Tíminn - 10.12.1988, Side 14
Laugardagur 10. desember 1988
14 Tírrúnn.- f VJ
'{ » i » rj
irnv i i in
Knattspyrna:
„Reikna með að
skrifa undir á
þriðjudaginn“
„Þaö má segja segja að þetta
hafi gengið í gegn í gærdag
(fimmtudag), en hvort samningur-
inn verður í 3 1/2 eða 4 1/2 ár er
enn ósamiö um auk nokkurra smá-
atriða, að öðru leyti má segja að
samningar haf! tekist,“ sagði
Guðni Bergsson landsliðsmaður í
knattspyrnu í samtali við Yímann í
gær. Hann mun leika sem atvinnu-
maður með enska stórliðinu Tott-
enham Hotspur í London næstu
árin.
Guðni kom til landsins í gær, en
á þriðjudaginn heldur hann utan á
ný og þá verða forráðamenn Vais
mcð í ferðinni. Guðni reiknaði
með að skrifað yrði undir samninga
á þriðjudaginn.
Guðni hefur fengið tímabundið
atvinnuleyfi fram í janúar, en for-
ráðamenn Tottenham eru að vinna
að þvi að útvega Guðna varanlegt
leyfi. „Þetta getur hugsanlega allt
strandað í atvinnuleyfinu, en Bret-
ar hafa verðið strangir í veitingu
slíkra leyfa undanfarið. Það eru
fyrir 2 útlcndingar í Tottenham
liðinu, þannig að einhver vandræði
gætu orðið með atvinnuieyfið.
Maður vonar bara það besta og
forráðamenn Tottenham eru bjart-
sýnir á að leyfið fáist. Eins og
staðan er í dag þá má ég leika með
aöalliðinu og það gæti orðið til
þess að auðvelda að leyfið fáist, ef
cg leik með liðinu á næstunni.“
Nokkuð hefur verið rætt um hlut
Valsmanna í málinu og Guðni
sagði að hann hefði náð samkomu-
lagi við Val um félagaskiptin yfir í
Tottenham og að þeir væru nokkuð
sáttir við útkomuna.
„Ég er mjög ánægður að fá
tækifæri til þess að leika fyrir þetta
félag, þetta er gott félag á góðum
stað og það verður gaman að reyna
fyrir sér sem atvinnumaður. Að-
spurður um launamálin sagði
Guðni: „Ég fæ góð laun fyrir
þetta, annars væri maður nú ekki
að fresta námi og fleiru til þess að
fara út og spila fótbolta, en það er
einkamál mitt hver upphæðin er.
Menn fá vel greitt fyrir þetta í
Englandi, enda er þetta allstremb-
ið á köflum. Þá er fótboltinn
vinsæi íþróttagrein þarna. Ég fæ
frían bíl og síðan er greitt fyrir
sigurlciki.
Ef menn ætla að standa sig í
þessu verður að taka þetta föstum
tökum og lífa sómasamlega og
heilbrigðu lífi og leggja sig allan
fram. Eg ftyt út og verð þar næstu
árin og maður verður að taka þetta
eins og hvcrja aðra vinnu. Þetta
starf er krefjandi og því fylgir
mikið álag, bæði andlegt og líkam-
legt.
Ég hef leikið með varaliðinu
nokkra leiki og þá verið á kantin-
um. Með Val og landsliðinu var ég
aftur á móti aftasti varnarmaður.
Mér líkar mjög vel í þessari nýju
stöðu, maður er meira í boltanum
og þetta er skemmtilegt,“ sagði
Guðni Bergsson að lokum.
2. deild karla kl. 15.15.
Keflavik ÍBK-Afturelding
2. deild karla kl. 14.00.
Seljaskóli ÍR-Þór
2. deild kvenna kl. 14.00.
Seltjamames Grótta-Afturelding
2. deild kvenna kl. 15.15.
Haukar b-ÍR
3. deild karla Id. 14.00.
Keflavík ÍBK b-Völsungur
3. deild karla kl. 15.15.
Seljaskóli ÍS-Fylkir
Sunnudagur
1. deild kvenna kl. 14.00.
Laugardalshöll Fram-Haukar
2. deild karla kl. 14.00.
Digranes HK-Selfoss
2. deild karla kl. 16.30.
Strandgata ÍH-Ármann
2. deild karla kl. 15.15.
Strandgata Haukar-Þór
3. deild karla kl. 14.00.
Strandgata FH b-Völsungur
3. deUd karla kl. 14.00.
Valshús Valur b-HK b
Blak
Laugardagur
1. deUd karla kl. 17.15.
Neskaupstaður Þróttur Nes.-Fram
1. deUd karla kl. 14.45.
Höllin Akureyrí KA-ÍS
1. deUd kvenna kl. 16.00.
Neskaupstaður Þróttur Nes.-UBK
1. deUd kvenna kl. 13.30.
Höllin Akureyrí KA-ÍS
Sunnudagur
1. deUd karla kl. 17.45.
Digranes HK-Þróttur R.
1. deUd kvenna kl. 16.30.
Digranes HK-Þróttur R.
Guðni Bergsson í faðmi fjöskyldunnar stuttu eftir heimkomuna til íslands í gærkvöld. Guðni heldur til London á
þriðjudag, þá tilbúinn að takast á við nýtt starf, starf atvinnumanns í knattspyrnu. Frá vinstri Bergur Þór 11 ára,
Hjördís Böðvarsdóttir móðir Guðna, Guðni Bergsson, Elín Konráðsdóttir unnusta Guðna, Bergur Guðnason faðir
Guðna, en hann var á árum áður landsliðsmaður í handknattleik, Sigríður 22 ára og Böðvar 18 ára. Tímamynd Gunnar.
íþrótta-
vidburðir
helgarinnar
Körfuknattleikur
Laugardagur
1. deild kvenna kl. 14.00.
Grindavík UMFG-UMFN
Sunnudagur
1. deild karla kl. 14.00.
Hagaskóli Léttir-Snæfell
1. deild kvenna kl. 20.00.
Kennaraháskóli ÍS-ÍBK
1. deild kvenna kl. 14.00.
Seljaskóli ÍR-Haukar
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild kl. 14.00.
Strandgata FH-Þór
“200*$
* wwuw og í BAvinimmR
ERÐIN
AKUREYRI
SÍMI 96-21400
Laugardagiir 1Ó. desember 1988
.y.i.M.v.a.1.1' >» 1
Tíminn 15
irnw i ■ in
HAUKUR VALINN
HJA F0TLUÐUM
fþróttasamband fatlaðra hefur út-
nefnt Hauk Gunnarsson, fþróttafé-
lagi fatlaðra í Reykjavík (Í.F.R.)
íþróttamann ársins úr röðum fatl-
aðra íþróttamanna áríð 1988.
Haukur er 22 ára, fæddur 20.10.
1966, og keppir í flokki spastiskra.
Hann er mjög fjölhæfur íþróttamað-
ur en sínum besta árangri hefur
Haukur þó náð í 100, 200 og 400 m
spretthlaupum. Á síðasta ári varð
Haukur mjög sigursæll á þeim mót-
um sem hann tók þátt í. Auk þess að
sigra á öllum þeim mótum sem hann
tók þátt í hér á landi sigraði Haukur
í 100, 200 og 400 m hlaupum á
alþjóðlegu móti sem fram fór í
V.-Þýskalandi um miðjan júlí. Á því
móti hljóp hann 400 m hlaup á 61,1
sek. og setti um leið nýtt heimsmet.
Einnig sigraði hann í 100 m hlaupi á
Opna v.-þýska meistaramótinu sem
fram fór í Flensborg um miðjan
september. Sínum besta árangri náði
Haukur þó á Ólympíuleikum fatl-
aðra sem fram fóru í Seoul 15.-24.
október sl. Þá hlaut hann gullverð-
laun í 100 m hlaupi og bronsverðlaun
í 200 og 400 m hlaupum. í 100 m
hlaupinu hljóp Haukur á 12,88 sek.
og var nálægt sínum besta árangri
sem er 12,80 sek. sem jafnframt er
heimsmet í greininni. í 200 og 400 m
hlaupunum bætti hann sinn fyrri
árangur verulega.
Eins og áður sagði er Haukur
mjög fjölhæfur íþróttamaður. Hann
er t.d. núverandi íslandsmeistari í
einliðaleik í boccia og var í sveit
íslands sem hafnaði í þriðja sæti á
Norðurlandamótinu sem fram fór
hér á landi sl. vor.
En Haukur er ekki aðeins góður
íþróttamaður. Hann hefur vakið at-
hygli fyrir reglusemi, prúðmannlega
framkomu og kurteisi og verið þann-
ig öðrum fyrirmynd sem heilsteyptur
og metnaðarfullur íþróttamaður.
í viðurkenningarskyni fyrir út-
nefninguna fær Haukur „Afreksbik-
ar f ,F.“ en hann var gefinn af Bjarna
Árna Ingvasyni og Sigrúnu Ódds-
dóttur, eigendum Hótels Óðinsvéa,
árið 1984 og er veittur þeim aðila
sem valinn er íþróttamaður ársins úr
röðum fatlaðra íþróttamanna ár
hvert.
Þess má að lokum geta að þetta er
þriðja árið í röð sem Haukur er
valinn íþróttamaður ársins.
KENWOOD
Ný og endurbætt
KENWOOD
CHEF
Haukur Gunnarssonar með „Afreksbikar ÍF“ en hann fylgir íþróttamanni ársins hjá fötluðum.
Eins og sjá má á áletruninni á bikarnum þá hefur Haukur unnið bikarinn undanfarín tvö ár.
TímamyndrGunnar
4-
Jólakirkjurnar
vinsælu
komnar aftur
Síðasta sending fyrir jól
4
Heildsöludreifing
LEMKÖ HF.
Umboðs- og heildverslun
Smiðjuvegi 1 - 200 Köpavogi - Sími 46365
Aukabúnaður m.a.:
Grænmetiskvörn — Hakkavél
Grænmetisrifjárn — Ávaxtapressa
Verð kr. 17.680
16.800,- staðgr.
hheklahf
Laugavegi 170-172 Simi 695500