Tíminn - 30.12.1988, Síða 6
6 Tíminn
Föstudagur 30. desember 1988
Nokkrir íslendingar rifja upp minnisstæða atburði ársins sem er að líða:
A áramótum líta menn gjarnan um öxl og rifja upp það
markverðasta á liðnu ári. Þau áramót sem nú ganga í garð eru
þar engin undantekning og því brugðu blaðamaður og Ijósmynd-
ari Tímans sér bæjarleið í gær, tóku fólk tali og inntu það eftir
því hvers það minntist helst. Var þá jafnt leitað eftir því sem
fólki var minnisstæðast úr eigin lífí sem og á opinberum
vettvangi.
Eins og fram kemur hér á síðunni voru áherslurnar misjafnar
en flestum bar saman um að mannskaða þá sem yfír dundu bæri
hæst.
Björn Hróarsson fréttamaður:
Ég eignaðist son
Mér er það minnisstæðast úr eigin
lífi að ég eignaðist son og þar á eftir
kemur að ég keypti mér langþráðan
jeppa. Ég ferðaðist líka heil ósköp,
heimsótti hvorki meira né minna en
níu þjóðlönd. Meðal annars skoðaði
ég píramíðana í Egyptalandi og fann
sjö nýja hraunhella svo eitthvað sé
nefnt.
Af opinberum vettvangi má
kannski helst nefna það að Stjörnu-
fréttir hafa á árinu markað sér bás
sem einhver virtasta fréttastofa á
íslandi.
Annars má nefna ýmis smáatriði
svo sem eins og stjórnarslit og annað
slíkt. Það er einnig athyglisvert
hversu mjög náttúran hefur minnt á
sig á árinu mcð jarðskjálftum, elds-
umbrotum og öðru slíku.
Alda Jónsdóttir öryggisvörður:
Ferðaðist víða
Úr eigin lífi er mér efst í liuga að
ég fór í svokallaða „Inter-rail“ ferð
ásamt kærastanum mínum. Við
þvældumst mjög víða og ferðin var
heilt ævintýri.
Við ferðuðumst um alla Evrópu,
þvera og endilanga, alla leið niður til
Tyrklands, það var mjög athygl-
isvert.
Annars minnist ég helst allra
hörmunganna sem dunið hafa yfir
heimsbyggðina að undanförnu og á
ég þar við t.d. jarðskjálftana í Arm-
eníu, slysið á flugsýningunni í Þýska-
landi fyrr á árinu og síðast en ckki
síst slysið í Skotlandi nú um daginn.
Það sem mér finnst þó hörmulegast
í því sambandi er það að búið skuli
hafa verið að vara yfirvöld við, án
þessað þaugerðu nokkuð í málinu.
Sigrún Eyfjörð
fyrirsæta:
Eigin
velgengni
Efst í mínum hug er nú eigin-
lega góða veðrið sem ég hef verið
aðnjótandi á þessu ári. Því er svo
ekkert að neita að velgengni mín
í starfi er mér ofarlega í huga.
Þetta ár hefur verið mér persónu-
lega mjög hagstætt.
Ég hef verið að starfa erlendis
við fyrirsætustörf og gengið sér-
lega vel. Ég fer aftur út eftir
áramót og vonast til að mér gangi
jafnvel á komandi ári.
Hvað varðar fréttir er baslið í
stjórnmálunum mjög ofarlega á
baugi, við verðum bara að vona
að allt gangi okkur í haginn á
nýja árinu.
Það er óhætt að segja að betur
hefði mátt ganga hjá þjóðinni í
heikl. Ég tel hinsvegar ekki á-
stæðu til svartsýni og horfi mjög
björtum augum á framtíðina.
Bjöm Sigurðsson afgreiðslumaður:
Sigur á Rúmenum
Ég minnist forsetakosninganna
jafnt hér heima, sem og úti í Banda-
ríkjunum. Sigur FH á Rúmenum er
mér líka mjög ofarlega í huga. Það
þótti mér verulega sætur sigur.
Það var hinsvegar hroðalegt
hversu ömurlega íslendingum gekk
á Ólympíuleikunum í sumar, eftir
allar þessar væntingar.
Ég minnist þess einnig þegar Ben
Johnson missti gullið eftir að hafa
rassskellt sinn helsta keppinaut. Eg
verð að viðurkenna að ég sárvork-
enndi strákgreyinu.
Hvað snertir mig sjálfan þá bar
það eina helst til tíðinda að ég
útskrifaðist stúdent frá Flensborgar-
skóla. Útskriftinni fylgdi venju sam-
kvæmt mikil gleði og ég, ásamt
samstúdentum mínum fór í heljar-
mikið ferðalag til Portúgal.
Helgi Gústafsson leigubílstjóri:
Saltið á götunum
Allir þeir mannskaðar sem dunið
hafa yfir eru mest áberandi á árinu.
Héðan að heiman er þess helst að
minnast hvað félögum mínum í Val
hefur gengið vel á árinu. Þar á ég
bæði við kriattspyrnu og handbolta.
Starfs mín vegna minnist ég einna
helst þess gífurlega magns af salti
sem ausið er á göturnar þegar hálka
myndast. Þetta er ekki gert til að
hindra að slys eigi sér stað. heldur
einfaldlega til að spara dekkjakaup
hjá strætó. Leiðirnar sem SVR aka
eru saltaðar en aðrar ekki. Svo
þegar menn beygja af „saltbraut"
yfir á „óbreytta" þá enda þeir
kannski á staur eins og gerðist fyrir
fáeinuni dögum.
Stjórnmálin finnst mér nú vera
hreinn og klár skrípaleikur og vil
sem minnst um þau tala.
-áma
Tímamyndir: Pjelur
Siguröur Thorarensen fjármálastjóri:
Skipti um starf
Úr eigin lífi er mér það minnis-
stæðast að ég skipti um starf. Ég
hætti rekstri eigin fyrirtækis, sem ég
hafði rekið og starfað við undanfarin
8 ár. Ég tókst á við það í fyrsta skipti
að starfa hjá öðrum, tók áð mér
fjármálastjórn Stjörnunnar.
Hvað fréttir á árinu varðar man ég
best eftir hræringunum í stjórnmál-
unum, að stjórnin skyldi fara frá
með þeim hætti sem raun bar vitni
og hvernig sú nýja varð til.
Erlendis frá minnist ég helst hörm-
unganna undanfarna daga, jarð-
skjálftanna í Armeníu og flugslyss-
ins í Skotlandi.
Einnig hve mjög Gorbachev hefur
komið á óvart. Hversu mikið hann
hefur hrært upp í samskiptunum
milli austurs og vesturs.
Nína Jónsdóttir afgreiðslustúlka:
Fjöldi utanferða
Emmitt núna eru lætin hér í
Kringlunni fyrir jólin mér minnis-
stæðust. Hér var mikið að gera og er
það vel.
Af fréttum og opinberum málefn-
um stendur jarðskjálftinn í Armeníu
nú um daginn, að mínu mati hæst.
Ég minnist einnig sviptinganna í
stjórnmálunum hér heima. Ein
stjórn fór frá með eftirminnilegum
hætti og önnur tók við.
Ég ferðaðist mikið í ár. Á nokkrar
utanlandsferðir að baki. Allt í allt
eru þær þrjár og á næstu dögum legg
ég upp í enn eina ferðina. Flestar
mínar ferðir eru reyndar í styttra
lagi en sú sem er framundan mun
taka þrjár vikur. Slíka ferð reyni ég
að fara einu sinni á ári.
Sigurður Sigurðsson verslunareigandi:
Mitt fyrsta barn
Ég eignaðist litla dóttur á árinu.
Það er í mínum huga tvímælalaust
stærsti atburður þessa árs.
Hún fæddist fyrsta febrúar og er
því tæplega ársgömul. Það að eignast
barn er það almesta ævintýri sem ég
hef upplifað.
Þetta er mitt fyrsta barn og má
með sanni segja að fæðing hennar sé
fyrir mér mál málanna á árinu sem
er að líða.
Af fréttum minnist ég kannski
einna helst þess sem hvað nýlegast
gerðist, svo sem eins og flugslysið í
Skotlandi á dögunum.
Annars er það nú einu sinni svo að
ég hef mörgu að sinna og því miður
gefst sjaldnast tími til að fylgjast
með fréttum og því sem er að gerast.
Eggert Garðarsson nemi:
Ben missti gull
------------- Ég minnist helst þeirrar stundar
á Ólympíuleikunum þegar þeir
Ben Johnson og Carl Lewis kepptu
í hlaupi.
Einnig þess þegar Johnson missti
gullið sitt degi eftir að hann’ fékk
það.
Hér heima finnst mér hæst bera
að Einar Vilhjálmsson skyldi val-
inn íþróttamaður ársins. Það
fannst mér mjög gott mál. Einnig
það að Albert skuli hafa ákveðið
að fara til Frakklands.
Flugslysið í Skotlandi setur líka
sinn svip á árið sem og jarðskjál-
ftarnir í Armeníu.
Hjá mér sjálfum gerðist það
helst að ég kláraði fyrstu önnina í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og mun stunda nám þar áfram á
komandi ári.