Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 16. nóvember Tíminn 5 Saksóknari ríkisins svararerindi^amkirkjulegrar nefnd- ar gegn sýningu myndarinnar „Síðasta freisting Krists“: Ríkissaksóknari sendi í gær bréf til samkirkjulegrar nefndar trúfélaga um að ekki yrði hlutast til um sýningarbann á kvikmyndinni „Síð- asta freisting Krists" og eru því miklar líkur á að hún verði frumsýnd í Laugarásbíói seinna í þessari viku. í bréfi sínu til ríkissaksóknara fóru forsvarsmenn áðurnefnds hóps fram á það við ríkissaksóknara að hann stöðvaði sýningar myndarinnar vegna guðlasts og vegna þess að hún særði trúarsannfæringu þeirra. Að sögn eins forgöngumannanna gegn sýningu myndarinnar, hefur verið rætt um það í hópnum að freista þess að koma lögbanni yfir myndina ef saksóknari fengist ekki til að banna hana vegna guðlasts. Hópur þessi er myndaður af Hvítasunnukirkjunni í Reykjavík, Betel í Vestmannaeyjum, Kristilegu félagi heilbrigðisstétta, Veginum, Krossinum, Kaþólsku kirkjunni í Landakoti, Maríukirkjunni í Selja- hverfi, Ungu fólki með hlutverk, Kristilegu félagi ungra manna og kvenna, Sambandi íslenskra kristni- boðsfélaga og Hjálpræðishernum. Auk þess hefur biskupinn yfir kaþ- ólsku kirkjunni á íslandi sent sak- sóknara sérstakt bréf. Biskup ís- lands hefur hins vegar ekki tekið þátt í störfum þessa hóps en skrifað dóms- og kirkjumálaráðherra sér- stakt bréf vegna myndarinnar. Það er á þessu bréfi biskups íslands sem saksóknari byggir afstöðu sína. Að sögn Braga Steinarssonar, vararíkissaksóknara, mun hafa verið stuðst efnislega við bréf það sem biskup íslands, herra Pétur Sigur- geirsson, sendi Halldóri Ásgríms- syni, dóms- og kirkjumálaráðherra, eftir að hafa séð þessa umdeildu kristsmynd. Segir þar að biskup meti myndina óhæfu en telur ekki ástæðu til að opinberir aðilar hlutist til um sýningarbann. Fulltrúi Hjálpræðishersins í sam- kirkjulegu nefndinni gegn freisting- armyndinni, sagði að tilgangur þeirra væri að vara fólk við því að umrædd kvikmynd gefur mjög ranga mynd af þeim Kristi sem guðspjöllin boða. Voru allir viðmælendur Tím- ans úr nefndinni sammála um að „Síðasta freisting Krists“ særði trú- arsannfæringu þeirra og hún væri að því lcyti hættuleg fölsun að í henni eru öll nöfn tekin úr ritningunni og sögusviði Nýja testamentis, en sagan að baki kvikmyndarinnar ætti ekkert skylt við guðspjallasöguna. Samkvæmt upplýsingum hjá for- svarsmönnum Laugarásbíós stendur ekki annað til en að hefja sýningar á myndinni þegar nær dregur helginni. KB Tuttugasta flokksþing framsóknarmanna um helgina: Ekki guðlast Fatlaðir í hjólastólum komust ekki án aðstoðar inn í húsakynnin að Borgartúni 6. Vakti það nokkra furðu fatlaðra að slíkt húsnæði yrði fyrir valinu. Tímamynd Pjeiur. Ráðstefna um fatlaða og atvinnulífið haldin í Borgartúni 6: Var fatlað fólk ekki velkomið? í gær var haldin í ráðstefnusal ríkisins að Borgartúni 6 í Reykjavík, ráðstefna um málefni fatlaðra sem bar yfirskrift- ina „Ráðstefna um fatlaða og atvinnulífið“. Það vakti athygli Tímans að sá staður sem valinn var til ráðstefnu af þessu tagi er illur aðgöngu fyrir fatlaða - fólkið sem fjallað var um! Aðspurð um ástæðu þess að þessi salur varð fyrir valinu sagði Margrét Margeirsdóttir, einn af skipuleggj- endum ráðstefnunnar: „Þeir náttúrlega komaSt hérna inn en auðvitað er erfitt að komast inn í húsið það er alveg rétt. Samt sem áður eru allir þeir sem voru boðnir hér á staðnum, þar með taldir fatlað- ir.“ - En hefði ekki verið eðlilegra að halda þessa ráðstefnu á einhverjum þeim stað sem er þokkalega aðgengi- legur fyrir fatlaða? „Það má kannski vera en þetta er ráðstefnusalur ríkisins og hér hafa oft verið haldnir bæði fundir og ráðstefnur um málefni fatlaðra. Við þetta húsnæði hafa aldrei verið gerð- ar athugasemdir mér vitanlega.“ % Jóhann Pétur Sveinsson fórekki Einn þeirra sem var boðið til þessarar ráðstefnu er Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur en Jóhann er fatlaður og fer allra sinna ferða í hjólastól. Þegar í ljós kom að Jóhann sat ekki ráðstefnuna hafði Tíminn upp á honum og spurði hann hverju sætti. Fór hann ekki vegna þess hversu erfitt er að komast inn í húsið? „Ekki er það nú kannski frum ástæðan en hinsvegar er það alveg rétt að það er ekki beint til sóma að ekki skuli enn hafa verið búið þannig um hnútana að fatlaðir eigi greiðan aðgang að dyrum hússins, því þegar inn er komið tekur við þessi indæla lyfta sem kemur manni á áfangastað. Það gleður mig að þessu skuli vera veitt athygli og vissulega ættu fatlað- ir að gera meira af því að mótmæla þessu og öðrum skyldum atvikum. Það ætti til dæmis alls ekki að þurfa að vera dýrt að ganga þannig frá inngangi þessa húss að fatlaðir geti óhindrað farið þar um.“ -Hver er skilningur yfirvalda á því að fatlaðir þurfi á því að halda að þeim sé auðveldaður aðgangur að opinberum byggingum, til dæmis? „Ætli það sé ekki óhætt að segja að í orði sé þetta allt saman mjög jákvætt en þegar að framkvæmdun- um kemur verður heldur minna úr en til stóð. Það má til dæmis benda á að embætti bæjarfógeta og sýslu- manna, sem jafnframt eru umboðs- menn Tryggingastofnunar ríkisins, eru víða um land algjörlega út í hött hvað varðar aðstöðu fyrir fatlaða"! -áma Rúmlega þrítug kona fékk í sakadómi Reykjavíkur í gær sinn fimmtánda dóm á fjórtán árum vegna margvíslegra brota: Þrjú og hálft ár Rúmlega þrítug kona, Sólrún Elídóttir var í gær dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir „tilraun til manndráps, en til vara fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa að kvöldi föstudagsins 29. apríl eða aðfaranótt næsta dags, stungið Karl Valgarðsson hníf- stungu í kvið“. Karl var fluttur á Borgarspítalann að morgni sunnu- dagsins 1. maí eða rúmum sólarhr- ing eftir að verknaðurinn átti sér stað. Þar var hann settur í öndunar- vél og stóð mjög tæpt um líf hans um tíma einkum vegna lungna- bólgu er hann hlaut auk alvarlegra sýkinga í kviðarholi. Þessar upplýsingar eru fengnar í Sakadómi Reykjavíkur en þar var konan dæmd. Þessi dómur er látinn falla með tilliti til játningar ákærðu auk framburðar vitna. Ákærða er að mati dómsins sakhæf að undangenginni geðheil- brígðisrannsókn sem hún gekkst undir við meðferð málsins. 14dómar, samtals 37 mánuðir Það vekur athygli að ferill ákærðu er vægast sagt nokkuð óvenjulegur svo ekki sé sterkar til orða tekið. Hún hefur hlotið fjórtán dóma auk þess sem Hæstiréttur hefur dæmt í þremur þeirra einnig. Hún hefur samtals hlotið 37 mánaða fangelsisdóm og þar af hefur tveim- ur þeirra dóma verið framfylgt með samtals fjögurra ára skilorðs- bundnu fangelsi. Hún hefur verið dæmd fyrir þjófnað, skjalafals og fjársvik auk annarra brota. Þar að auki hefur hún fimm sinnum verið dæmd fyrir ölvun við akstur og þar af tvisvar verið dæmd til ævilangrar ökuleyfissviptingar, tvisvar verið svipt rétti til þess að öðlast ökurétt- indi ævilangt og lokum hlotið sekt. Dómsorð yfir ákærðu hljóðar þannig: „Ákærða, Sólrún Elídótt- ir, sæti fangelsi í 3 ár og sex mánuði. Til frádráttar refsingunni komi gæsluvarðhaldsvist hennar samtals 77 dagar. Ákærða greiði allan sakarkostnað, þar með talinn saksóknaralaun í ríkissjóð kr. 60.000,- og málsvarnarlaun verj- anda síns, dr. Gunnlaugs Þórðar- sonar, hrl. kr. 75.000,- Dómurinn var kveðinn upp af Ingibjörgu Benediktsdóttur sakadómara. -áma Hverju svarar Steingrímur? Á tuttugasta flokksþingi fram- sóknarmanna sem haldið verður á Hótel Sögu dagana 18.-20. nóvem- ber n.k. mun Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins svara ummælum Þorsteins Pálssonar sem hann lét falla um síðustu helgi. Þar líkti Þorsteinn framsóknar- mönnum við skrattann sem læsi biblíuna með öfugum formerkjum og sagði þá stjórn sem þeir veita nú forstöðu vera stjórn skömmtunar og millifærslna er héldi uppi röngu gengi og tæki erlend lán til að greiða verðbólguna niður. Hann lýsti því yfir í leiðinni að Framsóknarflokkur- inn væri höfuðandstæðingur Sjálf- stæðisflokksins. Þessu mun Steingrímur svara í ræðu sinni fyrir hádegi á föstudag. Reiknað er með að aðalmál þingsins verði stjórnarsamstarfið, byggðamál og efnahagsmál. Ætla má að byggða- málin verði sérstaklega í brennidepli vegna þeirrar slæmu stöðu sem ríkir í atvinnumálum víða á landsbyggð- inni, sem einnig hefur haft áhrif á höfuðborgarsvæðinu f formi minnk- andi þenslu og dvínandi eftirspurnar eftir vinnuafli. Samkvæmt dagskrá þingsins verða starfsmenn kosnir á föstudag, skýrsl- ur lagðar fram og mál lögð fyrir þingið. Á laugardag fer fram kosning tuttugu og fimm manna í miðstjórn og unnið verður í nefndum og starfs- hópum. Lokadaginn munu nefnd- arálit afgreidd og kosið í stjórn og varastjórn flokksins. Dagskránni lýkur svo með kvöldverðarhófi í Súlnasal Hótel Sögu þar sem Geir- mundur Valtýsson lætur söngva sína hljóma og þá munu þinggestir vænt- anlega stíga „lífsdansinn“ með vax- andi þrá. - ág Verðlagsstjóra hefur borist ábending þess efnis að ein- hver veitingahús hafi hækkað gosverð svo um munar: Hefur gosverð hækkað um 65%? Verðlagsstjóra hefur borist ábending þess efnis að einhver vfn- veitingahús á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað verð á gosdrykkjum óeðlilega mikið og þótti víst flestum nóg um samt. Starfsmaður Verðlagsstofnunar vildi ekki gefa upp hvaða veitingahús væri hér um að ræða, né heldur hversu mikil hækkunin væri en sam- kvæmt heimildum Tímans munu vera brögð að því að hækkunin hafi numið allt að 65%. Að sögn starfsmanns Verðlags- stofnunar er ekki hægt að segja um það á þessu stigi málsins hvernig á því verður tekið en þó væri alveg ljóst að ef um jafn mikla hækkun væri að ræða og að ofan getur væri ljóst að til lækkunar yrði að koma. Slík hækkun væri gjörsamlega út í bláinn! -áma

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.