Tíminn - 19.10.1988, Síða 4
4 Tíminn
Bátur til sölu
2,5 tonna trébátur til sölu, báturinn er með 38 ha.
Mercedes Benz vél, radar 8 mílna, dýptarmælir,
talstöð, tveim rafmagnsrúllum.
Fæst fyrir sanngjarnt verð. Upplýsingar í síma
97-21177 eða 43850.
BLIKKFORM
______Smiðiuveqi 52 - Sími 71234__
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla
bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælqnhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt land
(Ekið niður með Landvélum).
Miðvikudagur 19. október 1988
.Vf ' ~lv- ? - v‘v'‘'|i'v'.
Rjúpnavertíð hófst um helgina:
Afleitt veður
hamlaði veiði
Rjúpnavertíðin hófst um helgina. Veiðimenn hrepptu hið
versta veður, víða um Iand og veiddist heldur minna en menn
eiga að venjast fyrstu dagana. Á þessu voru þó undantekning-
ar. Skyttur í Mývatnssveit voru ánægðar með sinn hlut og
segja mikið af rjúpu.
Skyttur á Suður- og Vesturlandi
hrepptu aftakaveður og fuku fram
og aftur ásamt rjúpunum. Ekki fara
sögur af mikilli veiði á laugardag.
Blaðamaður Tímans fór upp í
Bláfjöll á sunnudag og var þar margt
um manninn. Höfðu veiðimenn það
á orði að fleiri skyttur hefðu verið í
fjöllunum en rjúpur.
Gat að líta slituppgefna skrifstofu-
menn í bröttum hlíðum, er bölvuðu
hreyfingarleysinu og reykingunum.
Sumir tóku svo djúpt í árinni að lýsa
því yfir að þetta yrði þeirra síðasta
rjúpnaferð. Mikið heyrðist þó af
skothvellum og sjálfsagt að einhverj-
ir hafi lent í veiði, þó þeir hafi ekki
orðið á vegi blaðamanns Tímans.
Jóhannes Stefánsson matreiðslu-
maður í Veitingahöllinni var einn
þeirra sem ekki setti fyrir sig hvass-
viðrið á laugardag og fór til rjúpna í
Borgarfirði við þriðja mann. „Þetta
varrosalegt. Við bókstaflegafukum.
Úrkoman var svo mikibað ég hef
sjaldan upplifað annað eins. Þegar
leið á daginn þyngdist maður og var
sjálfsagt orðin ein hundrað og tutt-
ugu kíló, því gallinn sem ég var í var
gegnsósa af vatni,“ sagði Jóhannes.
Hann og félagar hans höfðu ágæta
veiði þegar upp var staðið. Jóhannes
taldi að nokkuð hefði verið af rjúpu
á svæðinu er þeir félagar hafa stund-
að síðari ár. „Þetta var þó engan
veginn jafn mikið og maður hefur átt
að venjast," sagði Jóhannes.
Konráð Sigurðsson, sjómaður á
Árskógsströnd fór ásamt öðrum
manni til veiða á laugardag, í fjall-
lendi upp af Eyjafirði. Höfðu þeir
samtals á þriðja tug fugla, þegar þeir
hættu um miðjan dag, sökum
veðurs. Var þá verulega farið að
hvessa.
Úr Bárðardal fékk Tíminn fréttir
af góðri veiði. Þar segjast menn hafa
séð mikið af rjúpu og hugsa veiði-
menn sér gott til glóðarinnar. -ES
Flugleiðir og Japanair:
Flogið beint í
fjærsta austur
Ferskur lax og ígulker var meðal
þess fyrsta sem flutt var beina leið
með flugi frá íslandi til Japans, með
millilendingu þó.
Byggja þessir flutningar á samn-
ingum milli Flugleiða og Japanair og
er því hægt að fá vöru flutta héðan
til Japans á einum til tveimur sólar-
hringum, eftir því hvernig stendur á
fluginu, en það fellur inn í aðra
áætlun.
Millilendingin verður í London á
Heathrow-flugvelli og er þar skipað
um yfir í risaþotur Japana sem fljúga
beina leið til Tokyo og annarra staða
í Japan. Fyrst um sinn er búist við
að útflytjendur á ferskum sjávaraf-
urðum muni nýta sér þessa nýju og
fersku áætlun Flugleiðamanna, eins
og Einar Sigurðsson upplýsingafull-
trúi sagði, en vitanlega eru allir
möguleikar opnir fyrir frekari flutn-
ingi. Þá opnast einnig möguleikar á
að flytja hingað til land^ ýmsa vöru
frá Japan en eins og kunnugt er
aukast stöðugt viðskipti landanna
tveggja. KB
Leiksýning
frá París
Á mánudagskvöldið 24. október
verður leiksýning frá París í íslensku
óperunni. Þar kynna tveir þekktir
franskir leikarar, Catherine Sellers
og Pierre Tabard, leikritið Madame
de la Carliere, sem byggt er á
smásögu eftir Denis Diderot. Það
eru La Comedie Francaise og Le
Petit-Odeon í París sem standa að
þessari sýningu, en hingað kemur
hún á vegum Alliance Francaise, í
tilefni af tvö hundruð ára afmæli
frönsku byltingarinnar.
Höfundur verksins, Denis Dide-
rot, var einn af mestu rithöfundum
og heimspekingum Frakka á 18. öld,
og einn af höfundum frönsku al-
Pierre Tabard.
fræðiorðabókarinnar. Þetta verk
hans fjallar um ást karls og konu og
þau viðhorf sem hjá þeim skapast ef
trúnaðurinn bregst. Það er glettnis-
lega samið, en að baki leynist þó
gagnrýni á þær venjur og þá fordóma
sem fýlgt hafa manninum allt fram á
okkar daga. -esig
Evrópsk verðlaun fyrir markaðssetningu á sviði útgáfu:
„Nýtt af nálinni“
fagleg hugkvæmni
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell
hreppti um síðustu helgi evrópsk
verðlaun fyrir útgáfu sína og mark-
aðssetningu á hannyrðaklúbbnum
Nýtt af nálinni.
Verðlaunin, sem nú voru veitt í
annað sinn heita European Grand
Prix for Direct Marketing og standa
að þessari verðlaunaveitingu meðal
annarra franska póstþjónustan og
ýmis póstdreifingarfyrirtæki í Frakk-
landi.
Verðlaunin eru veitt fyrir framúr-
skarandi kynningarverkefni í ýmsum
greinum beinnar markaðssetningar
og á sviði útgáfu eru aðeins ein
verðlaun veitt og komu þau nú í hlut
Vöku-Helgafells.
Nýtt af nálinni er klúbbur fyrir
áhugafólk um saumaskap og hann-
yrðir.
Félagar hans fá mánaðarlega
sendan pakka frá Vöku-Helgafelli
með tímariti, sníðaörk og ýmsum
tilboðum. Þá fá meðlimir árlega
senda sérstaka geymslumöppu fyrir
efnið sér að kostnaðarlausu. -cá