Tíminn - 28.10.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 28. október 1988
Gissur Pétursson Guðrún Jóhannsdóttir
Kjördæmisþing framsóknarmanna
á Norðurlandi vestra
veröur haldiö í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 29. og 30.
október 1988.
Dagskrá: laugardaginn 29. október.
1. kl. 13:00 Þingsetning og kosning starfsmanna.
2. kl. 13:15 a. Skýrsla stjórnar KFNV, blaðstjórnar Einherja og
reikningar.
b. Frá laganefnd.
c. Umraeður um skýrslu stjórnar og reikninga - af-
greiðsla.
3. kU- 14.00 Ávörpgesta: .
a. Guðrún Jóhannsdóttir.
b. Gissur Pétursson.
4. kl. 14.15 Stjórnmálaviðhorfið:
Steingrímur Hermannsson.
5. kl. 15.30 Kaffihlé.
6. kl. 16.00 Frjálsar umræður.
7. kl. 18.15 Kosning nefnda og nefndarstörf.
8. kl. 20.00 Kvöldverður á Hótel Blönduós.
Kvöldskemmtun í Félagsheimilinu.
Sunnudagur 30. október:
9. kl. 11.00 Nefndarstörf.
10. kl. 12.30 Matarhlé.
11. kl. 13.30 Sérmál þingsins, uppbygging og fjármögn-
un atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni í nú-
og framtíð.
Framsögumaður Bjarni Einarsson.
12. kl. 15.30 Nefndir skila áliti - Umræður - Afgreiðsla.
13. kl. 17.00 Kosningar.
14. kl. 18.00 Önnur mál.
15. kl. 18.30 Þingslit.
Gestir þingsins:
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra.
Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins.
Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Byggðastofnun.
Gissur Pétursson, formaður SUF.
Guðrún Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri LFK.
Kjördæmisþing framsóknarmanna
á Norðurlandi eystra
verður haldið að Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit, dagana 4.-5. nóv.
Þingið hefst föstudaginn 4. nóv. kl. 20.
Sérmál þingsins: Áhrif efnahagsstjórnunar á þróun byggðar.
Erindi flytja:
Ásgeir Daníelsson hagfr. Þjóðhagsstofnunar
Ema Indriðadóttir deildarstj. RÚVAK
Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri
Vilhjálmur Egilsson framkv. stj. Verslunarráðs Islands.
Gestir þingsins:
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
Þórdís Bergsdóttir L.F.K.
Kristinn Halldórsson S.U.F.
Þinginu lýkur með samkvæmi á vegum Framsóknarfélags Mývatns-
sveitar.
Um 80% unglinga á aldrinum 15 til 19 ára neyta áfengis:
Um 300 unglingar
misnota vímuefni
Líklegt má telja að rúmlega 300
unglingar á aldrinum 14 til 19 ára
misnoti áfengi og önnur vímuefni
hér á landi og þorri unglinga á
þessum aldri neyti áfengis eða um
80%, að sögn Éinars Gylfa Jónsson-
ar forstöðumanns unglingaheimilis
ríkisins á ráðstefnu samstarfsnefnd-
ar ráðuneyta um ávana-og fíkniefna-
mál. Þá kom einnig fram að ekki sé
til nein stofnun sem geti veitt þeim
unglingum meðferð sem talin er að
þurfi.
Einar Gylfi sagði í erindi sínu að
unglingar byrjuðu mun fyrr að neyta
áfengis nú en áður og önnur vímu-
efni eins og t.d. hass, væru komin
inn í myndina hjá unglingunum.
Hann sagði að stökkbreyting hafi
orðið á síðustu tveim áratugum, en
á allra síðustu árum bendi margt til
þess að vímuefnaneysla sé á undan-
haldi.
Mál sitt byggði Einar m.a. á
könnun sem gerð var 1986 og niður-
stöður birtar fyrir skömmu. Borin er
saman neysla þriggja aldurshópa á
árunum 1984 og 1986. Aldurshóp-
arnir voru 15, 17 og 19 ára. Fram
kemur í niðurstöðum að tóbaks-
neysla hafi verið minni 1986 en 1984
í öllum aldurshópum, hassneysla
stendur í stað hjá stúlkum en hefur
minnkað hjá drengjum, sniff hefur
minnkað hjá 15 ára aldurshópnum
hjá báðum kynjum, en aukist eitt-
hvað í 17 og 19 ára aldurshópunum.
Lyfjanotkun hefur aukist eitthvað
yfir heildina, en áfengisnotkun hefur
staðið í stað, og 15 ára stúlkur neyttu
minna áfengis 1986 en 1984. „Hinu
má ekki gleyma að þorri unglinga á
þessum aldri neytir áfengis, eða um
80%,“ sagði Einar Gylfi.
Þá vitnaði Einar einnig í könnun
sem gerð var meðal allra 14 ára
unglinga í Reykjavík 1976. Þrátt
fyrir að 12 ár séu liðin síðan sú
könnun var gerð, þá segir hann að
hér sé á ferðinni áreiðanlegasta
rannsókn sem gerð hafi verið á
vímuefnaneyslu unglinga á íslandi.
Ef vandamálið er skilgreint þröngt
þá má ætla að þeir sem nota áfengi
tvisvar til þrisvar í viku eða oftar,
séu 1,3% í hverjum aldurshópi, frá
14 til 19 ára. Hér er um 320 einstakl-
inga að ræða, en talið er að fjöldinn
sé mjög varlega áætlaður í þessu
tilviki.
Einar Gylfi sagði að hluti þess
hóps sem verst er ástatt fyrir, eigi við
mjög erfið félagsleg vandamál að
stríða. Árekstrar við fjölskyldu eru
meðal algengustu vandamála sem
upp koma í tengslum við vímuefna-
neyslu, en eftir því sem vímuefna-
neysla vex hjá ungmennunum, virð-
ast vandamál eins og afbrot, þjófn-
aður og afskipti lögreglu verða hlut-
fallslega tíðari. Heimilis- og fjöl-
skylduaðstæður þessa hóps virðast
mjög erfiðar. Þannig hafí meirihlut-
inn ekki alist upp hjá báðum kynfor-
eldrum sínum og búa í tæpum 40%
tilfella ekki í heimahúsum. Hann
segir að nauðsynlegt sé að veita
þessum hóp sérhæfða og víðtæka
meðferð, en í dag sé ekki um slíka
meðferð að ræða. Þó að unglinga-
heimilinu og meðferðarstofnunum
SÁÁ hafi tekist ágætlega upp í
sumum tilfellum við meðferð ung-
linga, þá væri ekki hægt að hjálpa
þorra þeirra eftir núverandi leiðum,
einkum þar sem þær meðferðir sem
nú eru í gangi miðist einkum við
fullorðna.
- ABÓ
Nýskipaðir sendiherrar
Hínn 4. október s.I. afhentu þrír nýskipaðir sendiherrar forseta íslands trúnaðarbréf sín. Þeir eru: Hr. Murillo
Gurgel Valente, sendiherra Brasilíu; dr. Cyrus Taohitu, sendiherra Indónesíu; og hr. Karol Nowakowski, sendiherra
Póllands. Sendiherrarnir hafa allir aðsetur í Osló. Á myndinni eru sendiherramir ásamt forseta íslands og Jóni
Baldvin Hannibalssyni, utanríkisráðherra.
Skrifstofan að Hafnarstræti 90 Akureyri er opin frá kl. 15-18 virka
daga, sími 21180.
Stjórn KFNE. ®
Jón Guðni
Skaftfellingar
Aðalfundur Framsóknarfélags Vestur-Skaftafellssýslu verður haldinn
laugardaginn 29. okt. i Tunguseli og hefst kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á kjördæmisþing og
flokksþing.
Alþingismennirnir Jón Helgason og Guðni Ágústsson mæta á fundinn.
Stjórnin
Ráðstefna um hlut-
verk auglýsingastofa
í ár eru liðin tíu ár frá því að
Samband íslenskra auglýsingastofa
var stofnað. í tilefni af því verður
efnt til ráðstefnu fimmtudaginn 3.
nóvember. Meginviðfangsefni ráð-
stefnunnar er hlutverk auglýsinga-
stofa, þá fyrst og fremst samskipti
auglýsingastofa við auglýsendur og
fjölmiðla.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
efnið frá sjónarhóli hvers aðila um
sig, auglýsenda, fjölmiðla og auglýs-
ingastofa. Framsögumenn verða
tveir fulltrúar frá hverjum þessara
þriggja aðila. Einnig mun David
Wheeler, sem er framkvæmdastjóri
Institute of Practitioners in Ád-
vertising í London flytja fyrirlestur
um hlutverk auglýsingastofa. Auk
þess á hann sæti í ýmsum ráðum og
nefndum sem hafa áhrif á þróun og
venjur á auglýsingamarkaðinum í
Bretlandi og einnig á alþjóðlegum
vettvangi.
Ráðstefnan hefst kl. 13.15 áHótel
Sögu og er öllum opin. Væntanlegir
þátttakendur eru beðnir um að láta
skrá sig fyrir 1. nóvember á skrif-
stofu SIA. ssh
Frímerkja- og póstsögusjóöur:
Rannsóknir
efldar
Úthlutað var öðru sinni úr
Frímerkja- og póstsögusjóð á
degi frímerkisins þann 9. október
s.l.
Sjóðnum er ætlað að styrkja
rannsóknir og störf á sviði frí-
merkjafræða og póstsögu.
Úthlutað var 1.490 þúsundum
króna sem skiptust milli níu aðila.
Þeir eru; Landssamband ís-
lenskra frímerkjasafnara, Félags-
vísindadeild Háskóla íslands,
Þjóðminjasafn íslands, fimm fé-
lög frímerkjasafnara og Sigurður
Þorsteinsson, sem fékk styrk til
að fullvinna og gefa út bæklinga
varðandi póstsögu. - sá