Tíminn - 16.11.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16!,nóvembér
Tíminn 7
24 ára gamall maður stakk fertugan mann með hníf:
ÚRSKURÐAÐUR!
GÆSLUVARDHALD
Gæsluvarðhaldsúrskurður hefur
verið kveðinn upp yfir 24 ára göml-
um manni sem stakk fertugan mann
í kviðinn með hníf á sunnudags-
morgun í íbúð í Reykjavík. Maður-
inn liggur þungt haldinn á sjúkra-
húsi. Árásarmaðurinn var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 14.
desember, auk þess sem hann skal
sæta geðrannsókn.
Mennirnir tveir hittust aðfaranótt
sunnudags í miðbæ Reykjavíkur og
bauð sá eldri hinum með sér heim í
íbúð sína í vesturbæ Reykjavíkur.
Ekki er ennþá ljóst hvað fór á milli
þeirra þá um nóttina, en snemma
um morguninn kom til ósættis milli
þeirra. Sá yngri lagði þá til þess eldra
með hníf og stakk hann í kviðarholið
vinstra megin, neðan við rifbein.
Maðurinn hlut af þessu mikið sár,
enda var hnífsblaðið 20 til 25 sm.
langt og rúmir 4 sm þar sem það var
breiðast. Þegar sá yngri hafði framið
verknaðinn hvarf hann á brott, en
þeim stungna tókst að tilkynna lög-
reglu um atburðinn. Síðdegis á
sunnudag hafði lögreglan upp á
árásarmanninum og var á mánudag
lögð fram krafa um að hann yrði
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14.
desember nk. og gert að sæta geð-
rannsókn. - ABÓ
Leitað að Karíusi og Baktusi
Birgir Sigurðsson Stefán Hörður Grímsson
Framlag íslands til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs:
TENGSL OG
DAGUR VONAR
Ákveðið hefur verið að verk
eftir þá Birgi Sigurðsson og Stefán
Hörð Grímsson verði lögð fram af
íslands hálfu til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs árið 1989.
Bækurnar sem um ræðir eru ljóða-
bókin „Tengsl" eftir Stefán Hörð
Grímsson og leikritið Dagur vonar
eftir Birgi Sigurðsson.
Það verður síðan á fundi dóm-
nefndar bókmenntaverðlaunanna
þann 27. janúar n.k. sem ákvörðun
verður tekin um hver hlýtur verð-
launin að þessu sinni. Verðlauna-
upphæðin er 125.000 danskar
krónur. Sjálf verðlaunaafhending-
in fer hins vegar ekki fram fyrr en
á 37. þingi Norðurlandaráðs sem
haldið verður í Stokkhólmi dagana
27. feb.-3. mars.
Fulltrúar íslands í dómnefndinni
eru rithöfundarnir Jóhann Hjálm-
arsson og Sveinn Einarsson og er
Jóhann formaður nefndarinnar.
Ólafur Ragnar fær kaldar kveöjur frá Æskulýðsfylkingunni:
w
MOTMÆUR SKATTI
Á HAPPDRÆTTIN
45% 4ra ára barna
með allar tennur heilar
Bæta má tannheilsu fjögurra ára barna verulega, með
góðum ráðum í munnhirðu og mataræði og með flúorgjöf.
Fari sykurneysla barna yfír ákveðin mörk í viku hverri, fjölgar
skemmdum tönnum mjög verulega. Þetta eru niðurstöður
rannsókna, sem gerðar hafa verið í Reykjavík.
Hægt er að sjá
skemmdirnar fyrir
Með bakteríurannsókn og spurn-
ingalista um mataræði fjögurra ára
barna, er hægt að finna út hvaða
böm eiga mesta hættu á tann-
skemmdum. Eins og áður er getið
skiptir sykurneysla miklu máli, en
einnig valda bakteríur tannskemmd-
um. Núorðið eru til nokkuð áreiðan-
legar aðferðir til að rannsaka virkni
tannskemmandi baktería, á einfald-
an og ódýran hátt, en sumar bakt-
eríur eru hættulegri en aðrar.
Beðið þar til bomin
eru 6 ára?
Náist árangur við að draga úr
tannskemmdum 4 ára barna, er
augljóst að hægt er að hafa veruleg
áhrif á ástand fullorðinstanna síðar,
en venjulega koma þær um sex ára
aldurinn. Skólaskyldan hefst einmitt
þá og mörg börn fara þá til tannlækn-
is í viðkomandi skóla.
Það er hugsanlegt, að foreldrar
bíði með að fara með börn sín til
tannlæknis, þar til þau eru sex ára og
fái fulla endurgreiðslu tannlækna-
þjónustunnar og /eða skólatann-
lækningar.
Stefán Finnbogason, yfirskóla-
tannlæknir, segir það langbesta kost-
inn að tannlæknakerfið geti byrjað
Vísbending um
fækkun tannskemmda
Rannsakaðar voru tennur 158
fjögurra ára barna í Reykjavík og
kom í ljós, að tannheilsa þeirra var
betri en búist hafði verið við. Það
gæti verið vísbending um, að tann-
skemmdum fari fækkandi á íslandi.
Að jafnaði höfðu börnin 2,4
skemmdar, tapaðar eða viðgerðar
barnatennur og voru 45% þeirra
með allar tennur heilar. Það er
sambærileg tala og í Svíþjóð og
Finnlandi. Þá er athyglisvert að
rúmlega fjórðungur barnanna hafði
70% allra skemmdanna og fylling-
anna í hópnum og þau börn sem
notuðu flúortöflur höfðu að meðal-
tali 1,1 skemmda tönn eða viðgerða
á móti 2,8 í hinum börnunum.
Leiðrétting
í frétt Tímans í gær um ákærur í
Hafskipsmálinu, misritaðist nafn
eins af bankastjórum Útvegsbank-
ans. Hann heitir Ólafur Helgason,
en ekki Ólafur Magnús Helgason,
eins og misritaðist.
fyrir 6 ára aldurinn, til þess að
fyrirbyggja skemmdir. elk.
Á fundi sfnum þann 10. nóvember
s.l. samþykkti stjórn Æskulýðsfylk-
ingar Alþýðubandalagsins ályktun
þar sem hugmyndir Olafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra um að
leggja 12% skatt á happdrættismiða
eru harðlega gagnrýndar. Telur fylk-
ingin það forkastanlegt að með þess-
um hætti sé veist að tekjustofnum
félagasamtaka sem aldrei hafa feng-
ið þær fjárveitingar úr ríkissjóði sem
lög bjóða. Með þessari skattlagningu
sé ráðist að þeim málefnum og því
fólki í samfélaginu sem síst skyldi.
Segir í lok ályktunarinnar að nær
væri að ganga harðar fram gegn
gróðabröllurum og öðrum þeim sem
notið hafa góðæris undanfarinna
ára.
Á sama fundi var einnig fordæmd
sú afstaða Jóns Baldvins Hannibals-
sonar að sitja hjá við atkvæða-
greiðslu um vanþóknun á framferði
ísraelskra stjórnvalda við Palestínu-
þjóðina. Með þessari afstöðu fylki
íslendingar sér með Bandaríkja-
mönnum og taglhnýtingum þeirra
gegn öllum lýðræðiselskandi ríkjum
heims og er þess krafist að ríkis-
stjórnin breyti tafarlaust afstöðu ís-
lands til þessa máls. - ág
MÁLMHÚS
MÖGULEIKARNIR ERU MARGIR
í MÁLMHÚSUM FRÁ MÁLMIÐJUNNI H.F.
-V
Málmhús eru létt stálgrindarhús boltuö saman á byggingarstað.
Allir stálbitar eru sérmótaöirog galvaniseraöir.
Upplýsingar hjá söluaðilum og framleiöanda:
Málmiöjan hf. sími: 680640 Blikksmiöjan Funi sf. sími 78733
Eigum fyrirliggjandi 1 hús, 12x30 m. 4ra m vegghæð. Mjög gott verð.
Málmiðjan hf., Armúla 19, 108 Reykjavík, sími 680640, Telefax 680575