Tíminn - 16.11.1988, Síða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 16. nóvember
Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar hefur áhyggjur af framtíð hennar:
Verður aðeins eitt
varðskip á miðunum?
Ef svo fer sem horfír verður aðeins eitt varðskip á miðunum
í kringum ísland, þriðju hverja viku. Gísli Ólafsson formaður
Starfsmannafélags Landhelgisgæslunnar sagði í gær að sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar væri ekki gert ráð
fyrir því að v/s Óðinn yrði gerður út á árinu 1989 sem aftur
myndi leiða til fyrrgreindra aðstæðna þar sem áhafnir þeirra
tveggja skipa sem eftir yrðu þyrftu viku inniveru á hálfsmán-
aðar fresti’.
Gísli segir að sé ætlunin að spara
ríkissjóði útgjöldin sé mun skynsam-
legra að gera v/s Óðin út en Árvakur
þar sem Óðinn sé í góðu standi en
Árvakur vægast sagt í niðurníðslu.
Það hlýtur að teljast varhugavert,
ef öryggi sjómanna er haft í huga, að
hafa aðeins eitt varðskip á miðunum
því töluverðan tíma tekur að sigla
stranda á milli þurfi til dæmis á
varðskipi að halda við björgunar-
störf. Þá benda starfsmenn Gæsl-
unnar á að það hljóti að skjóta
skökku við að á meðan íslendingar
geri kröfu um stærri efnahagslög-
sögu og aukið öryggi sjófarenda,
sem og annarra landsmanna, þá sé
það stefna stjórnmálamanna að
skera Landhelgisgæsluna niður í
hlutfalli við aukið hlutverk.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
hafa sent frá sér ályktun þar sem
m.a. er skorað á dómsmálaráðherra
að sjá um að nefnd sú sem sett var á
laggirnar 2. apríl 1981 til að kanna
hvemig nauðsynlegt væri að efla
Landhelgisgæsluna, skili niðurstöð-
um áður en teknar verði svo örlaga-
rfkar ákvarðanir sem raun ber vitni.
Gísli var spurður um störf þessarar
nefndar:
„Hún hefur ekki gert neitt. Þessi
nefnd hefur starfað f tæp átta ár og
hefur að okkar áliti verið þröskuldur
í vegi framkvæmda, vegna þess að
þær ályktanir og tillögur sem við
höfum sent frá okkur til úrbóta hafa
verið settar í þessa nefnd og frá
henni hefur ekkert komið.“
Aðspurður sagði Gísli einnig að
það væri engin launung að þyrla
Gæslunnar, TF-SIF hefði reynst full
lítil til þeirra björgunarverkefna sem
henni hefðu verið ætluð, við hin
erfiðu veðurskilyrði sem vissulega
væru hér við iand. Að mati starfs-
manna þarf að fá nýja og öflugri
þyrlu til björgunarstarfa og það fyrr
en seinna. Þessi nýja þyrla þyrfti að
vera búin tækjum til afísingar en það
er SIF ekki. Þessi tækni hefði verið
að ryðja sér til rúms á þeim tíma sem
SIF var keypt og nú væri full ástæða
til endurnýjunar.
Gunnar Bergsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar sagði í gær að
hann tæki í öllum aðalatriðum undir
þær ályktanir sem starfsmannafélag-
ið hefur látið frá sér fara. Það væri
vissulega ámælisvert að yfirvöld
skyldu ætla að draga úr starfsemi
Gæslunnar f stað þess að auka hana
eins og þó vissulega væri ástæða til.
Gunnar vildi benda á að þó nefnd sú
sem minnst er á hér að framan hafi
kannski ekki endanlega lokið þeim
störfum sem til var ætlast í upphafi,
hafi hún látið eitt og annað gott af
sér leiða og megi meðal annars
benda á að kaupin á TF-SIF hafi
verið borin undir hana á sínum tíma
og þau samþykkt. Þá hefði sá kostur
talist mjög vænlegur þó að í dag
mættieftilvillbætaumbetur. -áma
Þröstur Sigtryggsson, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni. Hafa þeir að-
eins eitt skip til umráða þriðju
hverju viku í sumar?
Sovétmenn sendu síldarútvegsnefnd skeyti í gær varðandi viðbótarkaup á saltsíld:
Tókst ekki að afla
gjaldeyrisheimilda
Skeyti barst síldarútvegsnefnd ■'
gær frá Sovrybflot, þar sem greint er
frá því að ekki hafi tekist að afla
gjaldeyrisheimilda til kaupa á frek-
ara magni af saltaðri síld frá íslandi.
I samningi sem undirritaður var
31. október síðastliðinn, og tekur til
sölu á 150.000 tunnum af hausskor-
inni og slógdreginni síld til Sovét-
ríkjanna, var ákvæði um að eigi
síðar en 15. nóvember skyldi svar
berast um frekari kaup Sovrybflot á
saltsíld. Frekari kaup Sovétmanna
eru grundvölluð á viðskiptasam-
komulagi milli landanna en þar segir
að Sovétmenn skuli árlega kaupa af
íslendingum 200 til 220.000 tunnur
af saltaðri síld. Alls vantar 50.000
tunnur upp á samninga í ár að
ákvæði viðskiptasamkomulagsins sé
uppfyllt.
Einar Benediktsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri síldarútvegs-
nefndar sagði í samtali við Tímann í
gær að nefndin myndi áfram vinna
að því veittar yrðu gjaldeyrisheim-
ildir til frekari kaupa á saltsíld.
Hvað næst myndi gerast í málinu
vildi Einar ekki tjá sig um frekar og
vildi ekki segja til um hvort fulltrúar
síldarútvegsnefndar hygðu á ferð til
Rússland til að knýja enn frekar á
um viðbótarkaup Sovétmanna á salt-
síld frá íslandi.
Rétt er að geta þess að í fyrra
náðust að lokum samningar um sölu
á 200.000 tunnum til Sovétríkjanna.
Síðustu 30.000 tunnurnar var endan-
lega samið um á aðfangadag og
saltað upp í þann samning síðastlið-
inn janúar. Það er því aldrei að vita
nema Sovétmenn lumi á annarri
„jólagjöf" í ár. -ES
Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Samvinnutrygginga:
Rétt að tryggingafélög
leiti eftir sameiningu
Valur Arnþórsson, stjórnarfor-
maður Samvinnutrygginga g.t., segir
að eðlilegt sé að tryggingafélög leiti
eftir sameiningarmöguleikum, en
ekki hafí neinar viðræður farið fram
af hálfu stjórnar Samvinnutrygginga
við stjórn Brunabóta eða annarra
félaga, enn sem komið er.
Segir hann að ekki hafi farið fram
neinar viðræður milli stjórna Sam-
vinnutrygginga og Brunabótafélags
íslands, en þetta séu þau trygginga-
félög sem séu hvað skyldust að
rekstrarformi og markaðssamsetn-
ingu. „Ég hygg að hægt sé að
hagræða talsvert mikið á trygginga-
markaðinum með því að trygginga-
félögin verði færri og stærr' og verði
þar með öflugri rekstrareiningar
heldur en þau hafa verið,“ sagði
Valur. „Það myndi leiða til sparnað-
ar í rekstri og til þess að iðgjöld gætu
verið hagstæðari þegar á heildina er
litið.“
Sagði Valur að það blasti við að
tvö félög væru á markaðinum sem
væru gagnkvæm tryggingafélög og í
eigu þeirra sem tryggja þar á hverj-
um tíma. Þetta væru Samvinnutrygg-
ingar og Brunabótafélag íslands og
væru þau því náskyld hvað rekstrar-
form þeirra varðar. Þau störfuðu
auk þess að svipuðum trygginga-
greinum. „Þess vegna er það ekki að
ófyrirsynju að við höfum fengið þær
spurningar hvort þessi tvö trygginga-
félög muni hugsanlega sameinast.
Viðræður hafa ekki farið fram og
eru ekki í gangi milli stjórnanna,
þannig að framtfðin verður að leiða
það í ljós hvort einhverþróun verður
í þessa átt,“ sagði Valur Arnþórs-
son, stjórnarformaður Samvinnu-
trygginga. KB
Afturhvarfið á tónlistarsviðinu heldur áfram:
Tremeloes til íslands
Þeir sem voru upp á sitt besta á
sjöunda áratugnum og reyndar hin-
ir líka ættu að kannast við Brian
Poole og hljómsveit hans Treme-
loes. Þekkt lög með þeim eru
meðal annars:
„Someone, someone" og „Sil-
ence is golden". Eftir nokkurra ára
hlé kemur Poole nú fram á ný
ásamt hljómsveit sinni og mun
meðal annars koma til Islands.
Helgina 18. og 19. nóvember gefst
íslenskum aðdáendum tækifæri til
að sjá og heyra þessi átrúnaðargoð
sín á Hótel íslandi og mun forsala
aðgöngumiða vera í síma 687111.
-áma
Linda Pétursdóttir, fegurðardrottning íslands.
Lindu spáð
góðu gengi
Tíminn aflaði sér upplýsinga um
stöðu Lindu Pétursdóttur, fegurðar-
drottningar íslands í veðbanka í
London í gær. Að sögn starfsmanns
veðbankans er Linda nú í þriðja
sæti, fylgir fast á hæla fulltrúa Breta
en í efsta sætinu trónir nú fegurðar-
drottning Venezuela.
Viðmælandi Tímans sagði stöð-
una lítið hafa breyst síðustu sólar-
hringana en það myndi ekki koma
sér á óvart þó Linda kæmi til með að
verða í einu af efstu sætunum.
Á eftir Lindu koma svo fulltrúar
Finna og Svía þannig að allt stefnir
í mikla viðurkenningu á norrænni
fegurð í þessari keppni. -áma