Tíminn - 11.08.1988, Side 4

Tíminn - 11.08.1988, Side 4
4 Tíminn Fimmtudagur 11. ágúst 1988 Haukur Sigurðsson, sveitarstjóri Blönduósi: Ovissa í atvinnumálum „Horfur í atvinnumálum á Blönduósi cru afskaplega óvissar. Ég held að ég geti sagt með fullri vissu að ekkert sveitarfélag leggi í veturinn, með tóma bjartsýni,“ sagði Haukur Sigurðsson sveitar- stjórí á Blönduósi í samtali við Tímann. Á Blönduósi og nærsveit- um eru um 20 manns á atvinnuleysis- skrá og hefur verið svo frá í mars. „Fjöldi atvinnulausra jókst úr um 10, eins og venja hefur verið hér á veturna upp ■ 20 manns, eftir að starfsfólk Pólarprjóns, sem hætti starfsemi í vetur, kom inn til skrán- ingar.“ Haukur sagði ástæðu fyrir óviss- unni í atvinnumálum vera þá, að Blönduós væri staður sem einkunt byggði á þjónustu við sveitirnar í kring. "Við vitum ekki endilega hvað á að bollaleggja með áfram- haldandi samdrátt í sveitunum. Við vitum að samdráttur hefur átt sér stað og kemur til með að halda áfram. Við getum alveg eins átt von á því að það verði minni starfsemi vegna þjónustunnar við svcitirnar, bæði í framleiðstu og þjónustu, í vetur heldur en verið hefur,“ sagði Haukur. Hvað ferðamálin varðar, þá hefur fjöldi þeirra, sem nýtir sér þjónustu sem fyrir hendi er á staðnum verið minni en spáð var. Hins vegar virðist gegnumstreymi ferðamanna um Blönduós ekki hafa minnkað, frá því sem var í fyrra. Þeir sem starfa að ferðamálum á staðnum merkja það að ferðamáti fólks sem leið á um bæinn hafi breyst, á þann hátt að fólk hafi nú meiri útbúnað að heiman s.s. tjaldvagna og slíkt, auk þess sem matvöruverslun er ekki eins blómleg og áður þar sem ferðamenn hafa matvælin með sér. Framkvæmdir á vegum Blönduós- bæjar hafa fyrst og fremst verið bygging íþróttahúss. Húsið er um þessar mundir að verða fokhelt, en áætlað er að verja til byggingarinnar 18 milljónum á þessu ári og hafa framkvæmdir gengið sainkvæmt áætlun. „í húsinu er löglegur hand- boltavöllur, þannig að vel kemur til greina að einhverjir leikir heims- meistarakeppninnar fari fram hér, ef hún á annað borð verður haldin hér á landi,“ sagði Haukur. Auk vallar og góðrar aðstöðu fyrir áhorf- endur og leikmenn, verða í húsinu þrjár kennslustofur fyrir grunnskól- ann, sent sprengt hefur utan af sér núverandi húsnæði. Undanfarin ár hefur verið lögð mikil áhersla á umhverfismál og hefur bærinn tekið stakkaskiptum á sl. 2 til 3 árurn. Búið er að græða mikinn hluta bæjarins upp og opin svæði í umhirðu eru mörg og stór um sig, auk þess sem golfvöllur hefur verið í uppbyggingu, en golfbakterí- an hefur heltekið marga Blönduós- búa eins og aðra sem hafa aðgang að golfvelli. Einnig er búið að leggja slitlag á flestar götur bæjarins auk þess sem gangstéttagerð er komin langt áleiðis. „Það er óhætt að segja að hér hafi heilmikið verið að gerast og reynt er að láta hlutina halda áfram, þó svo að stundum hafi verið hægt á fram- kvæmdum, vegna erfiðleika. Fjár- mál sveitarfélaganna eru mjög erfið og þessi svakalegi fjármagnskostn- aður og þetta rugl í peningamarkað- inum kemur ekki síst við sveitarfé- lögin sem hafa þurft á undanförnum árum að fjármagna sig meira og minna á lántökum, sérstaklega þau sem hafa verið með einhverjar fram- kvæmdir frá því um 1980,“ sagði Haukur, og bætti við, „sumum finnst þetta vera barlómur, en þessir erfið- leikar eru fyrir hendi og það þýðir ekkert að horfa fram hjá þeim.“ - ABÓ Skipulagsbreyting gerð hjá Útsýn hf. Þrídrangsmótiö aö Arnarstapa: 150 manns gengu á brennandi glóðum Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá ferðaskrifstofunni Útsýn hf. í þá veru að nú er fyrirtækinu skipt í rekstrarsvið og fjármálasvið. Undir rekstrarsvið heyra markaðs- mál, sala, skipulagning og fram- kvæmd ferða til og frá landinu. Andri Már Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar- sviðs. Undir fjármálasvið heyra öll fjármál, bókhald og tölvumál. Fjár- málastjóri er sem fyrr Kristinn Helgason. Að þessum skipulagsbreytingum hefur verið unnið í nokkurn tíma og er markmiðið með þeim, að gera rekstur fyrirtækisins virkari. Forstjóri Útsýnar er Helgi Magn- ússon og stjórnarformaður fyrir- tækisins er Ingólfur Guðbrandsson. - ABÓ Um það bil 300 manna hopur var samankominn á fyrirlestra, æfingar og tilraunir að Arnarstapa á Snæ- fellsnesi um helgina, þar sem Þrí- drangur, félag áhugamanna um mannrækt, hélt mjög sérstakt mót. Haldnir voru fyrirlestrar um hug- lækningar, nudd, nálarstungur og skyggni svo eitthvað sé nefnt og gafst þátttakendum auk þess kostur á að ganga á glóðum. Um það bil 150 manns munu hafa nýtt sér það tækifæri. Tilgangurinn með móti sem þessu er að opna augu fólks fyrir öðrum mannlegum möguleikum, að sögn Leifs Leópoldssonar eins af meðlim- um Prídrangs. „Þetta er mót um mannlega mögu- leika og það byggist á þeirri trú að maðurinn hafi möguleika á því að skynja og starfa á fleiri sviðum heldur en eingöngu rökhugsunar og vöðvaafls," sagði Leifur. „Þetta fór mjög vel fram og var gífurlega sterkt,“ bætti hann við. Allir gestir mótsins tóku þátt í þeirri dagskrá sem boðið var upp á meðan á mótinu stóð. „Það voru ýntsir fyrirlestrar haldnir, gerðar æfingar og tilraunir, nteðal annars með eldgöngu," sagði Leifur. Um það bil 150 manns gengu á brennandi glóðum og hlutust engin slys af. „Að vísu fékk ein manneskja blöðru á hælinn. Glóðagangan var um það bil fimm til sex skref en sumir gengu fram og til baka á glóðunum. Margir snéru sér líka í hringi,“ sagði Leifur. Aðspurður að því hvort ekki sæj- ust nein merki glóðanna á fótum fólksins að göngu lokinni, sagði Leifur að svo væri en það væri aðeins sót sem dusta mætti af. Áður en haldiðvar á glóðina hafði fólk undirbúið sig þó nokkuð. Hald- inn var fyrirlestur um hvernig best væri að haga göngunni og búið var að koma fólkinu í ákveðna stemn- ingu, að sögn Leifs. „Fyrirlesarinn sagði að það væri ágætt að vera hræddur við þetta en ákveðinn að fara samt sem áður,“ sagði Leifur að lokum. IDS Morfín fórstjóranna Svo sent þjóðkunnugt er orðið af fréttum hefa ráðherrar úr ríkis- stjórn Þorsteins Pálssonar gagn- rýnt allt gengisfellingartal í fjöl- miðlum. Fremstur hefur þar verið Þorsteinn sjálfur en Jón Baldvin hefur einnig gefið út ntergjaðar yfirlýsingar um það sem hann kall- ar „gengisfcllingarbull“. Er nú svo komið að forstjóranefndin eða ráð- gjafarnefndin, sem skipuð var til að gefa ríkisstjórninni heilræði í cfnahagsmálum, talar ntjög gæti- lega um gengisfellingar á fundum sínum. Hefur það spurst út af fyrsta fundi nefndarinnar í síðustu viku að þar hafi ntenn ræðst við eins . og guðirnir í Atómstöð Laxness. Eftirfarandi lýsingu heyröi dropateljari á samtali for- stjóranna: Forstjóri 1: Ég tel aðdauðinn muni veita meiri líkn en það að þrauka á cndalausunt ntorfíngjöfum, og tel hann því skárri valkost. Forstjórí 2: Undir slíkt get ég ekki skrifað og fullyrði að langlífið sé eftirsóknarvcrt í sjálfu sér þó það byggist á líkn ntorfínsins. Forstjóri 3: Það er sannleikur, að umbun langlífis er dauðinn. Eitthvað ntun fundarritari hafa velkst í vafa um hvernig færa ætti santræðurnar til bókar. Vedurfræði að fara út tísku? Svo virðist sem orð scm tengist veðurfari og veðurfræði séu að fara úr tísku. Gömul og gróin orð yfir hitt og þetta veður heyrast æ sjaldnar og sum taka merkilegustu breytingum. Þannig var einn dag- skrárgerðarmaðurinn á einni af frjálsu útvarpssföðvunum að lýsa veðrinu eftir verslunarmannahelg- ina. Hann sagði eitthvað á þessa lcið: „Á Suðurlandi var leiðinda veður, rigningarsuddi og skúringa- leiðingar." Við hér á Tímanum höfum vissu- lega heyrt um rigningarsudda, en aldrei fyrr höfum við heyrt um skúringaleiðingar. Við höfum látið okkur detta í hug að rétta orðið sé skúraleiðingar. Við seljurn það þó ekki hreinna en við þvoðum það. Og enn af veðri... Talandi um veðrið og frjálsa útvarpið, þá er ekki úr vegi að minnast þeirra daga sumarsins er söl skein í heiði. Ein útvarpsstöðv- anna var þá með þátt þar sem hlustendur gátu hringt inn og sagt hversu heitt væri í garðinunt hjá þeim í forsælu. Framan af stóð metið í réttum 20 gráðum og kepptist þáttargerðarmaðurinn við að auglýsa eftir fólki sem gæti slcgið metið samhliða því scm hann síendurtók hversu hátt metið var: „Og við höfum náð 20 gráðum i forsælu í Fossvoginum í Reykja- vík, er einhversstaðar heitara?“, sagði þessi ágæti maður. Það var eins og við manninn mælt, metið var slegið skömmu síðar og fór í 30 gráður, þá í 50 gráður og loks í 70 gráður í forsælu og þá sagði þátta- geröarmaðurinn: „Váá, 70 gráður í forsælu, geri aðrir betur. Þetta er það hæsta scnt við höfum komist í dag én síminn er opinn, hringið endilega.“ Snillingarnir á raudvínspressunni Á þriðjudag brá svo við að rauðvínspressan í Þverholti vogaði sér út á hálan ís landfræðinnar. í Sandkornskorni, þar sem greint er frá pílagrímsför þriggja forkólfa Stöðvar 2 til Sovét nýverið, cr tekið fram að þeir þremenningar hafi staðnæmst á bökkum Volgu í Moskvuborg. Dropateljari getur einhvernveg- inn ekki kyngt þessum vísdómi DV-manna, enda er hann þvert á uppljóstranir allra hugsanlegra skóla og stofnana um staðsetningu þessarar ágætu ár. Og meira að segja ekki ómerkari heimild en Times-Atlas staðfestir að það mikla fijót Volga seytlar í róleg- heitunum mörg hundruð kílómetr- um austar og fellur í Kaspíahaf. Um Moskvu rennur hinsvegar ein- faldlega Moskvuá. Mikill er máttur rauðvínspress- unnar. Dropateljari leggur til að landfræðidálkur DV vcrði lagður niður en rauðvínsskrif þar áfram iðkuð. Helst af meiri áfergju cn nokkru sinni. t’aö hæfir...

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.