Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 12
12 Tímion
Laugardagur 10. desember 1988
5AMVINNU
TRYGGINGAR
AHMÚIA 3 108 REYKJAVlK SlMÍ (91)681411
Útboð \
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
MMC Lancer 1500 GLX
Skoda 130 Rapid
Suzuki Swift
Lada Samara 1300
Suzuki Alto ss 80
MMC Tredia 1400 GLX
BMW 320
Datsun Sunny GL
Daihatsu Charmant
BMW318Í
Toyota Tercel 1300 DL
MMC Lancer 1600 GL
Toyota Cressida GL
Volvo 244
árgerð 1989
árgerð 1988
árgerð 1988
árgerð 1986
árgerð 1983
árgerð 1983
árgerð 1982
árgerð 1982
árgerð 1982
árgerð 1982
árgerð 1982
árgerð 1981
árgerð 1980
árgerð 1979
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 12. desember 1988, kl.
12-16.
Athugasemd vegna skrifa Tímans um skattaáþján blaðburðarbarna:
Skattasiðf erði barna eða
sjálfþensla ríkisútgjalda?
Dagblaðið Tíminn og Ingvar
Gíslason ritstjóri hafa að undan-
förnu gert úr því mikið mál í skrifum
sínum, að börnum undir 16 ára aldri
sé gert að greiða í opinber gjöld 6
prósent launa sinna, og hafi að auki
engan persónuafslátt, svo sem full-
orðnir.
Þar sem telja má víst að skrif
Tímans séu ekki ónotakast út í
ríkissjóð sem verkfæris velferðar-
samfélagsins heldur umfram allt til
komin af umhyggju og samúð með
blessuðum börnunum, og ekki síst
þeim sem þurfa að vera komin af
stað fyrir allar aldir, svo lesendur
Tímans og annarra morgunblaða fá
lesningu sína með morgunverðinum,
þá er rétt að senda lesendum blaðs-
ins með mikilli vinsemd og virðingu
örlitla skýringu á því sem ritstjórinn
kallar „tittlingaskít".
Bætt skattasiðferði
Þegar staðgreiðsla skatta var tek-
in upp fyrir ári gerðust böm sjálf-
stæðir skattgreiðendur. Þetta var
ekki gert vegna þess að skattar af
tekjum blaðburðarbarna væru svo
mikilvæg tekjulind fyrir ríkissjóð,
heldur hinu að það taldist vera
mikilvægt uppeldisatriði og stuðla
að bættu skattasiðferði og ábyrgð
hinnar ungu kynslóðar, að hún fyndi
það að einnig hinir ungu launþegar
Ieggi sitt af mörkum til samneyslu
velferðarþjóðfélagsins.
Með því að greiða skatt, svo lágan
sem sex af hundraði tekna, veit þó
hvert blaðburðarbarn, hver ungling-
ur í sumarvinnu eða skólabarn sem
grípur í starf í jólafríinu, að þau
leggja líka sitt af mörkum, og ekki
sfst, að öll eigum við að leggja okkar
skerf til framtíðarinnar.
Almannaþarfir
og áskríftargjöld
Það er mikilvægt, eigi að vera
hægt að halda uppi menningarlegu
velferðarþjóðfélagi hér næstu öld,
að skattasiðferði fslensku þjóðarinn-
ar verði betra en það nú er.Áætlun
nefndar, sem giskaði á umfang skatt-
svika fyrir þremur árum bendir til
þess að enn sé mikið ógert. Og
hlutur fjölmiðla í þjóðaruppeldinu
er mikill og ábyrgð þeirra stór.
Þess vegna ætti það að vera stolt
hvers blaðburðarbams að vita það,
þegar það fær sínar fimm þúsund
krónur greiddar um mánaðamót, að
það hefur lagt fram sínar 300 krónur
til að halda hér uppi heilbrigðisþjón-
ustu, menntakerfí og öryggisþjón-
ustu, að ekki sé minnst á þann hluta
sem fer til að aðstoða frystihús í eigu
alls kyns samtaka, að greiða niður
offramleiðslu í landbúnaði og til að
auðvelda ríkinu að kaupa hundmð
eintaka af Tímanum í áskrift á
hverjum degi.
Ekki spurð leyfis
í fljótu bragði virðist það ekki
vera vandamál að útskýra þetta
gmndvallaratriði fyrir hinum ungu
skattgreiðendum. Og ekki virðast
þau bera skaða af því að kynnast því
strax í bamæsku að velferð heildar-
innar sé árangur af mætti samtak-
anna. Erfiðara kann að reynast í
þjóðaruppeldinu að reyna að út-
skýra og réttlæta alla þá útgjaldaliði,
sem börnum jafnt sem fullorðnum
er ætlað að standa undir án þess að
vera nokkm sinni spurð leyfis.
Bjami Sigtryggsson,
upplýsingafulltrúi
fjármálaráðuneytisins.
Á sama tíma:
í Borgarnesi:
Isuzu Trooper árgerð 1983
Á Húsavík:
Nissan Sunny LX árgerð 1987
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
12, þriðjudaginn 13. desember 1988.
Samvinnutryggingar g.t.
- Bifreiðadeild -
Holtaskóli Keflavík
Kennara vantar í fulla stöðu frá áramótum. Um er
að ræða 37 tíma í viku, það er 29 tíma á ensku og
8 tíma í sérkennslu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í vinnutíma 92-11135
og heimasími 92-15597, yfirkennari í vinnusíma
92-11045 og heimasími 92-11602.
Skólastjóri.
DAGVI8T BARIVA
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns á dagvistarheimilinu Foldar-
borg, Frostafold 33 er laus til umsóknar.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar
barna í síma 27277.
^J| Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum í níu 11 kV dreifispenna fyrir Nesjavallavirkjun af
stærðinni 25-1600 kVA.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 1. febrúar 1989,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Séra Sigurður Haukur hefur löngum veríð umdeildur, enda þekktur fyrir að
segja skoðun sína afdráttarlaust. I þessari hispurslausu bók fjallar hann m.a.
um:
• skemmtilega atburði frá æskuárunum í Olfusi
• fjölda samferðamanna • læknamiðla
• hinar „alræmdu “ pöppmessur • hestamennsku
• sálarrannsóknir • • brottrekstur frá útvarpi og sjónvarpi
Sími 91-681268 Nýja Bókaútgáfan
4
í