Tíminn - 29.10.1988, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Laugardagur 29. október 1988
-*r
Standast allir fullkomlega kröfur nýju reglu-
gerðarinnar (Nr. 407-1988) um búðarkassa.
Örugg og góð þjónusta.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari
upplýsingar.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
IRI REYKJKMÍKURBORG ÍSl
Baðvörður
óskast viö piltaböð í íþróttahúsi Álftamýrarskóla
frá 1. desember n.k.
Nánari upplýsingar í síma 686588 milli kl. 8.00-
11.00 fyrir hádegi.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Unnur Ingibjörg Sigfúsdóttir
frá Hólmlátri, Miklubraut 76, Reyk]avfk
sem andaðist20. októbers.l. verðurjarðsung-
in frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. nóvember kl. 13.30.
Arndfs Styrkársdóttir Klara Styrkársdóttir
Sigfús Styrkársson Guðríður Þorvaldsdóttir
Guðjón Styrkársson Ágústa Einarsdóttir
Hjálmar Styrkársson Vilborg Reimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi
Arnaldur Þór
Blómvangl, Mosfellsbæ
er lést 21. október verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
31. október kl. 15.00.
Kristfn Þór
Guðrún Þór Harry Sönderskov
Jónas Þór Anna Bára Árnadóttir
Ólöf Helga Þór
barnabörn
Fulltrúar á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda.
Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda:
222 smábátar
á 9 mánuðum
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og Gylfi Gautur Pétursson,
deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Smábátum hefur fjölgað um 13%
frá síðustu áramótum. Á sama tíma
hefur aukning í brúttólestum verið
19% og er heildarstærð smábátaflot-
ans nú 8.711 brúttólestir. Þetta kom
fram í ræðu Halldórs Ásgrímssonar
sjávarútvegsráðherra . á aðalfundi
Landssambands smábátaeigenda
sem haldinn var í gær. Formaður
landssambandsins, ArthurBogason,
sagði að margir aðilar hefðu ráðist í
útgerð smábáta af mikilli bjartsýni
og sumir vafalaust af meira kappi en
forsjá.
Fjölgun smábáta hefur verið mikil
á síðustu árum. Smábátar undir 10
brl. voru 1.500 1. janúar 1987,1.716
1. janúar 1988 og 1.938 1. október
1988. Með hiiðsjón af þessu hefur
smábátum fjölgað um 13% frá síð-
ustu áramótum og aukning í brúttó-
lestum er 19% á sama tíma og er
heildarstærð smábáta nú 8.711 brl.
í ávarpi sjávarútvegsráðherra
kom fram að afli smábáta hefði
meira en tvöfaldast á sl. fjórum
árum. Þannig veiddu smábátar tæp-
lega 21 þúsund tonn á árinu 1984 og
var þorskafli þar af 16 þúsund tonn.
Á árinu 1987 varð þorskafli smábáta
36 þúsund tonn en heildaraflinn um
43 þúsund tonn. Fyrir fyrstu níu
mánuði þessa árs benda bráða-
birgðatölur til að afli smábáta verði
heldur meiri en sömu mánuði í
fyrra, þrátt fyrir samdrátt í heildar-
afla.
Látið hefur verið að því liggja að
vonlaus rekstrargrundvöllur hafi
leitt menn til að sökkva eigin bátum.
Það sem af er árinu hafa sex smábát-
ar sokkið og hefur mannbjörg orðið
í öll skiptin. Halldór Ásgrímsson
sagði að í þessi sex skipti hefði
aðeins einn maður verið um borð í
hverjum bát. Haft er fyrir satt að þar
sem tveir hafi verið um borð hafi
þeir getað komið í veg fyrir að bátar
þeirra hafi sokkið vegna leka.
Arthur Bogason formaður LS sendi
formanni Rannsóknanefndar sjó-
slysa tóninn og minnti á að í lýð-
ræðisríkjum væri það grundvallar-
réttindi hvers manns að hann er
saklaus þar til sekt hans hefur verið
sönnuð. „Eitthvað er þetta samt
ekki á hreinu hjá mörgum þeim
mönnum sem frekar skyldu hlífa en
höggva. Þannig gengur sjálfur for-
maður Rannsóknanefndar sjóslysa
svo langt að taka að sér dómarahlut-
verkið í málunum, án þess að hann
hafi hið minnsta fyrir sér í málinu,"
sagði Arthur.
Öryggismálin komu mikið til um-
ræðu á aðalfundinum, þá aðallega
vegna þeirrar staðreyndar að lög-
boðinn sleppibúnaður björgunar-
báta hefur ekki staðist þær kröfur
sem til hans eru gerðar. „Þetta er
hrikaleg niðurstaða. Þetta er ekki
aðeins áfall fyrir íslenska sjómenn
sem hafa bundið við þennan búnað
miklar vonir sem nú reynast falskar
heldur er það einnig ljóst að ár eftir
ár er verið að rukka menn um
skoðunargjald af búnaði sem við-
komandi stofnun hefur verið lengi
ljóst að stæðist engan veginn
kröfur," sagði Arthur. - ABÓ
H H
Arthur Bogason, formaður landssambandsins, í ræðustól og við háborðið situr öm Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda. Tím«myndlr:Gurmar