Tíminn - 07.12.1988, Qupperneq 9

Tíminn - 07.12.1988, Qupperneq 9
Miðvikudagur 7. desember 1988 Tíminn 9 Að vonbláum tindum rammlegra fjalla Nýjasta ljóðabók Helga Sæm- undssonar gefur tilefni til að staldra við og líta yfir langan feril hans sem bókmenntagagnrýnanda og skálds. Þetta er sjötta kvæðasafnið, sem hann sendir frá sér; fyrsta bókin Sól yfir sundum. kom út árið 1940, en síðan líða 35 ár, þar til hann tekur að gefa út ljóð sín á ný, og rekur þá hver ljóðabókin aðra með fárra ára millibili: Sunnan í móti 1975, Fjalla- sýn 1977, Tíundir 1979, Kertaljósið granna 1981 - og Vefurinn sífelldi, sem út kom snemma á þessu ári. Illvíg styrjöld Þegar Helgi Sæmundsson gaf út æskuljóð sín tvítugur að aldri við upphaf hernáms á landi hér, byggði íslensk ljóðagerð enn á bjargi ríms og stuðla. „Eftir á að hyggja finnst mér, að þetta litla kver mitt hafi vakið meiri athygli en það átti skilið," sagði Helgi í viðtali 1981. „En hafa ber í huga, að kvæði voru lesin betur og af fleirum í þá daga; almenningur fjallaði um þau og skipti sér af þeim.“ Helgi gerðist ungur blaðamaður, fyrst á Tímanum, en síðan Alþýðu- blaðinu og varð að lokum ritstjóri þess blaðs. Á veltiárum hernámsins og tímum kalda stríðsins, þegar viðhorf til menningarmála gjör- breyttust, er hann einn áhrifamesti bókmenntagagnrýnandi landsins. Og hann varð einna fyrstur manna til að viðurkenna formbyltingu ungra ljóðskálda. „Já, ég tók upp hanskann fyrir atómskáldin," segir hann í áðurnefndu viðtali. „Ég vildi að þau hefðu fullt frelsi til að yrkja eins og þeim sýndist. Þau sættu fordómum og ósanngirni. Það er nú ekki nýtt í bókmenntum og listum, og við íslendingar erum síst barn- anna bestir í þeim efnum. En atóm- skáldin svokölluðu lentu í alveg sérstaklega illvígri og fáránlegri styrjöld. Það var barið á þeim ómjúkum höndum, svo að vægt sé til orða tekið, og það hlaut að kalla fram gagnaðgerðir. Allt þetta tal um búning, rím og stuðla og slíkt, það voru deilur um keisarans skegg að mínum dómi.“ í sama viðtali eru eftirtektarverð ummæli Helga um hlutverk sitt sem gagnrýnanda, en þau eru á þessa leið: „Sumir tala illa um gagnrýnend- ur, eins og allir vita. Ég má náttúr- lega ekki gera það, því að ég hef gamlan glæp á samviskunni. En nú orðið sé ég minnst eftir gagnrýninni af því sem ég gerði hér áður fyrr og veitti mér gleði og fullnægju. Það er ekki að öllu leyti hollt að fást við gagnrýni, sérstaklega ekki fyrir ung- an mann, sem ætlar sér sjálfur að verða skáld." Ljóð 1937-1975 Þrátt fyrir tímafreka blaða- mennsku, umfangsmikil bók- menntaskrif og önnur afskifti af pólitík og menningarmálum, vék ljóðagyðjan sjaldan langt frá Helga fremur en öðrum sem ánetjast henni ungir. Hann birti öðru hverju kvæði í tímaritum, og árið 1975 valdi hann úr syrpu sinni og gaf út bókina Sunnan í móti, Ijóð 1937-1975. Aðeins tvö af æskuljóðunum stóð- ust dóm reynslunnar: I dag er pabbi á sjó (1937) og Kveðja (1938). Form flestra kvæðanna er þó hefðbundið líkt og þá, þótt flest önnur eigindi séu gjörólfk. Yrkisefnin eru fjöl- breytt og bera því vitni, hve ljóðin eru ort á löngu tímabili. Mest ber á náttúrustemmningum og tilfinninga- ljóðum, og þriðji hluti bókarinnar vekur athygli, en hann hefur að geyma opinská trúarljóð. í fimmta og síðasta hlutanum ræður landið og sagan ríkjum, og þar nýtur sín víða vel fágað og vandað orðfæri, fljúg- andi mælska og landsþekkt kímni höfundar. Dæmi um það er kvæðið í Möðrudal, en í því eru þessi erindi: „Margt hcfur gerst í Mödrudal" milli blárra fjalla. Þar ég gisti háran hal og hestamanninn snjalla. Sá hefur aldrei lotið lýð sem lítilþægur bíður, Helgi Sæmundsson. en fákum reið hann fljótin stríð þótt freyddi upp á síður. Hann er niðji fjallafróns hvar sem fuglar veiða grimmir, og máni og stjarna munu Jóns minnast þegar dimmir. En formbyltingin hefur einnig sett mark sitt á Ijóðagerð Helga, eins og kvæðið Gunnar á Hlíðarenda sýnir: Við höfum ekið alla leið hingað austur í Fljótshlíð. Eyjafjöllin blasa við en okkur er hugþekkast umhverfið þar sem við stöndum. Við spyrjum hvert annað og spörum einganveginn spekina úr kennslubók í Islandssögu. Svo kemur gamall maður gangandi eftir veginum: Gunnar á Hlíðarenda. Ljóðræn smákvæði Þegar ísinn hafði verið brotinn, sigldi hver bókin í kjölfar annarrar. Ef litið er yfir allt safnið, kemur í ljós að greina má nokkra höfuðþætti í ljóðagerð Helga. Fyrirferðamesti flokkurinn er einföld og hefðbundin smáljóð í anda nýrómantísku stefn- unnar, þar sem mest ber á náttúru- dýrkun og fegurðarþrá. Slík ljóða- gerð er viðkvæm og vandasöm, en Helgi hefur náð á henni góðum tökum. Sem dæmi um það má nefha titilljóð Fjallasýnar, sem er samfelld- ust bókanna og með fallegustum heildarblæ: Ég hrekk upp af svefni á hljóðrí nóttu og við mér blasa í birtu mánans himingnæf fjöll hvít og dauð eins og gödduð Itk í Ijósinu kalda. Og síðasta kvæði bókarinnar, Að kvöldi dags, er á þessa leið: Sólin í hafið hneig, hjarta mitt þó er glatt, kvöldstjarna lýsir leið langt inní hljóða nótt. Gleymdur ég ekki er uppivið fjallið bratt, blærinn í bjarkasal býður mér góða nótt. í þremur síðustu bókunum ber mikið á ýmiss konar formtilraunum, í Tíundum eru löng og órímuð frásagnarljóð, eins og til dæmis Upp- gjöf Esaú og Ræða góðborgarans. Einnig er þar að finna djarfar til- raunir með hið hefðbundna ljóðform, þar sem rími er haldið, en sleppt bæði stuðlum og höfuðstöf- um. Dæmi um það er þriðja erindið í kvæðinu Örninn: Og ég er frjáls að hefja mig úr viðjum þeim sem tefja mig og hamla eðli mínu. Eg fagna, morgunn, þinni dýrð og hlýði kalli þínu. Illgresi þitt ilmar betur... Vefurinn sífelldi er fjölskrúðugust bókanna, bæði hvað efni og form varðar, og ef til vill viðamest þeirra, Helgi yrkir sem fyrr með góðum árangri ljóðræn smákvæði, en heldur jafnframt áfram formtilraunum sínum. Lengsti kafli bókarinnar fjallar um persónur, bæði innlendar og erlendar. Þar er til dæmis kvæði um John Lennon, sem endar á þessum línum: Og ég fann til, fjarri háskanum á dauðastundþinni. Byssan sem gein við þér beindist einnig að hjarta mínu. Og ágætt kvæði um Örn Arnarson skáld, sem ort er í tilefni af hundrað ára ártíð hans, endar á þessu erindi: Þú gast látið vor um vetur vekja sálir dýrum hljómum. Illgresi þitt ilmar betur öllum vorum stofublómum. En mestum tíðindum sæta þó nokkur órímuð erfiljóð, eins og til dæmis Mynd í stein, sem er ort í minningu Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, Veislan góða, sem er tileinkuð Snorra Hjartarsyni, og síðast en ekki síst Heimför Kristjáns Eldjárns, sem er eftirminnilegasta Ijóð bókarinnar: Dauðinn kveður þig sviplega til fundar við sig, og kalli hans fær einginn synjað. Hann ber þig yfir hið straumþúnga fljót sem brunar fram milli stundar og eilífðar. Þú horfist í augu við óvæntan gest og hlítir boði hans kvíðalaus. Hann lyftir hvorki vopni gegn þér né læðir á þig stríðum fjötri heldur tekur þig í líknarfaðm sinn sem traustur og hollráður ferjumaður. Hann vísar þér greiðustu leiðina heim að vonbláum tindum rammlegra fjalla ættjarðar þinnar sem rís úr sæ og eftir þér drúpandi vakir. Gylfi Gröndal „Drengskap þekkti ’ann afspurn af“ Sveinn frá Elivogum: Andstæður, Ijóðasafn, Skuggsjá, 1988. Sveinn Hannesson, sem kenndi sig við bæinn Elivoga í Skagafirði, fæddist 1889 og lést 1945. Hann varð snemma kunnur fyrir stökur sínar, kviðlinga og kvæði. Eftir hann komu á sínum tíma út tvö ljóðakver, Andstæður (1933) og Nýjar and- stæður (1935), sem bæði hafa lengi verið með öllu ófáanleg. Nú hefur sonur hans, Auðunn Bragi Sveins- son, séð um útgáfu á báðum þessum bókum í einni og bætt auk þess við töluverðu sem höfundur lét eftir sig í handritum. Gefst því nú að nýju kostur á að kynnast skáldskap Sveins í aðgengilegu formi. Slíkt er vissulega á sinn hátt fagnaðarefni, því að það dylst engum, sem les, að Sveinn frá Eii- vogum hefur verið gæddur á ýmsan hátt sérstæðri skáldgáfu. Þó leynist það engum heldur að vettvangur hans hefur fyrst og fremst verið lausavísan, því að í lengri og um- búðameiri ljóðum nýtur hann sín áberandi síður. En lausavísur hans margar eru prýðisvel gerðar, sem og mörg lengri og styttri ljóð sem hann hefur ort undir lausavísna- eða rímnaháttum. Aðdáun hans á öðru og eldra skagfirsku skáldi, Bólu-Hjálmari, kemur þarna líka vel fram á nokkr- um stöðum, m.a. í sérstöku kvæði sem Sveinn hefur ort um hann. Er líka sannast mála að margt hefur verið líkt um kjör og skáldskaparað- stöðu þessara tveggja manna. Bein áhrif frá Hjálmari fann ég þarna þó ekki nein umtalsverð, nema ef vera skyldi í kvæði sem þama er og heitir Bamagæla og sýnist geta verið ort undir áhrifum frá samnefndu kvæði Hjálmars. Auðunn Bragi ritar greinargóðan formála að þessari útgáfu, þar sem hann rekur m.a. æviatriði föður síns og ræðir í nokkru máli um skáldskap hans. Síðan eru bækur hans tvær prentaðar þarna upp í heild, og í lokin er svo úrval úr því sem hann lét eftir sig. Getur Auðunn Bragi þess að eftirlátin handrit hans fari væntanlega úr sinni vörslu og inn á Landsbókasafn, sem rétt er og sjálfsagt. Þegar þessi ljóðmæli Sveins frá Elivogum eru síðan lesin í gegn vekur það ekki síst athygli hversu hann hefur verið jöfnum höndum rímglaður og rímhagur. Hann er alþýðuskáld af gamla skólanum og yrkir undir hefðbundnum bragar- háttum, oft dýrum. Meðal annars vekur það eftirtekt hvað hann gerir mikið af því að yrkja hringhent, og yfirleitt með hinni mestu prýði, til dæmis: Oft til svanna kvæði kvað, kenndur glanni í brögum, glöggt ei vann að gæta að guðs né manna lögum. Og fleiri gömlum og góðum dýrleik- aafbrigðum bregður hann fyrir sig, svo sem Kolbeinslagi, hætti sem mörg góðskáld hafa spreytt sig á í aldanna rás: Sveinn frá Elivogum. Sá ég þræl með sáran hæl, sem þó mundi lítil und, rósemd fæla og reka upp væl, rölta umgrundsem sleginn hund. Annað vekur líka athygli, og það er að sem sannur Norðlendingur hefur Sveinn haft kv-framburð og stuðlar jafnan í samræmi við það, til dæmis: Kulda- þreytir -kylja stinn, hverfa blóm úr spori. Órór leitar andi minn eftir sól og vori. Og skömmum bregður hann fyrir sig og fer þá stundum á kostum, svo sem í þessari vísu sem er hluti af ritdómi: Þín er skitin skáldaflík, sködduð, bitin, núin, dauðum ríturæfli lík, rotir., slitin, fúin. Sömu ættar er hún einnig þessi og vel gerð: Margan blekkti mannsins skraf, miðlaði rógi í eyra. Drengskap þekkti ’ann afspurn af, - ekki heldur meira. En lúinn hefur höfundur verið orð- inn þegar hann kvað hana þessa: Fótum aumum förlast megn, frá mér tauminn gef ég, þungum straumi að stríða gegn styrkinn nauman hef ég. Þannig mætti halda lengi áfram, því að af meiru en nógu er enn að taka. En einhvers staðar verður þó að láta staðar numið, enda nægja þessi sýnishorn vonandi til þess að menn geti séð á hvern veg hér er ort. En Sveinn frá Elivogum var býsna gott skáld, sem allt of lengi hefur legið óbættur hjá garði. Menn reka sig líka alltaf á það öðru hverju að áhugi á hefðbundinni vísnagerð er verulegur hér enn þann dag í dag og leynist á ótrúlegustu stöðum. Þess vegna er útkoma þessarar bókar ánægjuefni. Hún hefur alla burði til þess að geta orðið mörgum góður vinur og traustur fylginautur. -esig

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.