Tíminn - 07.06.1988, Page 20
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Ökeypis þjónusta
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
® 28822
HRESSA. _ ____
KÆTA I lílllillll
Síðustu skilaboð stjórnar HP til blaðamanna eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum:
Mega mæta og gefa út
HP ef þeir nenna því
f gær slitnaði upp úr samninga-
viðræðum stjórnar Helgarpósts-
ins, Goðgá, og starfsmanna
blaðsins, eftir að reynt hafði verið
að komast að samkomulagi frá
því snemma um morguninn.
Stjórnin, sem skipuð er þeim
Róbert Árna Hreiðarssyni, for-
manni, Sigurði Ragnarssyni og
Birgi Hermannssyni, lagði fram
tilboð klukkan 9 í gærmorgun um
að helmingur launa starfsmanna
yrði greiddur út samdægurs og
helmingurinn á föstudag. Starfs-
fólkið tók ekki illa í þetta tilboð,
en málið fór hins vegar að vandast
þegar ræða átti greiðslur til þeirra
sem áttu inni laun frá því í
maímánuði, en þeir eru fjórir
alls. Reyndu blaðamenn að semja
um helming maí og júní launanna
í gær og helminginn á föstudag,
en því neitaði stjórnin og sagði að
slíkt kæmi ekki til greina. Blaða-
menn teygðu sig því sem mest
þeir máttu og sögðust geta sam-
þykkt helming launa júnímánað-
ar í gær og helminginn á föstudag
og síðan yrðu maílaunin greidd
um næstu mánaðamót. Þetta
féllst stjórnin á og virtist sam-
komulag því vera í höfn.
Blaðamenn skrifuðu því upp
samning í fjórum liðum. Fjórði
liðurinn hljóðaði upp á að ef ekki
yrði staðið við samninginn, þá
yrði litið á það sem samningsbrot
og blaðamenn tækju það sem
einhliða uppsögn blaðamanna og
þeir myndu áskilja sér rétt til
útgöngu. Þetta neitaði stjórnin
að skrifa undir, en sagðist geta
sætt sig við að samþykkja þetta
munnlega, alls ekki skriflega.
Blaðamenn vildu ekki við það
una, enda fannst þeim liggja í
loftinu að stjórnin ætlaði sér ekki
að standa við samkomulagið,
fyrst þeir vildu ekki hafa það
skriflegt. Funduðu blaðamenn
því aftur.
Inn á þann fund komu síðan
hin margvíslegustu skilaboð frá
stjórn blaðsins, eins og að ef þeir
skrifuðu ekki undir samninginn,
mínus fjórði liður, innan tíu mín-
útna, gætu þeir gleymt þessu og
farið í hund og kött.
Hvorugur aðila vildi hins vegar
gefa eftir og voru síðustu skilaboð
stjórnar blaðsins til blaðamanna
að þeir mættu mæta ef þeir vildu
vinna og gefa út HP ef þeir
nenntu og síðan yrði peningum
mjatlað í þá annað veifið. Ef þeir
vildu fá sín full laun, þá gætu þeir
bara beðið eftir að blaðið yrði
tekið til gjaldþrotaskipta og
fengju þá launin sín úr þrotabú-
inu.
Blaðamenn sendu síðan skeyti
til framkvæmdastjóra blaðsins,
Valdimars Jóhannessonar,
klukkan 18 í gær, þar sem sagði
að þeir litu á það sem staðfestingu
á einhliða uppsögn þeirra ef
stjórnin léti ekki í sér heyra fyrir
klukkan 15 í dag. Eftir það
gengju þeir út, enda hættir
störfum. -SÓL
Heimsins stærsti slökkvibíll:
Losar 30 tonn á tveimur mín.
Hér gefur að líta stærsta slökkvi-
bíl í heimi, en hann er staðsettur
hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli. Bíllinn sem kallast P-15 vegur
um 60 tonn fullhlaðinn, er um 5,4
metrar að hæð, hefur tvær 500
hestafla vélar og tekur 30 tonn af
slökkviefni sem tekur tvær mínútur
að losa.
Slökkviefnið samanstendur af
léttvatni og vatni sem tæki bflsins
blanda sjálfkrafa saman þegar efn-
inu er sprautað út og verður það þá
að froðu sem kæfir olíu og bensín-
elda á svipstundu.
„Fjórir bílar sem þessi eru í eigu
sjóhersins. Þeir eru á herstöðvum
þar sem allt sem flogið getur getur
lent, allar tegundir af flugvélum og
þess vegna geimskutlur, ef út í það
færi,“ sagði Haraldur Stefánsson
slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflug-
velli í samtali við Tímann.
Tímamynd Pjetur-ABÓ
Viðskiptaráðherra segir útgjöld til landbúnaðar fara fram úr áætlun:
Kanna umframútgjöld
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, hefur fyrirskipað sérstaka
athugun á útgjöldum ríkissjóðs til
landbúnaðarmála, vegna gruns um
að þau fari nokkuð fram úr áætlun.
Athugun Jóns hófst í síðustu
viku. þegar hann gegndi einnig
störfum fjármálaráðherra í fjar-
veru Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar. Þá barst beiðni um liðlega 350
milljón króna aukafjárveitingu frá
landbúnaðarráðuneytinu vegna út-
flutningsbóta. Þá sýndi greiðslu-
yfirlit ríkissjóðs að niðurgreiðslur
yrðu meiri en ráð var fyrir gert.
Unnið er að athuguninni í báðum
ráðuneytunum.
Jón hefur óskað eftir að skýrslan
liggi fyrir hið snarasta, enda vill
hann fá skýringar á hvers vegna
niðurgreiðslurnar stefndu fram úr
áætlun. -SÓL
Ekkert Húsa-
fellsmót í ár
Frá fréttaritara Tímans i Borgarfirði, Magnúsi
Magnússyni.
Stjórnir Ungmennasambands
Borgarfjarðar og Björgunarsveitar-
innar Oks hafa ákveðið að hætta við
allar framkvæmdir vegna Húsafells-
móts um Verslunarmannahelgina í
sumar.
Ástæða ákvörðunar þessarar eru
kröfur sem Sýslumannsembætti
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu settu
mótshöldurum um framkvæmd og
skipulagningu mótsins. Veigamestu
kröfurnar, sem sýslumaður setti
voru: Kaup lögreglumanna væri um
3 milljónir króna fyrir gæslu á mót-
inu. Svarar það til að 40 lögreglu-
þjónar fengju um 75.000 krónur í
laun hver. Aldurstakmark inn á
mótið væri 16 ára, en jafnframt var
krafa um algjört áfengisbann, sem
framfylgja ætti með vínleit á mönn-
um við komu á mótstað.
Sýslumannsembættið setti ýmsar
fleiri kröfur, sem mótshaldarar gátu
ekki fallist á og var því sameiginleg
ákvörðun þessara tveggja áður-
nefndra félaga að hætta við fyrirhug-
að mótshald í Húsafelli.
Háværar óánægjuraddir eru uppi
meðal margra Borgfirðinga vegna
þessa. Mörgum finnst súrt í broti að
fá ekki inn í héraðið þær tekjur sem
mót af þessu tagi gefur. Forráða-
menn Húsafellsmóts höfðu samband
við aðra væntanlega mótshaldara
um Verslunarmannahelgina og kom
fram hjá þeim m.a. að kaupkröfur
þeirra sýslumannsembætta komast
ekki með tærnar þar sem borgfirskur
löggæslukostnaður hefur hælana.
Samningurinn í álverinu:
ER HANN
LÖGLEGUR?
Starfsemin er væntaníega að
komast í fyrra horf í álverinu í
Straumsvík eftir að samningur
starfsmanna og vinnuveitenda var
samþykktur sl. föstudag. Horfið
hefur verið frá því að leggja niður
80 ker enda er gert ráð fyrir því að
með samningnum verði á ný unnt
að standa undir fullum rekstri.
Það er hins vegar spurning hver
úrskurður ríkislögmanns verður
um réttmæti samningsins, hvort
hann telj ist brjóta í bága við bráða-
birgðalögin frá 20. maí sl. Álit
ríkislögmanns á að liggja fyrir í dag
og þá mun ríkisstjórnin væntanlega
taka afstöðu til samningsins. JIH