Tíminn - 09.12.1988, Page 14
14 Tíminn
Föstudagur 9. desember 1988
í 8. FLOKKI 1988-1989
Vinningur til íbúðarkaupa, kr. 1.000.000
78002
Aukavinningur:
MAZDA 323, kr. 560.000
44254
Vinningur til bílakaupa, kr. 300.000
42590 56030 70210 70545
Utanlandsferðir eftir vali, kr. 75.000
4647 13235 38180 56514 69525
5894 17135 41224 56762 72397
6376 19265 47536 57212 76094
9889 23785 50896 63627 76929
Utanlandsferðir eftir vali, kr. 40.000
717 14336 29594 40486 55837 71307
735 15555 29957 40569 55919 72014
1226 16231 30719 41093 57489 72313
1587 16708 30792 41808 58337 72406
1621 17411 30981 42260 58491 72588
1997 17521 31788 42704 59264 73538
3051 17708 31790 44162 60700 74255
3644 18298 31852 45958 61083 74741
4046 19313 32166 46362 61643 75257
4626 19362 32206 46976 61718 75258
4893 19582 32965 47028 61952 75597
5071 19643 33719 47865 62876 75681
5073 20250 35118 47926 63005 76258
5499 20442 35138 48913 63021 76472
5867 20973 36019 48953 63037 76735
5891 21434 36760 49506 63960 76814
6807 21696 36927 • 49813 64100 76831
7442 ’ 22127 36968 50067 64331 77206
8035 24136 37052 52708 65191 77314
8083 24271 37382 53316 65271 77531
8906 26844 37920 53609 66544 78743
9727 26871 37981 53700 66817 ‘78893
10351 27345 38195 53989 66922
10710 27634 38358 54529 67088
11848 28010 38522 54665 68458
13077 28742 39740 55259 68979
14026 29092 39901 55756 69395
Húsbúnaður eftir vali, kr. 10.000
212 9037 16816 23493 30976 39690 45350 52543 60892 72641
349 9356 16886 23760 31556 39753 45548 53115 61076 72671
490 9460 U956 23853 31705 39797 45557 53768 61278 72699
748 9539 17072 23867 31990 39942 45885 53911 61683 72797
879 9559 17123 23940 32029 40366 46018 54149 61766 73040
1188 10025 17257 24110 32118 41028 46465 54733 61931 73071
1767 10246 17303 24479 32583 41061 46624 54811 62011 73450
1973 10372 17435 24935 32720 41082 46822 54852 62360 73949
2199 10752 17648 25185 32776 41181 46914 54932 62420 73952
2310 10778 17707 25209 33262 41190 47070 55087 62988 74058
2592 10992 18076 25472 33783 41271 47875 55117 63328 74863
2775 11355 18140 25534 33846 41544 47979 55271 63348 74990
3049 11485 18288 25837 33949 41663 48023 55327 63560 75387
3087 11599 18594 25913 34179 41762 48026 55474 64017 75650
3282 11656 18889 26136 35146 41898 48141 55489 64443 75776
3469 11772 19082 26272 35215 41958 48296 55611 64494 75909
3637 12018 19407 26298 35271 42108 48403 55769 64619 76088
4039 12152 19690 26323 35344 42169 48598 55814 65296 76272
4125 12392 19903 26419 35469 42312 48747 55953 65395 76329
4175 12515 19985 26926 35530 42413 48861 56000 65960 76576
4406 12869 20001 26938 35539 42484 48919 56005 65972 76629
4630 12904 20285 26990 35611 42655 49093 56078 66009 76852,
4767 13000 20522 27148 35627 42671 49197 56218 66433 77015
4883 13660 20897 27183 35991 42693 49379 56330 66797 77103
5263 13755 20922 27224 36887 42934 49401 57434 66875 77249
5329 13803 20965 27535 36973 43146 49571 57475 66946 77804
5657 13960 20983 27657 37032 43167 49664 58016 67012 78145
5763 14035 21056 27732 37668 43693 49670 58239 67497 78258
6091 14049 21073 27861 37673 43713 49735 58433 67544 78428
6114 14899 21613 27983 37874 43792 49851 58458 67658 78712
6166 15007 21849 28007 38120 43927 49903 58620 68403 78751
6420 15025 21874 28227 38210 43965 50306 58704 69595 78862
6544 15070 21988 28435 38264 44292 50395 59052 70023 78922
6821 15113 22009 28485 38289 44394 50651 59151 70079 78994
7246 15538 22084 28530 38355 44794 50707 59417 70203 79051
7437 15791 22474 29164 38512 44808 50708 59496 70719 79062
7483 16156 22581 29353 38727 44816 50761 59549 70840 79073
7664 16168 22582 29906 38965 44926 51009 59573 71647 79334
8554 16279 22635 29978 39173 44977 51133 60239 71759 79540
8648 16336 22649 30557 39295 44999 51434 60426 71865 79836
8746 16492 22741 30578 39567 45016 51441 60439 72369
8861 16630 23371 30721 39573 45322 52056 60735 72496
AfgrelOsla utanlandsferöa og húsbúnaöarvlnninga hefst
15. hvers mánaðar og stendur tll mónaöamóta.
HAPPDRÆTTI DAS
Effco þurrkan læknar ekki kvef
En það er óneitanlega gott að snýta sér í hana
Hún er svo stór og mjúk og
særir nebbann ekki neitt. Svo þegar
kvefið er batnað getur þú notað
afganginn af rúllunni til annarra
hluta, eins og t.d. til að þrífa bílinn,
bátinn, sumarbústaðinn og svo
getur þú að sjálfsögðu notað hana
til algengustu heimilisstarfa.
Það er eitthvað annað að þrífa
með Éffco þurrkunni. Hún gerir
heimilisstörfm, sem áður virtust
óyfirstíganleg, að skemmtilegum j
leik. Óhreinindin bókstaflega leggja |
á flótta þegar Effco þurrkan er á
lofti.
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
___ oa verslunum.................
Hcildsala Höggdeyfir — EFFCO sími 73233
-r—1—— —-----= -. , •— —.— — —f —
BÓKMENNTIR
lllllllllllllllllllll
lllllllllllllllllllll
Saga sjómannadagsráðs
í hálfa ðld
Bók eftir Ásgeir Jakobsson
Ásgeir Jakobsson rithöfundur hef-
ur skráð 50 ára sögu sjómannadags-
réðs á bláa, gullrennda, breiða, háa
og þykka bók, sem hann nefnir
Siglingasögu Sjómannadagsráðs.
Útgefandi er fulltrúaráð sjómanna-
dagsins í Reykjavík og Hafnarfirði.
Bókina vantar nokkrar síður í það
að vera 500 blaðsíður. Myndir eru
fjölmargar af mönnum og skipum,
húsum og minnismerkjum og hvers
kyns merkisviðburðum, sem tengj-
ast sjómannadagshugsjóninni.
Bókinni er skipt í fimm megin-
kafla auk formála höfundar, annáls
og skrár um sendendur heillaóska.
Nefnist sú skrá Tabula gratulatoria,
sem er latína og var alþjóðamál
sjómanna á dögum Pontíusar Píla-
tusar.
Þetta er reglulega falleg, fróðleg
og skemmtileg bók og ber höfundar-
einkenni vinar míns Ásgeirs Jakobs-
sonar, sem er að vísu íhaldsádáandi
meiri en góðu hófi gegnir, en svo
hjartahreinn og mikill stemnings-
maður að manni finnst allt vera satt
sem hann segir. Sjómannadagsráð
má vel una þessari siglingasögu sinni
úr penna hans. Það er ekki vont að
eiga æru sína undir Ásgeiri Jakobs-
syni.
Höfundur segir í formála um bók
sína að hún sé sett saman eftir
fundargerðarbókum fulltrúaráðs
sjómannadagsins, en þrátt fyrir
sögunafnið sé hún ekki algerlega í
stíl „hefðbundinna" sagnfræðibóka.
Segist höfundur hafa leyft sér að
skjóta inn athugasemdum og ófræði-
mannslegum útleggingum af sinni
eigin náttúru. Jafnframt segir hann
að það skuli einnig athugast við
lestur bókarinnar, sem annarra sagn-
fræðirita, að fræðimennska sé því
meir villandi sem hún líti trúverðug-
ar út. Síðan bætir höfundur við, að
„engin saga sé sönn saga“ og þessi
bók hans ekki heldur.
Þessi hálfkæringur Ásgeirs
Jakobssonar kann að fara fyrir
brjóstið á einhverjum húmorlausum
bókstafstrúarmönnum, en verkar vel
á þá sem þekkja ærlegheitin í höf-
undinum og þykjast verða varir við
fyrirvarana sem hann hefur innst
inni á óskeikulleik sagnamanna,
ekki síst þegar sagðar eru hetjusög-
ur, sem Ásgeir hefur reyndar sérhæft
sig í. Allt um það, þá er gaman að
lesa þessa bók og maður verður
margs vísari um þjóðnytjastarf sjó-
mannadagsráðs í hálfa öld. Þar sýna
verkin merkin, ekki síst að því er
varðar byggingu og rekstur dvalar-
heimila aldraðra í Reykjavík og
Hafnarfirði, þar sem allt er gert af
stórhug og myndarskap.
Einn galli er samt á bókinni, sem
erfitt er að afsaka. Þar-er ekki að
Ásgeir Jakobsson.
finna mannanafnaskrá eða skrá um
staða- og skipanöfn sem koma fyrir
í textanum. Þá er annar galli, sem er
sýnu verri, að víða vantar nöfn
þeirra sem sjást á hópmyndum. Á
þetta sérstaklega við um myndir af
keppendum í sjómannadagsíþrótt-
um, sundi, róðri o.s.frv. par má lesa
myndatexta á borð við þetta: „Róðr-
arsveit m/s Gróttu vann lárviðar-
sveiginn og fiskimanninn 1967“, en
nöfn keppenda ekki nefnd, þótt
andlit þeirra séu skýr á myndunum
og ekki ýkja langt um liðið síðan þær
voru teknar, auk þess sem aðeins er
þarna um að ræða örfáa menn í
hverri sveit. Þennan þátt bókarinnar
hefði þurft að vanda betur.
Ingvar Gíslason
Bókum
Eyvindur P. Eiríksson:
Múkkinn,
Iðunn, 1988.
Þetta er fyrsta skáldsaga Eyvindar
P. Eiríkssonar, og viðfangsefni hans
hér er heimur togarasjómanna. Að
vísu er þess ekki getið hvenær sagan
gerist og ekkert handbært fann ég í
henni til að tímasetja hana. Þó að ég
viðurkenni fúslega að ég er mjög
ókunnur öllu sem viðkemur lífi um
borð í togurum þá hef ég eigi að
síður fastlega á tilfinningunni að
sagan gerist fyrir svona þrjátíu eða
fjörutíu árum. Með öðrum orðum á
tímum síðutogaranna gömlu og áður
en skuttogaraöidin rann upp. Það
innifelur þá líka að hún lýsir í raun
horfnum heimi, því að mikill munur
mun vera á öllum aðbúnaði um borð
í togurum núna frá því sem var áður.
í rauninni gerist heldur fátt í
þessari sögu, og aðalefni hennar er
lýsing á daglegu lífi sjómannanna,
taumlausum drykkjulátum þeirra,
samskiptum þeirra sín á milli og
umfram allt á hugsunarhætti þeirra
og talsmáta. Og trúlega er það
einmitt þetta síðast nefnda, talsmáti
sjómannanna hér, sem búast má við
að verði ýmsum að ásteytingarefni.
Vissulega hlýtur það að vera satt
og rétt að í hörðu og óblíðu lífinu til
sjós verði menn grófari í tali en ella.
En hér er svo skemmst frá að segja
að út alla bókina er tvinnað svo
saman blótsyrðum og klámi að til
fádæma má telja. Tilgangur höfund-
ar með þessu liggur raunar í augum
uppi; hann er sá að gefa með þessu
áþreifanlega móti sem raunsæjasta
mynd ai^ví lífi sem þarna var lifað.
Og trúlega eru þessi stíll og þessi
frásagnaraðferð líka raunsæ að því
leyti að hér sé á ferðinni talsmáti
sem raunverulega hafi tíðkast hér á
meðal einhvers hóps togarasjó-
manna á árum áður.
En með gróft málfar er alltaf
vandmeðfarið á prenti. Ekki síst í
skáldsögum sem sendar eru út á
almennan markað. Og á það ekki
síst við fyrir þá sök að grófheitunum
hættir til að fletjast út og missa áhrif
sín þegar þau ganga út yfir ákveoin
mörk. Þá verður lesandi smám sam-
togarasjómenn
Eyvindur P. Eiríksson ríthöfundur.
an ónæmur fyrir öllu saman, fær á
því leiða, og er þá spurning til hvers
sé verið að þessu. í slíkum tilvikum
getur höfundur náð töluvert mark-
tækari árangri með því að beita
grófyrðunum heldur markvisst þar
sem þau eiga við, en draga úr þeim
á milli.
Og það kemur líka vel fram í
þessari sögu að höfundur hennar
hefur gott vald á margs konar öðrum
tegundum stíls heldur en þeim grófa.
Til dæmis gegnir múkkinn töluverðu
hlutverki hér sem tákn fyrir víðáttu
úthafsins og þá menn sem kjósa sér
það að starfsvettvangi. Lýsingar .á
þessum úthafsfugli koma hér inn í
söguna í stuttum innskotsköflum, og
þeir eru ýmsir vel gerðir og jafnvel
ljóðrænir, sem aftur sýnir getu höf-
undar á því sviði.
Þá eru hér einnig víða allglöggar
lýsingar á vinnuaðferðum um borð í
togurum og ýmsu því sem þar til
heyrir sérstaklega. En þar á einnig
við að málfar er svo sérstætt og
væntanlega ókunnuglegt fyrir fleiri
lesendur en þann er hér ritar að
álitamál er hvort ekki hefði verið
ástæða til að láta þar fylgja með
skýringar. Þess háttar er ails ekki
fráleitt í skáldverkum sem lýsa
horfnum vinnubrögðum, enda mörg
dæmi slíks. Og það dylst engum að
af þessari bók má fræðast talsvert
um þær vinnuaðferðir sem viðhafðar
voru um borð í togurunum hér áður
fyrr.
Og vissulega á höfundur líka hrós
skilið fyrir niðuriag bókar sinnar.
Ein af aðalpersónunum fer þar í
sjóinn, og skömmu áður hefur sá
hinn sami kynnst stúlku í landi. Hér
er á hinn haglegasta hátt fléttað
saman fyrst ástarsögu og síðan frá-
sögn af því er manninn tekur út af
skipinu, og raunar einnig bætt inn í
lýsingu á því er hann rekur á land,
þar sem hann finnst óþekkjanlegur í
fjörunni. Þessi hluti sögunnar er
allur býsna bragðmikill og gefur
glögga en þó mærðarlausa mynd af
andstæðunum á milli lífsins í landi
og hættunnar á hafinu. Það eina er
að í lokin stendur spumingin um
viðbrögð stúlkunnar eftir án svars.
En kannski hefur alls ekki staðið til
að svara henni innan marka þess
karlmannaheims sem er allsráðandi
í bókinni.
En eigi að síður verður að segjast
eins og er að ég lagði þessa bók frá
mér með talsvert blendnu hugarfari
að lestri loknum. Ástæðan er munn-
söfnuður sjómannanna, sem ég er á
því að hefði mátt draga töluvert úr
án þess að skáldsagan sem slík
glataði nokkru. Þeir eru töluvert
margir lesendurnir sem ekki kunna
að meta gróft málfar í óhófi, og þarf
ekki óharðnaða unglinga til, af
hvoru kyninu sem er. Það er alls
ekki víst að slíkir lesendur kunni
svona yfirleitt að meta það að fmna
þessa bók í einhverjum jólapakkan-
um sínum. -esig
Eru jólin
hátíð barnanna
eða Bakkusar?
Hugsaðu málið