Tíminn - 07.12.1988, Síða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 7. desembe'r T988
d AinrCCT JL D
ruvi\i\að i h nr
Hjördís Leósdóttir
Áhugakonur um pólitík
Jóla-matarspjallsfundur
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir þriðja matar spjalls-
fundinum fimmtudagskvöldið 8. desember kl. 19.00 í veitingahúsinu
Torfunni.
Dagskrá:
Þrjár konur úr Landssambandinu kynna ráðstefnu í Svíþjóð þar sem
rædd var stofnun samtaka Miðflokkskvenna á Norðurlöndum.
Kynnt verður bókin „Nú er kominn tími til“, handbók kvenna í
pólitískum fræðum. Höfundurinn kynnir.
Allar áhugakonur um pólitík velkomnar.
Framkvæmdastjórn L.F.K.
Jólaalmanak SUF 1988
Eftirtalin vinningsnúmer hafa komið upp:
1. des. 1. nr. 1851
2. nr. 4829
2. des. 3. nr. 7315
4. nr. 1899
3. des. 5. nr. 6122
6. nr. 1500
4. des. 7. nr. 2993
8. nr. 8376
5. des. 9. nr. 1780
10. nr. 3258
6. des. 11. nr. 1984
12. nr. 8352
7. des. 13. nr. 8240
14. nr. 7307
Velunnarar! Látið ekki happ úr hendi sleppa. Gerið skil og leggið
baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-24480 eða 91-21379
og á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, Reykjavík.
SUF
Framsóknarfélögin í Keflavík
Fundur verður haldinn í Framsóknarfélögunum í Keflavíkfimmtudag-
inn 8. desember í Framsóknarhúsinu kl.8.30.
Dagskrá:
Aðalfundur fulltrúaráðsins.
Aðalfundur húsfélagsins.
Bæjarfulltrúar ræða bæjarmálefni.
Önnur mál.
Framsóknarmaddaman býður upp á kaffi.
Framsóknarfélögin.
Framsóknarvist á Sögu
Framsóknarvist verður haldin á Hótel Sögu sunnudaginn 11.
desember n.k. kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karla.
Stutt ávarp flytur Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra.
Stjórnandi: Jónína Jónsdóttir.
Verð aðgöngumiða kr. 400,- (Veitingar innifaldar)
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Selfoss og nágrenni
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið á Hótel Selfossi fimmtudags-
kvöldið 15. desember kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Vestur-Húnvetningar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson efna til
fundar í Víðigerði þriðjudagskvöld 13. desember kl. 20.30.
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar þegar þú auglýsir í
TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001
Frá hátíðardagskrá þegar Hólakirkja var formlega tekin í notkun á ný á sunnudag. Tímamynd öf
Saga lagfæringa
á Hóladómkirkju
Frá Erni Þórarinssyni fréttarítara Tímans í Fljótum
Það var árið 1953 sem héraðsfundur Skagafjarðarprófasts-
dæmis kaus Hólanefnd, en nefndin skyldi vinna að endurbót-
um og fegrun kirkjunnar og umhverfi hennar. Það var svo
loks á árinu 1983 sem nefndinni var markaður tekjustofn í
fjárlögum ríkisins.
Nefndin fékk arkitekt og verk-
fræðing til að gera athugun á kirkj-
unni en fram að því hafði verið
lagfært það sem bersýnilega var að
fara úr lagi. Könnunin leiddi í ljós
að gagngerðra endurbóta var þörf
því kirkjan og munir hennar lágu
undir alvarlegum skemmdum. Þá-
verandi kirkjumálaráðherra fól
Hjálmari Jónssyni prófasti sem var
jafnframt formaður Hólanefndar að
gera tillögur um endurbætur á kirkj-
unni. Jafnframt sótti nefndin um
fjármagn til upphafsframkvæmda.
Vorið eftir 24. mars 1987 skipaði Jón
Helgason kirkjumálaráðherra Hóla-
nefnd samkvæmt tillögu prófasts. f
nefndinni eiga sæti séra Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup formað-
ur, Hjálmar Jónsson prófastur, Jón
Bjarnason skólastjóri og Trausti
Pálsson formaður sóknarnefndar
Hólasóknar sem tók sæti Jóns Frið-
björnssonar í nefndinni í ársbyrjun
1988. Hólanefnd skyldi vinna í um-
boði kirkjumálaráðuneytis í samráði
við biskup íslands og þjóðminjavörð
að endurbótum og fegrun kirkjunnar
og nánasta umhverfi hennar.
Hólanefnd réði sér hönnuði, þá er
unnið höfðu frumdrög endurbót-
anna, Þorstein Gunnarsson arkitekt
og Ríkharð Kristjánsson verkfræð-
ing. Á fundi í júníbyrjun 1987 var
ákveðið að um endurgerð en ekki
viðgerð kirkjunnar yrði að ræða,
réði nefndin framkvæmdastjóra með
verkinu, Guðmund Guðmundsson
frá Sauðárkróki. Hefur hann haft
yfirumsjón með framkvæmdinni.
Samkvæmt þeirri áætlun sem gerð
var skyldi endurgerð kirkjunnar lok-
ið að innan á árinu 1988 en endur-
gerð að utan og fegrun umhverfis
lyki á árinu 1989. Verkið hófst 4.
janúar s.l. og hefur verið unnið
samfellt síðan. Kostnaður við fram-
kvæmdirnar á þessu ári er um 38
milljónir króna, en áætlaður kostn-
aður næsta árs til að ljúka verkinu
ásamt kaupum á nýju orgeli og
fullnaðarviðgerð Hólabríkurinnar er
um 21 milljón króna.
Endurreisn Hóladómkirkju hefur
notið ótvíræðs stuðnings stjórnvalda
og öruggrar forsjár kirkjumálaráðu-
neytisins undir forystu ráðherranna:
Jóns Helgasonar, Jóns Sigurðssonar
og nú síðast Halldórs Ásgrímssonar.
Ríkisstjórn íslands ákvað á ríkis-
ráðsfundi hinn 1. desember s.l. að
tryggja framgang iokaáfangans á
næsta ári þannig að endurgerð Hóla-
dómkirkju megi ljúka svo fullur
sómi verði af.
Eftirtaldir einstaklingar og fyrir-
tæki hafa staðið að viðgerðinni:
Hönnuðurnir Þorsteinn Gunnarsson
og Ríkharður Kristjánsson, raf-
hönnun Egill Skúli Ingibergsson og
Eyjólfur Jóhannsson, hita og loft-
ræsting Kristján Flygering, verktak-
ar, trésmiðjan Borg, yfirsmiður
Björn Björnsson, múrverk Hans
Danury Danmörku og Baldur Har-
aldsson, málning Sigurður Snorra-
son, Kristján Hansen og Jón Svav-
arsson, raflögn Rafsjá h.f. Sauðár-
króki, hita- og loftræstilagnir, blikk-
smiðjan Höfði Reykjavík, pípulagn-
ir Hörður Ólafsson Sauðárkróki,
aðstoð við grjótnám úr Hólabyrðu,
landhelgisgæslan og björgunarsveit
Skagafjarðarlagfæringmuna, Mork-
inskinna fornleifagröftur, lagfæring
legsteina og fleira starfsfólk Þjóð-
minjasafnsins. Öllum þessum aðil-
um færði Sigurður Guðmundsson
sérstakar þakkir fyrir hönd nefndar-
innar þegar hann gerði grein fyrir
störfum hennar á sunnudaginn. Enn-
fremur þakkaði hann biskupi
íslands, kirkjuráði, þjóðminjaverði
og framkvæmdasjóði Islands dyggan
stuðning og síðast en ekki síst fram-
kvæmdastjóra nefndarinnar Guð-
mundi Guðmundssyni og starfsliði
Bændaskólans á Hólum.
Sokki frá Kolkuósi
Uppruni Svaðastaðahrossa
Þetta fyrsta bindi ritverksins um
Svaðastaðahrossin, uppruna þeirra
og sögu, geymir hafsjó af fróðleik,
sem á erindi við alla þá sem áhuga
hafa á hestum og hestamennsku
eða stunda hrossarækt. Svaða-
staðastofninn er langútbreiddasti
stofninn innan íslenska hestakyns-
ins og hross af hinum ýmsu ættlín-
um hans eru hvarvetna í fremstu
röð á hestaþingum. Þar nægir að
benda á Kolkuóss- og Kirkjubæjar-
hrossin og hross Sveins Guð-
mundssonar á Sauðárkróki.
í þessu fyrsta bindi ritverksins
eru öllum þessum ættlínum gerð
skil og sérstaklega fjallað um merk-
ustu stóðhesta Svaðastaðastofns-
ins. Þar má til dæmis nefna Sörla
frá Svaðastöðum. Hörð frá Kolku-
ósi, Arnor frá Keldudal, Kjarval
frá Sauðárkróki, Ljóra frá Kirkju-
bæ, Stokkhólms-Rauð og marga
fleiri. Það er gerð sérstök grein
fyrir hrossarækt margra kunnustu
búa landsins og eru til dæmis
sérkaflar um Hólabúið, Keldudal í
Skagafirði, Vatnsleysubúið, Stóra-
Hof á Rangárvölium, Höfða í
Þverárhlíð, Tungu á Svalbarðs-
strönd og fjölmörg önnur.
f bókinni er saga Svaðastaða-
hrossanna rakin allt aftur til miðrar
18. aldar, en þá fluttist Björn
Sigfússon að Svaðastöðum í Við-
víkursveit í Skagafirði. Sama ættin
býr enn á Svaðastöðum og hefur
ræktað sama hrossakynið í meira
en 200 ár. Það hefur skilað þeim
árangri meðal annars, að allir heið-
ursverðlaunastóðhestar landsins
eru af þessum stofni, sem og margir
af kunnustu gæðingum í röðum
íslenskra hesta. Þar nægir að nefna
nöfn á borð við Brján frá Hólum,
Kristal frá Kolkuósi og Þór frá
Sporz.