Tíminn - 06.10.1988, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 6. október 1988
Kennsla féll niður hluta úr degi í tveim bekkjum í Foldaskóla í gær:
Skólalæknir gerir
úttekt á skólanum
Kennslu fcll cnn á ný niður í tvcim áttundu bckkjum Folduskóla í gær,
vcgna vinnu við innrcttingar á húsnæði skólans. I»á niun Gunnar Ingi
Gunnarsson skólalæknir gera úttckt á skólanum í dag og senda sína
skýrslu til Heilbrigðiseftirlitsins.
Arnfinnur Jónsson skólastjóri
Foldaskóla sagöi í samtali viðTím-
ann að fella hefði þurft kennslu
niður í tveim áttundu bekkjum,
þar sent verið væri að setja klæðn-
ingu á loftin í tveim skólastofun-
um. í öðrum bekknum befði
kcnnsla falliö niður í einum tíma
m
TTTT
Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir:
Aarhus: Alla þriðjudaga
Svendborg: Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga
Gautaborg: Alla föstudaga
Varberg: Annan hvern miðvikudag
Moss: Annan hvern laugardag
Larvik: Alla laugardaga
Hull: Alla mánudaga
Antwerpen: Alla þriðjudaga
Rotterdam: Alla þriðjudaga
Hamborg: Alla miðvikudaga
Helsinki: Hvassafell 8/10
Gloucester: Jökulfell Jökulfell 15/10 5/11
New York: Jökulfell Jökulfell 17/10 7/11
Portsmouth: Jökulfell 17/10 Jökulfell 7/11 SKIPADE/LD 'f&kSAMBANDSINS LINDAFfGÖTU 9A • 101 REYKJAVlk SlMI 698100 L X L A. 11 A 11.
TÁKN TRAtJSTRA FLUTNINGA I
en í binurn bckknum í tveim
tímum. Aðspurður sagði bann að
þar með væri búiö að ganga endan-
lega frá öllum skólastofum nýju
álmunnar. Hins vegar yrði eftir
áramót unnið að fclagssvæði nem-
cnda í skölanum. Þar sent ckki
hefur verið gengið frá ióðinni við
skólann bcrst sandur og mold inn
á ganga hans, hcilbrigðiseftirlitið
hyggist fara þess á leit að úrbætur
verði gcrðar bvað þetta varðar,
cnda illgerlegt að halda skólanum
hreinum við þessar aðstæður. Enn-
fremur sagði Arnfinnur að sér
vitanlega væri ekki fyrirhugað að
ganga frá unihvcrfi skólans nú í
haust.
Eins og fram kom í Tímanum í
gær fór fulltrúi Heilbrigðiseftirlits-
ins til að kanna aðstæður í nýjum
áfanga skólans. Skýrsla fulltrúans
var svört og varð til þess að fram-
kvæmdastjóri eftirlitsins Oddur
Hjartarson fór sjálfur í skólann til
að taka út síðari hluta hans. Skól-
inn stóðst ckki kröfur cftirlitsins og
sagðist hann hafa oröið hissa á
fráganginum. Oddur óskaði eftir
því að skólalæknir Foldaskóla,
Gunnar Ingi Gunnarsson færi og
gerði úttekt á húsnæði skólans, þá
hvort húsnæðið teldist heilsuspill-
andi. Gunnar Ingi fer í sína eftir-
litsferð í dag og bjóst við að skila
skýrslu um málið til Odds Hjartar-
sonar síðdegis.
„Málið stendur þannig að ég er
búinn að frétta af þessu vandamáli.
Ég hef verið að undirbúa skóla-
eftirlit á heilsufari barnanna, eins
og gert er á hverju ári og ætlaði að
líta á húsnæðið í leiðinni, en vegna
þessa mun ég flýta athugun á
húsnæðinu, enda hefur verið farið
fram á það við mig,“ sagði Gunnar
Ingi Gunnarsson skólalæknir
Foldaskóla í samtali við Tfmann.
Hann sagðist hins vegar dálítið
hissa á því að árið 1988 ætti hann
sem skólalæknir að fara að meta
steinsteypu, hvort hús sé hæft til
kennslu, sem liann hefði þannig
séð ekki sérþekkingu á. „En sam-
kvæmt lýsingu sem gefin var á
ástandi húsnæðisins, þá finnst ntér
eðlilegt að fara og skoða aðstæður.
Málið virðist það alvarlegt," sagði
Gunnar. Aðspurður sagðist hann
fara í dag, fimmtudag og skoða
skólann, en Oddur Hjartarson
mun hafa beðiö hann unt að flýta
rnálinu. „Ég mun meta hvort ég
telji að ástandið sé þannig að
heilsufari stafi hætta af húsnæð-
inu,“ sagði Gunnar Ingi. Hann
sagðist mundi gera stutta greinar-
gerð um málið og senda það Oddi
Hjartarsyni framkvæmdastjóra
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur-
borgar. -ABÓ
Umsjónarmaður gaf tjaldbúum frest fram til 30. september að fjarlægja óleyfilegt tjald úr
Elliðaárdalnum:
Tjaldað
í óleyfi
í rjóðri í Elliöaárdalnum í Reykja-
vík hefur fjögurra manna tjald staðið
í ríflega hálfan rnánuö. Stranglega
er bannaö að tjalda á svæðinu, sem
er útivistarsvæði borgarbúa. Pegar
hafa verið gerðar athugasemdir við
staðsctningu tjaldsins og hangir
miði, undirskrifaður af umsjónar-
manni, þar scnt tjaldbúum er bent á
að taka saman föggur sínar, clla
vcrði þær fjarlægðar með lögregju-
valdi.
Lítill umgangur er við tjaldið og
cr fulltrúar Tímans voru á ferð við
það var ekki nokkra hreyfingu að
líta í nágrenninu. Það cr hinsvegar
athyglisvert að tjaldstæðið hefur ver-
ið valið gaumgæfilega og felur skóg-
ur tjaldið.
Tómar áfcngisflöskur og umbúðir
af matvælum hafa fundist við tjaldið
og í næsta nágrenni. Lögreglu hefur
ekki enn vcrið tilkynnt um tjaldið,
en Björn Haraldsson kcrfisstjóri hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur sagði í
gær að það yrði gert í beinu fram-
haldi af fyrirspurn Tímans.
Vissi Björn, sem erumsjónarmað-
ur með Elliðaárstöðinni, af tjaldinu,
Sem sjá má er ýmislegt nýtilegt að finna í tjaldinu. Prímus, svcfnpokar, skór og ýmislegt fatakyns. Miðinn frá
umsjónarmanninum tiltekur frest fram til 30. september, eða fyrir viku. Enn hefur tjaldið ekki verið hreyft og
viðbúið að bráðum verði kölluð til lögregla. Tímamynd: Árni Bjarna
en hélt að þegar hefði eitthvað verið
gert í málinu.
Fulltrúi Björns, Kjartan Sveins-
son, sem eftirlit hefur með Elliðaár-
dalnum hafði fyrir nokkru tilkynnt
um vistarverur óþekktra íbúa og í
framhaldi af því var áðurnefndur
miði ritaður og hengdur upp í tjald-
inu.
Nokkur brögð hafa verið að því
síðari ár að tjöld hafi verði sett upp
í Elliðaárdalnum. Þareru íslending-
ar engir eftirbátar útlendinga. Reynt
er að stugga við tjaldbúum í dalnum
jafnóðum og frést hefur til þeirra.
Umgengni unt dalinn er góð að
sögn Björns og lítið um skemmdar-
verk. Viðbúið er að í dag eða næstu
daga muni lögreglan í Árbæ fá það
verkefni að taka niður tjaldið í
Elliðaárdalnum. Ástæðuna fyrir því
að ekki hefur verið gengið harðar
fram í þessu máli segir Björn Har-
aldsson vera að þeir vilji fyrst fara þá
leið að gefa viðkomandi tækifæri til
að sjá að sér, áður en gripið er til
þess ráðs að kalla til lögreglu.
Stefán Valgeirsson, alþingismaður:
AFSTAÐA HULDUMANNANNA
TIL VANTRAUSTS ÓÞEKKT
Stefán Valgeirsson, alþingismað-
ur sagði Tímanunt í gær að huldu-
mennirnir (maðurinn) sem hann á
sínum tíma sagði að myndu tryggja
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar meirihluta í báðum deildunt
sætu í ncðri deild Alþing*.
Nokkrar umræður hafa spunnist
um lögmæti þess að Skúli Alexand-
ersson þingmaður Alþýðubandalags
hyggst santvisku sinnar vegna, víkja
af þingi ef vantrauststillaga kemur
frant á ríkisstjórnina, en ef slíkt væri
talið ólöglegt hefði ríkisstjórnin ekki
meirihluta í sameinuðu þingi til að
verjast vantrausti. Því sneri Tíminn
sér til Stefáns Valgeirssonar og
spurði hann hvort huldumennirnir
myndu verja ríkisstjórnina van-
trausti þannig að örlög stjórnarinnar
yltu ekki á Skúla. Stefán sagði að
það yrði að koma í ljós því hann hafi
aldrei sagst geta tryggt stuðning við
stjórnina gegn vantrauststillögu.
Benti hann á að hann hafi einungis
sagt að hann gæti tryggt meirihluta í
báðum deildum í meiriháttar
málum. „Þegar ég sagði þetta á
sínum tíma þá var meirihluti fyrir
hendi í sameinuðu þingi ef flokkarn-
ir stæðu saman. Unt vantraust var
aftur á móti aldrei talað af mér og ég
hef ekki hugmynd um livað þeir gera
gagnvart því. Það voru meiriháttar
mál sem ég talaði um og jafnframt
meiriháttar mál sem ég myndi á
annað borð styðja," sagði Stefán.
Aðspurður unt þá skoðun sem viðr-
uð hefur verið að engir huldumenn
væru á þingi sagði Stefán að slíkt
væri ekki rétt. Kvaðst hann mundu
svara slíkum ásökunum ómyrkur í
máli og vísa þcim til föðurhúsanna.
-BG