Tíminn - 11.08.1988, Síða 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fýrir þig
Ókeypis þjónusta
080300 Tíminn
Tíminn
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, um fund sinn með Reagan Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í gær:
Mikill vilji til að efla
samskipti þjóðanna
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, átti í gær um hálfrar
klukkustundar langan fund með Ronald Reagan, forseta Banda-
ríkjanna, í Hvíta húsinu í Washington. Þeir áttu fyrst tveir tal
saman á skrifstofu Bandaríkjaforseta en síðan var sest við borð í
fundaherbergi ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Þann fund sátu
einnig Frank L. Carlucci, varnarmálaráðherra, og John C.
Whitehead, varautanríkisráðherra, ásamt öryggisráðgjafa Reag-
ans. Þá sátu og fundinn fulltrúar úr fylgdarliði forsætisráðherra,
Guðmundur Benediktson, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu,
Jónína Michaelsdótttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Geir
H. Haarde, alþingismaður, Helgi Ágústsson, skrifstofustjóri í
utanríkisráðuneytinu, og Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Að fundinum loknum fluttu þeir áhugavert að heyra hans viðhorf í
Reagan og Þorsteinn stutt ávörp.
Að því búnu var sest að hádeg-
isverðarborði, þar sem dýrindis
lambasteik var fram borin. Þetta
var svokallaður vinnuhádegisverð-
ur þar sem viðræður héldu áfram
þar sem frá var horfið í ríkisstjórn-
arherberginu.
Tíminn náði tali af Þorsteini
Pálssyni að afloknum fundinum
með Bandaríkjaforseta. Hann var
fyrst inntur eftir því hvort hann
teldi fundinn hafa verið gagnlegan.
Þorsteinn sagði fundinn hafa
verið í senn gagnlegan og ánægju-
legan. „Forsetinn gerði góða grein
fyrir viðræðum sínum við leiðtoga
Sovétríkjanna. Það var mjög
þeim efnum. Síðan ræddum við
sameiginlega varnarhagsmuni, við-
skiptatengsl og menningartengsl
þjóðanna. Báðir lögðu áherslu á
að efla og styrkja samskiptin á
þeim sviðum.“
- Fannst þér sem Reagan legði
mikið upp úr að viðhalda góðum
tcngslum íslands og Bandaríkj-
anna?
„Já, mér finnst það bæði hafa
komið fram á þessum fundi og í
öllu viðmóti gestgjafa okkar hér að
Bandaríkjamenn hafi áhuga á að
halda góðum samskiptum við
ísland."
- Var rætt um leiðtogafundinn í
Reykjavík árið 1986?
„Já, forsetinn minntist á hann og
þann mikilvæga árangur sem þar
náðist. Hann lítur greinilega á
þann fund sem mjög mikilvægan í
þeirri þróun sem átt hefur sér stað
upp á síðkastið í alþjóðamálum.
Þá ræddi Reagan um fund þeirra
Gorbatsjovs í Moskvu og almennt
um þá möguleika sem menn eiga á
bættum samskiptum.
Það kom reyndar fram hjá
Carlucci, varnarmálaráðherra, að
mönnum þykir mjög á skorta að
þessi nýju viðhorf hafi náð til
hermála í Sovétríkjunum. Þar virð-
ast ekki, að sögn varnarmálaráð-
herrans, hafa orðið breytingar í
samræmi við það sem er að gerast
á ýmsum öðrum sviðum í Sovétr-
íkjunum.
- Voru næstu stig afvopnunar
rædd?
„Já, það var nokkuð rætt um
mögulega samninga um takmörk-
un á langdrægum kjarnorkuflaug-
um. Þeir leggja greinilega mikla
áherslu á árangur á því sviði, segja
hinsvegar að þeir samningar séu
flóknari en þeir sem þegar eru í
höfn. Þeir hafa ekki sett sér neinar
tímaskorður í því, en það kom
fram að mikill áhugi er fyrir því að
skjótur árangur náist í þeim
málurn."
- Hvað með hvalamálið, bar það
á góma?
„Það kom fram af hálfu forsetans
að hann er ánægður með það
samkomulag sem gert var. Ég
minntist svo á það á fundi með
Whitehead utanríkisráðherra, að
við teldum mjög mikilvægt að
Bandaríkjastjórn tæki hraustlega
til varna í málinu sem Greenpeace
hefur höfðað gegn henni. Ég á ekki
von á öðru en það verði gert.“
- Var í umræðunni um varnar-
mál rætt sérstaklega um veru
bandaríska herliðsins á Miðnes-
heiði?
„Það má segja að við höfum rætt
almennt um samskipti þjóðanna á
sviði varnarmála og mikilvægi
þeirra. Það kom skýrt fram að
engar grundvallarbreytingar eru á
döfinni í þeim efnum.“
Þorsteinn sagði Reagan vera
mjög geðfelldan og vingjarnlegan í
alla staði og ekki kæmi á óvart að
hann hafi náð áhrifum og vinsæld-
um.
Þá sagði Þorsteinn aðspurður að
öryggisgæsla væri mikil í kring um
þessa opinberu heimsókn og ívið
meiri en hann hefði áður kynnst.
„Það hefur nú fátt komið manni á
óvart en það sem er ánægjulegast
er að hér finnur maður góðan anda
í garð íslendinga og virðingu fyrir
þeim,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra í símaviðtali frá
Washington í gær.
Síðdegis í gær heimsótti forsætis-
ráðherra þinghúsið í Washington
og hitti þar að máli menn úr
utanríkismálanefnd öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings.
í dag snæðir Þorsteinn morgun-
verð í boði utanríkismálanefndar
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í
skrifstofu þingsins. Að því búnu
verður haldið til Pentagon, skrif-
stofubyggingar varnarmálaráðu-
neytisins, þar sem boðaður hefur
verið fundur Þorsteins með Frank
L. Carlucci, varnarmálaráðherra.
Síðan verður snæddur hádeg-
isverður í boði Carluccis. Enda-
hnúturinn á dagskrá forsætisráð-
herra í dag er heimsókn í Heil-
brigðismálastofnun Bandaríkj-
anna.
Opinberri heimsókn forsætisráð-
herra til Bandaríkjanna lýkur í
fyrramálið, eftir að hann hefur lagt
blómsveig á leiði óþekkta her-
mannsins í Arlington-kirkjugarð-
inum. óþh
Tveir fluttir á slysadeild
Harðuráreksturtveggjabifreiða tímanum í gær og voru ökumenn meiðsl þeirra væru. Bifreiðarnar
varð á gatnamótum Sætúns og bifreiðanna fluttir á slysadeild. skemmdust mikið og voru þær
Kringlumýrarbrautar á sjötta Ekki var vitað hversu alvarleg fluttarábrottmeðkranabíl. -ABÖ
Fra slysstað á gatnamótum Sætúns og Kringlumýrarbrautar.
(Tímamynd: Pétur)
Steingrímur Hermannsson um ummæli Matthíasar
Á. Mathiesen:
FURÐULEGUR
TITRINGUR
Steingrímur Hermannsson,
utanríkisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, er furðu
lostinn yfir túlkun sjónvarpsins á
smáfrétt í DV og einkennilegum
svörum og yfirlýsingum Matthíasar
Á. Mathiesen, sem nú gegnir störf-
um forsætisráðherra í ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar. Segir Stein-
grímur að hér sé alvarleg mistúlkun
á ferðinni. Honum sé fullkunnugt
um mikilvægi heimsóknar Þor-
steins Pálssonar til Bandaríkjafor-
seta. “Ferð Þorsteins Pálssonar er
áhugaverð og nauðsynleg á margan
hátt til að leysa ákveðin vandamál
sem verið hafa í samskiptum þjóð-
anna. Þá á ég við ef tekst að semja
um niðufellingu á vegabréfsáritun-
um og eins ef tekst að eyða öllum
vafa varðandi hættulega plútón-
íumflutninga nálægt íslandi," sagði
Steingrímur. „Ég veit ekki alveg
hvað Matthías er að fara með
yfirlýsingum sínum, en ég held að
þetta sé bara einhver óþarfa titring-
ur.“
„Það sem ég segi í DV-fréttinni
er að ég er sjálfur þannig settur, í
formennsku fyrir efnahagsnefnd
ríkisstjórnarinnar, að ég gæti ekki
farið í svona langt frí eins og
Þorsteinn gerir eftir sjálfa heim-
sóknina," sagði Steingrímur og
bætti við að hann ætlaði sér ekki að
fara að segja Sjálfstæðismönnum
fyrir um verkaskiptingu varðandi
undirbúning að væntanlegum efna-
hagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
„Það er hins vegar allt í fullum
gangi hjá okkur Framsóknarmönn-
um og ég veit að Alþýðuflokks-
menn hafa staðið í ströngu að
undanfömu." KB