Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 2
f 2 TíMihh
«Wíð88
Fyrir neðan virðingu
lögreglunnar í heild
Tíminn bar skýrslu þá er Lögreglufélag Reykjavíkur lét
frá sér fara í fyrradag, um ástandið innan lögreglunnar í
Reykjavík, undir ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytis-
ins, Þorstein Geirsson.
„Ég vil nú ekki tjá mig um
einstök atriði þessarar skvrslu,
enda er hún löng og mikil. Eg get
þó sagt, eftir að hafa lesið hana, að
mér finnst hún fyrir neðan virðingu
Lögreglufélagsins og lögreglu-
manna yfirleitt.
Hafi það verið ætlunin að vekja
jákvæða umræðu um löggæslu í
Reykjavík, þá er ég nú svolítið
hræddur um að sá tilgangur kunni
að hafa snúist alvarlega í höndun-
um á þeim sem að skýrslunni
standa“.
- Viltu þá meina að innihald
skýrslunnar sé ekki satt og rétt?
„Ég verð nú að segja alveg eins
og er að það er margt í skýrslunni
sem er ýmist missagt, ofsagt eða
með þeim hætti sagt að ég er alveg
gáttaður á að sjá það.
Það má reyndar vel vera að það
sé tilviljun, en hvort sem er, þá
finnst mér dálítið sérkennilegt að
sá tími skuli vera valinn til opinber-
unar skýrslunnar þegar lögreglu-
stjóri er erlendis.
Mér finnst það a.m.k. ámælis-
vert að það skuli þá ekki hafa verið
rætt við lögregluyfírvöldin, þar
með talið dómsmálaráðuneytið og
ráðherra um kvartanir. Þess í stað
er farið í fjölmiðla með þeim hætti
sem gert hefur verið.
Það þarf ekki annað en líta á
forsíðu Tímans í gær til að sjá að
þeir telja að allt sé í rjúkandi rúst
í löggæslu borgarinnnar.
Eins og ég sagði fyrr þá vil ég
ekki tjá mig um einstök mál í
skýrslunni en auðvitað mun ráðu-
neytið, eða lögreglustjóraembætt-
ið og þar með lögreglustjórinn tjá
sig um efni þessarar skýrslu þegar
þar að kemur.“
- Er hægt að túlka þessa skýrslu
svo að hún sé í raun annað áfall
fyrir dóms- og/eða Iöggæslukerfið í
landinu?
„Nei, ég álít að þetta sé áfall
fyrir Lögreglufélag Reykjavíkur og
stjórn þess. Svona málflutningur
er lögreglunni ekki til framdrátt-
ar“.
- Telurðu þá að tilgangur skýrsl-
unnar gæti átt eftir að snúast upp í
Þorsteinn Geirsson.
andhverfu sína?
„Já, það sýnist mér fljótt á litið
vegna þess hve hún kemur neikvætt
út og ég hef enga trú á því að þeir
240 lögreglumenn sem eru að störf-
um í borginni munu allir fúsir til að
skrifa undir þetta allt saman. Að
löggæslan í þeirra höndum sé eins
og ætla mætti að hún væri með
tilliti til þessarar skýrslu".
- Hvað um fullyrðingu þess efnis
að eftirlitsstörf innan lögreglunnar
hafi að mestu verið lögð niður
vegna mannfæðar, og að ekki sé
hægt að anna öðru en útköllum?
„Það er auðvitað fullyrðing sem
ég er ekki fær um að dæma um
héðan úr ráðuneytinu. Þessari
spurningu verður lögreglu'stjóri að
svara þegar hannkemurað utan. “
- áma
TAKMORKUD 00 0-
TAKMÖRKUD ÚTBOÐ
Tekið á móti framlögum til hjálparstarfsins í Armeníu:
Rauði krossinn
sendir 2 millj.
Rauði kross íslands hefur brugðist
skjótt við vegna jarðskjálftanna í
Armeníu, og hefur þegar sent þang-
að 2 milljónir króna sem fara í
hjálparstörf; Iyf og hjúkrunarvörur.
Sovéski Rauði krossinn og Rauði
hálfmáninn hafa skilgreint hvaða
hjálpargögn eru nauðsynlegust fyrst
um sinn. Það eru m.a. sýklalyf,
einnota sprautur, blóðsöfnunarpok-
ar og niðursoðin næringarrík fæða.
Þeir hafa leigt flugvélar til að flytja
teppi, tjöld, sjúkravörur og önnur
gögn.
Alþjóðasamband Rauða kross fé-
laganna í Sviss sendi fulltrúa strax á
jarðskjálftasvæðið og hefur óskað
eftir aðstoð frá landsfélögunum, en
sambandið samræmir alþjóðlega að-
stoð RK.
Fleiri hundruð sjálfboðaliðar
leggja nótt við dag við björgunar-
störf, blóði er safnað allan sólar-
hringinn og að sögn ASRK gáfu
rúmlega 3.000 manns í Moskvu blóð
í gær.
Rauði kross íslands tekur á móti
framlögum og liggja gíróseðlar
Hjálparsjóðs RKÍ frammi, í bönkum
og sparisjóðum. Hægt er að leggja
framlög inn á gíróreikning nr. 90000-
1 hjá Póstgíróstofunni, Ármúla 6,
Reykjavík og á hlaupareikning nr.
311 hjá SPRON.
Samgönguráðherra hyggst
fela nefnd skipaðri fulltrúum
þeirra stofnana sem heyra
undir samgönguráðuneytið
að undirbúa skýrar reglur
um útboð verka á vegum
stofnananna.
Stofnanirnar eru Póstur og sími,
Vegagerðin, Flugmálastjórn og
Vita- og hafnarmálastjórn en odda-
maður verður tilnefndur af ráðu-
neytinu.
Reglurnar skulu mæla fyrir um
hvenær útboð skuli fara fram og
hvenær ekki og skulu þær eftir því
sem kostur er vera samræmdar og
gilda um allt land.
Ráðherra mun biðja nefndina að
athuga sérstaklega hvort ekki sé rétt
að stærðarflokka verk þannig að
þegar um stór verk sé að ræða verði
útboð opin um allt land eða jafnvel
á alþjóðlegum vettvangi einnig.
Þegar um slík stórverk verði að
ræða sagðist ráðherra telja rétt að
tilboðsaðilar yrðu athugaðir vand-
lega og strangar kröfur gerðar til
þeirra um verkkunnáttu ogtryggingar
sérstaklega gengið frá að þeir geti
tryggt launagreiðslur.
Steingrímur J. Sigfússon sagði að
því miður væru alltaf einhver brögð
að því að verktakar stæðu sig ekki
nógu vel, hlypu frá hálfunnum
verkum, skuldum og ógreiddum
launum.
Reglunum væri ætlað að tryggja
betur en verið hefur þessa hluti og
jafnframt að verkkunnátta verktaka
yrði könnuð.
Þá er meiningin að huga að tak-
mörkuðum eða svæðisbundnum út-
boðum þegar um miðlungsstór eða
minni verk væri um að ræða, eða þá
að verk yrðu unnin á grundvelli
fastra samninga. - sá
Asta Þoreteinsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálp, (t.h.)
tekur við 100.000 krónunum frá Sigrúnu Sturludóttur, formanni Félags
Framsóknarkvenna í fyrrakvöld. TlrrwunyndíPjetur
Þroskahjálp
fær jólagjöf
Á fundi sem haldinn var s.l.
fimmtudagskvöld, voru Landssam-
tökunum Þroskahjálp færðar eitt
hundrað þúsund krónur að gjöf frá
Félagi Framsóknarkvenna í
Reykjavík.
Sigrún Sturludóttir, formaður
félagsins, afhenti gjöfina og sagði
að þetta væri eiginlega jólagjöfin
til þeirra í ár og miðaðist við að
Þroskahjálp gæti nýtt sér féð, til
lagfæringa á gistiheimili þeirra í
Kópavoginum. Þar dvelja foreldr-
ar bama utan af landi, sem þurfa
t.d. að dvelja í Reykjavík af ýms-
um ástæðum.
dr/par
Ótímabært sáðlát
Ónefndur varaþingmaður Borg-
araflokksins- sem ef til vill verður
alvöruþingmaður bráðiega, hélt
jómfrúræðu sína á Alþingi um
daginn. Stuttu seinna kom kunn-
ingi hans að máli við hann þar sem
haiui sat við skriftir í blaðanianna-
stúkunni á efstu hæð þingsins.
Kunninginn óskar honum til ham-
ingju með að vera kominn á þing
og spyr hvort hann hafi haldið
jómfrúræðu sína og ef svo sé
hvemig tekist hafi til. „Já“, segir
þingmaðurinn, „ég hef haldið mína
fyrstu rseðu hér. Hún tókst eigin-
lega ekki nógu vel vegna þess að
mér var gert að taka til máls miklu
fyrr en ég bjóst við. Af þeim
sökum var ég eklú nógu vel undir-
búinn undir að flytja mál mitt á
fiillnægjandi hátt og það má segja
að þessi jómfrúræða mín hafi
komið svona eins og ótímabært
sáðlát“.
Dómarinn mildi
Það er alveg dæmalaust hvað
allt er að verða strangt nú til dags.
Forseti Hæstaréttar má ekki einu
sinni kaupa sér nokkrar flöskur
með afslætti í ríkinu, þá verður allt
vitlaust. Fjölmiðlar stilla mannin-
um upp við vegg, svipta hann sinni
einu gleði í lífinu og svo er hann
neyddur til að segja af sér og skila
mest öllum búsinum aftur. Þið
eigið eftir að sjá eftir þcssu, bíðiði
bara, það er ekki víst að dómar
Hæstaréttar verði jafn „mildir“
hér eftir. Annars má iýsa þessari
harmsögu í fáum orðum;
Fjölmidlar fundu hann sekan
fyrír að hamstra lekann,
en dúmarinn mildi
er dapur sem skyldi
þvíDórí er búinn að rek’ann.
Stjömufréttamenn
Dropateljari hefur fregnað að
þeir á útvarpsstöðinni Stjörnunni
hafi heldur lent í ævintýrum fyrir
skömmu. Tveir fréttamenn stöðv-
arinnar höfðu ásamt kunningjum
litið inn á krá í miðborg Reykjavík-
ur á föstudagsköldið. Þar voru
fyrir 5 vaxtarræktaðir beljakar sem
mældu út fréttamennina og fylgd-
ust grannt með þeim inni á kránni
þannig að þeim Stjörnumönnum
var farið að verða nóg urn enda
óvanalegt að karlar mæni á aðra
karla á krám höfuðborgarinnar.
Kom þar að Stjörnufréttamenn
gengu báðir hnarreistir út úr húsi
og eltu fimmmenningarnir þá út
fyrir. Skipti engum togum að félag-
amir fimm úr líkamsrækt réðust á
Stjörnufréttamenn og börðu þá í
hlessu. Dropateljari hefur enga
aðfa skýringu heyrt á þessum bar-
smíðum en þá að fimm úr líkams-
ræktinni hafi viljað láta frétta-
mennina sjá stjömur.
Stjömur í sjónvarpi
Talandi um stjömur, þá er aðal-
stjama ríkissjónvarpsins, Hrafn
Gunnlaugsson kominn í heilagt
stríð við leikarafélagið. Hrafn tók
þá ákvörðun að láta Gísla Snæ
Erlingsson leikstýra áramóta-
skaupi sjónvarpsins en Gísli er
ekki í leikarafélaginu. Leikarafé-
lagið og sjónvarpið hafa hins vegar
með sér samning um að leikstjórí
þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði
sem leikaraféiagið hefur samþykkt
og telur félagið nú að Hrafn hafi
skorað félagið á hólm með því að
hunsa samninginn. Því sendi félag-
ið bréf til ailra leikara í félaginu þar
sem þeim var bannað að leika fyrir
Hrafninn um áramót og þeir sem
höfðu byrjað að æfa hættu því
snarlega. Hrafn mun hins vegar
hafa sagt O.K. og einungis áhuga-
leikarar munu því koma fram í
áramótaskaupinu.
Fjemsyn paa dansk
En þó íslenska sjónvarpið sé
alltaf að spara og vilji ekld ráða til
sín félagsbundna lcikstjóra virðast
frændur vorir Danir hafa úr meiru
að moða. Rithöfundurínn Einar
Már Guðmundsson nýtur mikillar
hylli hjá Dönum og danska sjón-
varpið mun hafa viljað fá skáldið í
viðtalsþátt. Þeir gerðu sér því lítið
fyrir og sendu einn bókmenntasp-
ekúlantinn hingað upp á Frón til
þess að kynna sér aðstæður og
baksvið Dýragarðsbókar Einars.
Ekki munu þeir þó hafa sætt sig við
að þessi sami Bauni tæki viðtaiið
hér á landi heldur vildu þeir heldur
kaupa far undir Einar til Köben og
taka við hann viðtal þar. Skáldið
mun hafa þegið boðið með þökk-
um enda tækifærí til að kaupa
jólavínið á allt að því kostnaðar-
verði í Fríhöfninni á heimleiðinni.