Tíminn - 07.06.1988, Qupperneq 15
Þriðjudagur 7. júní 1988
Tíminn 15
Séra
Þórarinn Þórarinsson
skólastjóri í Skúlagarði
Frá Krossdal að Staðarfelli og heim
í Skúlagarð
Hin dýpsta reynsla manneskjunn-
ar er kannski sú að ná sáttum við
sjálfa sig hvað varðar það sem
óvæntast ber að og réttleysi sitt til
íhlutunar ellegar gagnrýna það sem
við bar. Jafnvel hin dulræðu vötn
sem menn skuli leiddir til „og grænar
grundir þar sem næðis verði notið“
frá þeim táradal sem henta þótti
lengi að tala um og vitna til í
lokaorðum óvissunnar. Háski breið-
götunnar og krossferð hinna þröngu
einstiga eru ætíð jafn óskýranleg
þegar til koma í lærdómi eða
reynslu, og bá helst fyrir að verða
aftur barn. Á hverju vori breiðir þó
eyrarrósin sig um öræfi og auðn. Það
gæti fávís maður og veikburða gagn-
vart fuliyrðingu lærdómsmanna tek-
ið sem einskonar: Af jörðu skaltu
aftur upp rísa.
Séra Þórarinn Þórarinsson skóla-
stjóri í Skúlagarði í Kelduhverfi var
fæddur í Krossdal 14. júní 1932 en
lést 17. mars síðastliðinn einn á ferð
heim til sín frá Húsavík þar sem
hann hafði átt erindi en var örendur
við bíl sinn á Tjörnesvegi í skugga-
legu veðri og færð þar sem granni
hans kom að. Hann var ekki orðinn
56 ára.
Foreldrar Þórarins voru þau
manndómshjón Ingveldur Guðný
Þórarinsdóttir bónda Sveinssonar í
Kílakoti sem hafði skáldgáfu slíka
að menn söknuðu Ijóðanna sem
hann ekki orti þó nytu hinna, og
Þórarinn Jóhannesson bóndi
Krossdal minnisstæður harðdugleg-
ur gæslumaður landgræðslunnar,
umhyggjusamur öllu sem lifa mátti
og vissi ég mikið ástríki með þeirri
fjölskyldu, en hann lést fyrir all-
mörgum árum. Kona hans Guðný
lifir í hárri elli í Krossdal með
tiginmennskuyfirbragði en harm
sinn í hljóði þar sem hún leikur
sorgarlög á stofuorgelið sitt. Þetta
fólk á til að telja margt þjóðfrægt
fólk hvort heldur er til að nefna í
forystuliði heimahéraðs ellegar í
efsta trúnaði sem mönnum veitist
slíkum sem var Þórarinn Björnsson
skólameistari á Akureyri. Fimm
voru þau systkinin í Krossdal: Jó-
hannes nú á Húsavík, Sigríður einn-
ig á Húsavík, Ingveldur Vilborg í
Reykjavík. Þá Þórarinn í Skúlagarði
og Sveinn bóndi í Krossdal þeirra
yngstur.
Séra Þórarinn skólastjóri var
snemma atgervismaður sem athygli
vakti og nokkra ókyrrð í lofti
og svo var það ætíð. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1952 og guðfræðingur frá
Háskóla íslands 1960 og vígður
prestur til Þóroddsstaðarprestakalls
í Suður Þingeyjarsýslu 1961. Það
voru miklir breytingatímar sem
komu í hlut Þórarins því prestsetrið
var flutt frá Vatnsenda við Ljósavatn
með ráðuneytisbréfi 1962 í Landnám
ríkisins sunnan og vestan í Kinnar-
felli þar sem þegar var hafist handa
að byggja nýtt prestseturshús. Þá
hitti ég fyrst þennan unga og gjörvu-
lega mann ganga að verki og við
urðum nágrannar og samverkamenn
og einnig innan kirkjunnar. Og varð
hlutur hans ekki aðeins að standa að
byggingu þessari heldur líka að velja
því nafnið Staðarfell. Annars var
Þórarinn mikill merkismaður að því
slepptu hversu honum var eðlisgróin
umhyggja fyrir jörð og búskap og
lengst af átti hann nokkrar afurða-
samar skepnur að annast og fáum
hef ég kynnst sem gengu vasklegar
að verki hvort heldur var að afla
birgða til vetrarins ellegar nýta þær á
vorin þegar það virkilega lífsins land
ljómaði við okkur, enda veit ég ekki
betur en slíkum mönnum væri eitt
sinn fengið til umönnunar annað og
máske æðra hirðisstarf ef rétt er frá
hermt. Þó það yrði máske þeirra mat
hvar og hvernig slíkt verksvið mætti
velja sér eða inna af hendi í lýðræð-
islandi. Þess vegna líka virðast vígðir
menn hafa hver sinn háttinn á í
vissum formsatriðum, sem dæmi má
taka þegar ungir prestar falla bljúgir
á kné við altarið þegar hefja örlög
þunga kveðjustund má vera frjálst
þó hentaði ekki séra Þórarni á
Staðarfelli eða séra Hermanni á
Skútustöðum.
Það var aldrei til langframa að
Þórarinn rækti sitt kennimannsstarf
frá Staðarfelli þar sem hann hafði
með elju hafið staðinn til vegs,
hellulagt tröðina með eigin hendi og
hlaðið af brekkuhallann við bæinn,
sem væntanlegur manndómsprestur
ætti að duga til að endurbæta eftir
svo langan tíma liðinn. Héðan blasir
við auga öll sú náttúrusmíð sem
hverjum er best að sjá sjálfur. Á
krossgötum þar sem fjórir dalir mæt-
ast í punkti þeir sem Jón í Ystafelli
hafði svo skemmtilega haft orð um,
þar sem höfuðbólið Ljósavatn hillir
fram með fjallsbrekkunni en Ljósa-
vatnsskarðið beinir leið til sístreym-
andi umferðar framhjá Stórutjarna-
skólanum þar sem einnig hirðisstarf-
ið er rækt. Það er ekki fjarri eitt-
hundrað kílómetra leið ríki Staðar-
fellsprestakalls frá nyrsta bæ Björg-
um í Köldu-Kinn að syðsta bæ
Svartárkoti í Bárðardal með þremur
sóknarkirkjum á Þóroddsstað,
Ljósavatni og Lundarbrekku allir
sögufrægir staðir, með hartnær
fimmhundruð íbúum þeirra tveggja
hreppa ásamt Stórutjarnaskólanum
sem einnig er rekinn þar vetrarlangt.
Það er umhugsunarefni sá teksti
ýmsra manna í dag að vilja flytja
þessa samstæðu mannabyggð í anda
en varla í sannleika undir nágranna
prestakall, flytja þeir varla þó sögu-
frægð Goðafoss ellegar Ljósavatns
þar sem rísa mun kirkja þess óvið-
jafnanlega atburðar þegar baráttan
var unnin án blóðsúthellingar og
stríð unnið án vopnavalds. Þó séra
Þórarinn standi ekki til að verja
hvílíka náttúru og sögugerð þar sem
hann handfesti eitt sinn bæ sinn
munu aðrir finna sig skylda til þess
og telja sér „byggðamál" og nokkurt
réttlætismál.
Enn eitt um þennan mann. Þegar
hann hóf sitt háskólanám og mátti
velja um kosti með námsgáfur sínar
þá valdi hann sér lögfræði sem
fræðigrein sem opna mætti braut til
dómgæslu og dómsvalds í embætti,
en hann hvarf brátt til guðfræðideild-
ar í námi sem honum virtist opna
leið til áhrifaríkari kennimennsku
og mannúðar í starfi. Séra Þórarni
hafði sín fyrstu ár að Staðarfelli
opnast ný svið til fullnægingar þegar
hann ástundaði kennslu. Fór strax
mikið orð af hans yfirburða hæfileik-
um að Laugum í Reykjadal þar sem
hann var kennari í nokkra vetur og
reyndar einnig í næstu grennd við
sitt heimili í sveitinni, og mætti
mörgum sýnast ekki fjarri þegar
Stórutjarnaskóli var að vaxa úr jörð
um sama leyti að einmitt þar mætti
slíkur maður verða að bestu liði. Af
nokkurri skyndingu hvarf séra Þór-
arinn frá prestskap, fluttist til átt-
haga sinna, gerðist skólastjóri í
Skúlagarði í Kelduhverfi þar sem
nýlega hafði risið félagsheimili og
barnaskóli og varð þar hans fasta
starf næstu nálægt tuttugu ár eða þar
til yfir lauk.
Víða má hitta fólk sem elur með
sér söknuð og persónulegar
minningar um þennan mann er hann
hafði flutt sig til í starfi, en aldrei sló
fölva á þá sérstöku manngerð sem
Þórarinn bauð ætíð til félags við, -
sem var hann sjálfur. Nærfærni hans
við börn og unglinga var viðbrugðið,
einnig var hann manni sem nákom-
inn vinur í boðun fagnaðarerindisins
þar sem hann mælti orðið af munni
fram án tónbrigða eða söngs, og
mátti stundum kenna þar löngu
horfinn fyrirrennara í þessu starfi og
þessu prestakalli hinn þjóðkunna sr.
Hermann Hjartarson sem var einnig
áhrifaríkur skólamaður, leiðtogi og
kennari. Persónutöfrarslíkra manna
valda áhrifum umfram þeirra samda
texta, sem gjarnan tapar ljóma sín-
um ef aðrir færu með hann. Þeir
voru hófsamir líka í notkun á nafn-
festi guðdómsins sem þeim var falinn
til boðunar og varðveislu. Mér finnst
sem trú þeirra sé trúnaðarmál hjart-
ans og hleypidómalaus nærfærni við
verkefnið í samfylgd skynseminnar
sem varla er í valdi manns að
skilgreina. Víst var hann óspar á sér
og sinni lífsorku, og ekki heldur
smátækur í gleðimálum meðan eldur
brann í æðum og sól hátt á lofti. En
það kom að afborgunartímanum
þegar heilsu gat orðið ofboðið en
aldrei féll honum undanhaldið í
skaut. Litla áin niðaði honum við
eyra með hóglátum söng sínum
heima í Krossdal og hann mat hag-
fræðilega hið tæra lífsins vatn frá
djúpi jarðarinnar hlýtt eða svalt,
sem atvinnuauka og byggðafestu
gegn öfgafullri lausung í búgreinatil-
brigðum. Eigi að víkja er viðgangs-
þörf margra manna. Eggert Ólafsson
sigldi frá kaldri Skor þó varaður væri
við og brotsjóir féllu um skipið.
Þórarinn Þórarinsson mátti ekki
verða sem svipur hjá sjón, rétt
búinn að byggja með konu sinni
vandaða heimilisumgerð. „Ég kvíði
ekki löngum vinnudegi fólks miklu
fremur óttast ég um nýtingu þess á
frítíma sínum“ sagði Þórarinn.
Þórarinn hafði verið í trúnaðar-
starfi fyrir Garðakirkjusöfnuði hin
síðari ár þar sem eitthundrað bílar
þjöppuðu sér um kirkjuna 26. mars
þegar hans var minnst af svo mörg-
um að leiðarlokum.
Sr. Þórarinn var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Guðrún Þórðardóttir
Eyjólfssonar hæstaréttardómara at-
gerviskona með kennaramenntun
og kennslu að lífsstarfi en þau slitu
samvistum. Áttu þau þrjú börn:
Guðnýju, Halldóru og Þórð öll enn
í skólum í Reykjavík og sækja til
hærri lærdóms. Seinni kona Þórarins
var Rósa Jónsdóttir Jónssonar í
Fremstafelli, áttu þau tvö börn,Þór-
arin og Ragnhildi en Rósa einnig son
sinn Jón Arnar og þreyta þau einnig
öll próf við skóla á Akureyri þessa
líðandi vordaga. Mikil og þakkar-
verð eindrægni hefir verið með þess-
um sex nær fullorðnu systkinum sem
öll eru ennþá í ströngu námi og
prófum enda mun ekki af veita slíkt
högg sem lögmálið hefur þeim
greitt, mun Rósa hafa verið þeirra
staðfasti tengiliður sem mörgum
vakti athygli.
Hvað sem kenna má gömlum afa
og ömmu, ungum börnum og móður
þeirra, um líknsemi hins almáttuga,
mildi hans og góða forsjá, en á hinn
bóginn tilgátur fræðimanna í fjöl-
miðlum þessa litríku vordaga um
árangurslitla boðun fagnaðarerindis-
ins um tvöþúsund ár, þá bið ég
látnum og lifandi guðs blessunar í
trú og von og í þeim kærleika sem
njóta má saman og mest er um vert.
20. maí 1988
Jón Jónsson
Fremstafelli
VELAR 0G ÞJONUSTA HF. - Velaborg
JARNHALSI 2
-SIMI 83266-686655
Drattarvélar
Sannarlega
peninganna virði.
BILALEIGA
meö utibú allt í kringum
landiö, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?1
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Frá Samstarfs- og sam-
einingarnefnd Dalasýslu
Kosning um sameiningu sveitarfélaga í Dalasýslu
í eitt sveitarfélag fer fram laugardaginn 25. júní
1988.
Kjörskrár liggja frammi.
Utankjörfundaratkvæðagreiösla fer fram sem hér
segir hjá:
Sýslumanni Dalasýslu, hreppstjórum í Dalasýslu
og á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga
að Háaleitisbraut 6, Reykjavík.
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lytsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferðinni?
tfæ™"
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða. Fast verð. Afsláttur
ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224.
t
Móðir okkar
Jóna Kristín Jónsdóttir
fyrrum húsfreyja Jaðri Hrunamannahreppi
andaðist á Droplaugarstöðum föstudaginn 3. júní.
Börn hinnar látnu
t
Bróðir okkar
Jón Emil Guðjónsson
fyrrverandl framkvæmdastjóri Ríkisútgáfu námsbóka
Eskihlið 6
lést í Landakotsspítala sunnudaginn 5. júní
Herdís Guðjónsdóttir
Unnur Guðjónsdóttir
Svava Guðjónsdóttir