Tíminn - 30.09.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 30. september 1988
Loðnuveiðin að glæðast:
Háberg með
fullfermi
Háberg GK er á leið til lands
með um 600 tonn af loðnu, sem
fengust á miðunum við miðlínuna
milli íslands og Grænlands. Búist
er við skipinu til hafnar í Grinda-
vík skömmu eftir hádegi í dag.
Fimm önnur skip voru einnig á
miðunum og voru þau öll komin
með um 300 til 350 tonn aðfara-
nótt miðvikudags. Síðastliðna
nótt fékk Hábergið um 150 tonn
og var þá komið með fullfermi,
en frekar tregur afli var hjá
hinum loðnuskipunum.
Á miðunum eru Hólmaborgin
SU, Skarðsvík SH, Börkur NK,
Örn KE og von var á Jóni Kjart-
anssyni SU á miðin í gær.
Ástráður Ingvarsson hjá
loðnunefnd sagði í samtali við
Tímann að fleiri skip væru í
startholunum, s.s. Björg Jóns-
dóttir ÞH, Sunnuberg GK og
Keflvíkingur KE. Búist var við
að þessi skip færu út í gær eða í
dag. -ABÓ
Meirihluti í borgarráði samþykkir að ráðast í færslu Hringbrautar:
Samþykkt að taka
upp viðræður við ríkið
Tillaga Pórðar Þ. Þorbjarnarson-
ar, borgarverkfræðings, um að sam-
þykkt skipulagsnefndar frá 18.
janúar um flutning Hringbrautar
yrði staðfest var samþykkt á borgar-
ráðsfundi sl. þriðjudag. Sigrún
Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, greiddi ein atkvæði
gegn tillögunni. Hún óskaði bókuð
mótmæli gegn því að ráðist yrði í
færslu Hringbrautar þar sem hún
væri ekki tímabær í Ijósi breyttra
forsenda. Færsla Hringbrautar er
ákveðin með samningi milli Reykja-
víkurborgar og ríkisins sem var
endurskoðaður 1976 og er nýting á
Landspítalalóð megin forsenda
samningsins. Nú liggur hins vegar
fyrir bréf frá Yfirstjórn mannvjrkja-
gerðar á Landspítalalóð, sem Sigrún
vitnar í í bókun sinni.
Tíminn greindi frá innihaldi bréfsins
og forsögu málsins sl. laugardag.
„I öðru lagi kosta þessar fram-
kvæmdir hundruð milljóna króna.
Þó svo að ríkið borgi flutninginn,
kemur sá kostnaður jafnt frá skatt-
peningum borgarbúa og annarra
landsmanna. 1 þriðja lagi tel ég að
ódýrari og hagkvæmari lausnir séu
fyrir hendi,“ segir í bókun Sigrúnar.
Guðrún Ágústsdóttir, sem sat fund-
inn fyrir Alþýðubandalagið, sat hjá
við atkvæðagreiðsluna en Bjarni P.
Magnússon, Alþýðuflokki, lýsti yfir
stuðningi við áætlanir meirihlutans.
Tíminn greindi einnig frá því fyrir
skömmu að Sigrún hygðist leggja
fram tillögu á fundinum um að
teknar yrðu upp viðræður við ríkis-
valdið um útfærslu samningsins í
ljósi breyttra forsenda og að ekki
væri Ijóst hvernig endurgreiðslum
ríkisins vegna framkvæmdanna yrði
háttað. Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, virðist hafa tileinkað sér þann
málflutning og lagði fram tillögu
sem var efnislega samhljóða fyrir-
hugaðri tillögu Sigrúnar. Var hún
samþykkt áður en ákveðið var að
halda áfram með framkvæmdirnar
eins og ekkert hefði í skorist.
„Þetta er náttúrlega sýndar-
mennska ein að leggja fram tillögu
um að taka upp viðræður við ríkið
um framkvæmd samningsins og að
ákveða síðan í framhaldi af því að
fara strax af stað með færslu Hring-
brautarinnar. Eðlilegra hefði verið
að bíða með slíka ákvörðun þar til
fyrir lægi niðurstaða af viðræðunum
við ríkisvaldið. Þetta eru mjög
kostnaðarsamar framkvæmdir og
ekkert er enn Ijóst um hvernig
endurgreiðslum ríkisins til borgar-
innar vegna þeirra verði háttað.
Sérstaklega ætti að huga að þessu nú
á þeim tímum þar sem rík áhersla er
lögðáaðhald,“ sagði Sigrún í samtali
við Tímann. JIH
„Það er... skoðun yfirstjórnar
Landspítalans að vegna fram-
kvæmda á Landspítalalóð sé óþarft
að flytja Hringbrautina úr núverandi
legu hennar um fyrirsjáanlega
framtíð, þ.e. næstu 20 árin eða svo.“
Dansskólar
byrjaðir
Dansskólarnir eru nú sem óð-
ast að hefja vetrarstarfið og er
kennt í alls konar hugsanlegum
flokkum aldurs og kunnáttu. Þá
eru margs konar dansskólar og er
kennd ýmis konar fótamennt,
svo sem klassískur ballett, jass-
ballet, samkvæmisdansar og svo
er víst dansi og líkamsrækt stund-
um skellt saman og kallað eró-
bikk tjá oss fróðir menn um þessi
mál. Á myndinni er hópur barna
í einum dansskóla borgarinnar
að læra dans sem byggir á hátterni
þeirra fjandvina Tomma og
Jenna ogber nafn þeirra. Einbeit-
ing og gleði skín úr svip og
látbragði barnanna og kennar-
anna. Tímamynd; Ámi Bjarna.
Stuðningsmenn fríkirkjuprestsins í Reykjavík:
Vilja lögbann á
atkvæðagreiðslu
Stuðningsmenn sr. Gunnars
Björnssonar, fríkirkjuprests í
Reykjavík, hafa nú farið fram á það
við borgarfógeta að sett verði lög-
bann á allsherjaratkvæðagreiðslu þá
sem núverandi stjórn Fríkirkjunnar
í Reykjavík hefur boðað að verði
næstu helgi, eða dagana 1. og 2.
október. Er lögbannskrafan reist á
þeim forsendum að ekki er getið um
það í lögunt safnaðarins að atkvæða-
greiðsla sem þessi hafi gildi. Jafn-
framt hafa stuðningsmenn prestsins
hvatt til þess að safnaðarfólk taki
ekki þátt í atkvæðagreiðslunni, ef af
henni verður.
Þá hefur Sigurður Guðni Guð-
jónsson, lögmaður sr. Gunnars og
sérfræðingur í félagarétti, óskað eftir
því við fógeta að hann lýsi uppsögn
sr. Gunnars Björnssonar ógilda með
tilliti til samþykkta nýlegs safnaðar-
fundar í Gamla bíói. Þar var upp-
sögnin lýst ógild og einnig var sam-
þykkt að lýsa vantrausti á stjórnina.
1 kjölfar þess fundar sagði formaður
stjórnarinnar, Þorsteinn Eggerts-
son, og einn stjórnarmaður að auki,
af sér störfum, en áfram sitja fjórir
stjórnarmenn af sjö manna stjórn,
undir forystu varaformannsins,
Bertu Kristinsdóttur Bernburg. Sá
sjöundi sagði af sérstjórnarmennsku
í sumar þegar samþykkt var að víkja
prestinum úr starfi.
í yfirlýsingu frá stuðningsmönnum
fríkirkjuprestsins kemur fram að
þeir telja núverandi stjórn aðeins
vera að tefja upsagnarmálið og fram-
kvæmd safnaðarfundarins sem áður
er nefndur. Einnig sé stjórnin að
tefja að messuhald geti hafist að
nýiu.
1 bréfi þeirra til fjölmiðla segir
einnig: „Af augljósum ástæðum er
ekki unnt að fallast á það fordæmi
að löglegum ákvörðunum safnaðar-
funda sé vísað til skoðanakannana
af þeim sem orðið hafa í minnihluta'
á fundum og misst tiltrú safnaðar-
fólks.“ KB
Heimsbikarmót Stöövar 2 í skák hefst á mánudag:
Nissan styrkir
mót Stöðvar 2
„Heimsbikarmótið í skák 1988
verður sett 2. október á Hótel
íslandi og verður sjónvarpað beint
frá athöfninni. Fyrsta umferð verð-
ur síðan tefld mánudaginn 3. októ-
ber og hefst bardaginn kl. 17,“
sagði Þorsteinn Þorsteinsson hjá
Stöð-2,í samtali við Tímann.
Keppendur verða 18 talsins og
eru allir gríðarsterkir
skákmenn.Má þar nefna Kaspar-
ov, Timman, Jóhann Hjartarson
og Margeir Pétursson.
Þá tefla á mótinu gamlar kempur
eins og fyrrverandi heimsmeistarar
Spassky og Tal, ennfremur Beljav-
ský og Nunn, en hann er mjög
sterkur skákmaður um þessar
mundir. Enn má nefna Spielmann,
Nikolic, Portisch, Sachs, Ribli,
Anderson frá Svíþjóð, Júsúpov,
Sokholoff, Elvest og síðan sjálfan
paurinn Viktor Kortsnoj, sem
ávann sér fj andskap Islendinga fyr-
ir að reykja framan í Jóhann Hjar-
tarson.
Stöð 2 heldur mótið og sagði
Þorsteinn það gríðar kostnaðar-
sama framkvæmd en nú væri orðið
ljóst að Stöð 2 næði inn því fé sem
þyrfti til að standa undir mótinu.
Margir aðilar styrktu mótshaldið
og væri einn þeirra fjölþjóðahring-
urinn Nissan. Nú væri lítið eftir
annað en að ganga frá smáatriðum
varðandi styrktaraðild að mótinu,
en af innlendum aðilum mætti
nefna Búnaðarbankinn og Reykja-
víkurborg.
Þorsteinn sagði að mótið væri
eitt af sex mótum þar sem keppt er
um heimsbikarinn. Eitt þessara
móta var nýlega haldið í Brussel og
annað í Belfor í Frakklandi. Þá
verður mót í Barcelona, ennfremur
í Svíþjóð, en tveim mótanna hefur
ekki enn verið valinn staður. -sá