Tíminn - 10.12.1988, Side 11
I
f"\ W .
nnjn' r n *•
Tíminn 11
Laugardagur 10. desember 1988
BÆKUR
Sigurbjörn Einarsson.
Klukkubókin
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér Klukkubókina. Þessi
vinsæla bók er nú endurútgefin.
Þetta er harðspjaldabók með
klukku og visarnir hreyfanlegir.
Klukkan átta fer ég á fætur og
klukkan níu borðum við
morgunverðinn. Klukkan þrjú
leikum við okkur í sandkassanum
og byggjum kastala og mjög falleg
hús. Snati horfir á. Klukkan sjö fér
ég í bað og borða kvöldmatinn.
Klukkan átta fer ég að hátta og
sofa. Þannig má stilla vísa
klukkunnar allan sólarhringinn.
Það er alveg víst að bókin
auðveldar börnum að læra á
klukku.
Vilbergur Júlíusson f.v.
skólastjóri endursagði.
Ný spennusaga eftir
Duncan Kyle:
Árás að
næturþeli
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
nýjanjósna- og spennubók, „Árás
að næturþeli" eftir Duncan Kyle,
sem skrifaði bókina „í gildru á
Grænlandsjökli" og fleiri
spennubækur sem nú eru
ófáanlegar.
SS-foringi flýr á síðustu
mánuðum stríðsins frá Þýskalandi
til Svíþjóðar. Hann hefur undir
höndum lista með nöfnum
vestrænna Hitlerssinna og hyggst
nota hann sér til framdráttar.
Hann tekur að sér að stjórna
víkingasveit sem á að ráðast á
kastala Himmlers í apríl 1945.
Litrík lífssaga
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér bókina Sigurbjörn
biskup — ævi og starf eftir Sigurð
A. Magnússon rithöfund.
Trúarkraftur og orðsnilld séra
Sigurbjörns Einarssonar biskups
hefur látið fáa Islendinga
ósnortna. Að baki þessa meistara
orðsins liggur sviptivindasamur
og fjölþættur æviferiU sem er vel
lagaður fyrir fróðlega og
tilþrifamiída ævilýsingu.
Þessi bók bregður upp fjölda
eftirminnilegra mynda úr langri
og litríkri lífssögu, allt frá
kröppum kjörum bemskuáranna í
Meðallandi til erfiðra námsára í
Reykjavík og Uppsölum,
prestsskaparára á Skógarströnd
og í Reykjavík, kennsluára við
Háskóla Islands og langs
embættisferils á biskupsstóli. Inn
í þá fjölskrúðugu sögu fléttast
þættir úr þjóðvamarbaráttunni og
baráttunni fyrir endurreisn
Skálholts á sjötta áratugnum.
Eins og gefur að skilja er einnig
komið inn á guðfræðileg viðhorf
Sigurbjöms og kynni hans við
ýmsa helstu guðfræðinga
aldarinnar.
Sigurður A. Magnússon
rithöfundur hefur haft náin kynni
af Sigurbimi frá unglingsámm og
fylgst með honum gegnum tíðina.
Hefur hann samið þessa bók eftir
samtölum við Sigurbjöm og
jafnframt eftir prentuðum
heimildum. Dregur hann upp
ákaflega ljósa og blæbrigðaríka
mynd af Sigurbimi í þeim
margvíslegu hlutverkum sem
hann hefur gegnt og bregður um
leið birtu yfir marga málsmetandi
samferðamenn hans.
Bókin er 380 blaðsíður og auk
þess prýða hana yfir 100
ljósmyndir.
Sungið
og leikið
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér Söng- og píanóbók
barnanna.
Ámi Elfar útsetti og valdi lögin.
í þessari sérstæðu bók em tólf
þekkt íslensk lög, sem allir geta
spilað og sungið. Bókiirer með
hljómborði, sem hægt er að leika
á. Lögin em: Máninn hátt áhimni
skín, Nú er sumar, Litlu
andamngamir, Fyrr var oft í koti
kátt, Heims um ból, Göngum,
göngum, Kibba, kibba, komið þið
greyin, Állir krakkar, Nú er frost á
Fróni, Meistari Jakob, Frjálst er í
fjallasal, Hann Tumi fer á fætur.
Sem sagt lög, sem allir þekkja.
Sérstæð og skemmtileg bók.
Óvenjuleg lífsreynsla í fjarlægum heimshornum speglast á hverri blaðsíðu
þessarar skemmtilegu bókar Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanns og
rithöfundar. Fíladans og framandi fólk byggist að miklu leyti á dagbókum
sem Jóhanna hefur haldið í ótal ferðum sínum til ianda sem fáir íslend-
ingar hafa heimsótt, s.s. Óman, Djibuti, Burma, Sri Lanka, Norður-Jemen
og Bangladesh. Hún lendir þar í ótal ævintýrum, fílar dansa, sandbyljir
geysa í kringum hana og óvænt lendir hún mitt í kúlnahríð.
Sérkenni ólfkra þjóða og landa koma skýrt fram í þessari skemmtilega
skifuðu bók. Jóhanna leiðir lesandann um baksvið þeirra frétta og frásagna
sem birst hafa eftir hana í Morgunblaðinu á undanförnum árum og bætir
við fjölmörgum nýjum stöðum og atburðum. Hér eru á ferðinni einkar
fróðlegar, lifandi og skemmtilegar frásagnir af ferðum höfundarins um
FÁFARNAR ÆVINTÝRASLÓÐIR.