Tíminn - 28.10.1988, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.10.1988, Blaðsíða 9
Föstudagur 28. október 1988 Tíminn 9 llllll BÓKMENNTIR .. ■ ... ■ ' ... .in!;;1' ■ ■ .111. " .. ... Ikll. .. Kjögxarnir aftur á kreiki Þórarinn Eldjárn: Skuggabox, Gullbringa, Rv. 1988. Fjölskyldan Kjögx kom fram á sjónarsviðið í bókinni Margsaga sem Þórarinn Eldjárn sendi frá sér fyrir þremur árum. Þar kynntumst við m.a. þeim feðgum Braga Kjögx skáldi og sonum hans Þórhalli Kjögx dyraverði og Kort Kjögx öryrkja, auk annarra af sömu ætt. í Skuggaboxi er það hinn sxðast nefndi sem er orðinn aðalpersónan. Faðir hans er enn inni í sögunni hér sem skáldið B. Kjögx, en Þórhallur horfinn. Eða svo gott sem. Kort er aftur á móti orðinn fertugur málat- ferlisfræðingur. Hann hefur dvalið tuttugu ár erlendis og hefur um árabil ýtt á undan sér að Ijúka lokaritgerð sinni við háskóla úti í Svíþjóð. Hún á að fjalla um gamalt málfræðirit eftir Jón Ólafsson frá Grunnavík, Contractismus, sem í raunveruleikanum liggur víst í hand- riti úti í Árnasafni og þykir afspyrnu- vont að sögn þeirra sem lesið hafa. Kort er kvæntur sænskri stúlku og eiga þau kóreskan kjörson. Konan er þó hlaupin frá honum með barnið vegna þess að hann er á kafi í uppfinningum sínum og tekur þær fram yfir að ljúka ritgerðinni. Vissulega er það laundrjúg yfir- borðsfyndni sem setur mestan svip á þessa sögu. Svona svipað og það sem tryggir lesendur og aðdáendur Þór- arins Eldjárns þekkja vel úr fyrri bókum hans. Þannig er erfitt annað en að líta á Kjögxana hans sem hverja aðra skoplega furðufugla, sérvitra og vel til þess fallna að hlæja að þeim. Og ofan í kaupið kemur hér önnur álíka fjölskylda til sögunn- ar, Napparnir. Nánar til tekið hefur Bragi Kjögx verið kvæntur Rósu Napp Kjögx, og er Kort því Napp að móðurkyni. Napparnir eru með þeim ósköpum fæddir að þegar þeir reiðast setur að þeim óstöðvandi hlátur. Þetta er í sögunni rakið til langalangafa Korts, Hjörleifs Napp, sem bersýnilega er sniðinn eftir vel þekktri sögulegri persónu, Þorleifi Guðmundssyni Repp, og frægri sögu af magisters- vörn hans snemma á öldinni sem leið. Og þennan eiginleika hefur meðal annars Kort erft, og sömuleið- is Rósa dóttir hans. Annars er það móðurafi Korts, Ögmundur Önundur Napp, sem þetta ættareinkenni birtist hvað ákveðnast hjá. Ekki er í bókinni getið um uppruna hans eða ættarinn- ar Napp yfirleitt. Grunur hlýtur þó að læðast að manni um að hún sé íslensk í a.m.k. annan legginn og hann beri þannig nafn landnáms- mannsins í Hlíð í Ódal, Önundar brauðfótar, eða túnfótar, eða flugu- fótar, en öll þessi nöfn ber hann í sögunni. Undir lokin er þess svo getið að þeir Ódælir hafi stundað það að deyja inn í hlíðina fyrir ofan bæ sinn í Ódal, og má þar vera komin skýring jafnt á upphafi sem lokum verksins. Napp-nafnið má líka sem best vera komið frá Pól- landi, svona með hliðsjón af þeim mikla áhuga sem því landi er sýndur víða í bókinni. Það er með öðrum orðum fyndni af því tagi, sem hér hefur verið lýst, sem er mest áberandi í bókinni. Hún er á yfirborðinu skopsaga, en þó leynist þar sitthvað fleira ef grannt er skoðað. Það er til dæmis alls ekki fullljóst hvort Kort er í rauninni ein persóna eða tvær. Austur í Svíþjóð ber hann nefnilega nafnið Kurt Person, og eftir að sagan hefur borist til íslands er af og til á flækingi í henni sænskur málatferlisfræðing- ur, sem m.a. gerir viðamikla könnun á svo kölluðu málatferli gesta í Sundlaug Vesturbæjar. Verður úr því rækileg ritgerð um efnið, hinn hroðalegasti lestur. í sögunni gerist það einnig að Kort fær um það boð frá afabróður st'num, Njáli Kjögx, vel að merkja í desember 1988, að hann hyggist arfleiða hann að húsi sínu í Reykja- vík og ættarsetri Kjögxanna. Kort fær samtímis boð um að Njáll sé látinn. Hann heldur hið snarasta til íslands til að heimta arf sinn. Kennara sinn úti kveður hann með svipuðum hætti og Sæmundur fróði kvaddi Kölska í Svartaskóla forðum, og skilur frakka sinn eftir í höndum hans en hleypur undan | sjálfur. Síðan ríður einnig hann á sel yfir Atlantsála, en í stað Saltarans notar hann harða diskinn úrtölvunni sinni til að slá selinn í háusinn með í fjörunni heima. Að því er þó að gæta að samkvæmt dagsetningu bréfsins frá Njáli Kjögx gerist sagan ekki fyrr en á bak jólum nú í ár. Með öðrum orðum þá kemur bókin út núna í október en gerist ekki fyrr en um eða eftir næstkomandi áramót. Þegar til Reykjavíkur kemur fara hins vegar öll skil á milli raunveru- leika og draumaheims að verða óljósari en þau voru þó úti í Svíþjóð. Og vaknar þar í rauninni talsvert ákveðinn grunur um það að Kort sé í rauninni ósköp einfaldlega dauður og hrærist þarna um svona rétt eins og hver önnur afturganga eða draug- ur. Undir þann grun ýtir líka upplif- un Jóns nokkurs Árnasonar læknis, sem þarna kemur við söguna og lendir í því að vera viðstaddur einhvers konar draugaveislu í sam- komuhúsinu Víðavangi. Sem og ýmsir atburðir sem verða í gamla Kjögxhúsinu, þar sem m.a. afinn, Ögmundur Ónundur Napp, birtist allt í einu og er alls óljóst hvort heldur hann sé í rauninni dauður eða lifandi. Þegar þarna er komið má líka meir en vera að naskur lesandi fari að sjá hilla undir samhengi við upphafskafla bókarinnar. Þar segir frá raunum hjónanna í Hlíð í Ódal. Á þeim bæ hefur sama ættin búið allt frá landnámsöld, en til vandræða horfir því að núverandi ábúendur, Þórarinn Eldjárn rithöfundur. Önundur og Rósa, hafa ekki eignast börn. Með yfirnáttúrulegum hætti tekst þeim það þó, að því er sýnast má fyrir tilverknað sjálfs Önundar landnámsmanns, og sonur þeirra er dreginn alskapaður út úr bakarofni móður sinnar. Hér er þannig ósvikið ævintýraminni á ferðinni, en aftur á móti má sakna þess að áminnstur Önundarsonur skuli hvergi koma fram aftur í bókinni. Má þó vænta þess að hann sé orðinn rúmlega tvítugur á sögutímanum, því að fæðing hans á sér stað 1966. Það er hins vegar gamall bíll persónunnar Kolla mix sem tengir þetta allt saman. í ljós kemur að Kolli hefur á sínum tíma verið trúlofaður Rósu en misst hana yfir til Önundar í Hlíð er hún skaust einn vetur í húsmæðraskóla. í þessum sama bíl er Kort svo bæði snemma í sögunni og í lok hennar, ásamt afa sínum og dóttur. Úr þessum bíl er það svo sem hann heldur upp í fjallið ofan við Hlíð. Þar virðist mega telja að hann sé að safnast á vit feðra sinna, Ódælinga, og að afi hans hafi þar farið á undan honum. Með öðrum orðum þá er þessi bók á yfirborðinu samansafn af hnyttinni gamansemi, sem í fljótu bragði skoð- að er ekki svo auðvelt að sjá neinn verulegan þráð í. En þegar farið er að kafa niður í hana kemur þó margs konar samhengi í ljós og margar hugleiðingar vakna. Það er ekki nóg með að hún sé fyndin, heldur er líka mikið af gátum í henni sem lesanda er ætlað að reyna að ráða í. í heildina skoðað hygg ég þó að ráða megi úr flestum gátum bókar- innar, a.m.k. með viðeigandi hug- myndaflugi, og fá þannig hæfilegt samhengi í verkið. Þó verð ég að játa að ég hef ekki enn fundið botn í hvaðeina, svo sem það uppátæki að láta þau Kort og Rósu dóttur hans setjast niður til að spila lúdó þegar þau hittast í fyrsta sinn. Að vísu er leiklýsingin spennandi á við bestu fótboltalýsingu, en hvað er skáldið að fara með þessu? Sama máli gegnir einnig um Rósur bókarinnar. Þær eru einar fjórar, húsfreyjan í Hlíð, fóstra Korts og afasystir, Rósa Napp, og svo móðir hans og dóttir. Á nafnið kannski að tákna að hér sé ein og sama persónan á ferðinni? Líka verður tæpast séð að hér sé nokkur umtalsverður boðskapur á ferðinni. Ádeilur á þjóðfélagið eða stofnanir þess er erfitt að finna í nokkrum þeim mæli að sérstaklega sé um slíkt getandi. Þvert á móti er það gamansemin sem hér ræður ferðinni. Sjálfgert er þess vegna að setja út það að Þórarinn Eldjárn skuli ekki sjáanlega setja sér mikið hærra markmið hér en það eitt að skemmta lesendum sínum og færa þeim eina saman dægrastyttingu upp í hendurnar. Þó að segja megi að slíkt geti svo sem verið eitt af yfirlýstum markmiðum skáldskapar þá dregur það tæplega nóg eitt saman. Yfirleitt þykir betra að skáld- in hafi líka einhvern umtalsverðan og marktækan boðskap fram að færa frá eigin brjósti. -esig Nýtt Kaupfélagsrit Ekki hef ég hjá mér upplýsingar um það hvenær Kaupfélagsritið byrj- aði að koma út, en á heftinu, sem var að berast mér í hendur, stendur að það sé hið 94. í röðinni. Eru því árin greinilega orðin mörg, og hitt er víst að í áranna rás er þetta tímarit búið að flytja Borgfirðingum og öðrum áhugamönnum um borgfirsk málefni drjúgan skammt af fróðlegu lestrarefni. Það er Kaupfélag Borg- firðinga í Borgarnesi sem gefur út og Bjami Valtýr Guðjónsson sem rit- stýrir. Mega báðir aðilar eiga drjúg- an heiður af þessu íramtaki. f þessu hefti las ég tvær greinar mér til óskiptrar ánægju. önnur er eftir Kristínu Pétursdóttur á Innri- Skeljabrekku og er ferðasaga austur í Skaftafellssýslur frá árinu 1971. Kannski segir þar ekki frá svo ýkja- stórum atburðum, en frásögnin er lipur og drjúggóð og skemmtileg heimild. Hin greinin er eftir Gunnar Guðbjartsson og er frásögn hans af ferð sinni með sláturfjárrekstur í Borgarnes árið 1931. Fyrir okkur nútímamenn, sem þjótum um sveitir á ökutækjum okkar, er það þörf áminning að kynnast því hvemig það var, fyrir ekki svo ýkja löngu, að fara fótgangandi í langferðir með kannski á annað hundrað fjár á undan sér. Og þetta þurfti að gera í minni fólks sem enn er á góðum aldri. Burtséð frá þessu er kannski ástæða til að setja út á það að hér er verulega stór hluti heftisins lagður undir fundargerðir. Þar fer fyrst fundargerð aðalfundar kaupfélags- ins frá því í maí í vor. Þá kemur fundargerð Mjólkursamlags Borg- firðinga frá því í apríl. Loks er svo þarna fundargerð haustfundar kaup- félagsins sem haldinn var nú í byrjun september. Ekki skal hér dregið í efa að þetta efni eigi erindi til héraðsbúa í Borg- arfirði, enda um fyrirtæki að ræða sem afkoma býsna margra þeirra stendur og fellur með. Og þarna er margur fróðleikur um reksturinn sem fullt erindi á út á prent. En hitt er annað mál að það er dálítið seint að vera að senda út slíkar fundar- gerðir í október, frá fundum sem vom í apríl og maí. Væri ekki hægt að dreifa til dæmis fundargerðum mjólkursamlags og kaupfélags í sér- stöku hefti strax að fundum loknum? Jafnvel mætti hugsa sér að þeim væri dreift sérstaklega til félagsmanna og Kaupfélagsritið léti duga að birta úr þeim stutta útdrætti. Tímaritið mætti svo að öðru leyti helga þeim héraðs- fróðleik sem ég efa ekki að nóg leynist af í Borgarfirði og kannski hefur verið útgefendum til hvað mests sóma að forða frá gleymsku og koma á framfæri. En hitt skal hér ekki undan dregið að Kaupfélagsritið er myndarlegt tímarit og ánægjulegt aflestrar. Von- andi á það eftir að verða lesendum sínum til ánægjuauka um langa hríð enn. -esig Hjá Örlaginu í Revkjavík er ný- lega komin út bókin I skolti Levíat- ans. Er hér um að ræða þýðingar á ljóðum margra virtustu skálda Evr- ópu, Suður-Ameríku og Tyrklands. Þýðandi ljóðanna er Jóhann Hjálm- arsson og er í skolti Levíatans fjórða þýðingarbók hans. Fengur er í þess- ari nýju bók Jóhanns því tólf ár eru nú frá því síðustu þýðingar hans komu út í bókinni Þrep á sjóndeild- arhring. Jóhann hefur á þeim 28 árum sem liðin eru frá útkomu fyrstu þvðinga hans, verið ötull við að kynna Islend- ingum ljóðagerð fjölda skálda sem markað hafa spor sín í sögu heims- bókmenntanna. Má þar nefna César Vallejo, Federico Carcía Lorca, Sal- vatore Quasimodo, Gunnar Ekelöf og Gottfried Benn. Levíatinn sem fyrir kemur í nafni bókarinnar er skaðræðisskepna nokkur úr Biblíunni og sver sig mjög í ætt Miðgarðsorms sem betur er þekktur hér á norðurslóðum. Titill- inn er sóttur í eitt af ljóðum pólska skáldsins Czeslaws Milosz. Athygl- isverður er hlutur tyrkneskra skálda í bókinni en Jóhann Hjálmarsson er að líkindum sá íslendingur sem mest hefur látið sig varða ljóðlist Tyrkja. í skolti Levíatans er 111 síður að stærð, prentuð og bundin í Prent- stofu G. Benediktssonar. Kápu- mynd er eftir flæmska málarann Hieronymus Bosch, ljósmynd á bakhlið tók Páll Stefánsson. Útgáfa bókarinnar er styrkt af Norræna þýðingarsjóðnum og Þýðingarsjóði Islands. Örlagið hefur áður gefið út bækurnar Dagbók Lasarusar og Frostmark, báðar eftir Kjartan Árnason.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.