segja annað
en að Víkingar hafi verið kjöldregn-
ir. Reyndar datt leikurinn niður á
köflum og varð lítið fyrir augað en
ekki varð það til þess að Víkingar
næðu neinum tökum á honum og
Framarar settu jafnan í gír á ný og
hófu stórsókn.
Framliðið lék vel í þessum leik,
samvinnan var oft á tíðum mjög
skemmtileg og í fullu samræmi við
stöðu liðsins á toppi 1. deildarinnar.
Guðmundur Steinsson átti sinn besta
leik í langan tíma. Framlínan var í
heild ógnandi og miðjumennirnir
unnu knöttinn af Víkingum hvað
eftir annað. Vörnin kom lítið við
sögu en gerði vel það sem þurfti og
Birkir kom varla við knöttinn. Hjá
Víkingum sá Guðmundur Hreiðars-
son um að bjarga því sem bjargað
varð, aðrir voru í stuttu máli slakir.
Mörk Fram: Guðmundur Steinsson
(18., 47. og 83.)
Gul spjöld: Lárus Guðmundsson Vik-
ingi 40., Ormarr örlygsson Fram 53.
Lidin, Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson, Pét-
ur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn R.
Jónsson, Pétur Amþórsson, Guðmundur
Steinsson, Steinn Guðjónsson (Helgi
Bjarnason 84.), Arnljótur Davíðsson
(Kristján Jónsson 84), Ormarr örlygsson.
Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson,
Andri Marteinsson, Gunnar örn Gunn-
arsson, Einar Einarsson (Atli Helgason
45.), Jón Oddsson, Jóhann Þorvarðarson,
Trausti Ómarsson, Atli Einarsson, Lárus
Guðmundsson, Hlynur Stefánsson, Stef-
án Halldórsson (Þórður Marelsson 45.).
Dómari: Guðmundur Sigurðsson.
- HÁ
VXNÖdo
Vinningstölurnar 4. júní 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.274.166,-
1. vinningur var kr. 2.140.958,-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
2. vinningur var kr. 641.240,-
og skiptist hann á 205 vinningshafa, kr. 3.128,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.491.968,-
og skiptist á 6.016 vinningshafa, sem fá 248 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljonir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111