Tíminn - 10.12.1988, Qupperneq 19
Laugardagur 10. desember 1988
Tíminn 19
BÆKUR
Heiðubækur
Bókaútgáfan Setberg hefur
gefiðúttværHeiðu-bækur: Heiða
fer að heiman og Heiða
heimsækir afa.
Bækurnar um Heiðu og Pétur
eftir Jóhönnu Spyri eru meðal
þekktustu barnabóka, sem
nokkru sinni hafa verið ritaðar.
Hér eru tvær sögur endursagðar á
góðu máli og með skýru letri. í
fyrri bókinni má lesa um það
þegar Heiða fer til borgarinnar og
verður leiksystir Klöru, fatlaðrar
stúlku. En í hinni síðari segir frá
heimsókn og dvöl hjá afa uppi í
fjöllunum og kynnum Heiðu af
Geita-Pétri.
Fallegar, litprentaðar bækur í
þýðingu Óskars Ingimarssonar.
Fjölbreyttir
möguleikar
Bókaútgáfan Setberg hefur
gefið út bókina Úrvalsréttir í
örbylgjuofni, sem er ný og
spennandi matreiðslubók fyrir þá
sem vilja kynnast þeim fjölbreyttu
möguleikum sem matreiðsla í
örbylgjuofni býður upp á.
Bókin hefur að geyma gimilegar
uppskriftir að forréttum,
aðahéttum og ábætisréttum með
litmynd af hverjum rétti fyrir sig.
Uppskriftirnar hafa allar verið
prófaðar.
Uppsetning bókarinnar er
þannig að hægt er að raða
réttunum saman eftir myndunum
og sjá þannig allan matseðilinn
fyrir. Samsetningarmöguleikarnir
eru hreint ótrúlegir, yfir 1000
talsins.
Ýmsar gagnlegar leiðbeiningar
er einnig að finna í bókinni, sem
bæði stuðla að betri nýtingu
örbylgjuofnsins og einnig betri
matseld. 1 henni er útskýrt
hvernig örbylgjuofninn vinnur,
leiðbeint um val á tímastilhngu og
bent á ýmis önnur lykilatriði, sem
stuðla að betri nýtingu hans. Þá
er fjahað sérstaklega um ofna með
innbyggðum örbylgjuofni og
hvernig nýta má möguleika þeirra
sem best.
Dröfn H. Farestveit
hússtjómarkennari þýddi og
staðfærði.
ÖRIAGA
ÞRÆÐIR
ástarinmr
;
N
Örlagaþræðir
ástarinnar
eftir Danielle Steel
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér nýja ástarsögu eftir
Daniehe Steel - Örlagaþræðir
ástarinnar.
Bemie Fine skýst leifturhratt
upp á hátindinn í heimi
viðskiptanna og þarf sem
aðstoðarforstjóri að vera á
stöðugum þeytingi milh stórborga
heimsins. Við opnun á nýrri
verslun í San Francisco hittir hann
Jane, htla 5 ára hnátu og kynnist
móður hennar, Liz, ungri og
líflegri kennslukonu. Það em
þessi kynni sem valda
straumhvörfum í hfi Bernie.
Honum verður aUt í einu Ijóst að í
hringiðu viðskiptalifsins hefur
hann misst sjónar á því sem
mestu skiptir í lífinu.
Depill fer
í útilegu og
Depill fer
í sjúkravitjun
eftir Eric Hill
Tvær nýjar bamabækur eftir
Eric HiU munu vekja ánægju
yngstu lesendanna, þvi
undanfarin ár hefur DepiU, þessi
vinsæli hundur glatt fjölda barna.
Bækurnar em með litskrúðugum
myndum og skýmm texta og því
auðveldar fyrir börn sem byrjuð
eru að lesa og þá ekki síður fyrir
foreldra th að lesa fyrir börnin á
góðum samvemstundum. í hvorri
bók segir frá ævintýmm DepUs og
vinanna Tomma, Helgu og
Stebba. Bækurnar em í sterku
bandi og með hörðum spjöldum.
VESTUR ÞÝSK
RAFTÆKI
VÖNDUÐ 0G
VARANLEG
rmr. i faj
EKKERT ELDHUS ÁN EMIDE
/FDniX
HATUNI6A SÍMI (91)24420