Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 16. nóvember
Tíminn 13
llllllllllllllinillll ÚTLÖND
Helför gyðinga,
tabú Þjóðverja
Fyrir helgi neyddist Philip Jenn-
inger til að segja af sér sem forseti
þings Vestur-Þýskalands vegna
ræðu sinnar þar sem hann sagði
meðal annars að stærsti hluti þýsku
þjóðarinnar hefði staðið á bak við
Hitler árið 1938 þegar gyðingaof-
sóknir nasista hófust með Kristals-
nóttinni svokölluðu. Þá réðust sveit-
ir nasista á heimili og verslanir
gyðinga, brutu þar allt og brömluðu
og börðu mann og annan.
Viðbrögð gyðinga og Þjóðverja
sjálfra við ræðu Jenningers voru
mjög harkaleg og neyddist hann því
til að segja af sér eins og áður segir.
Jenninger var mjög brugðið við
þeim viðbrögðum sem ræða hans
fékk og segir að menn hafi misskilið
hana. En að líkindum dró Jenninger
í meginatriðum upp rétta mynd af
ástandinu árið 1938, en með því
braut hann þjóðartabú Þjóðverja
sem vilja alls ekki tengja Þýskaland
nasismans við Vestur-Þýskalands
nútímans.
„Það sem hann sagði var ekki
rangt. í hlutlægri sagnfræði hefðu
allar staðreyndimar verið taldar
sannar“ sagði sagnfræðingurinn
Ernst Nolte, en hann hefur sérhæft
sig í sögu Þriðja ríkisins. „En menn
verða að íhuga það í þessari stöðu
Mesta grimmdarverk mannkynssögunnar er af flestum talin Helförin
þýskra nasista gegn gyðingum.
mikla, eða útrymingarofsóknir
hvort þörf sé á að tilfinningasemi
hafi neitunarvald yfir birtingu sögu-
legra staðreynda. Jenninger hefur
að líkindum ekki gert sér grein fyrir
áhrifum ræðu sinnar á þessum tíma
og við þetta tækifæri".
Nolte hefur legið undir ámæli fyrir
að halda fram að ofsóknir nasista
gegn gyðingum og helförin í heild sé
ekkert einsdæmi í sögunni. Slíkt gaf
Jenninger einnig í skyn í ræðu sinni
og vildi vara við að slíkt gerðist
aftur. Þetta telja margir, sérstaklega
gyðingar, vera tilraun Þjóðverja að
varpa frá sér ábyrgðinni á Helförinni
miklu og að Helförin sé einsdæmi.
Hvort það er rétt verður hver og
einn að gera upp við sig.
Heineken
íKína
Heineken hefur haldið ihnreið
sína í Kína. Þetta kunna öl í grænu
dósunum verður framleitt í Yimin
brugghúsinu í Sjanghæ, en samning-
ar þess efnis tókust fyrir stuttu. Til
að byrja með verður ölið einungis
drukkið á innanlandsmarkaði í
Kína, en þar er eftirspurn eftir bjór
mjög mikil og fá færri en vilja. Eftir
að vissum gæðum hefur verið náð er
ætlunin að hefja útflutning á kín-
verskum Heineken bjór, rétt eins og
hollenskur væri. Heineken fyrirtæk-
ið hefur lagt 30 milljónir dollara í
þetta verkefni, en hyggjast fá þá
aura og gott betur í budduna er fram
líða stundir.
Sjónvarpsauglýsingin með Willie Horton, manninum sem myrti í helgarleyfi
sínu frá fangelsinu í Massachusetts þar sem Dukakis er ríkisstjóri.
Morðinginn Willie Horton:
Drýgsti kosninga-
smali George Bush?
Nýafstaðin kosningabar-
átta fyrir forsetakosningarn-
ar í Bandaríkjunum var ein
sú sóðalegasta sem um getur.
Um það eru flestir er til
þekkja sammála. George
Bush sigraði í forsetakosn-
ingunum með yfirburðum.
Sumir segja að hans dýrmæt-
asti kosningasmali hafi verið
glæpamaðurinn Willie
Horton. Hann er svartur
morðingi og sat inni meðan á
kosningabaráttunni stóð. En
hvernig má það vera?
Willie Horton var aðalmaðurinn í
sjónvarpsauglýsingu sem stuðnings-
menn Bush gerðu til að ná höggi á
Michael Dukakis og er talið að sú
auglýsing hafi fælt fleiri kjósendur
frá Dukakis en nokkuð annað í
kosningabaráttunni.
Willie Horton var dæmdur í ævil-
angt fangelsi í Massachusetts árið
1974 fyrir einstaklega grimmilegt
morð. Hins vegar fékk Willie tíu
sinnum helgarfrí frá fangelsinu og
notaði hann tækifærið í eitt skiptið,
nauðgaði og drap konu og mun ekki
aftur komast út fyrir rimlana, ef að
líkum lætur.
Þegar Horton myrti í helgarfríi
sínu þá var Michael Dukakis orðinn
ríkisstjóri í Massachusetts. Því ásök-
uðu repúblikanar Dukakis óbeint
fyrir morðið og sögðu sem svo; er
það þetta sem bandaríska þjóðin
vill? Þannig var spilað á tilfinningar
þeirra Bandaríkjamanna sem óttast
glæpi og það er drjúgur hópur. Er
talið að þessi auglýsing hafi jafnvel
haft úrslitaáhrif í suðurríkjum
Bandaríkjanna, en þar er linkind í
garð glæpamanna talin af hinu illa.
Það er sárgrætilegt fyrir demó-
krata að það var keppinautur Duk-
akis um útnefningu sem forsetaefni
Demókrataflokksins sem byrjaði að
ásaka Dukakis vegna afdrifaríkra
helgarleyfa Willie Horton. Það var
suðurríkjamaðurinn A1 Gore sem
dró Willie riam í sviðsljósið.
Willie Horton sem talinn er hafa fælt
fleiri kjósendur frá Michael Dukakis
en nokkuð annað í nýliðinni kosn-
ingabaráttu.
Finnur Ólafur Þórður
Verkalýðsmálaráð framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Stofnfundur Verkalýðsmálaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík
verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember næst komandi kl. 20.30
að Nóatúni 21.
Dagskrá: 1. Setning. Finnur Ingólfsson.
2. Kynning á stofnun Verkalýðsmálaráðs. Ólafur A.
Jónsson.
3. Störf Verkalýðsmálaráðs. Þórður Ólafsson.
Allir velkomnir.
Stjórnin
20. Flokksþing Framsóknarmanna
Hótel Saga 18.-20. nóv. 1988
Dagskrá
Föstudagurinn 18. nóv. 1988
Kl. 10:00 Þingsetning
Kosning þingforseta
Kosning þingritara
Kosning kjörbréfanefndar
Kosning dagskrárnefndar
Kl. 10:15 Yfirlitsræða formanns
Kl. 11:15 Skýrsla ritara
Kl. 11:30 Skýrsla gjaldkera
Kosning kjörnefndar
Kosning kjörstjórnar
Kosning málefnanefndar
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:20 Mál lögð fyrir þingið
Kl. 14:30 Almennar umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:30 Nefndastörf
Laugardagurinn 19. nóv. 1988
Kl. 10:00 Almennar umræður, framhald
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 aðalmanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Afgreiðsla mála- umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:15 Nefndastörf - starfshópar — undirnefndir
Kvöldið frjálst
Sunnudagurinn 20. nóv. 1988
Kl. 10:00 Afgreiðsla mála-umræður
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 varamanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Aðrar kosningar skv. lögum
Kl. 14:30 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri (um kl.
16:00)
Kl. 19:30 Kvöldverðarhóf í Súlnasal
LFK konur á flokksþingi!
Föstudagskvöldið 18. nóv. er framkvæmdastjórn og landsstjórn LFK
ásamt varamönnum boðuð á fund kl. 19.00 að Hótel Sögu.
Framkvæmdastjórn LFK
Morgunspjallsfundur
Laugardagsmorguninn 19. nóvember kl. 9.00 eru allar LFK konur á
flokksþingi boðaðar á morgunspjallsfund að Hótel Sögu.
Framkvæmdastjórn LFK
Stjórn SUF
Fundur í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna er boðaður
fimmtudaginn 17. nóv. kl. 20 að Nóatúni 21 Reykjavík.
Fjallað verður um verkefnaáætlun í vetur og flokksþing sem
framundan er.
Formaður SUF
Spilakvöld
Annað spilakvöld Framsóknarfélags Rangæinga verður haldið í
Hlíðarenda sunnudaginn 20. nóv. kl. 21.
Stjórnin.
Borgarnes - nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 18.
nóvember kl. 20.30.
Ath. 1. spilakvöld í 3ja kvölda keppni.
Góð verðlaun, mætum vel.
Framsóknarfélag Borgarness.