Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 3
i C f, íI / ) I I Miðvikudagur 16. nóvember Tíminn 3 Sértilboð Framleiðnisjóðs um kaup á framleiðslurétti búvöru rann út í gær. Líklegar breytingar vegna þess: BÆNDASTÉTTIN VERDUR 100 BÆNDUNI FÁTÆKARI Tvö sértilboð Framleiðnisjóðs, annað til aldraðra bænda sem bregða vilja búi og hitt til sauðfjárbænda á ákveðnum svæðum, runnu út í gær. Að sögn Jóns G. Guðbjömssonar hjá Framleiðnisjóði vom viðbrögð við sértilboðunum talsverð þótt öll kurl væm varla komin til grafar í gær. Jón sagði að borist hefðu beiðnir til sjóðsins um kaup á um 200 tonna framleiðslurétti en hefði almennt tilboð gilt hefði mátt búast við um 100 tonna rétti. Hér væri um að ræða milli 130 og 140 bændur með um 10 þúsund ærgildi, eða um 75 ærgildi á mann að meðaltali og sagði Jón að um 3A bændanna væru eldri bændur. í tilboðinu til aldraðra bænda fólst að sjóðurinn bauðst til annaðhvort að kaupa framleiðsluréttinn fyrir 7500 kr. ærgildið og greiða fyrir á tveim árum og greiða auk þess förgunarbætur upp á 4000 kr., eða leigja réttinn fyrir 1670 kr.á ári á ærgildi. Framkvæmdanefnd búvörusamn- inga stóð einnig fyrir öðru sértilboði sem gilti fyrir ákveðin svæði landsins sem talin eru vera gróðurfarslega veik. Tilgangurinn var að draga úr beit en jafnframt kjötframleiðslu. Þessi svæði eru; Suðurlandið allt, V-Skaftafellssýsla, Mýrarsýsla, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Sjóðurinn bauð það sama fyrir leigu framleiðsluréttarins og gert var í tilboðinu til eldri bænda, en bauð hins vegar 8.500 kr. kaupverð fyrir ærgildið. Jón sagði að fullvirðisréttur mjólkur væri umreiknaður í ærgildi hjá sjóðnum og almenn tilboð sjóðs- ins til kúabænda væri 7.037 kr. og deildust greiðslur sjóðsins fyrir rétt- inn á 4-6 ár. Upphæðin jafngilti nálægt 40 krónum á framleiddan lítra mjólkur. -En geta menn selt famleiðslurétt sinn öðrum en Framleiðnisjóði eða leigt hann eins og hverjar aðrar eigur sínar? Tíminn spurði Árna Jónasson hjá Búnaðarfélaginu um þessi mál: „Já, þeir geta bæði selt hann eða leigt ef þeir eiga jörðina en geta það ekki ef þeir eru leiguliðar. Þetta er þó bundið vissum skilyrð- um. Ef bændur hyggjast selja réttinn öðrum bændum þá þarf samþykki viðkomandi búnaðarsambands eða búnaðarsambanda ef rétturinn færist milli félagssvæða. Ef þetta samþykki liggur fyrir er ekkert því til fyrirstöðu að selja eða leigja réttinn. Hins vegar þarf ekki samþykki búnaðarfélaga ef rétturinn er seldur til Framleiðnisjóðs." Heyrst hefur að söluverð fullvirð- isréttarins milli bænda hafi hækkað verulega undanfarið sem valdið hafi því að alls ekki borgi sig að selja réttinn Framleiðnisjóði sem greiði samkvæmt reglugerð. Árni sagði það rétt að verðsprenging hefði orðið við sölu mjólkurframleiðslu- kvóta milli manna og heyrst hafi að kaupendur hafi eftir slík kaup orðið að framleiða mjólk án þess að fá nokkuð fyrir hana í allt að tvö ár, eða þar til þeir hefðu eignast réttinn. Þar sem sauðfjárræktin stendur illa þessa stundina þá á sér sala á framleiðslurétti í greininni sér vart stað. Hins vegar stendur mjólkurfram- Ieiðslan vel og framleiðsluréttur þar eftirsóttur enda gangverð hans milli manna komið langt upp fyrir það sem Framleiðnisjóður greiðir fyrir hann. Árni sagði að ein af ástæð- um þessarar verðsprengingar væri sú að margir ungir bændur hefðu fjár- fest í stórum fjósum sem þeir síðan hefðu ekki getað nýtt nema að hluta nema með því móti að kaupa kvóta-sá Togaramálin á Suðurnesjum til umræðu í dag: Fundað með þingmönnum stjóri Eldeyjar hf. sagði í samtali við Tímann að svo virtist sem málið væri að snúast þeim í vil, að minnsta kosti í augnablikinu. „Við erum allavega búnir að stíga það skref að við okkur verður talað,1- sagði Bragi. Hann sagði að viðræð- ur við Sambandið ættu örugglega eftir að taka nokkurn tíma, þar sem engin gögn lægju fyrir i mál- inu. Um miðja næstu viku er búist við að reikningar frystihússins verði tilbúnir og í framhaldi af því og að könnunarviðræðum loknum má búast við að formlegt tilboð komi fram. -ABÓ Fyrirtækin Eldey hf., Gæðafisk- ur hf. og Valbjörn hf. ásamt fleiri samstarfsaðilum af Suðurnesjum héldu fund síðdegis í gær þar sem farið var yfir stöðuna og hugsanleg hlutafjárkaup þessara aðila í Hrað- frystihúsi Keflavíkur, það er eign- arhluta Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. I dag verður síðan haldinn fundur með þingmönnum kjördæmisins, þar sem sömu mál verða til umraalu ogsíðar í vikunni er gert ráð fyrir viðræðum við Samband íslenskra samvinnufé- laga. Bragi Ragnarsson framkvæmda- Dómararnir þrír í Hafskipsmálinu: Málsgögn skoðuð um mánaðamótin Haraldur Henrýsson, Pétur Guð- geirsson og Arngrímur ísberg verða sakadómarar í Hafskipsmálinu. Haraldur Henrýsson er jafnframt formaður dómsins. Að sögn Gunn- laugs Briem yfirsakadómara afhenti hann þeim málsgögn í gær, en Har- aldur Henrýsson hefur leyfi frá störf- um í sakadómi til 1. desember, og bjóst Gunnlaugur ekki við að þeir færu að líta á málsskjölin fyrr en þá. Haraldur Henrýsson formaður dómsins, sagðist ekkert geta sagt til um hvenær málið yrði þingfest, né hvenær það verður tekið fyrir í sakadómi. Þegar Haraldur kemur til starfa hjá sakadómi um næstu mánaðarmót verður hafist handa við að fara yfir öll dómsskjöl sem líklegt er að taki nokkurn tíma og því muni það dragast nokkuð fram á næsta ár að fjallað verði um málið í sakadómi. -ABÓ Eysteinn Helgason í Plastprent Þann 11. nóvember s.l., var Ey- steinn Helgason ráðinn fram- kvæmdastjóri Plastprents h.f., en Jón Steingrímsson núverandi fram- kvæmdastjóri lætur af störfum að eigin ósk. Árið 1986 var Eysteinn ráðinn forstjóri Iceland Seafood Corporat- ion í Bandaríkjunum, en var vikið úr starfi í febrúar s.l. Bæklingar með umsóknareyðublöðum_ liggja frammi í öllum VERSLUNUM SAMVINNUMANNA, öllum af- greiðslum SAMVINNUBANKA ÍSLANDS, SAM- VINNUTRYGGINGA og SAMVINNUFERDA- LANDSÝNAR. Auk þess má snúa sér til afgreiðslu SAMKORTS hf. Ármúla 3-108 Reykjavík - Sími91 -680988

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.