Tíminn - 30.09.1988, Page 13
Föstudagur 30. september 1988
ÚTLÖND llllllllllilllllllllllllllllllllllllllll
Diego Cordoves aðalsamningamaður Sameinuðu þjóðanna
í samningunum um brottflutning sovésks herliðs frá Afganistan:
Sovéskt herlið flutt
á brott eftir áætlun
Þessir hermenn gæta hliðsins að herstöð Sovétmanna á flugvellinum ■ Kabúl.
Hermenn í þeirri herstöð varða að líkindum þeir síðustu sem yflrgefa
Afganistan, en Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að brottflutningur
sovéskra hermanna séu samkvæmt áætlun Genfarsamningsins.
Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því
yfir að samtökin séu sátt við það
hvernig brottflutningur sovéskra
hersveita frá Afganistan hefur geng-
ið og telja að Sovétmenn hafi í einu
og öllu staðið við brottflutningsáætl-
unina sem samþykkt var með samn-
ingi Afgana, Pakistana, Bandaríkja-
manna og Sovétmanna í Genf 1.
apríl síðastliðinn. Á sama tíma skora
Bandaríkjamenn á skæruliða í Afg-
anistan að láta af árásum á sovéska
hermenn í landinu, þar sem það gæti
orðið til þess að Sovétmenn hægðu
á brottflutningi herliðs.
Það var Diego Cordovez aðal-
samningamaður Sameinuðu þjóð-
anna í viðræðunum í Genf á sínum
tíma og núverandi utanríkisráðherra
Ecuador sem skýrði frá þessari af-
stöðu Sameinuðu þjóðanna. Hann
vísaði á bug ásökunum um að Sovét-
menn hafi brotið samninga um
brottflutning með því að hægja á
þeim undanfarnar vikur, en banda-
rískir fjölmiðlar hafa mjög blásið
það út að undanförnu. Sagðist Diego
þess fullviss að síðasti sovéski her-
maðurinn yfirgæfi Afganistan fyrir
1. febrúar á næsta ári eins og samið
var um.
„Við gerðum alla tíð ráð fyrir að
á þessu stigi brottflutningsins yrði
nokkurt hlé. Pað er í fullu samræmi
við samninga" sagði Cordovez.
Samkvæmt samningunum átti
helmingur sovéska herliðsins að vera
farinn frá Afganistan þann ló.ágúst
og sagði Cordovez að það hafi
gengið eftir. Sagðist hann einnig
hafa átt viðræður við Eduarde Shé-
vardnadze utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna um tilhögun brottflutnings
þeirra hermanna sem eftir eru.
Cordovez benti á að allir aðilar
samkomulagsins hafi kvartað yfir
samningsbrotum, en sagðist vona að
friðarsamkomulagið muni halda.
Eins og áður sagði hafa Banda-
ríkjamenn hvatt skæruliða til að láta
af árásum á sovéska hermenn svo
samkomulagi um brottflutning verði
ekki rift. Yfirlýsing Phyllis Oakley
talsmanns ríkisráðs Bandaríkjanna
þessa efnis kom í kjölfar hinna
miklu eldflaugaárása sem skæruliðar
hafa gert á Kabúl undanfarna daga
og fellt hafa tugi óbreyttra borgara.
Sovétmenn hafa sakað Pakistana
og Bandaríkjamenn um að styðja
við bak skæruliða sem gerst hafi
sekir um „hræðileg hermdarverk“
með eldflaugaárásum sínum á Kabúl
og lýstu því yfir að málið yrði tekið
upp á vettvangi Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna.
Oakley sagðist hins vegar þess
fullviss að Sovétmenn muni standa
við sinn hluta samkomulagsins um
brottflutning og sagði ekkert benda
til annars en síðasti sovéski hermað-
urinn muni yfirgefa Afganistan fyrir
15.febrúar 1989.
Leiðtogafundur ríkja í suðurhluta Afríku gæti verið í uppsiglingu:
P.W.Botha í opinbera
heimsókn til Zaire
P.W. Botha forseti Suður-Afríku
heldur áfram að hitta leiðtoga ann-
arra Afríkuríkja að máli, en í gær
staðfestu embættismenn í Zaire þær
fréttir að Botha kæmi í opinbera
heimsókn þangað á morgun og muni
hitta Mobutu Sese forseta Zaire að
máli. Þetta mun verða fyrsti fundur
þessara leiðtoga en þriðji fundur
Botha með æðstu mönnum blökku-
mannaríkja í Afríku í þessum mán-
uði.
Botha mun fljúga beint til heimilis
Mobutu í Gbadolite sem er djúpt í
frumskógum Zaire, en ekki til höf-
uðborgarinnar Kinshasa.
Suðurafrískir fjölmiðlar höfðu
skýrt frá þessari heimsókn á mið-
vikudag og sagt að hún væri hluti
hinnar nýju stefnu Botha gagnvart
blökkumannaríkjunum, en emb-
ættismenn vildu þá ekki staðfesta
fréttina.
Embættismenn í Zaire sögðu að
heimsóknin sé undanfari víðtæks
fundar leiðtoga ríkja í Afríku þar
sem vandamál suðurhluta Afríku
yrðu rædd til hlítar. Fjölmiðlar í
Suður-Afríku hafa undanfarnar vik-
ur einmitt verið að velta vöngum yfir
því að fundur leiðtoga í suðurhluta
Afríku væri á döfinni.
Botha, sem verið hefur forseti
Suður-Afríku í tíu ár fór í fyrstu
opinberu heimsókn sína til blökku-
mannaríkis fyrr í þessum mánuði.
Þá hitti hann Joaquim Chissano
forseta Mósambík að máli og síðan
Kamuzu Banda forseta Malawi.
Áður hefur hann aðeins haldið f
opinberar heimsóknir til Evrópu og
til Taiwans.
Fundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Vestur-Berlín
óvinsæll hjá vinstrisinnum:
250andófsmenn teknir
fastir í Vestur-Berlín
Lögreglan í Vestur-Berlín hand-
tók í fyrrinótt rúmlega 250 andófs-
menn sem héldu uppi mótmælum
gegn Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
Alþjóðabankanum, en þessar mátt-
ugu peningastofnanir hafa fundað í
borginni undanfarna daga.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
262 hefðu verið teknir fastir og væru
4 þeirra enn haldi. Þrátt fyrir þessar
aðgerðir lögreglunnar voru ráðgerð-
ar enn frekari mótmælaaðgerðir við
lok fundarins í gærkvöldi. Sagðist
lögreglan í gær búast við átökum og
væru 9000 lögreglumenn á vakt
vegna fundarins.
Andófsmennirnir brutu glugga á
hótelum og í bönkum í miðborg
Vestur-Berlínar og eyðilögðu
drossíur bankamanna með því að
hoppa á þökum þeirra. Þá settu
andófsmennirnir eld í ruslatunnur.
Hundruð lögreglumanna klæddir
óeirðabúnaði mynduðu lifandi keðju
til að halda þúsundum mótmælenda
frá aðalgötum borgarinnar. Mót-
mælendurnir hrópuðu slagorð gegn
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og slógu
í málmföt.
Flestir andófsmannanna eru ungir
vinstrisinnar og hafa þeir haldið
uppi mótmælum alla dagana sem
fundur Alþjóðagj aldeyrissj óðsins
hefur staðið yfir. Hefur umferð mjög
tafist í borginni og nokkuð verið um
skemmdarverk, en ekki hafa brotist
út átök hingað til.
Andófsmennirnir saka Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabank-
ann um að hafa rústað efnahagslíf í
löndum þriðjaheimsins auk þess sem
illa skipulagðar iðnaðarframkvæmd-
ir sem lánað hafi verið til hafi
gjörspillt náttúru sömu landa.
Tíminn 13
Dömur og herrar:
Nú drífið þið
ykkur í leikfimi!
Tímar við allra hæfi
Ný
námskeið
hefjast
3. október
Leikfimi fyrir konur á
öllum aldri.
Hressandi, mýkjandi,
styrkjandi ásamt megr-
andi æfingum.
Þarftu að
missa 15 kíló?
Sértímar fyrir konur
sem vilja léttast um 15
kg eða meira.
Karlmenn!
Hinir vinsælu
herratímar
í hádeginu
Frábær aðstaða
Ljósalampar, nýinn-
réttuð gufuböð og
sturtur. Kaffi og sjón-
varp í heimilislegri
setustofu.
Innritun
og frekari upplýsingar
alla virka daga frá
kl. 13-22 í síma
83295.
Júdódeild Armanns
Ármúla 32.
Verkstæðishús
Hús Vélaverkstæðisins Laugarbakka, Miðfirði ertil
sölu nú þegar.
Upplýsingar gefur Eiríkur Tryggvason í síma
95-1976. Tilboðum í húsið sé skilað fyrir 8. október
n.k. til Gunnars Sæmundssonar, Hrútatungu eða
Eiríks Tryggvasonar, Búrfelli.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns
míns,
Sigurður Guðjónssonar
Skipasundi 39, Reykjavfk.
Olga Sophusdóttir og fjölskylda.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför sonar okkar og bróður
Guðmundar Árnasonar
Miöengi 20
Selfossi
ÁrniGuðmundsson Guðrún Guðmundsdóttir
Jóhann Árnason
Árný llse Árnadóttir
t Móðir okkar, tengdamóöir og amma / ý
Þórdís Gissurardóttir Bólstaðarhlfð 58 áður húsfreyja í Arabæ
verður jarðsungin frá Gaulverjabæjarkirkju á morgun laugardaginn 1.
október kl. 14.00 Ingunn Stefánsdóttir Sigurjón Jónsson
Sigmundur Stefánsson Hafdís Sigurgeirsdóttir
Margrét Stefánsdóttir Geir Ágústsson
Hannes Stefánsson Helga Jóhannesdóttir
og barnabörn