Tíminn - 12.01.1989, Blaðsíða 11

Tíminn - 12.01.1989, Blaðsíða 11
Handknattleikur: Danmörk-lsland: Fimmtudagur 12. janúar 1989 10 Tíminn' IHIIIBIIIlll Iþróttir ........................................................................................................................................................I.......I....................llll................................... Héðinn Gilsson var grimmur bæði í vðm og sókn og skoraði hann sjö mðrk í leiknum. Fimleikagryfjan í húsinu er nýjung hér á landi. Í gryijuna munu fara 150 rúmmetrar af uppblásnum hjólbarðaslöngum og svampi. Tfmamyndlr Pjetur. Ég lék mínum fyrir 25 árum sterkasta leik Leikir þú öruggasta leiknum við ávöxtun sparifjár, teflirðu því ekki í tvísýnu. Sterkasti leikur- inn fyrir 25 árum var að fjárfesta í spariskírteinum ríkissjóðs og svo er enn í dag. Arið 1964 'hóf ríkissjóður íslands sölu á verð- tryggðum spariskírteinum. Með þeim gafst lands- mönnum tækifæri til að ávaxta sparifé sitt á verð- tryggðum kjörum og á öruggari hátt en þá þekktist. Síðan hefur þér ekki boðist öruggari ávöxt- unarleið. Ríkissjóður tryggir þér fulla endurgreiðslu á gjalddaga og því er engin hætta á að þú tapir sparifé þínu, hvernig sem árar. Spariskírteini ríkissjóðs bera nú 7,0% raunvexti til 5 ára og 6,8% raunvexti til 8 ára. Með spariskírteinum ríkissjóðs getur þú tvöfaldað raungildi spari- fjár þíns á aðeins 10 árum. Að auki eru þau telgu- og eignaskatts- frjáls eins og innstæður í innlánsstofnunum. Þótt lánstíminn sé ekki liðinn getur þú selt þau með mjög stuttum fyrirvara fyrir milligöngu yfir 100 afgreiðslustaða banka, sparisjóða og annarra verðbréfamiðlara. Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í bönkum, sparisjóðum og pósthúsum um land allt og hjá helstu verðbréfamiðlurum, svo og í Seðlabanka ís- lands. Einnig er hægt að panta þau í síma 91- 699600, greiða með C-gíróseðli og fá þau síðan send í ábyrgðarpósti. %ss ^ Sparisldrteini ríkissjóðs — sterkasti leikurinn í 25 ár. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi tekur við „lykli“ nýja íþróttahússins úr hendi Jóhanns Bergþórssonar forstjóra Hagvirkis, er húsið var tekið í notkum s.l. sunnudag. Körfuknattleikur: Enn sigur ádönskum Danmörk-ísland 22-24 (11-12) Svíþjóð-Búlgaría 27-21 „Þetta var góður leikur hjá okkur. Danir voru með sitt sterkasta lið og við unnum góðan sigur í skemmtilegum leik,“ sagði fyrirliði íslenska landsliðsins, Þorgils Óttar Mathiesen að loknum leik þeirra við Dani í Eyrarsundsmótinu í gærkvöldi. Gangur leiksins Það voru íslendingar sem leiddu þennan leik að mestu, voru þetta 1-2 mörk yfir, en náðu þó aldrei að hrista Danina af sér, þó tækifærin gæfust. Það var aðeins í eitt skipti sem Danir höfðu yfirhöndina, er þeir skor- uðu fyrsta mark leiksins, en íslendingar voru ekki lengi að lagfæra það. Staðan í hálfleik 11-12 fyrir okkar menn og lokatölur 22-24 íslendingum í vil. Frammistaða okkar manna Af mjög góðri liðsheild var Héðinn Gilsson tvímælalaust bestur okkar manna, skoraði 7 mörk í leiknum og tók hraustlega á í vörninni sem góðum víkingi sæmir og kannski full hraustlega, þar sem hann fékk tvisvar að hvíla sig í 2 mínútur. Þá var Kristján Arason góður og skoraði 5 mörk. Þá lagði Einar Þorvarðarson ekki síður grunninn að góðum sigri á Dönum. Hann varði ein 13 skot í leiknum og mörg þeirra úr hornum og einnig víti. Vörnin með þá Héðin, Júlíus Jónasson og Kristján Arason var traust og einnig virtist sóknin ganga vel. Þá sást bregða fyrir nýjum leikkerfum sem er nú ekki daglegt brauð. Þeir skoruðu mörkin Fyrir okkur Islendinga var eins og áður sagði Héðinn Gilsson markahæstur með 7 mörk. Næstur Kristján Arason með 5 mörk og voru mörg þeirra sérlega glæsileg. Guð- mundur Guðmundsson læddi inn einum 3 mörkum og sömuleiðis Þorgils Óttar Mathi- esen fyrirliði. Þá gerðu þeir Sigurður Gunn- arsson og Bjarki Sigurðsson 2 mörk hvor, en þess mun í lagi að geta að Bjarki var ekki svipur hjá sjón í þessum leik. Eitt mark gerðu þeir Júlíus Jónasson og Sigurður Sveinsson og var mark Sigurðar úr eina vítinu sem íslendingar fengu. Fyrir utan áðurnefnda leikmenn léku þeir Páll Ólafsson, sem fór útaf fljótlega vegna meiðsla, og Birgir Sig- urðsson. Þá kom Leifur Dagfinnsson einu sinni inn á til að verja annað tveggja víta er Danir fengu, en hafði ekki árangur sem erfiði. Lang markahæstur og bestur Dana var Klaus Sletting Jenssen með 8 mörk og var illstöðvanlegur. Leikurinn í tölum íslendingar fengu 7 sinnum að verma skammarkrókinn í 2 mínútur í hvert skipti. Syndaselirnir voru þeir Héðinn Gilsson og Júlíus Jónasson, tvisvar hvor, Guðmundur Guðmundsson, Bjarki Sigurðsson og Krist- ján Arason. Þá sýndu norsku dómararnir íslendingum einu sinni gula spjaldið. Hins- vegar fengu Danir að fjúka í krókinn 5 sinnum og eins og okkar menn fengu þeir gula kortið einu sinni. Um ellefu hundruð manns sáu þennan leik í Slagelse í gærkvöldi og giskuðu kunnugir að milli fjögur- og fimmhundruð þeirra væru íslenskir og studdu þeir þá bláklæddu dyggi- lega. I kvöld Næst á dagskrá íslensku handboltastrák- anna er leikur við Búlgara og fer hann fram í kvöld. „Við megum alls ekki vanmeta þá, en við förum í þann leik til að sigra,“ sagði Þorgils fyrirliði um leikinn í kvöld. Þess má geta að Búlgarar eru að undirbúa sig fyrir B-keppn- ina í febrúar. -PS New York. Bandaríski ólympíumeistar- inn í 200 m hlaupi, Joe DeLoach, segir að eitthvað hjóti að vera til í orðrómi þess efnis að jákvæðum lyfjaprófum sé stungið undir stól á mótum í Evrópu. Hann bætti við að honum hafí ekki komið það á óvart að Kanadamaðurinn Ben Johnson féll á lyfjap- rófí í Seoul, því hann og félaga hans, Carl Lewis, hefði grunað það lengi að Johnson væri á hormónalyfjum. DeLoach sagði að í vetur ætlaði hann að keppa á innanhússmót- um í Evrópu, en í framtíðinni ætlaði hann að verja gull sitt í 200 m hlaupi á ÓL í Barcelona 1992 og reyna að bæta við gulli í 100 m hlaiipi og 4x100 boðhiaupi. Molduxar á kaf Molduxar-ÍK 64-79 (35-44) Já, lesendi góður. Þú ert vaknað- ur. Liðið heitir Molduxar og er frá Sauðárkróki. Þeir voru í gærkvöldi að leika við Reykjavíkurliðið ÍR í bikarkeppni KKÍ á Sauðárkróki. Lið þetta, Molduxar, er áður óþekkt stærð í íslenskum körfuknattleik. Það var Leroy Rosenior sem sparkaði Arscnal út úr ensku bikar- keppninni þetta árið er lið West Ham vann 1-0 sigur á toppliði 1. deildarinnar ensku í gærkvöldi. Það voru fjórir aðrir leikir á dag- skránni hjá þeim ensku. Everton sló út lið West Bromwich, sigrað 1-0 með marki Kevin Sheedy. Ox- Geysileg stemmning var í íþrótta- húsinu á Sauðárkróki, þar sem rúm- lega 300 áhorfendur fylgdust með leiknum, sem hófst með orgelleik og leikmannakynningum að hætti þeirra NBA manna með tilheyrandi ljósasýningu og látum. En snúum okkur að leiknum. Það er skemmst frá því að segja að ford sigraði Sunderland 2-0, OPR og Man. Utd. gerðu jafntefli 2-2 eftir framlengdan leik og Reading sigraði Tranmere 2-1. í fjórðu umferð mætir West Ham liði Swindon, Everton fertil Plymouth, Oxford leikur gegn sigurvegaran- um úr leik OPR og Man. Utd og Reading fer til Grimsby. reuter Molduxar voru eins og naut í flagi og tóku forystu í leiknum. Með yfirveguðu spili tókst norðanmönn- um að halda hinum reyndu úrvals- deildarleikmönnum niðri. Sýndu Molduxar oft á tíðum mjög skemmtilegan leik og fylgdist ÍR liðið með þessum atgangi sem hluti af áhorfendum á köflum og var greinilegt að Molduxarnir höfðu snætt uxahalasúpu í ríkum mæli. Að lokum höfðu þó iR-ingar sigur sem verður að teljast sanngjarn. Stigaskor var sem hér segir. Hjá þeim Molduxum: Alfreð Guðmundsson 15, Jón Jósepsson 15, Guðmundur Sverrisson 12, Hall- dór Halldórsson 8, Óttar Bjamason 4, Geir Eyjólfsson 4 og Magnús Einarsson 4. Fyrir sunnanmenn: Sturla Örlygs- son 22, Jón Örn Guðmundsson 12, Gunnar Þorsteinsson 11, Bragi Reynisson 11, Björn Leósson 10, Pétur Hólmsteinsson 8 og Eiríkur Guðmundsson 6. Þá er vert að geta ungs og efnilegs nýliða Gunnars Sverrissonar sem lék sinn fyrsta mfl. leik, skoraði ekki stigen átti snilldar- leik í vörn. Leikinn dæmdu þeir Guðbrandur Stefánsson og Indriðið Jósafatsson og gerðu það vel. -PS/BL Enska bikarkeppnin 3. umferð: Arsenal úr leik

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.