Tíminn - 09.12.1988, Síða 2
2 Tíminn
Föstudagur 9. desember 1988
Ef rekstrarlán til fiskeldis hækka ekki, þá koma mörg fyrirtæki í greininni til með að stöðvast:
Afgreiðslu verður að
Ijúka fyrir áramótin
„Við höfðum vonast til þess að fá eðlilega rekstrarfjárfyrir-
greiðslu í upphafi ársins, en hún er ekki komin enn og það
kemur að því að menn eigi ekki lengur peninga fyrir launum
og fóðri, að öllu öðru slepptu,“ sagði Jón Gunnlaugsson hjá
Landssambandi fiskeldis- og hafbeitarstöðva í samtali við
Tímann.
Jón sagöi að nú væru þeir að bíða
eftir að frumvarp, sem fæli í sér
hækkun á rekstrarlánum, yrði lagt
fram. „Ef það dregst og málið verður
ekki afgreitt fyrir jól, þá er alveg
ljóst að málið dregst fram í mars og
það koma ekki nema tiltölulega fá
fyrirtæki til með að lifa af, ef ekkert
bætist við. Rekstrarkostnaðurinn er
sá sami að halda þessu gangandi,
hvað svo sem gerist á Alþingi. Ef við
náum þessu ekki fyrir áramót þá
erum við að kyrkja þessa grein sem
menn byggja talsverðar vonir á og
kasta á gæl þeim fjármunum sem
þegar er búið að leggja í þetta,“
sagði Jón. Fyrirhugað var að fyrr-
greint frumvarp kæmi til umræðu í
ríkisstjórninni fyrir sjö vikum, en er
ekki komið fram ennþá.
í vor var tekin ákvörðun af opin-
berum aðilum þess efnis að þau seiði
sem ekki seldust úr landi, skyldu
nýtt innanlands og í því sambandi
Launadreifing rlkisstarfðmanna í BSRB
mara-maí 1ð88
35
30
25
20
E R þ E T T A
ORSÖK EFNAHAG9VANDANS?
<40 40-50 þðs 50-60 þú» >60 þ0«
Krónur
R.06.12.196B.BA.
BSRB um laun ríkisstarfsmanna í banda-
laginu í tilefni af umræðu um launalækkanir:
Meðaldagvinnu*
laun 55 þús. kr.
í dag eru meðaldagvinnulaun
ríkisstarfsmanna í BSRB um 55
þúsund krónur á mánuði. Sam-
kvæmt úttekt á launum allra ríkis-
starfsmanna í BSRB í mars-maí
1988, en þar er tímavinnufóik
undanskilið, dreifðust dagvinnu-
launin þannig að um 80% félags-
manna höfðu undir 60 þúsundum í
dagvinnulaun.
Síðan í vor hefur kaupið hækkað
að meðaltali um u.þ.b. 10%, þann-
ig að í dag má ætla að undir 44
þúsundum séu tæp 18% ríkis-
starfsmanna í BSRB, tæp 35%
með 44-55 þúsund, um 28% með
55-66 þúsund og innan við 20%
hafa yfir 66 þúsund krónur á mán-
uði.
Þessar upplýsingar komu fram á
fundi sem BSRB hélt í gær vegna
umræðu um að lækka verði laun
almennings vegna efnahagsvand-
ans.
Á fundinum sagði Ögmundur
Jónasson formaður BSRB að þess-
ar tölur væru nú dregnar fram í
dagsljósið til að vara við umræðu
af þessu tagi, sem hafi einkennst af
allt of miklum alhæfingum og feli í
sér fullkomið ábyrgðarleysi og van-
þekkingu.
Ögmundur sagði jafnframt:
„Með hugmyndum um að lækka
taxtana er troðið á þeim sem búa
við kröppust kjör. Spurningin er
fyrst og fremst sú hvernig deila eigi
ögmundur Jónasson.
verðmætum í þessu landi. Þetta
fólk sem hér um ræðir á ekki að
borga brúsann af því að fyrirtæki
hafa staðið í sukki og óráðsíu í
langan tíma. Ef það reynist rétt að
þjóðin eigi fyrir höndum erfið-
leikatímabil er enn meiri ástæða til
að gæta að félagslegu jafnrétti. Þaö
væri nær fyrir Þórarin V. Þórarins-
son að líta í eigin barm og athuga
hvort ekki séu einhverjir í hans
hóp sem geta hert ólarnar."
Á fundinum var einnig lögð
áhersla á mikilvægi þess að launa-
fólk endurheimti samningsréttinn
og ábyrgðin liggi hjá stjórnvöldum
ef til átaka kemur á vinnumarkaði
í vor. SSH
veitt ákveðin lánsheimild að upphæð
800 milljónir á þessu ári og næsta, til
að koma þeim seiðum fyrir. „Það
var viðurkennt af þeim sem tóku þá
ákvörðun, að þetta væri ekki nema
hluti af dæminu. Menn fóru af stað
í góðri trú,“ sagði Jón. Hann sagði
að ef ekki kæmi til hækkunar á
rekstrarlánum eins og lofað var á
sama tíma, þá væri þetta unnið fyrir
gýg. Aðspurður hvort ein eldisgrein
væri ver stödd en önnur, sagði Jón
svo ekki vera, en bjóst við að einna
erfiðast væri hjá strandeldisstöðvum
sem væru með mikinn stofnkostnað.
Hjá þeim stöðvum er rekstrarkostn-
aðurinn hvað mestur og framleiðslan
mest.
Menn hafa fjármagnað þetta
meira af eigin fé, heldur en geta
leyfir, vegna þess að sú fyrirgreiðsla
sem lofuð var hefur ekki gengið
eftir. „Það eru miklar vonir bundnar
við þennan atvinnuveg og talið eðli-
legt að hann taki við, eða bætist við
veiðar þegar allir stofnar eru full-
nýttir, en hann þarf ákveðna lánafyr-
irgreiðslu. Ef menn kaupa skip og
fara að róa þá fá þeir strax tekjur
eftir fyrsta túr, en í fiskeldi líða
kannski 4 til 5 ár þar til þú ert með
söluhæfa vöru, ef þú er sjálfur að
framleiða fisk allan tímann og á
meðan hefurðu engar tekjur. Á
þessu sést hversu rekstrarfyrir-
greiðslan er miklu mikilvægari í
fiskeldi, en í flestum öðrum grein-
um,“ sagði Jón. -ABÓ
Veitt verði
óáfengt
Samvinnunefnd bindindis-
manna samþykkti þann annan
þessa mánaðar að beina þeim
tilmælum til stjórnvalda að af-
numin yrðu öll fríðindi einstak-
linga og stofnana varðandi kaup
á áfengi.
f greinargerð sem fylgir
áskoruninni segir m.a.: „Með því
að gefa kost á áfengum drykkjum
á hagstæðari kjörum en óáfengar
veitingar er í raun verið að stýra
framboði og ýta undir áfengis-
neyslu".
Nefndin bendir einnig á að
slíkt sé í beinni andstöðu við þá
heilbrigðisstefnu sem miði að því
að draga úr áfengisneyslu um
fjórðung fram til aldamóta og
einnig megi benda á að slík
mismunun, sem verðlagningin
hafi í för með sér, bjóði heim
misnotkun og spillingu.
Þá segir í greinargerðinni: „Þá
er nauðsyn að afnema einnig öll
fríðindi manna varðandi áfeng-
iskaup svo að allir þegnar lýð-
veldisins sitji við sama borð -
enda er þeim öllum ætlað að taka
þátt í kostnaði við að bæta tjónið
sem áfegnisneysla veldur“.
Karvel Pálmason vill stofna sérstakan sjóð
til hjálpar þeim sem verða fyrir mistökum lækna:
Dómskerfið gerir
öryrkja öreiga
Karvel Pálmason og fleiri báru
fram fyrirspurn til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra á Alþingi í
gær um tryggingasjóð sjúklinga.
Hvort það væri á döfinni að koma á
fót tryggingasjóði til aðstoðar þeim
sjúklingum sem orðið hafa fyrir
áföllum vegna mistaka við læknis-
meðferð.
Karvel sagði að á síðustu misser-
um væru að koma í vaxandi mæli
upp á yfirborðið meint mistök lækna
við meðferð sjúklinga og dæmi þess
að menn hlytu varanlega örorku
vegna læknisfræðilegra mistaka. Þó
svo að umræða um þetta færi vaxandi
í fjölmiðium kvaðst hann viss um að
meirihluti tilfella af þessu tægi lægi
gleymdur og grafinn. Karvel sagðist
hafa gengið sjálfur í gegn um þetta
dæmi og þekkti því af eigin raun
hversu kerfið væri þungt í vöfum og
ómannúðlegt gagnvart þeim sjúkl-
ingum er í þessu lentu og þyrftu að
leita réttar síns fyrir dómstólum. Sú
Karvel Pálmason alþingismaður.
píslarganga gæti í mörgum tilfellum
tekið tvö til þrjú ár og það væri
sorglegt að horfa upp á fólk verða
nánast öreiga í baráttu sinni við
sérfræðinga og lögfræðinga kerfis-
ins.
í svari Guðmundar Bjarnasonar
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra kom fram að reynt væri að fara
með slík mál í jafn mörgum tilfellum
og mögulegt væri. Við mat á örorku
er hlytist af mistökum lækna væri
farið eftir lögum um skaðabætur, en
landlæknir hefði nýlega lagt fram
frumvarp um meðferð slíkra tjóna,
andlegra og líkamlega. f þeim drög-
um er tekið tillit til umfangs tjónsins
miðað við þá áhættu er sjúklingurinn
tekur með því að gangast undir
viðkomandi aðgerð. Ekki hefði enn
verið tekin ákvörðun um hvort að
slíkt frumvarp yrði lagt fram en
beðið sé eftir umsögn þeirra aðila
sem eðlilegt sé að fjalli um þessi mál.
-ág
Guðmundur Ágústsson flutti ræðu og forseti sameinaðs þings hlustaði:
Undir fjögur augu
Hagræðing, einfötdun, aðhald,
ábyrgð og nýjar leiðir í ríkisbú-
skapnum er yfirskrift þingsályktun-
artillögu sem Ásgeir Hannes Eirfks-
son verslunarmaður lagði fram á
Alþingi fyrir nokkru. Þar er m.a.
lagt til að öll þjónusta sem ríkið
veitir og hægt er að fá á almennum
markaði verði lögð niður. Auk þess,
að kanna hvort hægt sé að bjóða út
og fela einstaklingum allan annan
rekstur sem ríkið og fyrirtæki þess
hafa með höndum.
Ásgeir lagði tillöguna fram er
hann sat sem varamaður á þingi fyrir
Albert Guðmundsson og gat því
ekki mælt fyrir henni sjálfur. Það
kom þess vegna í hlut Guðmundar
Ágústssonar meðflutningsmanns
hans að fylgja henni úr hlaði. Tillag-
an var tekin fyrir í sameinuðu þingi
í gær og var þar seinasta mál á
dagskrá.
Ekki virtust þessar róttæku breyt-
ingartillögur á ríkisbúskapnum
vekja mikinn áhuga þingmanna því
fæstir þeirra voru viðstaddir um-
ræðuna. Er Guðmundur hóf mál sitt
voru fáeinir þingmenn í salnum.
Eftir því sem á leið fækkaði þeim og
er hann var kominn vel fram yfir
miðja ræðu var Eggert Haukdal einn
eftir, en hlustaði þó trauðla og las
Dag af þeim mun meiri ákafa.
Eggert sá sér þó ekki fært að sitja
fundinn til enda og þegar yfir lauk
voru þau Guðrún Helgadóttir forseti
sameinaðs þings og Guðmundur ein
eftir.
Guðmundur lét sér þetta virðing-
arleysi þó í léttu rúmi liggja en flutti
ræðu sína áfram af jafn mikilli
ákveðni og skörungsskap og að á
hann hlýddi þingheimur allur. Þess
þarf vart að geta að umræður um
málið voru engar og atkvæðagreiðsl-
um frestað.
Til útskýringar á þessari mannfæð
í þinginu má geta þess að þingmenn
hvers kjördæmis fyrir sig funduðu
um þessar mundir um fjárlög næsta
árs og þeir sem ekki gerðu það hafa
væntanlega verið að búa sig undir að
mæta í þingmannaveislu hjá forseta
íslands sem haldin var á Bessastöð-
um í gær. - ág