Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn ÁRAMÓTAÁVARP STEINGRÍMS HERMANNSSONAR FORSÆTISRÁÐHERRA: Þriöjudagur 3. janúar 1989 „Stjórnvöld sem ekki stíga á hemlana áður en í óefni er komið, bregðast skvldu sinni" Góðir íslendingar. Meö áramótaávarpi mínu fyrir nokkrum árum sýndi ég á línuriti þær miklu sveiflur, sem einkenna íslenskan þjóðarbúskap. Þegar afli er mikill og gott verðlag á sjávarafurðum erlendis, streymir fjármagnið inn í efnahagslífið. Lífskjörin teljast þá með því besta sem þekkist á meðal þjóða. Útgerðin fær sér stærri og fullkomnari togara og nýjar og glæsilegar verslanir opna. Einstaklingar og fjölskyldur byggja, kaupa nýja bifreið eða ferðast. En eins og nótt fylgir degi, dregst' aflinn saman, uppspretta auðsins þornar. Fyrirtækin lenda í erfiðleikum með nýju tækin eða byggingarnar og einstaklingarnir og fjölskyldurnar ekki síður. Nú er ástandið að því leyti verra en fyrr, að fjármagnið tekur ekki þátt í erfiðleikunum ef ég má orða það svo; það flýtur ofan á eins og korktappinn, tryggt í bak og fyrir, hvað sem á gengur. Eftir þrotlausa baráttu við vanskil og vaxandi skuldir, þrátt fyrir, að hver króna hafi verið nýtt til j afborgana, blasir í ótrúlega mörgum tilfellum ekkert annað en gjaldþrotið við og fjölskyldan stendur á götunni. Það er nógu slæmt, en jafnvel verra er allt það taugastríð og sú örvænting sem fylgir baráttunni við skuldirnar. Þeir eru margir, sem af sorg og hörmungum Ieiðast í takmarkalausu vonleysi út í hina verstu hluti, óreglu og eiturlyf og jafnvel verra. Hvers vegna? Sú spurning verður áleitin. Hvernig getur slíkt gerst hjá þjóð, sem á í raun að hafa allt til brunns að bera, sem þarf til að stjórna sínum málum af skynsemi? íslendingar eru vel menntuð þjóð, andlega og líkamlega heilbrigðari þjóð en flestar aðrar og eiga víðáttumikið og fagurt land, sem stuðla á að fóðu líferni. Ef til vill er það veiðimannseðlið í okkur slendingum, sem vandræðunum veldur. Okkur hefur verið kennt að grípa gæsina meðan hún gefst. Að sjálfsögðu munum við íslendingar brjótast úr erfiðleikunum nú sem fyrr. Við höfum til þess alla burði. Um margar aldir bjó íslenska þjóðin við fátækt og skort. Árið 1874 varð að taka erlent lán til þess að unnt yrði að taka á móti Danakonungi. Árið 1936 varð að semja við Þjóðverja um greiðslu í lambakjöti til þess að senda mætti íþróttamenn á Ólympíuleikana. Fyrir 50 árum var tveggja daga ferð norður í Skagafjörð. Nú er tíðin önnur. Við erum auðug þjóð, þótt sumt af þeim auði sé að vísu heldur lítils virði, þegar á móti blæs. Barlómur er að minnasta kosti óþarfur. Við komumst fyrir rætur vandans, lagfærum það sem úrskeiðis hefur farið og hefjum nýja sókn á traustari grunni. Eflaust eykst aflinn fljótlega aftur og eftirspurn eftir góðum sjávarafurðum verður mikil. Fjármagn streymir þá á ný inn í þjóðfélagið. Hvað gerum við þá? Fáum við okkur stærri skip og fleiri bifreiðar, byggjum við stærri hús og glæsilegri verslunarhallir, eða tekst okkur íslendingum að læra af reynslunni; látum við vítin okkur til varnaðar verða? Það verður að gerast. íslenskt sjálfstæði þolir ekki margar kollsteypur enn. Ég þori þó ekki að treysta því að ráðdeild og forsjálni verði af sjálfum sér. Grundvöllur hins íslenska efna- hagslífs er of háður duttlungum náttúrunnar. Hann er óstöðugur og hvetur til kapps fremur en forsjár. Aukinn afli og mikill vöxtur þjóðartekna má ekki á ný leiða til þenslu eins og verið hefur undanfarin tvö ár. Að sjálfsögðu er æskilegast að það gerist þannig að fyrirtæki og fjölskyldur nýti auknar tekjur til að greiða skuldir eða auka sparnað. Stjórnvöld verða þó að vera reiðubúin til þess að grípa í taumana af festu ef þörf krefur og verða að hafa til þess nauðsynleg tæki og kjark. Frelsi einstaklingsins vil ég sem mest og afskipti stjórnvalda sem minnst. Krafturinn, sem í fólkinu býr er sú orka, sem knýr þjóðfélagið áfram. En það er eins og með kraftmikla bifreið, stjórnandinn verður ýmist að stíga á bensíngjöfina eða hemlana eftir aðstæðum. Það verða stjórnvöld einnig að gera, ef vel á að fara. Mikilvægast er að afskipti stjórnvalda séu réttlát gagnvart öllum þegnum þjóðfélagsins og ekki meiri en nauðsynlegt er. Stjórnvöld, hins vegar, sem ekki stíga á hemlana áður en í óefni er komið bregðast sinni skyldu. Hinn gullni meðalvegur á milli ofstjórnar og stjórn- leysis er vandrataður. Helst vil ég lýsa eðlilegum afskiptum stjórnvalda þannig, að þeim beri að skapa grundvöll fyrir heilbrigðar athafnir einstaklingsins í þjóðfélagi, þar sem velferð og jöfnuður ríkir. Sá grundvöllur verður að vera svo traustur og stöðugur sem kostur er. Til þess að takast megi að skapa þennan trausta grundvöll, virðist mér mörgum spurningum ósvarað. Hvað er framundan? Hver verður grundvöllur hagvaxtarins næstu árin og áratugina? Hvers konar velferðarríki viljum við hafa? Hve miklu af tekjum þjóðarinnar viljum við verja til þess að skapa jöfnuð og öryggi? Hvernig ætlum við að gegna skyldum okkar gagnvart þeim sem heftir ganga til lífsbaráttunnar? Hvernig þarf það menntakerfi að vera sem ræktar það besta í æskunni og gerir henni kleift að seilast til þeirrar framtíðar, sem hún vill hafa í þessu landi? Hvernig viljum við byggja landið sem ein samlynd þjóð? Hver verður staða íslands í gjörbreyttum heimi? Hvernig verður sjálfstæði landsins varið? Hvernig getum við beitt áhrifum okkar til þess að bæta heiminn? Og þannig mætti lengi spyrja. Fyrir nokkrum árum skipaði ég allfjölmennan starfs- hóp til þess að framkvæma svonefnda framtíðarkönn- un. Hópnum var ætlað að skoða ýmis grundvallaratriði þjóðfélagsins og spá í þróun þeirra fram til ársins 2010. Lokið var við nokkra þætti, en að öðru leyti hefur starfið legið niðri nú um skeið. Ég hyggst endurvekja þetta starf fljótlega eftir áramótin. Mér dettur ekki í hug, að þannig verði spáð, að allt standist. Ég veit reyndar, að flest mun fara eitthvað á annan veg. Hins vegar er ég sannfærður, um að þetta er tilraun, sem er verksins virði. Með fyrirhyggju getum við fremur sett okkur markmið, sem standast, og varist þeim erfiðleikum, sem framundan eru. Eflaust eigum við öll okkar framtíðarsýn og þegar grannt er skoðað ber líklega ekki mikið á milli. Við viljum sjá frjálst land og frjálsa þjóð, sem ber höfuðið hátt á meðal þjóða heims, þjóð, sem ræður sínum eigin málum af skynsemi og án öfga, þar sem hagvöxtur er jafn og sígandi þrátt fyrir sveiflur náttúrunnar, þar sem atvinnuleysi er óþekkt og fjöl- skyldur og einstaklingar hamingjusöm í góðu húsnæði og njóta þess sem nútímalíferni býður best. Við viljum bæta og styrkja það velferðarkerfi, sem tekist hefur að skapa, ekki með því að ausa í það fjármagni, heldur með því að gera það skilvirkara. Það á að skapa öllum öryggi en sinna þeim fyrst sem öryggið eiga minnst, þeim, sem af einhverjum ástæðum eiga undir högg að sækja í lífsbaráttunni. Við viljum landið gróið og hreint í allri sinni fegurð fyrir unga og aldna að njóta. Við viljum öfluga æsku- og íþróttahreyfingu, sem stuðlar að hollu og heilbrigðu líferni en heldur freistingum frá. Við viljum sjá hrausta og heilbrigða æsku þessa lands eiga kost á bestu menntun, menntun sem gerir henni bæði kleift að varðveita þann arf sem hún tekur við, tunguna, söguna og hin íslensku þjóðareinkenni, en jafnframt að tileinka sér og þjóð sinni það besta úr óðfluga þróun tækni og vísinda. Við viljum ísland í forystusveit þjóða, sem vinna gegn þeim hörmungum og eyðingu umhverfis, sem mannkynið af hugsunarleysi og skammsýni skapar sér. Við viljum gjöreyðingarvopnin burt og eiturefnin öll. Heimurinn er orðinn lítill. Við erum öll á einum bát. Það sem einn gerir hefur áhrif á alla, hvort sem er styrjöld eða eyðing ozonlagsins. Við verðum að róa til lands og róa samstillt á bæði borð. Ef til vill segið þið, kæru vinir: þetta eru draumórar einir. Ég er því ósammála. Vissulega verða þröskuldar margir á vegi slíkrar framfarasýnar. En það stekkur enginn lengra en hann hugsar, er stundum sagt. Og til þess eru þröskuldar að yfirstíga þá. Ekki ætla ég að ræða um þær hættur allar sem á veginum verða. Þó vil ég nefna þrennt, sem varðar sjálfan grundvöllinn, sjálfstæðið, þótt með ólíkum hætti sé. Fyrir sérhverja þjóð, sem vill vera sjálfstæð, er hvað mikilvægast að varðveita tungu sína og einkenni. Sérstaklega er slíkt nauðsynlegt fyrir smáþjóð, sem á á hættu að hverfa í mannhafið. Um himingeiminn fljúga þegar fjölmörg gervitungl, og fer ört fjölgandi, sem hella yfir þjóðirnar lélegu afþreyingarefni á erlendum tungum. Á þetta horfa þúsundir manna hér á landi og fyrr en varir munu flestir eða allir eiga þess kost. Þetta verður ekki stöðvað með boði og bönnum, en nauðsynlegt er að horfast í augu við þær hasttur, sem þessu fylgja fyrir íslenska tungu og

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.