Tíminn - 07.06.1988, Page 16
'16 Tíminn: Þriðjudagur 7. júní 1988
llilllllllllllllllllllllllll DAGBÓK llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll
Áttræð er í dag Málfríður Jónsdóttir
fyrrum húsmóðir að Höfða í Eyjahreppi.
Hún tekur á móti gestum i dag milli kl.
16.00-18.00 í Vetrarbrautinni (Þórs-
kaffi), firautarholti 20, 3.h.
Félag eldri borgara
Opið hús Goðheimum Sigtúni 3.
Þriðjudag kl. 14.00 félagsvist og kl. 17.00
söngæfing.
Sumarbúðir í Skálholti
Dagana 2.-7. ágúst, verða haldin
sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum
8-12 ára með sama sniði og tvö undanfar-
in sumur. Áhersla verður lögð á tónlist og
myndmennt ásamt leikjum og útiveru.
(lok hvors námskeiðs munu börnin sjá
um söng við messu í Skálholtskirkju og
haldin er sýning fyrir foreldra og aðstand-
endur á því sem börnin hafa unnið.
Stjórnendur námskeiðsins verða Áslaug
B. Ólafsdóttir tónmenntakennari og
Hjördís I. Ólafsdóttir myndmenntakenn-
ari. Upplýsingarísíma 656122og 13245.
Hallgrímskirkja. Starf aldraðra
Næstkomandi fimmtudag 9. júní er
fyrirhuguð ferð í Galtalækjarskóg. Kom-
ið verður við á Hellu, ekið að Tröllkonu-
hlaupi og á hcimlciö verður skoðuð
kirkjan á Skarði í Landssveit.
Nánari uppl. gefur Dómhildur Jóns-
dóttir í síma 39965.
Kristinn Reyr
SEXTÁN SÖNGVAR
Útsetning; Eyjjór Þorláksson
Sextán söngvar
Út er komin bók með sextán sönglög-
um eftir Kristin Reyr, í útsetningu Eyþórs
Þorlákssonar.
Þetta er áttunda bók Kristins og sú
fyrsta sem unnin er með tölvutækni.
Á myndinni sést einn nemanda taka við prófskirteini sínu.
Tónskóla Sigursveins slitið
Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar
var slitið í 24. sinn 18. maí s.l. ( ræðu
skólastjóra kom fram að skólinn er full-
skipaður og biðlistar hafa myndast af
nemendum sem óska eftir að hefja nám í
haust.
Á þessu vori brautskráðust 6 nemendur
frá skólanum. Einn nemandi lauk fullnað-
arprófi og fimm nemendur kennaraprófi.
Um er að ræða tímamót í sögu skólans,
þar sem á þessu vori útskrifuðust kennar-
ar í fyrsta sinn.
Skólastjóri Tónskóla Sigursveins er
Sigursveinn Magnússon og yfirkennari
Guðrún Guðmundsdóttir.
Gualy Berryman sýnir í Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna
Fimmtudaginn 2. júní s.l. opnaði Gualy
Berryman málverkasýningu í Menningar-
stofnun Bandaríkjanna að Neshaga 16 á
verkum sínum.
Flestar myndanna eru af íslenskum
mótívum og unnar á síðustu árum hér-
lendis, en frú Berryman ergift sendierind-
reka í bandarfska sendiráðinu í Reykja-
vík, og hafa þau búið hér í eitt ár.
Sýningin er opin á virkum dögum frá
kl.08.30-20.00. Um helgar 13.30-20.00.
Sýningin er öllum opin.
Kynning á verkum Samúels
Jóhannssonar á Akureyri
Listkynning MENOR og Alþýðubank-
ans á Akureyri kynna myndlistarmanninn
Samúel Jóhannsson. Samúel hefur haldið
4 einkasýningar, þrjár á Akureyri og eina
í Reykjavík. Hann hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum, á Akureyri,
Húsavík og í Reykjavík.
Á listkynningunni eru 12 verk, og eru
þau öll unnin á árunum 1987 og 1988.
Kynningin er í Alþýðubankanum á Akur-
eyri, og lýkur henni þann 1. júlí.
Út er komið 19. JÚNÍ, ársrit Kvenrétt-
indafélags íslands. Ritið flytur að venju
vandað efni um baráttumál kvenna, og að
þessu sinni er megináhersla lögð á dag-
vistunarmálin. Litið er á hvernig búið er
að börnunum í samfélagi þar sem foreldr-
ar vinna í auknum mæli báðir utan
heimilis.
„Hvar eiga börnin að vera?" er spurt í
grein sem fjallar um þá kosti sem foreldr-
um gefast til að fá gæslu fyrir börn sín,
þegar bæði starfa utan heimilis, og sveit-
arfélögin bjóða börnum þeirra aðeins
leikskóla þegar best lætur. Bent er á
nýstárlega lausn sem felst í því aö hafa
börn í gæslu hjá dagömmu og afa, kost er
hentað gæti vel eldra fólki sem hefur
nægan tíma og orku aflögu.
Þá er fjallað um þróun dagvistarmála í
Reykjavík allt til ársloka 1987. „Dagur í
dagmömmuskóla" nefnist grein sem einn-
ig lýsir kjörum dagmæðra og eftirliti með
starfsemi þeirra. Nokkur börn segja frá
reynslu sinni af ýmsum tegundum dagvist-
ar auk þess sem litið er á veröld leikfang-
anna, þar sem stúlkum og drengjum er
beint í tvo gjörólíka heima.
Hverjir bera ábyrgð á börnunum, fjöl-
skyldan eða samfélagið? Þessu svara
konur og karlar úr stjórnmálalífinu. Auk
þess eru í blaðinu viðtöl og greinar sem
tengjast þessu meginefni á margvíslegan
hátt.
Stórskemmtilegt viðtal er við Jóhönnu
Sigurðardóttur ráðherra jafnréttismála
þar sem hún talar hreinskilnislega um
„strákana" í ríkisstjórninni, um að bíta
frá sér eða dröslast með, um kvennabylt-
ingu og margt fleira.
Af öðru efni má nefna merka umfjöllun
um karla og nýfæddan áhuga þeirra á
fegurðarsamkeppni, tískufatnaði, snyrti-
vörum og fleiru af þeim toga. Er hér ef til
vill kominn árangur 80 ára jafnréttisbar-
áttu?
19.JÚNÍ er að venju hið vandaðasta að
frágangi. Þórhildur Jónsdóttir annaðist
útlit, en myndir tók Rut Hallgrímsdóttir.
Ritstjóri er Jónína Margrét Guðnadóttir.
Blaðinu verður dreift um allt land, en
fæst auk þess í áskrift hjá skrifstofu KRFÍ
að Túngötu 14, sími 18156.
wár éi§a börnin að vera?
, tfagvistunarmálin frá ýmsum hliöum
Verölcf iélkfanganna
Dagur i daöiiiÖmmuskóJa
ÚTVARP/SJÓNVARP
Rás I
FM 92,4/93,5
Þriðjudagur
7. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Ámi Pálsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Má Magnússyni. Frétta-
yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
verðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu
fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund bamanna: „Stúart lrtli“ eftir
Elwin B. White. Anna Snorradóttir lýkur lestri
þýðingar sinnar (12). (Einnig útvarpað um
kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Bjöms-
dóttir.
9.30 Landpóstur - Frá Vestfjörðum. Umsjón:
Finnbogi Hermannsson. (Einnig útvarpað um
kvöldið kl. 21.00).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tfð. Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Álfhildur Hallgríms-
dóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar himnarikis“ eftir
A.J. Cronin. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Rnn-
borg örnólfsdóttir les (16).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli Árnason.
(Endurtekinn þáttur frá miðvikudagskvöldi).
15.00 Fréttir.
15.03 Af drekaslóðum. Úr Austurlandsfjórðungi.
Umsjón: Ingibjörg Hallgrímsdóttir og Kristín
Karlsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá laugardags-
kvöldi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Umsjón: Vemharður Linnet
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03Tónlist eftir Ludwig van Beethoven. a.
Sinfónía nr. 6 í F-dúr op. 68, „Pastoral-sinfóní-
an“. Fílharmoníusveit Berlínar leikur; Herbert
von Karajan stjórnar. b. Fantasía í G-dúrop. 80
fyrir píanó, kór og hljómsveit. Daniel Barenboim
leikur á píanó, John Alldis kórinn syngur með
Nýju fílharmoníusveitinni í Lundúnum; Otto
Klemperer stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið. Umsjón: Jón Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.35 Líf og veður. Dr. Þór Jakobsson flytur fyrsta
erindi sitt af þremur.
20.00 Kvöldstund barnanna: „Stúart litli“ eftir
Elwin B. White. Anna Snorradóttir lýkur lestri
þýðingar sinnar (12). (Endurtekinn lestur frá
morgni).
20.15 Barokktónlist. a. Sinfónía nr. 2 í D-dúr eftir
Carl Philipp Emanuel Bach. The English Conc-
ert sveitin leikur; Trevor Pinnock stjórnar. b.
Sónata í F-dúr op. 2 nr. 1 eftir Benedetto
Marcello. Michala Petri leikur á blokkflautu og
George Malcolm á sembal. c. Konsert nr. 1 í
B-dúr HWV 312 eftir Georg Friedrich Hándel.
The English Concert sveitin leikur; Trevor
Pinnock stjórnar. d. Sónata í e-moll nr. 4 eftir
Jean Marie Leclair. Barthold Kuijken leikur á
þverflautu, Wieland Kuijken á víólu da gamba
og Robert Kohnen á sembal.
21.00 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson. (Endurtekinn
þáttur frá morgni).
21.30 Útvarpssagan: „Sonurlnn“ eftir Sigbjörn
Hölmebakk. Sigurður Gunnarsson þýddi. Jón
Júlíusson lýkur lestrinum (19).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Gestaspjall - Fjallið sem skipti litum og
aðrar ummyndanir. Þáttur í umsjá Árna Ibsen.
(Áður útvarpað 17. janúar sl.)
23.20 Tónlist á síðkvöldi. a. Píanókvintett eftir
Dmitri Sjostakovitsj. Vladimir Ashkenazy leikur
á píanóásamt Fitzwilliam-strengjakvartettinum.
b. „Pastorale" Igor Stravinsky. Gidon Kremer
leikur á fiðlu, Gúnter Passin á óbó, Gerhard
Stemnik á enskt horn, Karl Leister á klarínettu
og Henning Trog á fagott.
24.00 Fréttir.
Nœturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.00.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfiriiti kl. 8.30.
9.03 Viðbit. Þrastar Emilssonar. (Frá Akureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa Kristínar Bjargar Þor-
steinsdóttur.
12.00 Fréttayfiriit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. - Rósa Guðný Þórsdóttir.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
18.00 Sumarsveifla. með Gunnari Salvarssyni.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Bláar nótur. Valgeir Skagflörð kynnir djass
og blús.
23.00 Af fingrum fram.
00.10 Vökudraumar.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekin syrpa Magnúsar Einarssonar
frá föstudegi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar
fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
SJÖNVARPIÐ
Þriðjudagur
7. júní
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Bangsi besta skinn 21. þáttur (The Adven-
tures of Teddy Ruxpin) Breskur teiknimynda-
flokkur um Bangsa og vini hans. Leikraddir: örn
Árnason. Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
19.25 Poppkorn. Endursýndur þáttur frá 3. júní.
Umsjón: Steingrímur Ólafsson. Samsetning:
Ásgrímur Sverrisson.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður
20.35 Listahátíð 1988 Kynning á atburðum hátíð-
arinnar.
20.55 Keltar (The Celts) - Fjórði þáttur: Með
léttri sveiflu. Breskur heimildamyndaflokkur í
sex þáttum. Þýðandi og þulur Þorsteinn Helga-
son.
21.55 Taggart (Taggart - Murder in Season) -
Þriðji þáttur - Skoskur myndaflokkur í þremur
þáttum. Aðalhlutverk Mark McManus og Neil
Duncan. Þýðandi Gauti Kristmannsson.
22.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Þriðjudagur
7. júní
16.25 Bestu vinir. Best Friends. Gamanmynd um
sambýlisfólk sem stofnar sambandi sínu í voða
með því að gifta sig. Aðalhlutverk: Goldie Hawn
og Burt Reynolds. Leikstjóri: Norman Jewison.
Framleiðandi: Joe Wizan. Þýðandi: Ástráður
Haraldsson. Wamer 1982. Sýningartími 105
mín.
18.10 Denni dæmalausi. Teiknimynd. Þýðandi:
Eiríkur Brynjólfsson.
18.30 Panorama. Fréttaskýringarþáttur frá BBC í
umsjón Þóris Guðmundssonar.________________
19.1919:19. Klukkustundar langur þáttur með
fréttum og fréttaumfjöllun.___________________
20.15 Aftur til Gulleyjar Return toTreasure Island.
Lokaþáttur. Aðalhlutverk: Brian Blessed og
Christopher Guard. Leikstjóri: Piers Haggard.
Framleiðandi: Alan Clayton. Þýðandi: Eiríkur
Brynjólfsson. HTV.
21.05 íþróttir á þriðjudegi. íþróttaþáttur með
blönduðu efni. Umsjónarmaður Heimir
Karlsson.
22.05 Kona í karlaveldi. She's the Sheriff. Eftir lát
eiginmannsins sem var lögreglustjóri er Hildy
valin sem eftirmaður hans. Hún er vön að halda
heimili en nú bætist fullt starf þar við. En Hildy
er ákveðin í því að verða góður lögreglustjóri.
Þó hún sé vel gefin og dugleg veitir henni ekki
af aðstoð og tilsögn, nýbyrjuð í starfi - en því
miður bólar lítið á hjálpseminni á lögreglustöð-
inni. Þess í stað þarf hún að kljást við „karl-
rembusvín" sem leynast jú áflestum vinnustöð-
um! Gamanmyndaflokkur um húsmóður sem
gerist lögreglustjóri. Aðalhlutverk: Suzanne
Somers. Þýðandi: Davíð Þór Jónsson. Lorimar.
22.30 Þorparar. Minder. Spennumyndaflokkur um
lífvörð sem á oft erfitt með að halda sér réttu
megin við lögin. Aðalhlutverk: Dennis Water-
man, George Cole og Glynn Edwards. Þýðandi:
Björgvin Þórisson. Thames Television.
23.20 Saga á síðkvöldi ArmchairThrillers. Morðin
í Chelsea The Chelsea Murders. Síðasti hluti.
Aðalhlutverk: Dave King, Anthony Carrick og
Christopher Bramwell. Leikstjóri: Derek
Bennett. Framleiðandi: Joan Rodker. Þýðandi:
Ágústa Axelsdóttir. Thames Television.
23.45 Formaður. Chairman. Kínverjar hafa þróað
með sér athyglisverðar upplýsingar um ensím
sem þeir vilja halda vandlega leyndum. Banda-
rískur líffræðingur leggur líf sitt í mikla hættu
þegar hann er sendur til Kína til þess að komast
að leyndarmálinu. Aðalhlutverk: Gregory Peck
og Ann Heywood. Leikstjóri: J. Lee Thompson.
Framleiðandi: Mort Abrahams. 20th Century
Fox 1983. Sýningartími 100 mín.
01.25 Dagskrárlok.