Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 10
10 Tíminrt
Laugardagur 10. desember 1988
llllllllllllllllllllllllll AÐ UTAN
Stórkostlegt mútuhneyksli í
japanska stjórnmálaheiminum
1976 stóð japanski stjórnmálaheimurinn á öndinni vegna
mútuhneykslis sem kennt er við Lockheed og leiddi til þess
að þáverandi forsætisráðherra, Kakuei Tanaka varð að
segja af sér. Nú er í uppsiglingu annað stórkostlegt
fjármálahneyksli íjapanska stjórnmálaheiminum og í þetta
sinn stendur enginn stjórnmálaflokkur þar með hreinan
skjöld, nema kommúnistar.
Fyrirtækið sem allir
vildu nú halda sig fjarri
Fína næturklúbbnum í kjallara
glæsihúss fyrirtækisins Recruit í
miðborg Tókýó hefur verið lokað.
Kaffihúsið á fyrstu hæð er sömu-
leiðis oftast mannlaust. Pegar skrif-
stofum í húsinu er lokað um 6-leyt-
ið á kvöldin, yfirgefa hundruð
ungra stúlkna flóttalegar vinnu-
staðinn eins og þær vildu helst að
enginn kæmi auga á þær.
Þar til fyrir fáum mánuðum var
Recruit nafnið á öflugu og hrað-
vaxandi fyrirtæki. Nú minnir þetta
nafn almenning í Japan á
skammarlegt hneyksli, „nokkurs
konar veiru sem allir vildu nú
halda sig fjarri," segir japanskur
fréttaskýrandi.
Á hverjum degi koma fram ný
atriði varðandi embættismenn,
blaðamenn og stjórnmálamenn,
sem hafa skyndilega komist yfir
fjármuni með aðstoð Recruit. Það
er ekki fyrr en rétt nýlega sem
embætti ríkissaksóknara hefur haf-
ið hið mikla verk að rannsaka
innihald 1700 pappakassa, sem
innihalda upptæk skjöl, en samt
setn áður virðist hneykslið sem
kennt er við Recruit þegar vera
mun stórkostlegra en Lockheed-
málið, sem árið 1976 leiddi til
handtöku þáverandi forsætisráð-
herra Japans, Kakuei Tanaka.
Þá voru það fyrst og fremst
Tanaka og félagar hans, sem höfðu
stungið mútufé í eigin vasa. Að
núverandi hneykslismáli eiga allir
pólitískir flokkar, að kommúnist-
um undanskildum, hlut að máli.
Og allir leiðtogar stjórnmálaflokk-
anna, allt frá Yasuhiro Nakasone
fyrrv. forsætisráðherra til núver-
andi forsætisráðherra, Noboru
Takeshita, allt frá Shintaro Abe
fyrrverandi utanríkisráðherra til
núverandi fjármálaráðherra, Kii-
chi Miyzawa hafa komið þar við
sögu.
Skjót velgengni
fyrirtækis ungs manns
í upphafi var hér um að ræða
sögu af lýsandi velgengni. í lok
sjötta áratugarins stundaði Hiro-
masa Ezoe, sem síðar varð forstjóri
Recruit, nám við hinn virta Tókýó-
háskóla. Til að vinna sér fyrir
vasapeningum meðfram náminu
miðlaði hann í stúdentablöð aug-
lýsingum frá fyrirtækjum sem vildu
ráða unga háskólakandidata í
vinnu. Þessi aukavinna vatt upp á
sig og 1960 stofnaði Ezoe sitt eigið
fyrirtæki. Hann gaf út upplýsinga-
ritlinga og -rit með ábendingum til
ungs fólks sem var í leit að starfi í
fyrsta sinn. Fyrirtæki litu á útgáfu
Ezoes sem góða auglýsingu og
borguðu fyrir að vera nefnd á nafn
í ritunum.
Recruit óx hröðum skrefum og
varð að stórveldi sem átti viðskipti
með útgáfu, fasteignir og upplýs-
ingar. 1988 réði fyrirtækjasteypan
yfir 27 félögum og 8 útgáfufyrir-
tækjum, útibú voru 72 vítt og breitt
um landið og starfsmenn 11.000.
Ezoe þakkaði þennan geysigóða
árangur fyrst og fremst hvernig
hans eigin persónuleika væri farið.
Kaupsýslumaðurinn sýndi sig vera:
„Sérfræðingur í samspili manna,“
er haft eftir honum í blaðinu Asahi
Shimbun.
Kaupsýslumaður í
góðum félagsskap
Fastagestir í einkaklúbbi hans í
kjallara aðalstöðva fyrirtækisins
voru margir stjórnmálamenn og
kaupsýslumenn. Sjálfur sótti Ezoe
reglubundið hin dýru geishu-hús í
Tókýó, þar sem oft eru ræddar
mikilvægar ákvarðanir um framtíð
landsins og minnist stjórnandi eins
slíks húss þess að hafa oft séð Ezoe
í fylgd fyrrum utanríkisráðheíra
Abe í sínu húsi.
Nakasone fyrrv. forsætisráðherra
græddi a.m.k. 120 milijónir jena.
Mestur var uppgangur fyrirtækis
Ezoes á stjórnarárum Nakasones.
Áður en Ezoe setti á hlutabréfa-
markað í kauphöllinni hlutabréf í
einu fyrirtækja sinna, sem orðið
var hið fimmta stærsta á fasteigna-
markaðnum í landinu, hvatti hann
nokkur hundruð áhrifamikla aðila
til að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu
á sérstöku hlunnindaverði, sem
var ómótstæðilegt tilboð. Bréfin
kostuðu bara smáræði og áttu að
tvö- til þrefaldast að verðmæti á
einum til tveim árum. Ef einhvern
hinna útvöldu vantaði lausafé til að
kaupa bréfin var annað dótturfyrir-
tækja Recruit reiðubúið að veita
lán til kaupanna.
Frá desember 1984 til október
1986 voru á þennan hátt seldar um
tvær milljónir hlutabréfa til útval-
inna viðskiptavina, sem Ezoe
kynni að þurfa að leita skjóls hjá
þegar hann færði út ríki sitt.
Staðreynd er að efst á listanum
yfir þessa útvöldu eru nöfn náinna
starfsmanna Nakasones og 8 helstu
ráðherrar hans. Auk þeirra eru
tugir háttsettra embættismanna
ásamt frægum blaðamönnum, s.s.
framkvæmdastjóra hins virta
fjármálablaðs Nihon Keizai
Shimbun og yfirritstjóra dagblaðs-
ins Mainichi.
120 milljón
jena hagnaður
Glöggt dæmi um hin ábatasömu
viðskipti er að 1984 átti varaborg-
arstjóri Kawasaki kost á að kaupa
30.000 hlutabréf í fyrirtæki Ezoe.
Þær 36 milljónir jena sem hann
þarfnaðist til kaupanna fékk hann
lánaðar hjá dótturfyrirtæki Rec-
ruit. Tveim árum síðar seldi hann
hlutabréfin fyrir 160 milljónir jena.
Þegar hann hafði borgað lánið til
hlutabréfakaupanna stóð hann
uppi með 120milljóna jenahreinan
hagnað. Hvernig varaborgarstjór-
inn endurlaunaði greiðann hefur
ekki enn verið upplýst. Hitt er
vitað að fasteignaviðskiptafyrir-
tækið sem hlutabréfabraskið sner-
ist um hefur keypt af yfirvöldum
Takeshita forsætisráðherra er
flæktur í málið eins og svo margir
aðrir stjórnmáiaforingjar.
Kawasaki lóð í miðborginni fyrir
u.þ.b. helming markaðsverðs.
Hvernig stjórnmálaleiðtogarnir
sem svona ofboðslega græddu á
hlutabréfabraskinu hafa launað
velgerðamanni sínum er heldur
ekki vitað (í hópi þeirra er Naka-
sone sem vitað er að stakk í eigin
vasa 120 milljónum jena). Hins
vegar úir og grúir af vísbendingum.
T.d. getur Ezoe þakkað nánum
tengslum sínum við Nakasone og
aðra leiðtoga stjómarflokksins það
að hann var skipaður í fjórar
mismunandi stjórnskipaðar
1700 kassar af skjölum bíða rann-
sóknar embættis ríkissaksóknara.
Yiðskiptajöfurinn Ezoe liggur nú á
sjúkrahúsi, haldinn „þungiyndi“
að sögn opinberra aðila.
nefndir, þar sem framkvæmda-
maðurinn gat fylgst náið með
mikilvægu skipulagi sem á döfinni
var.
Þingmaður aflar sönn-
unargagna með falinni
myndavél
Sennilega hefðu þessi huggulegu
viðskipti getað haldið áfram óáreitt
ef ungur blaðamaður við Asahi
Shimbun hefði ekki af tilviljun
orðið vitni að því .í mars sl. að
rannsókn hefði verið hrint af stað
í mútumáli í Kawasaki. Blaðið
fylgdi málinu eftir og lagði heilan
hóp rannsóknarmanna í vinnuna.
Áður en langt um leið síuðust
fyrstu upplýsingarnar til blaðsins.
Þingmaðurinn Yanosuke Nara-
zaki, fyrrum sósíalisti með dul-
nefnið „Dýnamít", sem þegar
hafði ljóstrað upp um mörg
hneykslismál, lagði málið fyrir
þingið. Einhver óskaði honum til
hamingju með það hlutverk sem
hann gegndi í þinginu, annar bað
hann um viðtal. Þegar svo maður
birtist í hinni litlu íbúð Narazakis
hafði hann meðferðis innkaupa-
tösku sem innihélt fimm milljónir
jena.
„Þetta er aðeins smágjöf. Ég bið
yður að afsaka,“ sagði töskuber-
inn. Narazaki ýtti peningunum,
sem voru snyrtilega pakkaðir í
gjafapappír, frá sér. Þetta atvik
var tekið upp á falda myndavél,
sem Narazaki hafði látið koma
fyrir á laun í þeim tilgangi að afla
sönnunargagna um að hér væri
mútumál í gangi.
Dýrt að vera
stjórnmálamaður í Japan
Þessi upptaka var sýnd í sjón-
varpinu, og það oft, myndirnar af
herramönnunum báðum, sem ýttu
5 milljónum jena fram og aftur
milli sín, og það er vegna hennar
sem núverandi stjórnmálakerfi í
Japan riðar nú til falls
„Þetta hneyksli sýnir að pólitík í
Japan er nú orðin spurning um
peninga, og eingöngu um pen-
inga,“ segir Masaya Ito, sem áður
var ráðgjafi fyrrverandi forsætis-
ráðherra, Masayoshi Ohira.
„Stjórnmálamenn eru ekkert ann-
að en betlarar, þeir betla peninga
og hafa glatað allri virðingu."
Freistingin að komast yfir fé
feimnislaust er svo mikil að menn
gleyma að gæta að virðingunni.
Stjórnmálamaður sem vill vinna
sæti á þingi, þarfnast 300 milljóna
jena til kosningabaráttunnar. Þar
næst þarf hann a.m.k. 100 milljóna
jena á ári í viðbót til að halda
kjósendum sínum í ánægðum með
gjöfum og veitingum. Þar sem
árslaun hans fyrir þingmennskuna
eru ekki nema 15 milljónir jena, er
ekkert undarlegt að þingmaðurinn
hrifsi til sín þá fjármuni sem hann
getur nálgast.
Kauphöllin vill
halda stjórnmálamönn-
unum ánægðum
í nokkur undanfarin ár hefur
aðalgullnáma og uppspretta ótrú-
legrar fjáröflunar verið kauphöllin
í Tókýó. Meðal stjórnmálamanna
gengur hún undir nafninu „Helgi-
dómurinn", staðurinn þar sem öll-
um viðskiptum er haldið leyndum.
Verðbréfamiðlari segir frá því
að fyrir kosningar komi ritarar
stjómmálaleiðtoga til kauphall-
armiðlara með einn til tvo millj-
arða jena og fari fram á að þessi
höfuðstóll verði tvöfaldaður í
skyndi. Þar sem enginn vilji valda
þessum áhrifamiklu herrum von-
brigðum sé jafnvel gervistýring á
gengi vissra hlutabréfa.
„Ezoe notar hlutabréf í stað
peninga, en lokaniðurstaðan er og
verður mútur,“ segir Narazaki
þingmaður. „Ezoe varð að múta
svona mörgum vegna þess að hann
vildi vera með puttana í svo mörg-
um ólíkum viðskiptum.“
Enn sem komið er hefur aðeins
lítið brot þessara flóknu viðskipta
verið upplýst og þeir sem málið
varða þegja þunnu hljóði. Ezoe
sjálfur hefur legið á sjúkrahúsi
síðan í júlí, opinberlega er sagt að
hann þjáist af þunglyndi. Stjórn-
málamenn eins og Miyazawa
fjármálaráðherra hafa beðið al-
menning afsökunar, en þeir hafa
ekki í huga að segja af sér. Einn
þeirra hefur nefnt konu sína sem
misgerðamanninn, annar bróður
sinn og enn einn son sinn. Flestir
hafa skellt skuldinni á ritara sína
og rekið þá.
Enn hefur Nakasone ekkert tjáð
sig um málið. Enginn hefur enn
verið tekinn höndum vegna
málsins, nema skrifstofustjóri Rec-
ruit, sá sem bar múturnar á Nara-
zaki þingmann fyrir framan
myndavélina földu.