Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 15
Mið'vlkúáádjur 16. 'rióVembe'r
Tíminn 15
BÆKUR
BÆKUR
Vel samdar minningar
Magnús Sveinsson frá Hvitsstöðum:
Á ýmsum leiöum heima og erlendis,
æviþættir og um menn og málefni,
Rv. 1988.
Það er vandi að skrifa eigin ævi-
minningar svo að vel sé og ekki
öllum gefið. Ekki verður þó annað
sagt en að Magnúsi Sveinssyni frá
Hvítsstöðum hafi tekist það býsna
vel. Þó verður ekki beinlínis sagt að
hann hafi lent í neinum þeim stór-
ævintýrum um dagana að telja megi
sérstakt bókarefni. Hann er fæddur
1906 og ólst upp hér vestur á Mýrum.
Tiltölulega snemma hóf hann
kennslu, lauk sfðan kennaraprófi og
stundaði tvívegis framhaldsnám er-
lendis. Kennslan varð svo vettvang-
ur hans svo lengi sem aldur leyfði.
En gildi bókar á borð við þessa
felst kannski ekki síst í þvf að menn
á aldri höfundarins muna svo sannar-
lega tímana tvenna. Eða eins og
hann orðar það sjálfur í formála
bókar sinnar:
„Pegar ég fæddist, á fyrsta tug
þessarar aldar, var lífið svipað því
sem verið hafði um aldaraðir. Þegar
ég man fyrst eftir mér, var algengast
að vatn væri sótt í brunna og til
eldiviðar notaður mór og hrís þar
sem einhverjar skógarleifar voru.
Það skal þó tekið fram, að á þeim
tveim bæjum, þar sem ég ólst upp,
var vatnsleiðsla komin í íbúðarhús
og skilvinda hafði tekið við hlutverki
gömlu mjólkurtroganna. Verkfæri
voru þá víða af gamalli gerð, en
nokkrir bændúr höfðu þá eignast
hestvagn, svo að hægt var að aka
skami á tún. “
Magnús Sveinsson frá Hvítsstöðum.
Sannleikurinn er sá að það liggur
við að bækur á borð við þessa séu
nauðsynlegar ti! að minna það fólk,
sem nú lifir á miðjum aldri og yngra,
á það hve raunar er óskaplega stutt
aftur í miðaldirnar hér í landi okkar.
Lýsingar Magnúsar hér á bernskuár-
um sínum og fyrstu manndómsárum
eru vel samdar, hnitmiðaðar og
einmitt prýðilega til þess fallnar að
hnippa í nútímafólk og minna það á
þetta sem hér var nefnt.
Og raunar má segja að fleira
þarna sé vel til þess fallið að minna
fólk á framfarir nútímans en sögur
hans úr sveitinni. Tvívegis hefur
hann dvalið um vetur í Svíþjóð, árin
1931-32 og 1946-47. { þessum ferða-
lögum hefur hann náð í skottið á
þeim tíma þegar menn ferðuðust hér
almennt yfir Atlantshafið sjóleiðina,
þó að hann hafi að vísu farið með
flugvél heim í seinna skiptið.
Lýsingar hans á þessum ferðum
og dvölinni erlendis í bæði skiptin
eru glöggar og læsilegar. Einn helsti
kostur þeirra er svo einnig hér hve
þær lýsa í rauninni vel þeim miklu
breytingum sem orðið hafa á ferðum
héðan til annarra staða á Norður-
löndum á innan við einum manns-
aldri. Mætti segja mér að þeir kaflar
þætti ýmsum þeim fróðlegt að lesa,
sem vanir eru orðnir því að skjótast
á tveim eða þrem tímum með Flug-
leiðaþotu til Kaupmannahafnar, og
hafa kynnst Norðurlöndum af eigin
raun eins og þau eru í dag.
Einn meginkostur bókarinnar er
annars sá hve höfundi lætur vel að
takmarka efni sitt. Hann segir frá
ýmsu því, sem honum er minnis-
stætt, en fellur ekki í þá gryfju að
fara að tíunda ævi sína í annálsformi.
Meðal annars var hann skólastjóri í
Sléttuhreppi skömmu áður en þar
lagðist allt í eyði, og kafli hans um
dvölina þar þykir mér trúlegt að
megi teljast allmerkt framlag til
lokasögu byggðarinnar þar.
Einna helst er að ég sakni þess hve
lítið er hér sagt frá kennslu Magnús-
ar og nemendum. Eftir fjörutíu ára
kennarastarf fer ekki hjá því að
menn hafi ýmsu kynnst og lent f því
að fást við nemendur af misjöfnu
tagi. Kannski hefði verið fróðlegt að
fá dálítið meira að heyra af því
taginu. -esig
Risaeðlur og
fleiri furðudýr
eftir John Stidworthy
Opið bréf til utanríkisráðherra:
Skammarleg
afstaða
í bráðum eitt ár hefur heims-
byggðin mátt horfa upp á grimmdar-
verk ísraelshers á herteknu svæðun-
um í Palestínu. Dag eftir dag hafa
fréttirnar haldið áfram að berast,
þrátt fyrir ritskoðun ísraelsku her-
stjórnarinnar: 13 ára stúlka skotin til
bana í gær, sjö ára drengur drepinn
í dag, þrír palestínskir unglingar
féllu í morgun... Það heitir ekki
morð ef fórnarlömbin eru palest-
ínskt fólk.
Harðorð mótmæli hafa verið höfð
uppi hvarvetna í heiminum og al-
þjóðasamtök, þ.á m. Sameinuðu
þjóðirnar hafa tekið þátt í þeim.
Undir forystu Steingríms Her-
mannssonar sem utanríkisráðherra
tóku íslendingar þátt í þessum sjálf-
sögðu mótmælum. En nú bregður
svo við þegar „vinstri stjórn" er
tekin við að þú, Jón Baldvin, sem
mátt vafalaust ekkert aumt sjá,
treystir þér ekki til að lyfta fingri til
varnar þeim lítilmagna sem verður
enn og aftur fyrir barðinu á ofbeldi
og kúgun í heimalandi sínu Palest-
ínu.
Meðan utanríkismálin voru í
höndum Steingríms Hermannssonar
fór að rofa til og viðleitni sýnd í átt
að sjálfstæðri utanríkisstefnu. ís-
lendingar þurftu ekki að véra jafn
lúpulegir og áður á mannamótum
um alþjóðamál. Pað var eins og sæist
fyrir endann á aftaníossahættinum
gagnvart Bandaríkjastjórn. Nú leit-
ar í gamla farið á ný. Aftur þurfa
íslendingar að fara með veggjum á
vettvangiS.Þ. og víðar,-afskömm.
Sveinn Rúnar Hauksson læknir.
Komin er út hjá Iðunni bókin
Risaeðlur og fleiri furðudýr eftir
John Stidworthy, í íslenskri
þýðingu Óskars Ingimarssonar.
Bókin er prýdd fjölda htmynda
og skýringarmynda og gerir efni
sínu skil á einkar aðgengilegan
hátt. Um efni bókarinnar segir:
Risaeðlur, fljúgandi skriðdýr og
aðrar furðuskepnur -
undraheimur sem eitt sinn var -
vekja ótalmargar spumingar;
hvemig leit fyrsti fiskurinn út,
hvers vegna urðu risaeðlurnar
aldauða, hver er uppmni
mannsins og hvernig hefur hann
þróast?
Vísindamenn hafa skyggnst
með „spæjaraaugum" inn í
fortíðina og veita svör við ýmsum
þeim spurningum sem á
lesendum brenna. Fjarlæg fortíð
verður nærtæk og lífi gædd.
Vísbendingar og sönnunargögn
hafa verið notuð til að raða saman
heildarmynd af útliti og
lífsháttum fyrstu dýranna á
jörðinni. Þetta er saga hnattarins
okkar í margar miljónir alda.
Tilboð óskast
í 3 Lansing dísellyftara, árg. 1985 og 1986, lyftigeta
5000 kg, með húsi, hliðarfærslu o.fl.
Lyftararnir eru til sýnis í porti Búnaðardeildar í Ármúla 3,
Reykjavík.
Upplýsingar í síma 91-38900.
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
SOPHEIAVAR4
IDUNN
Sagan um Kark
- Goðheimar 4
Út er komin hjá Iðunni fjórða
bókin í flokknum Goðheimar, og
nefnist hún Sagan um Kark. Fyrri
bækurnar í þessum bókaflokki
komu út fyrir nokkrum árum.
Sögurnar eru byggðar á frásögn
Eddukvæða og Snorra-Eddu og
hafa þær notið mikilla vinsælda á
Norðurlöndum og víðar. Gerð
hefur verið teiknimynd eftir
sögum þessum og var hún sýnd
hér á landi fyrr á árinu.
í þessari bók segir frá því að
Loki álpast til að taka að sér
uppeldið á mesta
óþekktarorminum í Jötunheimi.
Ekki er hann fyrr kominn með
Kark heim í Ásgarð en allt fer þar
á annan endann. Meira að segja
Þór, sjálfur þrumuguðinn,
hrökklast að heiman þegar
hrekkjusvínið hann Karkur lætur
til sín taka.
Bjarni Fr. Karlsson þýddi.
Ógnir í
undirdjúpum
- Háskaþrennan
Iðunn hefur gefið út
teiknimyndasöguna Ógnir í
undirdjúpum eftir Renaud, Vernal
og Dufaux. Þetta er fyrsta bókin í
nýjum og spennandi flokki um
Háskaþrennuna. Atburðarásin
er hröð og æsileg og dauðinn bíður
við hvert fótmál. í kynningu
forlagsins á bókinni segir meðal
annars:
„Fólskuleg árás er gerð á
aðsetur fiskimanna á smáey í
Karabíska hafinu. Þar kemst
innfædd stúlka með naumindum
undan erlendum
hryðjuverkamönnum. Þeir
sækjast eftir korti sem hún hefur
undir höndum, svo að hún er
áfram í mikilli hættu. Hvaða
leyndardóm geymir kortið og
hverjir eiga þarna hagsmuna að
gæta? “
Bjarni Fr. Karlsson þýddi bókin.
Nordisk Forum - Myndakvöld!!!!!
Fimmtudagskvöldið 17. nóv. verður langþráð mynda-
kvöld Nordisk-Forum haldið að Hótel Selfossi
kl. 21.
Fjölmennum og rifjum upp
N Asker-stemninguna.
LFK og Félag framsóknar-
kvenna í Arnessýslu.
FLUGMÁLA STJÓRN
Námskeið í flugumferðarstjórn
Ákveðið hefur verið að velja nemendur tii náms í flugumferðarstjórn,
sem væntanlega hefst í byrjun næsta árs.
Stöðupróf í íslensku, ensku, stærðfræði og eðlisfræði verða haldin
10. og 11. desember n.k.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-30 ára, tala skýrt mál, rita
greinilega hönd, standast tilskildar heilbrigðiskröfur og hafa lokið
stúdentsprófi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Flugmálastjórn á fyrstu hæð
flugturnsbyggingar á Reykjavíkurflugvelli og ber að skila umsóknum
þangað fyrir 7. desember, ásamt staðfestu afriti af stúdentsprófskírt-
eini og sakavottorði.
Flugmálastjóri
t
Móðir okkar
Daníelína Gróa Björnsdóttir
andaðist á sjúkrahúsinu Sólvangi mánudaginn 14. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Reykhólakirkju n.k. laugardag klukkan tvö.
Haukur Friðriksson
Jón Friðriksson
Lárus Friðriksson
Sigmundur Friðriksson