Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Miðvikudagúr 16 j nóverrrbér
Hópurinn ásamt fóstrunum við prentvél Blaðaprents. Tímamynd g.e.
Selásborg kemur í
heimsókn á Tímann
Krakkarnir á skóladagheimilinu Sel-
ásborg í Árbæ komu við á Tímanum
í gær til þess að sjá hvernig dagblað
Að aflokinni skoðunarferð er gott
að fá smá hressingu. Tímamynd G.E.
verður til. Krakkarnir eru búnir að
fara í nokkur önnur fyrirtæki þar
sem annaðhvort pabbi eða mamma
einhvers krakkans vinnur.
Fóstrurnar fóru fram á það við
foreldra barnanna að fá að koma í
heimsókn á vinnustaði þeirra til þess
að leyfa börnunum að kynnast því
hvað foreldrarnir eru að gera á
meðan þau eru í skólanum eða á
skóladagheimilinu. Hefur þetta
mælst vel fyrir hjá bömunum og
hlakka þau til hverrar ferðar, mest
þó auðvitað þegar farið er í fyrirtæk-
ið hjá pabba eða mömmu.
Á Selásborg eru 17 börn á aldrin-
um 6-9 ára og vom þau klædd í
furðuföt í gær í tilefni þess að
Selásborg varð 3 ára í gær. Börnin
sögðu verulega skemmtilegt að vera
á Selásborg þar væri alltaf eitthvað
áhugavert að gerast.
Alfreð Þorsteinsson spyr borgarstjóra um viðbrögð við samdrætti í
þjóðfélaginu. Ráðhúsbyggingin nú 190 milljónir fram úr áætlun:
Hægir borgin
á ráðhúsinu?
„Eru uppi sérstök áform um
sparnað og hagræðingu í rekstri hjá
Reykjavíkurborg?
Hyggjast borgaryfirvöld hægja á
stórframkvæmdum við ráðhús og
útsýnishús á Öskjuhlíð?“
Þetta er fyrirspurn sem Alfrcð
Þorsteinsson flutti í borgarráði í gær
í Ijósi þess að Reykjavíkurborg mun
ekki fara varhluta af þeim samdrætti
sem nú á sér stað í þjóðfélaginu.
Á fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar voru til ráðhússins ætlaðar
160 milljónir kr. á þessu ári. Ýmsar
breytingar á hönnun hússins urðu til
að kostnaður hækkaði verulega svo
að á þessu ári hafa verið lagðar um
350 milljónir króna - farið hefur
verið við bygginguna 190 milljónir
fram úr fjárhagsáætlun.
Alfreð sagði við blaðið í gær að
hann teldi ekki óeðlilegt að borgar-
stjóri svaraði því hvernig borgin
ætlaði að bregðast við yfirvofandi
tekjutapi vegna samdráttar í þjóð-
félaginu. Hvort borgin hygðist hægja
á þessum tveim dýru framkvæmdum
eða hvort skorið yrði niður á öðrum
sviðum hjá borginni.
Einkenni samdráttarins væru þeg-
ar orðin ljós í nýframkvæmdum í
byggingaiðnaði, sem hafa dregist
saman síðustu vikur. Þá fjölgar
stöðugt gjaldþrotum fyrirtækja og
einstaklinga og spáð er rýrnandi
kaupmætti og benti Alfreð á að allt
þetta hefði áhrif á fjárhag Reykja-
víkurborgar.
Alfreð sagði að svars væri að
vænta frá borgarstjóra á næsta borg-
arráðsfundi. -sá
ASÍ um reglulegar siglingar að og frá landinu:
íslendingar á öll skip
Á fundi miðstjórnar ASÍ fyrir lendra skipa, sem mönnuð eru
skömmu var samþykkt samhljóða erlendum sjómönnum og ætluð
ályktun þar sem segir m.a.: eru til reglubundinna siglinga að
„Miðstjórn ASÍ ítrekar fyrri og frá fslandi.
samþykkt sína frá því í janúar sl. Jafnframt beinir miðstjórn ASÍ
og skorar á viðskiptaráðherra að því til aðildarfélaga sinna að huga
stöðva nú þegar öll leyfi til gjald- að aðgerðum gegn þessum
eyrisyfirfærslu vegna leigutöku er- skipum.“
Bændaskólinn á Hvanneyri veröur 100
ára áriö 1989:
Leit hafin að
Hvanneyringum
Nú er haflnn undirbúningur 100
ára afmælis Bændaskólans á Hvann-
eyri. Af því tílefni er nú reynt að
hafa uppi á öllum fyrrverandi nem-
endum, kennurum og öðru starfs-
fólki skólans.
Það var fyrir tæpri öld eða árið
1889 sem skólastarf við Bændaskól-
ann á Hvanneyri hófst. Óhætt er að
fullyrða að starfsemi skólans hefur
haft mikla þýðingu fyrir íslenskt
samfélag, því auk bænda hefur fjöldi
fólks á öðrum starfsvettvangi hlotið
þar skólanám sitt að hluta eða öllu
leyti. Alls munu um 3.000 nemendur
hafa útskrifast á þessu tímabili og
um 2.000 þeirra eru enn á lífi
hérlendis en um 60 búa erlendis.
Hópur sem starfar að undirbún-
ingi afmælishátíðar skólans, sem ætl-
unin mun vera að halda 24. júní
1989, leitar nú logandi Ijósi að
eftirtöldum hópum:
1. Fyrrverandi starfsmenn og
kennarar.
2. Aldraðir nemendur sem hafa
haft búferlaskipti nýlega.
3. Nemendur sem búa erlendis.
Þessi undirbúningshópur biður þá
að bregðast skjótt við sem geta bent
á fyrrverandi Hvanneyringa í þess-
um hópum. Þeir sem taka við ábend-
ingum þessum eru þeir Gunnar Guð-
bjartsson og Gísli Karlsson hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins í
síma: 91-28288. -áma