Tíminn - 07.06.1988, Side 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 7. júní 1988
ÁRNAÐ HEILLA [lllllllllll
BOÐA
RAFGIRÐINGAR
Til afgreiðslu strax
Hvergi betra verð
Flatahrauni 29,
220 Hafnarfjörður
sími 91-651800
BOÐI
Vesturlandskjördæmi
Alexander Stefánsson alþingismaður boðar til
funda til að ræða um þingstörfin, ástand
þjóðmála og stjórnmálaviðhorfið.
Fundir eru ákveðnir á eftirtöldum stöðum:
Lindartungu þriðjudaginn 7. júní.
Akranesi fimmtudaginn 9. júní.
Fundartími og nánari staðsetning verður auglýst í útvarpi og á
viðkomandi stöðum.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarvist
Þriggja kvölda framsóknarvist verður haldin í Iðnaðarmannahúsinu,
Linnetsstíg 3, Hafnarfirði (við hliðina á Sparisjóðnum), kvöldin 2., 9.
og 14. júní kl. 20.30. 36 spil að venju. Góðir vinningar.
Mætum öll i spilaskapinu.
Framsóknarfélögin í Hafnarfírði.
Miðstjórnarfundur SUF
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknar-
manna verður haldinn laugardaginn 11. júní.
Staður og dagskrá nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Sumartími
Breyttur opnunartími á skrifstofu Framsóknar-
flokksins.
Frá og með 1. júní n.k. verður skrifstofa Framsóknar-
flokksins að Nóatúni 21, Fteykjavík opin alla daga frá
kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn
nu
Vorhappdrætti Fram-
sóknarflokksins 1988
Dregið verður í vorhappdrætti Framsóknarflokksins 6. júní n.k. Að
gefnu tilefni er vakin athygli á þeirri nýjung að nú er sendur út einn
gíróseðill.
Þar eru tilgreind númer þeirra miða sem viðtakandi á að greiða. Þeir
sem hafa fengið sendan þennan gíróseðil eru hvattir til að gera skil
hið fyrsta.
Allar frekari upplýsingar veitir skrifstofa flokksins að Nóatúni 21, sími
24480 og sími 21379.
Framsóknarflokkurinn
Jón T rausti Kristjánsson
bifreiðarstjóri, Blönduósi, sextugur.
Fyrsta júní fæddist hann,
fýrinn margra þátta,
tápmikill og traustur mann,
tuttugu og átta.
Kristján okkar Guðbrands gat
góðan dreng það sinni.
Pað er eflaust allra mat
eftir náin kynni.
Sigrún Jóns þann sveininn ól,
sem varð snemma kræfur,
hamhleypa og hörkutól;
hann í lund þó gæfur.
Æsku sinnar árin mörg
undi hann á Mýrum-
-Efri það varð auðna og björg
eflaust, vini hýrum.
Par var engin eymd og kröm
úti á lífsins hjarni.
Reyndust honum rausnarsöm
Ragnhildur og Bjarni
Ævistarfið: ökuför
eftir Húnaþingi
meður póst og mjólkurvör-
ur - maðurínn orkuslyngi.
Hann sér ei til hugartjóns
hraktist einn á vegi.
Starfsöm konan - Stella Jóns -
studdi á nótt sem degi.
Fæddust börn í búið þar,
blómgast náði hagur.
Áfram leið svo ævinnar
annasamur dagur.
Sextugur nú seggurinn
situr meðal vina.
Peim sem komu í þetta sinn
þakkar hann vinsemdina.
Á heiðursdegi heilsar þér
heillavinaflokkur.
Lifðu ennþá lengi hér
lífinu með okkur.
A.B.S. frá Refsstöðum
Hinn 1. júní sl. varð Jón Trausti
Kristjánsson frá Blönduósi sextugur.
Fæddur er hann að Sjávarborg í
Skagafirði. Voru foreldrar hans
Kristján Guðbrandsson og Sigrún
Jónsdóttir. Trausti ólst upp að Efri-
Mýrum í Engihlíðarhreppi frá fimm
ára aldri, hjá hjónunum Bjarna
Óskari Frímannssyni og Ragnhildi
Þórarinsdóttur. Ungur kvæntist
Trausti Önnu Guðbjörgu Jónsdóttur
frá Blönduósi, en hún gengur jafn-
framt undir nafninu Stella. Börn
hafa þau eignast fimm. Eru þau öll
á lífi og uppkomin. Trausti stundaði
lengi akstur mjólkurbíla í Húna-
þingi, en seinni árin dreifði hann
pósti í meginhluta Austur- Húna-
vatnssýslu, þar til hann slasaðist í
bílveltu í september sl. Hefur hann
dvalist á sjúkrahúsi síðan, nú á
endurhæfingardeild Borgarspítal-
ans. Að kvöldi afmælisdagsins hafði
Trausti boð fyrir vini sína og vanda-
menn í sjúkrahúsinu. Þar las sá er
þetta ritar afmælisljóð það, er hér
birtist.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á
afmælis- og eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent
á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir
birtingardag. Þær þurfa að
vera vélritaðar.
MINNING
Erlendur Sigurjónsson
Víðivöllum 2, Selfossi
f. 12. sept. 1911
d. 17. apr. 1988
Góður bróðir, frændi og vinur er
látinn. Við munum sakna þess lengi,
að sjá hann ekki oftar koma akandi
á nýja bílnum sínum, eða því sem
næst nýjum, til að heilsa vorinu hér
norðanlands og okkur skyldfólkinu,
því hvergi fannst honum vorið jafn
bjart og sumarið eins fallegt og hér
og tryggðin við okkur og sitt
æskuheimili einstök.
Hann skrapp líka oft hingað
norður, en stansaði sjaldan lengi í
einu því hann hafði skyldum að
gegna við sitt starf, og það gekk
fyrir, eitthvað gæti bilað í hitaveit-
unni á Selfossi og þá yrði hann að
vera við, slíkur er hugsunarháttur
góðra starfsmanna.
Erlendur var fæddur á Tindum í
Svínavatnshreppi A-Hún. 12. sept.
1911. Foreldrar hans voru Sigurjón
Þorláksson bóndi á Tindum og kona
hans Guðrún Erlendsdóttir, hún átti
ætt sína að rekja í Kjósina, því
Eysteinn afi hennar var frá Flekku-
dal í Kjós en móðurættin var frá
Hindisvík á Vatnsnesi. Sigurjón var
í sína móðurætt af hinni svokölluðu
Skeggstaðaætt en faðir hans Skag-
firðingur, rek ég það ekki nánar
enda yrði það of langt mál í smá-
grein. Foreldrar Erlendar eignuðust
7 börn og var hann næst elstur í þeim
hóp, og er nú þriðja systkinið, sem
kveður þennan heim, því tvær næst
yngstu systurnar létust langt um
aldur fram.
Erlendur var mjög barngóður og
hlýr í viðmóti og nutum við þess
yngri systkinin, og reyndar öll börn,
hans eigin og annarra, sem liann
kynntist. Eins og flestir unglingar á
þeim árum vann hann heima að búi
foreldra sinna fram um tvítugsaldur.
Þá fór hann í Bændaskólann á Hól-
um og nam þar í tvo vetur. Þá réðu
þar húsum og skólastjórn merkis-
hjónin Steingrímur Steinþórsson og
frú Theódóra, sem hann mat ætíð
mikils.
Þetta var Erlendi góður tími og
hefir hann á þeim árum ætlað sér að
verða bóndi. Þá var líka fátt um
atvinnumöguleika fyrir ungt fók og
kreppan og fátæktin allsráðandi, og
því um fátt að velja annað en
búskap. En þá kom annað til sög-
unnar, sem varð til þess að hann
flutti burtu, hann veiktist mjög hast-
arlega upp úr mislingasótt sem hér
gekk yfir, og eftir það þoldi hann
ekki í hey að koma að vetrinum og
þar með var draumurinn búinn um
bóndastarfið. Eftir þetta fluttist
hann til Suðurlands og settist að á
Selfossi, fyrst sem bílstjóri vann
hann hjá Kaupfélagi Árnesinga, og
síðar verkstjóri við Hitaveitu Selfoss
og sá mikið um uppbyggingu þess
fyrirtækis. Þar vann hann svo til 70
ára aldurs. Á Selfossi hitti Erlendur
konuefni sitt Helgu Gísladóttur frá
Stóru Reykjum í Hraungerðis-
hreppi. Þau giftu sig 16. júní 1940.
Helga var mikil myndarkona, sem
gekk með reisn allan sinn æviveg, en
hún lést 25. febrúar 1987 eða fyrir
rúmlega ári síðan. Þetta síðasta ár
var Erlendi erfitt, það þjakaði hann
bæði sorg og heilsuleysi, og nú síðan
um áramótin hefir hann mest verið
undir læknishendi og á sjúkrahúsum,
og þar lést hann 17. apríl. Hann gat
ekki lifað án Helgu, og ég vona að
hún hafi átt von á gesti og beðið í
varpanum.
Þau Erlendur og Helga eignuðust
3 drengi, elstur er Gísli tækni-
fræðingur að mennt, kvæntur Jónínu
Hjartardóttur. Þá Sigurður Jóhann-
es húsasmiður kvæntur Auðbjörgu
Einarsdóttur. Yngstur var Rögn-
valdur, en hann lést um fimm ára
aldur. Auk þess átti Erlendur dóttur
áður en hann giftist Helgu, hún er
Erla húsmóðir á Böðmóðsstöðum í
Laugardal gift Árna Guðmundssyni
og búa þau þar. Móðir Erlu var
Guðrún Sigfúsdóttir frá Gröf á
Höfðaströnd, mikil myndarkona,
hún er látin.
Erlendur og Helga byggðu sér
stórt og fallegt íbúðarhús og fluttu í
það 1957. það er Víðivellir 2 á
Selfossi. Þar bjuggu þau þar til yfir
lauk. Áður höfðu þau komið sér upp
bráðabirgðahúsnæði austur við
dælustöð hitaveitunnar að Laugar-
dælum, og voru þar, þangað til þau
fluttu í nýja húsið. Þau voru mjög
samhent hjón, og voru alltaf saman
í starfi og ferðalögum, ævinlega kom
Helga með honum hingað norður.
Þau áttu alltaf góðan bíl, helst nýjan
og voru fljót í ferðum, en þegar
heim skyldi halda var vaknað
snemma og hvort heldur að hann
vildi leggja af stað kl. 5 eða 7 að
morgni, var Helga alltaf tilbúin að
fylgja honum. Þökk sé henni. Ég hef
þessi orð ekki fleiri, en vil að síðustu
þakka öllum þeim sem réttu honum
hlýja hönd þetta síðasta ár. Þökk sé
Rósönnu og Kristjáni, eins nágrönn-
um hans Jóni Guðbrandssyni dýra-
lækni og frú Þórunni fyrir frábæra
hlýju og vinsemd. Hann sótti til
þeirra traust.
Það er margs að minnast að leiðar-
lokum og við hér fyrir norðan kveðj-
um kæran bróður, frænda og vin, og
þökkum samfylgdina á liðnum árum.
Öllum hans aðstandendum vottum
við innilega samúð. Erlendur minn,
eilífðin ein fær að þakka þér fyrir
tryggðina við okkur. Það fylgdi þér
friður og traust.
Við óskum þér fararheilla.
Kristín og fjölskylda
Tindum.