Tíminn - 10.12.1988, Qupperneq 5
nnifri'T Þ-
Tíminn 5
Labgárbágur 1Ó.
desember
Atvinnutryggingarsjóður á fundum með hraðfrystihúsunum á Stöðvar-
firði og í Breiðdalsvík þar sem hugsanleg sameining var á dagskrá:
Sjóðurinn í milligöngu
um hagkvæmniathugun
Gunnar Hilmarsson, formaður Atvinnutryggingarsjóðs,
hefur haft frumkvæði að sameiningu hraðfrystihúsanna á
Stöðvarfirði og í Breiðdalsvík. Markmið þeirra viðræðna sem
nú eru hafnar, er að ná fram aukinni hagræðingu í rekstri
beggja fyrirtækjanna. Gunnar Hilmarsson var fyrir austan í
gær og átti fundi með stjórnum beggja fyrirtækjanna og
féllust stjórnirnar á að Atvinnutryggingarsjóður hefði milli-
göngu um hugsanlega sameiningu. Umsóknir beggja fyrir-
tækjanna hafa verið settar í biðstöðu hjá sjóðnum og er þeim
skipað í flokk með umsóknum sem þurfa sérstakrar athugunar
við.
Það sem þegar hefur verið orðað
í viðræðum þessum er að til að ná
megi út nauðsynlegri hagkvæmni
verði að leitast við að koma upp
ákveðinni sérhæfingu milli staðanna.
Þá hefur það verið rætt, samkvæmt
heimildum Tímans, að jafnvel komi
til greina að ákveðnum rekstrarþátt-
um verði skipt algerlega milli stað-
anna. Þannig hefur t.d. komið til
greina að sölustarfsemi og markaðs-
setning fari einvörðungu fram á
öðrum staðnum, frysting fari aðeins
fram á einum stað þegar minnst er
að gera. Formlegar viðræður eru þó
komnar mun skemur á veg, en fyrir
liggur að ef sameining á að skila
meiri hagkvæmni í rekstri, verður
eitthvað þessu líkt að gerast.
Yrði 85. stærsta
fyrirtæki landsins
Ef af sameiningu frystihúsanna
verður getur nýja fyrirtækið orðið
með stærri fyrirtækjum í landinu,
svo hér er ekki um nein bílskúrsfyr-
irtæki að ræða. Ef velta fyrirtækj-
anna árið 1987 er lögð saman kemur
í ljós að aðeins 84 fyrirtæki í öllu
landinu hefðu talist stærri að veltu
það árið og aðeins fjögur á öllu
Austurlandi. Miðað við starfs-
mannafjölda í fyrra (samanlögð árs-
verk voru 241) teldist þetta nýja
fyrirtæki stærra en sjálfur Einar
Guðfinnsson hf. í Bolungavík.
Þannig hefði það talist vera sjöunda
stærsta fyrirtæki í fiskvinnslu og
útgerð á Islandi. Þessar tölur byggja
á nýjum tölum í tímaritinu Frjálsri
verslun.
Hófleg bjartsýni
Guðjón Smári Agnarsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Stöðv-
arfjarðar hf., sagði að viðræður
þessar væru á algjöru frumstigi.
Hann er hóflega bjartsýnn á að af
sameiningu geti orðið. Hins vegar
hafi stjórnir beggja fyrirtækjanna
samþykkt að Atvinnutryggingar-
sjóður hafi milligöngu um að fram
fari hagkvæmnisathugun á samein-
ingu fyrirtækjanna. Sagði Guðjón
Smári að niðurstöður hagkvæmnis-
athuganna gætu trúlega ekki legið
fyrir fyrr en eftir áramót.
Svavar Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Breið-
dalsvíkur hf., sagði að aðstoð At-
vinnutryggingarsjóðs væri ekki
skilyrt og þeim hafi alls ekki verið
stillt upp við vegg til að knýja fram
sameiningu. „Menn eru núna að
skoða alla möguleika og reyna að sjá
hvað hægt er að gera til bjargar
fyrirtækjunum. Þetta er ein leiðin,"
sagði Svavar eftir fund sinn með
Gunnari Hilmarssyni á Stöðvarfirði
í gær. „Þetta er t.d. ekki komið svo
langt að við sjáum borðliggjandi að
báðir hafi hag af sameiningunni.
Atvinnutryggingarsjóður er einungis
hérna til að skoða hug heimamanna
til sameiningar. Þeir eru hér til að
skoða og athuga þá aðstöðu sem hér
er fyrir hendi."
Sameining víðar
Þess má einnig geta að þegar
hefur verið rætt um nauðsyn þess að
sameina frystihús annars staðar á
landinu. í Þorlákshöfn hefur verið
rætt um sameiningu Meitilsins og
Glettings, að frumkvæði Björgvins
Jónssonar í Glettingi. Á Ólafsfirði
hefur verið rætt um sameiningu
Hraðfrystihúss Magnúsar Gamal-
íelssonar hf. og Hraðfrystihúss ÓI-
afsfjarðar hf., þó án þess að útgerð
fyrirtækjanna yrði sameinuð. Þá
hafa þreifingar átt sér stað í Vest-
mannaeyjum samkvæmt fréttum
Fiskifrétta og einnig á Sauðárkróki
og á Hofsósi. KB
Leiðrétting
Upphaf forystugreinar í gær
misfórst nokkuð í prentun. Rétt
er málsgreinin þannig:
„Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra hefur átt mikii-
vægar viðræður við Margréti
Thatcher forsætisráðherra Breta,
kynnt henni viðhorf íslendinga til
Evrópubandalagsins og kannað
viðhorf Breta gagnvart endurnýj-
un samnings fslands og banda-
lagsins um viðskiptamál. Einnig
urðu umræður milli forsætisráð-
herranna um svonefnt Rockall-
mál, sem ágreiningur er um milli
Breta og íslendinga og fleiri
þjóða.“ Ath.: Það voru feitletr-
uðu setningarnar sem færa þurfti
til rétts horfs.
Þrautgóðir á raunastund
Steinar J. Lúðviksson
Björgunar- og sjóslysasaga íslands, 19.
bindi
Bókin fjallar um árin 1972—1974.
Þá gerðust margir stórviðburðir. Togarinn Hamranes sökk
út af Jökli 1972. Hörmuleg sjóslys urðu í skaðaveðrum
1973 þogar vélbátarnir María og Sjöstjarnan fórust. Einn-
ig segir frá strandi Port Vale við ósa Lagarfljóts.
GULLVÆGAR BÆKUR
í SAFNIÐ
Minningar Huldu Á Stefánsdóttur
Skólastarf og effri ár
Hulda segir fró Kvennaskólanum á Blönduósi þar sem hún
var skólastjóri og Húsmæðraskóla Reykjavíkur sem hún
veitti forstöðu.
„Mér finnsl békin með hinum beztu, sem ég hef
íesið þessarar tegundar" Þór Magnússon, þjóðminja-
vörður um fyrstu minningobók Huldu í brófi til honnar 10. jon. 1986.
Þjóðhættir og þjóðtrú
Skráð af Þórði saffnstjóra i Skógum
Þessi bók er árangur af samstarfi Þórðar Tómassonar safn-
stjóra í Skógum og Sigurðar Þórðarsonar hins fróða af
Mýrum í Hornafirði. Hér greinir frá lífi og starfi, þjóð-
siðum og þjóðtrú.
ÖRN OG
ORLYGUR
SIÐUMÚLA 11,
SÍMI 8 48 6ó