Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 24
24 Tíminn
t
Láúöardágúr 1Ö. des'e‘rhb'eV'T988
DAGBÓK
Keflavíkurkirkja
Aðventusamkoma fyrir börnin kl.
11:00 í umsjá Málfríðar Jóhannsdóttur og
Ragnars Karlssonar.
Aðventukvöld kl. 20:30. Kórsöngur,
upplestur, einsöngur og almennur
söngur. Jólalögin sungin með kór Kefla-
víkurkirkju, sem nýverið hefur gefið út
plötu, - sem mun verða til sölu í kirkj-
unni.
Organisti og stjórnandi eru Siguróli
Geirsson og Örn Falkner.
Sóknarprestur
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagaskóli kl. 10:30. Munið
sunnudagaskóla-bílinn.
Jólavaka við kertaljós verður kl. 20:30.
Ræðumaður Guðrún Agnarsdóttir al-
þingismaður. Flytjendur tónlistar er Kór
Hafnarfjarðarkirkju, Ólafur Finnsson
orgelleikari, Edda Kristjánsdóttir flautu-
leikari. Stjórnandi Helgi Bragason. Prest-
ur er sr. Þórhildur Ólafs.
Kársnesprestakall
Aðventuhátíð safnaðarins verður í
Kópavogskirkju sunnudaginn 11. des. kl.
20:30. Þar mun kór og einsöngvarar flytja
jólalög frá ýmsum löndum. Strengja-
hljómsveit leikur.
Aðventuhugvekjuna flytur frú Guðrún
Þór, en hún er ein af frumbyggjum
kaupstaðarins.
Aðventukvöld í
Laugameskirkju
Guðsþjónusta verður í Laugarnes-
kirkju kl. 11:00. Kveikt á aðventukertum
og guðsþjónusta verður fyrir börn (í
tveimur aldurshópum) og fyrir fullorðna.
Aðventukvöld verður í kirkjunni kl.
20:30. Ræðumaður kvöldsins verður sr.
Erik Sigmar, vesturíslenskur prestur,
Kirkjukórinn syngur aðventulög, Kristj-
án Þ. Stephensen og Þröstur Eiríksson
flytja tónlist fyrir óbó og orgel, unglingar
flytja helgileik og einnig verður almennur
söngur.
Eftir samkomuna verður gengið í Safn-
aðarheimilið, en þar verður á boðstólum
heitt súkkulaði og smákökur, en Kvenfé-
lag Laugarnessóknar annast þann þátt að
venju.
Fríkirkjan í Reykjavík
Barnaguðsþjónusta og skírn kl. 11:00.
Síðasta barnaguðsþjónusta fyrir jól.
Kveikt aðventuljós, lesið jólaguðspjallið,
söngvar og bænir. Söguhornið verður og
börn leyst út með glaðningi, en kaffi fyrir
fullorðna.
Jólavaka kl. 17:00. Leikið verður á
orgel frá kl. 16:30. Tveir kórar, Fríkirkju-
kórinn og RARIK kórinn, syngja jólalög.
Edda Heiðrún Backman leikari les upp.
Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, flytur
jólahugvekju. Jólavöku lýkur með ljósa-
hátíð og bæn.
Cecil Iiaraldsson
Aðventutónleikar í Kristskirkju
Tónlistarfélag Kristskirkju efnir til að-
ventutónleika í kirkjunni, „Kvöldlokkur
á jólaföstu" þriðjudagskvöidið 13. des.
kl. 20:30. Þar koma fram félagar úr
Blásarakvintett Reykjavíkur: Einar Jó-
hannesson, Daði Kolbeinsson, Joseph
Ognibene og Hafsteinn Guðmundsson,
ásamt nokkrum félögum úr Sinfóníu-
hljómsveit fslands. Þeir munu leika verk
eftir Mozart, Beethoven og Fiala.
Tónlistarfélag Krístskirkju mun halda
fleirí tónleika á næstunni, m.a. á nýárs-
dag, 1. jan., en þá mun sönghópurinn
Hljómeyki og Hörður Áskelsson organ-
leikari flytja verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson f Kristskirkju.
Sunnudagsferðir F.í. 11. des.
Kl. 13:00 Geldinganes - Geldinganes
er láglent nes, sem gcngur út í Kollafjörð.
Eiði tengir það við Gufunes, en þangað
everður ekið og síðan gengið yfir eiðið og
út í Geldinganes. Létt gönguferð í borgar-
landinu. Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við bíl (500
kr.)
Sunnud. 18. des. kl. 10:30. ESJA -
Kerhólakambur. Farmiðar við bíl (500
kr.)
Áramótaferð F.f.
Þeir sem eiga frátekna farmiða í ára-
mótaferð til Þórsmerkur verða að greiða
þá fyrir 10. des. annars seldir öðrum.
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferð Útivistar
ll.des.
Kl. 13:00 - Stórstraumsfjöruferð í
Gróttu. Gott tækifæri til að ganga út í
Gróttu. Gengið um Seltjarnarnesfjörur
og hugað að fjörumó. Létt og fróðleg
ganga. Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Munið áramótaferðina í Þórsmörk.
Brottför 30. des. 4 dagar. Frábær gisti-
aðstaða íútivistarskálunum Básum. Fjöl-
breytt dagskrá. Upplýsingar og farmiðar
á skrifstofunni Grófinni 1, símar: 14606
og 23732.
Jólamerki Þórs
Jólamerki Líknarsjóðs Lionsklúbbsins
Þórs eru komin út. Merkin eru hönnuð af
Þórhildi Jónsdóttur auglýsingateiknara.
Þau eru prentuð í 4 litum. Merkin fást hjá
klúbbfélögum, en upplýsingar er hægt að
fá á skrifstofu Lionsumdæmisins Sigtúni
9. Sfmi 33122.
Jólasala 3. árs nema MHl
Hin árlega jólasala Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands hófst um síðustu helgi í
turninum á Lækjartorgi. Til sölu eru
ýmsir hlutir unnir af nemendum sjálfum,
svo sem: piparkökuhús, smákökur, laufa-
brauð, jólakort, kerti, eyrnalokkar, tölur,
slæður, málverk o.m.fl. Jólasalan er í
umsjá 3. árs nema og rennur allur ágóði
í námsferð. 1 MHÍ er áralöng hefð fyrir
utanlandsferð 4. árs nema áður en hafin
er vinna lokaverkefna.
Salan er opin sem hér segir:
Mánud.-fimmtud. 16:00-18:00,
föstud. 16:00-19:00 og laugard. 10:00-
18:00.
Lionessuklúbbur Reykjavíkur:
Kókubasar og jólatréssala
Lionessuklúbbur Reykjavíkur heldur
sinn árlega kökubasar í Lionsheimilinu,
Sigtúni 9, sunnud. 11. des. kl. 14:00. Á
boðstólum verður mikið um góðar tertur
og smákökur. Einnig verða seld dönsk
jólatré, Normannsþinur, (1800 kr.) og
eru þau sérstaklega valin fyrir klúbbinn af
fagmanni. Heimsendingarþjónusta til
þeirra sem óska. Allur ágóði af köku- og
jólatréssölu rennur til líknarmála.
Jólafundur Kvennadeildar
Skagfirðingafélagsins
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins í
Reykjavík verður með sinn árlega jóla-
fund í Drangey, Síðumúla 35, sunnudag-
inn 11. desember. Jólafundurinn hefst
með borðhaldi kl. 19:00.
Félagsfundur J.C. Ness
og J.C. Borgar
J.C. Ness ogJ.C. Borghalda sameigin-
legan jólafund sinn í dag, laugardaginn
10. des. kl. 20:30 að Laugavegi 178, III.
hæð.
Gestir kvöldins verða þau Barbara
Wdowiak, iandsforseti og Þorsteinn Fr.
Sigurðsson, viðt. landsfors. Veitingar
verða í hléi og síðan opið hús að fundi
loknum.
Fundurinn er öllum opinn og eru
félagsmenn hvattir til að taka með sér
gesti.
Frá Vestfirðinga-
félaginu í Reykjavík
Vestfírðingafélagið í Reykjavík heldur
aöalfund sunnudaginn 11. desember að
Fríkirkjuvegi 9 kl. 14:00.
Félagar eru beðnir að mæta vel og
stundvíslega og taka með sér nýja félaga.
Kaffiveitingar verða.
Stjómin
Jólafundur
Kvenfélags Neskirkju
Kvenfélag Neskirkju heldur jólafund á
mánudagskvöld 12. des. kl. 20:30 í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Jólahugleiðingog
söngur. Jólapakkar hafðir meðferðis og
konur mega taka með sér gesti.
Félag eldri borgara
Athugið! Opið hús í Tónabæ fellur
niður í dag.
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3
verður á morgun, sunnud. 11. des. Kl.
14:00 er frjálst spil og tafl. Kl. 15:30
Kvikmyndasýning: Fyrri áfangi Færeyja-
ferðar.
Kl. 20:00 dansað.
Opið hús í Tónabæ á mánudag frá kl.
13:30. Kl. 14:00 er félagsvist.
Tónabær verður lokaður frá 17. des.-7.
jan. 1989 vegna jólaleyfis.
Tónleikar í Ustasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Einleikstónleikar á gítar verða í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar við Laugames
sunnud. 11. des. kl. 20:30. Listamaðurinn
heitir Uwe Eschner og er fæddur í
Hamborg árið 1963. Hann hefur verið í
gítarnámi frá 11 ára aldri, síðast í tónlist-
arháskólanum í Freiburg í Suður-Þýska-
landi og sótt námskeið hjá gítarsnilling-
um. Hann hefur komið fram í Þýskalandi,
Sviss og ltalíu með ýmsum öðmm lista-
mönnum.
Á efnisskrá verða verk eftir J.S. Bach,
Mauro Giuliani, Leo Brouwer, F. Martin,
Antonio Lauro og Villa-Lobos.
Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2
Efstaleiti 1
108 Reykjavík
Merkt Tónlistarkrossgátan.
111111111111111111111 ÚTVARP/SJÓNVARP lllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllll
Rás
FM 92,4/93,5
Laugardagur
10. desember
6.45 VeSurlregnir. Bæn, séra Hreinn Hákonar-
son flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 „GO&an dag, góSir hlustendur". Pétur
Pétursson sér um þáttinn. Fréttir sagSar kl.
8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar
kl. 8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Pétursson
áfram að kynna morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynnjngar.
9.05 Jólaalmanak Útvarpsins 1988. Umsjón:
Gunnvör Braga. (Einnig utvarpað um kvöldið kl.
20.00).
9.20 Hlustendaþjónustan. Sigrún Bjömsdóttir
leitar svara við fyrirspurnum hlustenda um
dagskrá Rlkisútvarpsins.
9.30 Fréttir og þlngmál. Innlent fréttayfirlit vik-
unnar og þingmálaþáttur endurtekinn frá kvöld-
inu áður.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónar - Tónlist eftir Franz
Schuhert. a. Prir Ijóðasöngvar. Peter Schreier
syngur; Svjatoslav Richter leikur með á píanó.
b. Fantasia I f-moll op. 103. Murray Perahie og
Radu Lupu leika fjórhent á píanó.
11.00 Tilkynningar.
11.051 liðinnl viku. Atburðir vikunnar á innlendum
og erlendum vettvangi vegnir og metnir.
Umsjón: Sigrún Stefánsdóttir.
12.00 Tilkynningar. Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tllkynningar.
13.00 Hér og nú. Fréttaþáttur í vikulokin.
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna. Páttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson og Friðrik Rafnsson.
15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tónmenntir
á líðandi stund. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
16.00 Fréttlr. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Islenskt mál. Guðrún Kvaran flytur þáttinn.
(Einnig útvarpað á mánudag kl. 15.45).
16.30 Laugárdagsútkall. Þáttur i umsjá Arnar
Inga sendur út beint frá Akureyri.
17.30 Islenskar hljómplötur frá upphafi. Rætt
við ýmsa þá sem mest hafa tengst íslenskri
hljómplötuútgáfu frá byrjun og leikin tónlist af
gömlum og nýjum plötum. Umsjón: Sigurður
Einarsson.
18.00 Gagn og gaman - Bókahornlð. Sigrún
Sigurðardóttir kynnir nýjar bama- og unglinga-
bækur.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnlr. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynnlngar.
19.33»... Bestu kveð|ur“. Bréf frávini til vinar eftir
Þórunni Magneu Magnúsdóttur sem flytur
ásamt Róbert Amfinnssyni. (Einnig útvarpað á
mánudagsmorgun kl. 10.30).
20.00 Jólaalmanak Útvarpslns 1988. (Endurlek-
inn frá morgni).
20.15 Harmonlkuþáttur. Umsjón: Bjami Marteins-
son. (Einnig útvarpað á miðvikudag kl. 15.03).
20.45 Gestastofan. Stefán Bragason ræðir við
áhugatónlistarfólk á Héraði. (Frá Egilsstöðum)
(Einnig útvarpað nk. þriðjudag kl. 15.03).
21.30 Islensklr elnsöngvarar. Ragnheiður Guð-
mundsdóttir syngur lög eftir Bjama Þorsteinsson
og Björgvin Guðmundsson. Guðmundur Jóns-
son leikur með á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagslns. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnlr.
22.20 Danslög.
23.00 Nær dregur mlðnættl. Kvöldskemmtun Út-
varpsins á laugardagskvöldi undir stjóm Hönnu
G. Sigurðardóttur.
24.00 Fréttir.
00.10 Svolftið af og um tónlist undir svefnlnn.
Kammertónlist eftir Robert Schumann, nokkur
smálög fyrir selló og píanó og píanókvintettinn
i Es-dúr, ópus 44. Jón Öm Marinósson kynnir.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum tll
morguns.
FM 91,1
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri,
færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
8.10 Á nýjum degi. Þorbjörg Þórisdóttir gluggar í
helgarblöðin og leikur bandaríska sveitatónlist.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson leikur tónlist
og kynnirdagskrá Útvarpsins og Sjónvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Dagbók Þorsteins Joð - Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson.
15.00 Laugardagspóstúrinn. Magnús Einarsson
sér um þáttinn.
17.00 Fyrirmyndarfólk. Lísa Pálsdóttir tekur á
móti gestum og bregður léttum lögum á fóninn.
19.00 Kvöldfréttir.
19.33 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á lífift. Atli Björn Bragason ber kveðjur
milli hlustenda og leikur óskalög.
02.05 Syrpa Magnúsar Einarssonar endurtekin frá
fimmtudegi.
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir
af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
12.20,16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SJÓNVARPIÐ
Laugardagur
10. desember
11.30 Afhending friftarverftlauna Nóbels. Bein
útsending frá afhendingu friðarverðlauna Nó-
bels í Osló sem féllu í skaut friðargæslusveita
Sameinuðu þjóðanna þetta árið.
13.00 Dylan og Petty. (True Confessions) Tónlist-
arþáttur tekinn upp á hljómleikum stórstjam-
anna Tom Pettys og Bob Dylans í Ástralíu.
14.30 íþróttaþátturinn. Kl. 14.55 verður bein út-
sending frá leik Coventry og Man. Utd. í ensku
knattspyrnunni, og mun Bjami Felixson lýsa
leiknum beint frá Highfield Road í Coventry.
Fylgst verður með öðrum úrslitum jafnóðum og
þau berast. Einnig verða birt úrslit frá öðrum
íþróttaviðburðum. Umsjónarmaður Jón Óskar
Sólnes.
17.50 Jólin nálgast í Kærabæ.
18.00 Litli íkorninn (2). Nýr teiknimyndaflokkur í
26 þáttum. Leikraddir Aðalsteinn Bergdal. Þýð-
andi Veturliði Guðnason.
18.25 Veist þú hvaft alnæmi er? Mynd gerð á
vegum landlæknisembættisins. Meðal annars
er viðtal við Sævar Guðnason um sjúkdóminn,
en Sævar lést stuttu eftir upptöku þáttarins.
Umsjón Sonja B. Jónsdóttir.
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 A framabraut (3) (Fame). Bandarískur
myndaflokkur. Þýðandi Gauti Kristmannsson.
19.50 Jólin nálgast i Kærabæ.
20.00 Fréttir og veftur.
20.40 Lottó.
20.40 ökuþór. (Home James). Fjórfti þáttur.
Breskurgamanmyndaflokkur. Þýðandi Ólöf Pét-
ursdóttir.
21.10 Maftur vikunnar.
21.25 Kinarósin. (China Rose). Bandarísk bíó-
mynd frá 1983. Leikstjóri Robert Day. Aðalhlut-
verk George C. Scott og Ali McGraw. Banda-
rískur kaupsýslumaður ákveður að leita að syni
• sínum sem týndist í menningarbyltingunni í
Kina sextán árum áður. Hann fær þær fregnir
að sonur sinn sé látinn en ung stúlka sem kemur
honum til hjálpar telur hann á það að gefast ekki
upp. Saman lenda þau í ótrúlegustu ógöngum
áðurenyfirlýkur. Þýðandi Páll Heiðar Jónsson.
23.25 Mannréttindi - Tónleikar til styrktar Am-
ensty International. Þeir sem koma fram eru
Sting, Peter Gabriel, Youssou N’Dour, Tracy
Chapman og Bruce Springsteen. Uppistaðan í
þessum þætti er upptakafrátónleikum í Buenos
Aires.
02.35 Utvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
10. desember
08.00 Kum, Kum. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún
Þorvarðardóttir. Paramount.
08.20 Hetjur himingeimsins.He-man. Teikni-
mynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir.
08.45 Kaspar. Casper the Friendly Ghost. Teikni-
mynd. Þýðandi: Guðjón Guðmundsson. World-
vision.__________________________________
09.00 Meft Afa. Afi
10.30 Jólasveinasaga. The Story of Santa Claus.
Teiknimynd. Tíundi hluti af 23. Leikraddir:
Róbert Arnfinnsson, Saga Jónsdóttir og Júlíus
Brjánsson. Telecable.
10.55 Einfarínn. Lone Ranger. Teiknimynd. Þýð-
andi: Hersteinn Pálsson. Rlmation.
11.15Ég get, ég get I Can Jump Puddles.
Lokaþáttur. Framhaldsmynd byggð á sjálfsævi-
sögu rithöfundarins Allans Marshall sem veiktist
af lömunan/eiki í æsku. Aðalhlutverk: Adam
Gamett og Lewis Rtz-Geraid. Þýðandi: Bima
Bemdsen.
12.10 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. Vinsælustu
dansstaðirnir í Bretlandi heimsóttir og nýjustu
popplögin kynnt. Musicbox 1988.
12.20 Viftskiptaheimurinn. Wall Street Joumal
Nýir þættir úr viðskipta- og efnahagslífinu sem
framleiddir eru af Wall Street Joumal og sýndir
hér á Stöð 2 í sömu viku. Þýðandi: Bjöm
Baldursson.
12.45 Hong Kong. Noble House. Framhaldsmynd
í fjórum hlutum. 1. hluti. Endurtekið frá síðast-
liðnum þriðjudegi. Aðalhlutverk: Pierce
Brosnan, Deborah Raffin, Ben Masters og Julia
Nickson. Leikstjóri: Gary Nelson. Framleiðandi
og höfundur: James Clavell.
14.25 Ættarveldift. Dynasty. Bandarískur fram-
haidsþáttur. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 20th
Century Fox.
15.15 Mennt er máttur. Endursýndur umræðuþáttur
undir stjóm Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar. I þættinum verður fjallað um skólakerfið og
varðveislu menningar okkar og tungu. Umsjón
og handrit: Hannes Hólmsveinn Gissurarson.
15.40 í eldlínunni. Sifjaspell og ofbeldi gegn
börnum. Endurtekinn þáttur um kynferðisafbrot.
Umsjón: Jón Óttar Ragnarsson. Stöð 2.
16.30 ítaiska knattspyrnan. Úmsjón: Heimir
Karlsson.
17.20 íþróttir á laugardegi. Meðal annars verður
litið yfir íþróttir helgarinnar, úrslit dagsins kynnt,
keila o. fl. skemmtilegt. Umsjón: Heimir Karls-
son og Birgir Þór Bragason.________________
19.19 19.19 Fréttir og fréttatengt efni ásamt veður-
og íþróttafréttum.
20.30 Laugardagur til lukku. Fjörugur getrauna-
leikur sem unninn er í samvinnu við björgunar-
sveitimar. í þættinum verður dregið í lukkutríói-
björgunarsveitanna en miðar, sérstaklega
merktir Stöð 2, eru gjaldgengir i þessum leik og
mega þeir heppnu eiga von á glæsilegum
aðalvinningum. Kynnir: Magnús Axelsson. Dag-
skrárgerð: Gunnlaugur Jónasson. Stöð 2.
21.15 í helgan stein. Coming of Age. Nýr spreng-
hlægilegur gamanþáttur sem fjallar á spaug-
saman hátt um hlutskipti ellilífeyrisþega sem
flytja frá heimili sínu í verndaðar íbúðir aldraðra.
Aðalhlutverk: Paul Dooley, Phyllis Newman og
Alan Young. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir.
21.40 Silkwood. Þessi mynd var af mörgum talin
ein besta bandaríska kvikmyndin árið 1983 og
er jafnframt fyrsta mynd Meryi Streep eftir að
hún hlaut Óskarinn fyrir leik sínn í Sophie’s
Choice. Myndin er byggð á sannsögulegum
atburðum í lífi Karen Silkwood, en hún lést á
dularfullan hátt í bílslysi árið 1974. Aðalhlutverk:
Meryl Streep, Kurt Russell og Cher. Leikstjóri:
Mike Nichols. ABC1983. Sýningartími 126 mín.
Alls ekki við hæfi yngri barna.
23.45 Á síftasta snúning. Running Scared. Hér
eru saman komnir tveir slyngustu lögregluþjón-
ar í Chicago og sýna okkur hvað í þeim býr.
Aðalhlutverk: Gregory Hines, Billy Crystal og
Steven Bauer. Leikstjóri: Peter Hyams. Fram-
leiðandi: Albert Brenner. MGM/UA 1986. Sýn-
ingartími 105 mín. Ekki við hæfi barna. Auka-
sýning 22. jan.
01.30 Fordómar. Alamo Bay. Mynd um ofbeldisfull
viðbrögð Texasbúa við innflytjendum frá Austur-
Asíu sem leituðu til Bandaríkjanna við lok
Víetnamstríðsins. Aðalhlutverk: Amy Madigan,
Ed Harris og Ho Nguyen. Leikstjóri og framleið-
andi: Louis Malle. Þýðandi Ingunn Ingólfsdóttir.
Columbia 1985. Sýningartími 95 mín. Alls ekki
við hæfi bama.
03.05 Dagskrárlok.