Tíminn - 11.08.1988, Side 12
12 Tíminrt
Fimmtudagur 11. ágúst 1988 '
FRÉTTAYFIRLIT
Moskva - Nokkrir sovéskir
hermenn féllu í árásum skæru-
liða er þeir voru á leið fráj
Kandahar í Afganistan, segir í;
Prövdu málgagni sovéska •
kommúnistaflokksins. Enn- i
fremur segir að skæruliðar hafi
fellt þrjá hermenn og sært sex
tveimur dögum áður en lagt
var af stað. Haft er eftir af- '
gönskum liðsforingjum í
Prövdu að afganskir hermenn
eigi í erfiðleikum með að verja
Kandahar eftir að sovéskir her-
menn yfirgefi borgina.
Harare - Robert Mugabe
forseti Zimbabwe segist efast,
um að stjórnarmenn í Suður-1
Afríku séu af heilum hug að
reyna að koma á friði í suður-
hluta Afríku. Brottflutningur
suður-afrískra hersveita frá
Angóla hófst í gær eftir að
stjórnvöld í Suður-Afríku, Ang-„
óla og Kúbu sömdu um vopna-
hlé síðastliðinn mánudag.
Tokyo - Verð á japönskum
hlutabréfamörkuðum féll veru-i
lega í gær eftir að forvextir,
hækkuðu mjög í Bandaríkjun-j
um. Japanar virðast ekki hafa>
átt von á hækkun forvaxta fyrr
en eftir forsetakosningarnar;
sem fram fara í nóvemberl
næstkomandi.
Washington - Ronaidl
Reagan forseti Bandaríkjanna1
mun í næsta mánuði hitta)
Francois Mitterand Frakk-i
landsforseta í Hvíta húsinu, er j
haft eftir talsmanni Reagans.
Leiðtogarnir tveir hittust síðast
í Toronto í júní á árlegu efna-
hagsþingi.
Napolí - Stjómvöld hinnar
litlu, fjölsóttu ítölsku ferða-
mannaeyju, Kaprí hafa hótað
gestum eyjarinnar öllu illu ef'
þeir voga sér að ganga umi
eyjuna í háværum tréklossum.
Jafnframt hefur verið sett bann,
við tjöldum, hátt stilltum út-
varpstækjum og hundum.,
Kaprí er mjög vinsæll ferða-
mannastaður og allt of fjöl-|
mennt þar yfir sumartímann.,
Þegar 12.000 manns komu á!
einum degi í síðustu viku
ákváðu stjórnvöld að grípa í
taumana og bæaja fólki frá
með einhverjum raðum.
Washington - Leiðtogar
repúblikanaflokksins gera nú
Mikhael Dukakis forsetafram-
bjóðanda demókrataflokksins
lífið leitt, með því að hamra í
sífellu á því að hann sé illa að
sér um landvarna- og utanrík-
ismál.
Nýlegar skoðanakannanir
sem gerðar hafa verið í Banda-
ríkjunum benda til þess að
fylgi Georges Bush forseta-
frambjóðanda repúblikana-
flokksins hafi aukist verulega
að undanförnu og hann hafi nú
einungis sjö prósent minna
fylgi en mótframbjóðandi hans.
i allt sumar hefur Dukakis haft
sautján prósenta forskot á
Bush.
llllllll ÚTLÖND ' , : - . ' ■' .. .... .
Mótmælendur í Burma hafa nú víða komist yfir vopn lögreglunnar.
Ekkert lát á óeirðunum í Burma:
Lögreglustöðvar á
valdi mótmælenda
Ekkert lát virðist vera á óeirðum á götum Rangoonborgar
í Burma. Hörð átök brutust út í gær á milli mótmælenda og
öryggissveita hersins og náðu mótmælendur að komast yfir
vopn á fjölmörgum lögreglustöðvum í borginni.
„Fjöldi lögreglustöðva er nú á
valdi mótmælendanna og þeir hafa
jafnframt undir höndum mikið magn
vopna,“ er haft eftir vestrænum
stjörnarerindreka í Burma.
Mótmælendurnir hafa sett upp
götuvirki í mörgum hverfum borgar-
innar og svara nú fyrir sig af heift
eftir skothríð hersins undanfarna
Eftirlitsmennirnir munu meðal
annars ræða við íranska forystu-
menn í stjórnmálum og hermálum
um gang mála auk þess sem þeir
munu undirbúa komu hóps eftir-
litsmanna Sameinuðu þjóðanna sem
væntanlegur er til íran á næstunni.
„Friðargæslumennirnir munu
þrjá daga.
Hermenn brutust í gær inn í
sjúkrahús í Rangoon og skutu þar á
starfsfólk. „Fjölmargir létu lífið í
skothríðinni og enn fleiri eru
særðir,“ er haft eftir stjórnarerind-
reka í Rangoon.
„Óeirðirnar í höfuðborginni
breiðast út eins og eldur í sinu,“
fylgjast með aðgerðum íranska hers-
ins í héruðum í suður- og vesturhluta
landsins, þar til vopnahléið tekur
gildi klukkan 3.00 aðfararnótt 20.
ágúst,“ er haft eftir fréttastofunni.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
segir að friðargæslumenn séu einnig
á leið til Bagdad í írak.
bætti hann við.
Talið er að fjöldi manns hafi látið
lífið í átökum í fátækrahverfum
borgarinnar.
Hundruð þúsunda hafa tekið þátt
í mótmælunum í höfuðborginni
Rangoon og þrjátíu öðrum borgum,
víðs vegar um landið. Fólk hefur
safnast saman á götum úti til að
krefjast lýðræðis og sýna vanþóknun
sfna á harðstjórn sósí.iiista sem hafa
farið með völdin í landinu síðastliðin
26 ár.
Kanadastjórn ætlar að senda 400
gæsluliða til íran en í heild munu
gæsluliðar frá 25 löndum verða í
liðinu.
Eftirlitsmennirnir munu annast öll
samskipti milli írana og íraka þann
tíma sem þeir dveljast í löndunum
tveim.
Haft er eftir Javier Perez de
Cuellar aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, að kostnaðurinn við þessar
friðargæsluaðgerðir sé áætlaður 74
milljónir dollara. IDS
Sex sinnum meiri
rigning á einu
kvöldi heldur en
allt árið 1987:
HALF
ÖNNUR
MILLJÓN
ÁNÚ
HVERGI
HEIMA
Sex sinnum meira regn féll í
Khartoum, höfuðborg Súdan í
flóðunum í síðustu viku, heldur
en allt árið 1987, samkvæmt
skýrslum Sameinuðu þjóðanna.
Samkvæmt tölum frá Neyðar-
hjálparstofnun Sameinuðu þjóð-
anna mældist úrkoma í Khartoum
210 millimctrar að kvöldi 4.ágúst
í stað 36 millimetra allt árið ,í
fyrra. Síðastliðin þrjátíu ár hefur
árleg úrkoma aldrei mælst meiri
en 110 millimetrar.
Fjórar milljónir ntanna búa í
Khartoum og er ein og hálf
miiljón hcimilislaus eftir flóðið.
Ekkert rafmagn cr í borginni og
drykkjarvatn cr af skornum
skammti.
Ellefu manns létu lífið í flöðinu.
Tveimur sólarhringuni eftir aö
Nílarfljót flaut yfir bakka sína af
völdum rigningarinnar, var 80%
lands umhverfis höfuðborgina og
innan hennar undir vatni.
Stjórnvöld í Egyptalandi og
mörgum Evrópulöndum hafa
þegar sent neyðarhjálp til Súdan.
Lynda Chalker aðstoðarutun-
ríkisráðherra Bretlands sagði í
viðtali í BBC í gærkvöld að fyrsti
farmur af lyfjuni, tjöldum og
öðrum nauðþurftum yrði sendur
til Súdan á morgun. Jafnframt
munu breskir verkfræðingar fara
á staðinn til að reyna aö koma
aftur á rafmagni í höfuðborginni.
Haft var eftir breska sendiherr-
anum í Súdan í BBC að ástandið
í landinu sé nú verulcga slæmt og
flóðin séu hin verstu sem um
getur á þessari öld.
ítalir hafa skipulagt samfellda
loftflutninga meö nauðsynjavör-
ur til hrjáðra íbúanna, í samvinnu
við UNDRO.
Ennfremur hefur Rauði kross-
inn víðs vegar um heiminn skipu-
lagt hjálparstarf og sent fjármagn
og nauðsynjar til Súdan. IDS
IDS
Eftirlitsmenn SÞ
komnir til íran
Fyrstu fímm eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna eru nú
komnir til Teheran í íran þar sem þeir munu undirbúa
vopnahléið sem gengur í gildi tuttugasta þessa mánaðar, ef
marka má fregnir IRNA, opinberu fréttastofunnar í íran.
Rust langar afturtil Sovétríkjanna
Mathias Rust langar að sjá
Moskvu aftur, en nú á jörðu
niðri, er haft eftir lögfræðingi
hins fífldjarfa unga flug-
manns.
„Hann langar að sjá hvernig borg-
in lítur út en hann hafði því miður
ekki tíma til að skoða hana nema úr
lofti, þar sem hann var handtekinn
um leið og hann lenti vélinni á
Rauða torginu. Nú hefur hann því í
hyggju að heimsækja borgina sem
ferðamaður,“ sagði Vsevolod Yak-
ovlev lögfræðingur Mathiasar.
Hinn tvítugi flugmaður var leystur
úr haldi og fluttur til Vestur-Þýska-
lands, í síðustu viku.
Þá hafði hann setið inni 14 mánuði
Rust segist nú vilja fara aftur til Moskvu.
af þeim fjórum árum sem dómurinn
hljóðaði upp á, er hann var dæmdur
á síðasta ári.
Að sögn Yakovlevs tók Rust öllu
sem á gekk í fangelsisvistinni- með
stóískri ró.
„Mathias fékk venjulegan fanga-
mat. Hann kvartaði aldrei og sagði
að tíminn flygi áfram," sagði lög-
fræðingurinn.
Enskumælandi samfangar Mat-
hiasar þýddu fyrir hann greinar úr
Prövdu á hverjum degi meðan á
fangavistinni stóð, þar sem Rust
kvað hafa mikinn áhuga á málefnum
Sovétríkjanna. Auk þess hóf hann
rússneskunám í fangelsinu.
Haft er eftir opinberum talsmanni
í Hamborg að flugleyfi Mathiasar
hafi verið tekið af honum.
IDS