Tíminn - 28.12.1988, Qupperneq 15
Miðvikudagur 28. desember 1988
Tíminn 15
MINNING
Sigurður Amundason
Fæddur 12. mars 1924
Dáinn 5. nóvember 1988
Siguröur var fæddur í Dalkoti. í
Kirkjuhvammshreppi, V.-Húna-
vatnssýslu. Foreldrar Sigurðar voru
Ásta Margrét Sigfúsdóttir og
Ámundi Jónsson. Sigurður var 11. af
13 systkinum.
I Dalkoti ólst hann upp til 10 ára
aldurs, þá fluttist fjölskyldan að
Hvammstanga. Erfitt var á uppvaxt-
arárunum. mikil fátækt og erfið
vinna. Er aldur leyfði keypti hann
vörubíl og vann við vegavinnu,
snjómokstur og sveitaflutninga.
Sumarið 1950ferhann í vegavinnu
suður í Mýrasýslu þar sem hann
kynnist eftirlifandi konu sinni. Sjöfn
Halldórsdóttur.
Þau fóru að búa á Hvammstanga
í febrúar 1951 og giftu sig 7. feb.
1953. Sigurður var með skepnur til
drýginda fyrir heimilið. Það var
mjög lítið um atvinnu á þessum
árunt. Vorið 1959 fluttu þau suður í
Mýrasýslu að Hrafnkelsstöðum í
Hraunhrepp.
Þau bjuggu þar í tvö ár, en þá
fluttu þau að Þverholtum, þar sem
þau byggðu allt upp.
Sigurður átti dóttur með Sesselju
Hannesdóttur 1944, Ástu Margréti.
Ólst hún upp hjá föður sínum.
Þau hjónin áttu saman níu börn:
Halldór, Arilíus, Inga Lilja, Hrafn-
hildur, Ámundi, Hilmar, Ásdís,
Jóhanna og Ingibjörg. Eru þau öll
gift.
Sigurður var stórbóndi. Hann var
með fjörutíu mjólkandi kýr, um
fjögur hundruð fjár og mikið af
hrossum.
Hann var mikill ræktunarmaður
og hrossaunnandi og það sést best á
því að hann þurfti ekki nema að
koma í fjós til að sjá hvaða kýr var
arðbær og sama var um kindur.
Hann keypti tvö folöld að Hind-
isvík, hest og hryssu. Hesturinn var
hinn landskunni Glóblesi 700 og eru
mörg góð hross út af honum komin.
Vorið 1981 fluttu þau hjónin í
Borgarnes, vegna heilsu Sigurðar.
Þegar Sigurður var um tvítugt var
tekið úr honum annað nýrað og
ágerðust veikindin ár frá ári og
fylgdu margar og erfiðar sjúkrahús-
legur. En hann átti góða konu og
börnin stóðu með honum í veikind-
unum.
Ég kynntist Sigurði 1976 og auð-
vitað var það í gegnum hross. Sig-
urður hafði mjög gaman af hrossa-
viðskiptum. Hann var fljótur að sjá
ef hestur var með galla.
Sigurður var stórbrotinn maður í
mínum augum.
Dugðu, látt’ei deigan síga,
Drottinn vakir yfir þér.
Láttu andann yfirstíga
erfiðleika lífsins hér.
Af Guði ertu allur gefinn.
Gleði og sorg er einnig Hans.
En aðeins þegar burt er efinn
ertu vaxinn upp til manns.
Gunnar Fjeldsted.
Hann er dáinn, hann elsku tengda-
pabbi. Hann sem alltaf var klettur-
inn og alltaf svo traustur og gott að
leita til, bæði í gleði og sorg.
Hópurinn hans er stór, hann átti
tíu börn og barnabörnin fylla næst-
um þriðja tuginn.
Það var oft glatt á hjalla þegar
hópurinn var saman kominn hjá afa
og ömmu.
Elsku tengdamamma, Guð styrki
þig °g styðji.
Hin langa þraut er liðin.
nú loksins hlaustu friðinn.
og allt er orðið rótt.
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin.
hvað gctur grætt oss þá?
Oss þykir sárt að skilja,
cn það cr Guðs að vilja,
og gott er allt sem Guði er frá.
Guðrún.
BÆKUR
Tvö bindi af Iðnsögu
Út eru komin tvö bindi í ritröðinni
Safn til iðnsögu íslendinga. Eru
þetta bækurnar Ull verðurgull, saga
ullariðnaðar á síðari hluta 19. aldar
og á 20. öld, og Brotin drif og
bílamenn, fyrri hluti af sögu bifreið-
aviðgerða og Félags bifvélavirkja á
þessari öld. Höfundur fyrri bóka-
rinnar er Magnús Guðmundsson
sagnfræðingur, en Ásgeir Sigurgests-
son sálfræðingur hefur ritað hina.
í bókinni Ull verður gull er greint
frá þróun ullariðnaðar á vélaöld,
sagt frá brautryðjendum sem stofn-
uðu tóvélaverkstæði í lok síðustu
aldar og saga ullariðnaðar síðan
rakin allt til bess er ullarverksmiðjan
Gefjun og Álafoss voru sameinuð á
síðasta ári. Þá er einnig í bindinu
kafli um orðtök runnin frá tóvinnu
eftir Halldór Halldórsson.
í bókinni Brotin drif og bílamenn
er greint frá upphafi bílaaldar og
bílaviðgerða hér á landi. Sagan er
þar rakin fram á fjórða áratuginn, er
hér á landi hafði myndast hópur
bifvélavirkja sem hafði góð tök á
verkefnum sínum. Einnigerþarsagt
frá stofnun og fyrstu árum Félags
bifvélavirkja. í síðara bindi er svo
ætlunin að rekja sögu Félags bifvéla-
virkja og bílaviðgerða síðustu ára-
tugi um land allt.
Ritstjóri Safns til iðnsögu íslcnd-
inga er Jón Böðvarsson. Þetta eru
annað og þriðja bindi verksins.
Fyrsta bindi, Eldur í afli eftir Sumar-
liða R. ísleifsson sagnfræðing. kom
út í fyrra og fjallaði um málmiðnað
á íslandi á 19. öld og fyrri hluta 20.
aldar.
LESENDUR SKRIFA llllllllllllllllillllllB
Um ábyrgð og ábyrgðarleysi
Garra þykir það ekki réttlátt að
hreppsnefndarmenn séu gerðir
ábyrgir fyrir skuldum sveitarsjóðs
og látnir borga ef allt um þrýtur.
Sjálfsagt erum viðsammála um þetta
að vissu marki. Samt geri ég athuga-
semd.
Ekki veit ég hverja reynslu Garri
hefur í félagsmálum eða hvar hann
hefur setið í félagsstjórnum. Hitt
veit ég að ýmis konar félög hafa
staðið í framkvæmdum sem kostuðu
peninga. Sum slík félög hafa ekki átt
neinar eignir til að veðsetja fyrir
bankaláni. Þá hefur sú leið oft verið
farin að stjórnendur félags hafa
tekið að sér að ábyrgjast greiðslu
lánsfjárins. Og vitanlega lána pen-
ingastofnanir út á þá ábyrgð. Þeir
sem ábyrgjast hafa tekið á sig pers-
ónulega ábyrgð. Sú ábyrgð réði
úrslitum um það að lánið fékkst og
hægt var að gera það sem hugur stóð
til.
Þeir eru áreiðanlega nokkuð
margir sem einhvern tíma hafa geng-
ið í persónulega ábyrgð fyrir félag
sitt og þannig stuðlað að því að
félagsleg áhugamál kæmust í
framkvæmd. Hér þarf ekki að hafa
uppi neitt rugl um ábyrgð eða
ábyrgðarleysi. Best fer á því að viö
gerum okkur grein fyrir því hvenær
menn eru að skuldbinda félag sitt
með undirskrift sinni og hvenær þeir
skuldbinda sjálfa sig. Hvort tveggja
er til.
H.Kr.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Starf aðstoðarmanns á Röntgendeild er laust til
umsóknar.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir yfirröntgentæknir.
Umsóknir sendist skrifstofustjóra FSA fyrir 6.
janúar 1989.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Sími 22100.
Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig á 80 ára
afmælinu.
Sérstakar þakkir til gamalla nemenda minna.
Valgerður Sigríður Ólafsdóttir
Eystri-Sólheimum
t
Móðir okkar
Sigríður Jónsdóttir
Kvíum, Þverárhlið
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt
24. desember.
Eggert Ólafsson
Ragnar Ólafsson
Þorgeir Ólafsson
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn
t
Útför sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Jörundar Þórðarsonar
frá Ingjaldshóli
fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á öldrunardeild Landspítalans.
Guðný Magnúsdóttir
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Theódóra Sigurðardóttir
Holtsgötu 41
lést á Landakotsspítala þann 25. desember.
SteinþórSteingrímsson Svala Wigelund
SigurðurÖrnSteingrímsson Guðrún Blöndal
SigrúnSteingrímsdóttir Bjarni Magnússon
Hreinn Steingrímsson Steingrímur Steinþórsson
t
Eiginmaður minn
Emil Ásgeirsson
bóndi Gröf, Hrunamannahreppi
er látinn.
Eyrún Guðjónsdóttir.
t
Eiginmaöur minn og faðir okkar
Lýður Guðmundsson
fyrrv. bóndi og hreppstjóri Litlu-Sandvík,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi 23. desember, verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 30. desember kl. 13.00.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 11.30.
Aldís Pálsdóttir
SigríðurLýðsdóttir PállLýðsson \
Ragnhildur Lýðsdóttir Guðmundur Lýðsson