Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Laugardagur 10. desember 1988
FREFTÁYRFU.IT
PARÍS - Lech Walesa leið-
togi hinna pólsku, óháðu
verkalýðssamtaka Samstöðu
kom til Parísar i gær í fyrstu
utanlandsför hans í sjö ár.
Hann hefur ekki fengið að fara
úr landi síðan Samstaða var,
bönnuð. Walesa hvatti til þess
að Austur- og Vestur-Evrópa
sameinuðust i framtiðinni.
KHANDIGARH — öfgafull-
ur Shíki skaut í gær einn af
fimm æðstu prestum Shíka í
Punjabhéraði. Ástæðan er að
líkindum sú að shíkaprestarnir
höfðu tekið frjálslyndan Shíka-
leiðtoga í sátt en honum hafði
verið útskúfað úr trúarsamfé-
laginu vegna stjórnmálaskoð-
ana sinna.
VATÍKANIÐ - Jóhannes
Páll páfi II varði rétt þjóðarbrota
til að verja sig, en hafnaði
harðlega hryðjuverkum í þeim
tilgangi. Páfinn lét þessi um-
mæli falla í ávarpi til leiðtoga
oa alþjóðasamtaka sem vinna
að undirbúningi Friðarheims-
dags kaþólsku kirkjunnar sem
haldinn verður 1. janúar.
MANILA - Skipherra i
bandaríska flotanum er nú fyrir
bandarískum herrétti á Filipps-
eyjum sakaður um að hafa
látið hóp víetnamskra flótta-
manna lönd og leið. Bátafólkið
er lifði af flóttann frá Víetnam
barg sér með því að leggja sér
lík þeirra er létust á leiðinni, til
munns. Skip undir stjórn sjó-
liðsforingjans neitaði að taka
við flóttamönnunum á Suður-
Kínahafi í sumar og urðu flótta-
mennirnirað hýrast í bátsínum
í 37 daga eftir það.
BANGKOK - Víetnamar
hafa sent þá orðsendingu til
bandamanna sinna í Sovétríkj-
unum og Austur-Evrópu að
eir vilji fá betri samninga og
einharða peninga fyrir tugi
þúsunda vietnamskra verka-
manna sem sendir eru til vinnu
í þessum ríkjum á ári hverju. 1
TUNIS - Muammar Gaddafi
leiðtoai Llbýu hvatti Túnisbúa
til að Táta af nýlendustefnu og
veita Lfbýu liosstyrk í barátt-
unni gegn heimsvaldastefnu.
Ræða Gaddafis var yfirleitt við
þau mörk er talin eru hæfa í
milliríkjasamskiptum. Á sama
tíma bárust frettir frá Súdan
um að skæruliðar, er njóti
stuðnings Líbýumanna, hafi
drepið 100 Súdani í bardaga.
MOSKVA - Franski geim-
farinn Jean-Loup Chreteian
varð fyrsti Frakkinn til að fá sér
göngutúr í geimnum, en hann
dvelur nú í sovésku geimstöð-,
inni Mfr í ágætu yfirlæti. i
ÚTLÖND
ISRAELSHER GERIR
INNRÁS í LÍBANON
ísraelski herinn hélt upp á árs afmæli uppreisnar Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum með því að gera innrás inn í
Líbanon rétt sunnan við Beirútborg og leggja höfuðstöðvar
Palestínumanna þar í rúst. Ekki áttu allir ísraelsku her-
mennirnir afturkvæmt því að minnsta kosti einn ísraelskur
hermaður lét lífiö og að minnsta kosti fjórir særðust. Hins
vegar féllu að minnsta kosti tuttugu liðsmenn Palestínumanna
í árásinni. Ekki er Ijóst hvort Sýrlendingar hafi tekið þátt í
bardögunum, en fréttum af þessum atburðum ber ekki saman.
Palestínumenn segja að Sýrlend- mótspyrnu. Herskip ísraela biðu
átekta við ströndina á meðan á
árásinni stóð.
ísraelsku hermennirnir drógu sig
síðan til baka um miðjan dag eftir að
hafa eyðilagt höfuðstöðvar „Al-
þýðufylkingarinnar fyrir frelsun Pal-
estínu", æfingabúðir þeirra, vopna-
geymslur og herskála skæruliða
þeirra. Skæruliðasamtök þessi stóðu
fyrir árás á herbúðir ísraela í
norðurhluta ísraels í nóvember á
síðasta ári, en þá létu sex ísraelskir
hermenn lífið. Telja ísraelar að sú
árás hafi komið af stað uppreisn
Palestínumanna á hernumdu svæð-
unum er hófst 9. desember í fyrra.
ísraelsher hefur ekki gert árásir
svo langt inn í Líbanon síðan hann
dró herlið sitt til baka þaðan árið
1985 eftir að hafa gert innrás í
Líbanon til að hrekja Palestínumenn
úr landinu. Síðan þá hefur herinn
aðallega athafnað sig við landamær-
in í suðurhluta Líbanons þar sem
ísraelar vinna með hersveitum krist-
inna manna gegn múslímum á svæð-
inu.
Árás Israelshers í gær er almennt
túlkuð sem móðgun við Yasser
Arafat sem kom við kaun ísraela
ingar hafi lent í átökum við ísraelska
innrásarliðið, skotið niður ísraelska
þyrlu og tekið átján ísraelska her-
menn höndum. Þessu neita ísraelsk
hernaðaryfirvöld og segja að Sýr-
lendingar hafi setið aðgerðalausir
hjá, engir ísraelskir hermann hafi
verið fangaðir og að engin þyrla hafi
verið skotin niður. Hins vegar stað-
festa þau fall ísraelsks liðsforingja
og að fjórir hermenn hafi særst.
Innrás ísraela hófst um miðnættið
með loftárásum á skotmörk í fjöllun-
um suður af Beirút. Um áttaleytið í
gærmorgun fluttu síðan herþyrlur
Israela hermenn til hæðanna í Naa-
meh, Damour og Baawarta sem eru
um 15 km sunnan við Líbanon. Þar
hafa bæði Drúsar og Palestínumenn
sterka stöðu og urðu harðir bardagar
þar.
Síðar gengu ísraelskir landgöngu-
liðar á land við Aramoun nokkrum
kílómetrum norðaustar, en þar hafa
Sýrlendingar haft tögl og hagldir
undanfarin ár. Palestínumenn segja
að þar hafi slegið í brýnu milli
sýrlenskra hermanna og ísraelska
herliðsins, auk þess sem skæruliðar
'Palestínumanna hafi veitt ísraelum
fsraelskl herinn gerði innrás í Líbanon af landi, úr Iofti og af sjó. Eftir
nokkurra klukkustunda bardaga drógu þeir sig til baka. Árásimar beindust
gegn höfuðstöðvum palcstínskra skæruliða.
með því að ræða við fimm banda-
ríska gyðinga í Stokkhólmi og lýsa
því yfir að PLO viðurkenni rétt
Ísraelsríkis og hafni hryðjuverkum.
ísraelar segjast ekkert mark taka á
orðum Arafats og sýna honum nú í
tvo heimana. Auk þess er talið að
ísraelar vilji sýna að þeir ætli sér að
leika stórt hlutverk í framtíðarþróun
Líbanons og sýna Sýrlendingum að
þeir komist ekki upp með að ráðsk-
ast með Líbanon að vild þó sýrlenski
herinn hafi þar víða ítök.
íhaldssamir kristnir menn í Líban-
on fögnuðu árásinni í gær. Þeir líta
margir hverjir á ísrael sem sinn
sterkasta og náttúrlegasta banda-
mann gegn múslímum í landinu þó
írakar styðji hvað best við bakið á
kristnum hersveitum, enda byggist
Azerar halda áfram að ofsækja Armena í Azerbaijan:
JARÐSKJALFTISVIPTI
100.000 ARMENA LÍFI
stuðningur íraka mikið til á hatri á
Sýrlendinguiji.
Árás fsraela inn í Líbanon í gær
kom ilia við harðasta stuðningsmann
þeirra á alþjóðavettvangi, Sám
frænda. Á blaðamannfundi í Brússel
í gær gagnrýndi George Shultz utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna innrás
ísraela, en ekki er langt síðan að
hann setti Sameinuðu þjóðimar á
annan endann er hann lét undan
þrýstingi ísraela og neitaði Yasser
Arafat um vegabréfsáritun til
Bandarfkjanna. Því varð að flytja
fund Allsherjarþingsins til Genfar
svo Arafat geti ávarpað samkom-
una. Það mun Arafat gera á þriðju-
daginn.
En ísraelar áttu ekki einungis í
átökum í Líbanon í gær. Að minnsta
kosti sjö Palestínumenn voru lagðir
inn á sjúkrahús á vesturbakkanum
vegna skotsára af völdum ísraelskra
hermanna.
Talið er að yfir 100 þúsund manns hafi farist í jarðskjálftan-
um í Armeníu á miðvikudaginn, en björgunarsveitir leggja
nú nótt við dag í von um að geta bjarga þeim þúsundum sem
enn eru á lífið í húsarústum. í gærkvöldi mátti enn heyra
neyðaróp fólks er grafið var í húsarústum, en eyðileggingin
er gífurleg. Þrátt fyrir þessar hörmungar halda kynþáttaóeirð-
ir Azera og Armena í Azerbaijan áfram.
Tvær borgir eru meira og minna í
rúst að ógleymdum fjölda minni
bæja og þorpa á þessu svæði.
Bærinn Spitak 'þar sem bjuggu
rúmlega 50 þúsund manns jafnaðist
algerlega við jörðu. Er talið að
einungis fáein þúsund bæjarbúa hafi
lifað af jarðskjálftann. Þrír fjórðu-
hlutar borgarinnar Leninakan sé í
rústum eftir jarðskjálftann, en þar
bjuggu 200 þúsund manns.
Bandarískir sérfræðingar stað-
hæfa að illa byggð hús á þessu svæði
sé ástæða þess hve gífurlegt mann-
tjón hefur orðið í jarðskjálftanum.
Benda þeir á að svipaðir skjálftar
hafi gengið yfir Kaliforníu án telj-
andi mannskaða. í sama streng tók
málgagn sovéskra ungkommúnista
Komsomolskaya Pravda:
- Hvar voru jarðskjálftafræðing-
arnir, arkitektarnir og bygginga-
verkamennirnir sem skipulögðú og
byggðu þessi hús sem féllu saman
eins og spilaborgir?
Mikhaíl Gorbatsjov forseti Sovét-
ríkjanna tók sjálfur við yfirstjórn
björgunaraðgerða eftir að hann kom
heim frá Bandaríkjunum þar sem
hann varð að aflýsa heimsókn sinni
vegna hörmunganna. Ljóst er að
mikið starf er framundan í björgun-
arstarfi og neyðarhjálp til þeirra er
lífs komust úr ógnunum.
Sovétmönnum hefur borist boð
um hjálp víðs vegar úr heiminum og
eru hjálpargögn þegar farin að
streyma utan úr heimi til hinna
hrjáðu svæða. Evrópubandalagið til-
kynnti í gær að það myndi leggja
fram 700 þúsund dollara til neyðar-
hjálpar. Munu tvær flutningavélar
hafa haldið í morgun til Armeníu frá
Belgíu og Hollandi með blóð til
blóðgjafa, lyf, lækningatæki, ábreið-
ur og tjöld.
Önnur flugvél mun halda til Arm-
eníu frá Bretlandi nú um helgina
með hjálpargögn, en þar hafa stjórn-
völd lagt fram fimm milljónir sterl-
ingspunda til neyðarhjálpar. Sviss-
lendingar sendu átta tonn af hjálpar-
gögnum í gær og þá hefur Alþjóða
Rauði krossinn sent hjálp. Þannig
mætti lengi telja. Þó er vert að
minnast þess að Hjálparstofnun
kirkjunnar hefur þegar lagt fram
tvær milljónir króna til hjálparstarfs-
ins.
Þrjátíu og sjö björgunarmenn
með tuttugu sérþjálfaða leitarhunda
héldu frá Sviss til Armeníu í gær og
• í dag munu tuttugu ítaiskir læknar
og björgunarsérfræðingar halda til
Armeníu. Bresk sveit sérþjálfaðra
slökkviliðsmanna flaug þegar til
Armeníu til björgunarstarfa í fyrra-
dag.
Þá hafa Tyrkir ákveðið að opna
landamæri sín að Sovétríkjunum
algerlega svo hægt sé að koma
hjálpargögnum til fórnarlamba jarð-
skjálftans gegnum Tyrkland sé það
talið auðveldara. Það er í raun
sögulegur atburður því landamærin
hafa verið lokuð í áratugi.
Þrátt fyrir hörmungarnar í Arm-
eníu þá hafa kynþáttaofsóknimar í
nágrannaríkinu Azerbaijan haldið
áfram. Öfgafullir Azerar notuðu
tækifærið þegar hermenn þeir er
haldið hafa uppi lögum og reglu í
höfuðborginni Baku vegna kyn-
þáttaóeirða þar að undanfömu vom
sendir til björgunarstarfa í Armeníu.
í gær lögðu Azerar eld í níu hús
Armena í Bakú og héldu uppi of-
sóknum á hendur þeim.
Talsmaður Armenpress hinnar
opinbem fréttastofu Armeníu held-
ur því blákalt fram að fréttir um að
stjómvöld í Azerbaijan hafi boðið
Armenum aðstoð við björgunarstörf
hafi einungis verið tilbúnar fyrir
almenningsálitið í heiminum, en að
Iítil raunvemleg aðstoð hafi borist.
Sagðist hann ekki vita um neina
sjálfboðaliða Azera við björgunar-
störfin.
Tugir þúsunda Armena hafa flúið
Azerbaijan að undanförnu og
dvöldu margir þeirra á þeim svæðum
er verst urðu úti í jarðskjálftanum
mikla. Er talið að manntjón sé enn
meira af þeim völdum. Flóttamanna-
straumnum hefur síst linnt eftir að
jarðskjálftinn varð, Azerar flýja
Armeníu og Armenar Azerbaijan.
sýna mátt-
inn í Lhasa
Vömbílar hlaðnir kínverskum
lögreglumönnum gráum fyrir
járnum óku vítt og breitt um
götur Lhasa, höfuðborgar Tíbets
í gær. Þannig vildu kínversk yfir-
völd sýna Tíbetum að lögeglan
muni taka af hörku á mótmælend-
um, en í dag áttu að fara fram
mótmælaaðgerðir gegn kínversk-
um yfirráðum í Tíbet. Tilefnið
var 40 ára afmæli mannréttinda-
yfirlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna.
Tuttugu trukkar með um það
bil fimmhundruð vopnuðum lög-
reglumönnum óku í einni hala-
rófu um götur borgarinnar fram
á kvöld í gær. Ekki er talið að
ógnun þessi muni koma í veg
fyrir fundahöld þrátt fyrir að
Kínverjar hafi hótað Tíbetum að
á þá yrði skotið ef mótmæli
hæfust á Barkohrtorgi í miðbæ
Lhasa. Þar hafa tíðum brotist út
átök milli Tíbeta og kínverskrar
lögreglu, nú síðast í marsmánuði
síðastliðnum þegar tuttugu
búddamunkar og einn kínverskur
lögregluþjónn létu lífið í átökum.
Kínversk yfirvöld halda fast í
þá afstöðu sína að Tíbet sé hluti
Kínaveldis og muni tilheyra því
um aldur og ævi. Tíbetar eru ekki
á sama máli og krefjast sjálfstæðis
á ný.
Má gera ráð fyrir því að átök
verði í Lhasa um þessa helgi, því
reynslan sýnir að hvorugur aðil-
inn vill gefa eftir.