Tíminn - 11.11.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 11.11.1988, Blaðsíða 13
Föstudagur 11. nóvember 1988 Tíminn 13 lllllllllllllllllllllll ÚTLÖND llllillllllilll Mannvígin halda áfram í Kólumbíu Vinstri sinnaðir skæruliðar í Kól- umbíu halda uppteknum hætti og gera aðsúg að starfsmönnum ríkis- ins. í gær drápu þeir átta lögreglu- menn og særðu þrjá í fyrirsát í suðurhluta landsins. Fórnarlömb skæruliðanna voru reyndar í aðgerðum gegn Byltingar- - hersveitum Kólumbíu, en það kalla hinir vinstri sinnuðu skæruliðar sig. Bifreið lögreglumannanna ók á jarð- sprengju og hófu skæruliðar síðan skothríð á þá er komust lífs úr sprengingunni. Rúmlega hundrað manns hafa faliið í Kólumbíu í árásum skæruliða undanfarnar fjórar vikur. Hefur mannfall ýmist verið í liði öryggis- lögreglu, hersins, skæruliða eða hins almenna borgara. En yfirvöld eiga ekki aðeins í höggi við skæruliða, sveitir eitur- lyfjasmyglara hafa einnig gert þeim skráveifur. Nýr varnarmálaráðherra Kólumb- íu, hershöfðinginn Jaime Guerrero Paz sagði eftir árásina í gær að ástandið í landinu væri gífurlega alvarlegt. „Það er ekkert land í þessari heimsálfu og ég myndi segja í veröldinni, sem er undir eins alvar- legum ógnunum á svo mörgum sviðum" og vísaði hann til skæruliða, eiturlyfjasmyglara og almennra glæpamanna sem nóg er af. 23 Indverjar sendir í þrælkunarvinnu: Drápu þrjár „nornir“ Indverskur dómstóll hefur dæmt tuttugu og þrjá Indverja í eins árs þrælkunarvinnu fyrir að hafa myrt þrjár konur sem grunaðar vor um að stunda kukl og galdra. Indverjarnir réðust að konunum eftir að dular- fullur hænsnasjúkdómur og blóð- kreppusótt braust út í þorpinu þeirra, en þorpsbúar voru sannfærð- ir um að konurnar þrjár stæðu fyrir ósköpunum með göldrum sínum. Ekki er vitað hverjar konurnar voru, en þær voru aðkomukonur. Sextíu og þrír þorpsbúar voru ákærðir fyrir morðin, en helmingur- inn var sýknaður. Hershöfðingi í Líbanon rekinn: Líbanski herinn klofnar Stórt skref í átt til algjörs að- skilnaðar múslíma og kristinna manna í Líbanon var stigið í gær þegar varnarmálaráðherra í stjórn múslíma rak hershöfðingjann Mi- chel Aoun sem leiðir bráðabirgða- ríkisstjórn kristinna manna í land- inu. Með þessari brottvikningu er ljóst að líbanski herinn klofnar endanlega og má þá gera ráð fyrir að kristnir menn gangi til liðs við aðrar hersveitir kristinna manna sem að undanfömu hafa verð að vígbúast með hjálp íraka. Ríkisstjóm múslímans Hoss, sem starfað hefur síðastliðið kjörtímabil, hafði varað Aoun við að hafa afskipti af stjórnvöldum, en hann virti það að vettugi þegar hann tók að sér að leiða bráðabirgðastjóm kristinna manna. Sigurður Ásta Gissur Steingrímur Jóhann Guðmundur Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi verður haldið á Seltjarnarnesi 13. nóvember 1988 Dagskrá: 9:00 Þingsetning. Kosnir þingforsetar og ritarar. Kosin kjörbréfanefnd. Flutt skýrsla stjórnar, a) formanns, b) gjaldkera. Umræða um skýrsluna og reikninga, afgreiðsla. 9:30 Ávörp gesta: 1. Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, Sigurður Geirdal. 2. Landssamband framsóknarkvenna, Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. 3. Formaður S.U.F., Gissur Pétursson. 9:45 l.ögð fram drög að stjórnmálaályktun. 10:00 Stjórnmálaviðhorfið: Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, Jóhann Einvarðsson alþingismaður. Almennar umræður. 12:30 MATARHLÉ 13:10 Tillögur laganefndar lagðar fram, umræða. 13:30 Kosning aðalmanna í miðstjórn. 14:00 Ræða. Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra. Fyrirspurnir. 15:00 Kosning varamanna í miðstjórn. 15:15 Stjórnmálaályktun afgreidd. KAFFIHLÉ 16:20 Tillögur laganefndar, seinni umræða og afgreiðsla. 16:50 Kosning: a) Formanns. b) Fjögurra manna í stjórn KFR og tveggja til vara. c) Uppstillingarnefndar. d) Stjórnmálanefndar. e) Tveggja endurskoðenda. 17:10 Önnur mál. 18:00 ÞINGSLIT. Unnur Elín Húnvetningar athugið Rabbfundur L.F.K. verður haldinn í kvöld, föstudagskvöldið 11. nóvember, kl. 21.00 að Víðigerði. Unnur Stefánsdóttir, formaður L.F.K., kemur á fundinn. Allar velkomnar. Framkvæmdastjórn L.F.K. Flokksþing 20. flokksþing framsóknarmanna verður haldið dagana 18.-20. nóv. n.k. að Hótel Sögu. Þingið hefst föstudaginn 18. nóv. kl. 10. Dagskrá auglýst síðar. Framsóknarflokkurinn. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambandsins að Hamraborg 5 verður opin mánudag til fimmtudaga kl. 16-19. KFR 20. Flokksþing Framsóknarmanna Hótel Saga 18.-20. nóv. 1988 Dagskrá Föstudagurinn 18. nóv. 1988 Kl. 10:00 Þingsetning Kosning þingforseta Kosning þingritara Kosning kjörbréfanefndar Kosning dagskrárnefndar Kl. 10:15 Yfirlitsræða formanns Kl. 11:15 Skýrsla ritara Kl. 11:30 Skýrsla gjaldkera Kosning kjörnefndar Kosning kjörstjórnar Kosning málefnanefndar Kl. 12:00 Matarhlé Kl. 13:20 Mál lögð fyrir þingið Kl. 14:30 Almennar umræður Kl. 16:00 Þinghlé Kl. 16:30 Nefndastörf Laugardagurinn 19. nóv. 1988 Kl. 10:00 Almennar umræður, framhald Ki. 12:00 Matarhlé Kl. 13:30 Kosning 25 aðalmanna í miðstjórn Kl. 14:00 Afgreiðsla mála - umræður Kl. 16:00 Þinghlé Kl. 16:15 Nefndastörf - starfshópar - undirnefndir Kvöldið frjálst Sunnudagurinn 20. nóv. 1988 Kl. 10:00 Afgreiðsla mála - umræður Kl. 12:00 Matarhlé Kl. 13:30 Kosning 25 varamanna í miðstjóm Kl. 14:00 Aðrar kosningar skv. lögum Kl. 14:30 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri (um kl. 16:00) Kl. 19:30 Kvöldverðarhóf í Súlnasal Finnur Ólafur Þórður Verkalýðsmálaráð framsóknar- félaganna í Reykjavík Stofnfundur Verkalýðsmálaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember næst komandi kl. 20.30 að Nóatúni 21. Dagskrá: 1. Setning. Finnur Ingólfsson. 2. Kynning á stofnun Verkalýðsmálaráðs. Ólafur A. Jónsson. 3. Störf Verkalýðsmálaráðs. Þórður Ólafsson. Allir velkomnir. Stjórnin Framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag að Hótel Lind kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karla. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt ávarp. Framsóknarfélag Reykjavíkur Sigrún Magnúsdóttir Aðalfundur Framsóknarfélags Austur-Húnavatnssýslu verður haldinn sunnudaginn 13. nóvember kl. 15 á Hótel Blönduósi. Stjórnin Árnesingar Síðasta umferð í hinni árlegu spilavist okkar verður 11. nóvember n.k. kl. 21.00 í Aratungu. Glæsileg verðlaun. Guðmundur Búason flytur ávarp. Framsóknarfélag Árnessýslu Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi verður haldið sunnudaginn 13. nóvember n.k. í félagsheimilinu á Seltjamarnesi. Dagskrá auglýst síðar. Stjórnin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.