Tíminn - 04.02.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 4. febrúar 1989
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR Ml,;, i',l, l,j; ............................... Mi., 'iU JH, 'V,i,'; n:, V,I::^n,'i',1 /T„,/,i;
íþrótta-
viðburðir
helgarinnar
Körfuknattleikur:
Laugardagur
1. deild karla kl. 14.00.
Borgarnes UMFS-Léttir
1. deild karla kl.15.30.
Borgarnes Snæfell-UMFL
1. deild karla kl.14.00.
Egilsstaðir UÍA-UBK
Sunnudagur
Flugleiðadeild kl.20.00.:
Höllin Akureyri Þór-KR
Grindavík UMFG-UMFT
Strandgata Haukar-UMFN
Keilavík ÍBK-ÍS
Seljaskóli ÍR-Valur
1. deild kvenna kl.21.30.
Grindavík UMFG-KR
1. deild kvenna kl.14.00.
Njarðvík UMFN-Haukar
1. deild kvenna kl.21.30.
Seljaskóli ÍR-fS
1. deild karla kl.20.30.
Hagaskóli Víkverji-Reynir
Fjölliðamót yngriflokka verða á
eftirtöldum stöðum:
Drengjaflokkur A í Hagaskóla
Drengjaflokkur B á Akureyri
8. flokkur A í Strandgötu Hafn.
8. flokkur B á Sauðárkróki
6. flokkur A í Keflavík
6. flokkur B ■ Sandgerði
Minnibolti 10 ára að Hlíðarenda
Tímamynd Pjetur.
Héðinn Gilsson skoraði 6 glæsileg mörk í leiknum gegn Norðmönnum í gærkvöld
Handknattleikur
Handknattleikur:
Laugardagur
1. deild kvenna kl.16.30.
Seljaskóli Víkingur-ÍBV
1. deild kvenna kl. 14.00.
Höllin Akureyri Þór-Valur
2. deild karla kl.14.00.
Seljaskóli ÍR-Haukar
2. deild karla kl.14.00.
Digranes HK-Þór
2. deild kvenna kl.16.30.
Digranes UBK-HK
3. deild karla kl 15.15.
Seljaskóli Þróttur-Völsungur
3. deild karla kl.15.15.
Digranes HK b-Víkingur b
EINS MARKS SIGUR
í LÉLEGUM LEIK
Sunnudagur
2. deild karla kl.14.00.
Keflavík ÍBK-ÍH
2. deild karla kl.14.00.
Selfoss Selfoss-Ármann
2. deild kvenna kl.15.15.
Seljaskóli KR-Grótta
2. deild kvenna kl. 16.30.
Seljaskóli Þróttur-Haukar b
2. deild kvenna kl.15.15.
Selfoss Selfoss-ÍR
2. deild kvenna kl.15.15.
Keflavík ÍBK-UMFA
3. deild karla kl.14.00.
Seljaskóli KR b-Völsungur
3. deild karla kl.14.00.
Vajsheimili Valur b-Grótta b
Blak:
Laugardagur
1. deild karla kl.16.00.
Neskaupstaður Þróttur N.-HK
1. deild kvenna kl.17.15.
Neskaupstaður Þróttur N.-HK
Badminton:
fslandsmótið í badminton fer fram
í Laugardalshöll um helgina. Keppni
hefst kl.10.00 í dag, en í fyrramáliö
kl.10.00 hefst keppni í undanúrslit-
um. Úrslitaleikirnir hefjast síðan
kl.14.00.
Frjálsar íþróttir:
Um helgina verður Meistaramót
fslands í flmmtarþraut haldið í
Reykjavík og á Laugarvatni. Keppn-
in hefst í dag kl.14.00. í Baldurshaga
og verður þá keppt í 50 m hlaupi og
50 m grindahlaupi karla og kvenna
og langstökki kvenna. Á morgunn
hefst keppni á Laugarvatni kl.14.00.
Keppt verður í kúluvarpi og hástökki
karla og kvenna og stangarstökki
karla.
Hann var ekki mikið fyrir augað
landsleikur fslendinga og Norð-
manna í Laugardalshöll í gærkvöld.
Lítið skor, hnoð og aftur hnoð og
áhorfendur fengu ekki að sjá rismik-
inn handknattleik. Þegar upp var
staðið hafði íslenska liðið sigur,
21-20, en allt eins hefði sigurinn geta
lent hjá Norðmönnum.
íslenska liðið byrjaði mcð sömu
ládeyðu og í leiknum í fyrrakvöld.
Norðmenn. með Rune Erland í
fararbroddi, gerðu 3 fyrstu mörkin,
en um síðir tókst okkar mönnum að
jafna 3-3. Þá var komið að Norð-
Skíði. Á öskudaginn, sem er
næsta miðvikudag, verður efnt til
skíðamóts grunnskóla sem aðild eiga
að skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Slíkt
mót var haldið í fyrsta sinn í fyrra og
var þátttaka það góð að ákveðið var
að framhald yrði á í ár. Öllum
skólum á Reykjavíkur og Reykja-
nessvæðinu hafa verið sendir þátt-
tökulistar. Fyrirkomulag keppninn-
ar verður þannig að keppt verður í
einstaklingskeppni í svigi í brautum
með ýmsum þrautum, 1-2 umferðir
eftir þátttöku. Skráning keppenda
er á skrifstofum skólanna eða hjá
íþróttakennurum. Keppt verður í
tveimur aldursflokkum pilta og
stúlkna. Mæting keppenda er við
Bláfjallaskála kl. 11.30 á öskudag.
Verðlaunaafhending verður um
kl. 17.00 við Bláfjallaskálann. Þá má
geta þess að í tilefni dagsins verður
kötturinn sleginn úr tunnunni af
skíðamönnunum.
mönnum sem gerðu næstu 3 mörk og
breyttu stöðunni í 3-6. fslendingar
náðu ekki að jafna metin fyrr en rétt
fyrir hlé að Valdimar Grímsson
gerði 9. mark íslands. Hann var þá
nýkominn inná og gerði strax 3 mörk
í röð. íslendingar áttu síðustu sókn-
ina í hálfleiknum og þegar 5 sek.
voru til leikhlés tók Geir Sveinsson
hornkast. Hann gaf sendingu inní
vítateig Norðmanna á Héðin Gilsson
sem þar kom svífandi og skoraði 10.
mark íslands. Staðan var því 10-9
þegar gengið var til búningsher-
bergja.
Héðinn Gilsson fór á kostum í
upphafi síðari hálfleiks og gerði þá 3
mörk á stuttum tíma. íslendingar
komust yfir, 12-10, en Norðmenn
náðu að jafna, 13-13. Aftur var
jafnt, 14-14, en þá kom góður kafli
hjá íslenska liðinu sent breytti stöð-
unni í 18-14. Þar voru þeir að verki
í sókninni Guðmundur Guðmunds-
son og Sigurður Gunnarsson. Norð-
menn minnkuðu ntuninn í 18-16, en
Sigurður Sveinsson svaraði úr víta-
kasti, 19-16. Næstu 3 mörk voru
norsk og því á ný orðið jafnt, 19-19.
Sigurður Gunnarsson kom íslenska
liðinu aftur yfir með góðu marki, en
Norðmenn náðu að jafna með marki
Rune Erland. íslenska liðið hóf
sókn þegar innan við mínúta var til
leiksloka og þegar 11 sek. voru eftir
braust Kristján Arason í gegn og
skoraði sigurmark íslands í leiknum.
Norðmenn áttu þó síðasta skotið, en
Einar Þorvarðarson varði.
Sigur íslands í leiknum verður
varla talinn sanngjarn, jafntefli hefði
verið öllu nær lagi. Leikur íslenska
liðsins var alltof köflóttur og oft var
mikið fum á mönnum í sóknarleikn-
um. Kristján Arason varmjögslakur
að þessu sinni í sókninni, en stóð sig
vel í vörninni að vanda. Kristján
bætti þó mikið fyrir með því að
skora sigurmarkið. Héðinn Gilsson
átti góðan leik, en skaut fulloft
framhjá. Valdimar Grímsson kom
inná fullur af sjálfstrausti og gerði
mjög góða hluti. Einnig Sigurður
Gunnarsson, en hann virkaði
óöruggur og missti boltann nokkrum
sinnum klaufalega. Hornamennirnir
Jakob og Guðmundur stóðu sig vel,
Jakob varð að fara af leikvelli í
síðari hálfleik, eftir að hafa orðið
fyrir hnjaski. Guðmundur tók stöðu
hans og lék af öryggi. Einar Þorvarð-
arson stóð í markinu nær allan
tímann og varði 9 skot.
Hjá Norðmönnum var Rune Er-
land bestur eins og í fyrrakvöld, en
liðið virkar jafnt og til alls líklegt.
Maður hafði þó á tilfinningunni að
íslenska liðið væri mun sterkara,
liðið sýndi góða leikkafla en datt
niður þess á milli.
Útkoman úr leikjunum við Norð-
menn sýna að ástæða er til að óttast
útkomuna úr B-keppninni. Ef liðið
nær ekki betri einbeitingu og dettur
jafn niikið niður og í leikjunum gegn
Norðmönnum, verður liðið í vand-
ræðum með B-þjóðirnar eins og svo
oft áður. Undirritaður er þó á því að
þegar til kastanna kemur og virki-
lega á reynir, þá muni strákarnir
standa sig og ná einu af sætunum
sem skipar okkur á ný meðal A-
þjóða. Það er líka öllu skemmtilegra
að vinna sér sæti í A-keppninni en
að fá það á silfurfati vegna heimasetu
ákveðinna þjóða. Þótt að veganestið
sé ekki ljúft í pokann fyrir Frakk-
landsferðina, þá er það góð áminn-
ing um að hvergi má slaka á ef góður
árangur á að nást.
Dómarar í leiknum í gær voru þeir
sömu og í fyrri leiknum og sjóndepra
þeirra hafði lítið lagast.
Mörkin; Island: Héðinn 6, Sigurð-
ur Gunn. 4, Valdimar 4, Guðmund-
ur 2, Kristján 2/1, Jakob 1 og
Sigurður Sv. 1/1. Rune Erland gerði
flest mörk Norðmanna 9/4. BL
Pflukast. íslenska landsliðið í
pílukasti er nú á keppnisferðalagi í
Svíþjóð og Danmörku og er þetta í
fyrsta sinn sem 8 manna landslið í
greininni fer utan til keppni. Leiknir
verða landsleikir við Svía og Dani og
eru það fyrstu landsleikir íslands í
greininni. Þá verður einnig keppt
við pílukastara í Malmö og Hels-
ingjaborg. Eftirtaldir pílukastarar
skipa landsliðið: Pétur Hauksson,
Guðjón Hauksson, Kristinn Krist-
insson, Óskar Þórmundsson, Ægir
Ágústsson, Tómas Bartlett, Emil
Þór Emilsson og Gunnar Schram.
London. Graham Taylor fram-
kvæmdastjóri Aston Villa tók upp
pyngjuna á fimmtudaginn og keypti
tvo nýja leikmenn. Taylor borgaði
Bradford City 650 þúsund pund fyrir
Ian Ormondroyd og Derby County
500 þúsund pund fyrir Nigel Callag-
han. í staðinn seldi Taylor Andy
Gray til QPR fyrir 425 þúsund pund.
Þeir Ormondroyd og Callaghan
verða báðir með Villa liðinu í leikn-
um gegn Sheffield Wednesday í dag.
Terry Yorath framkvæmdastjóri
Swansea lét af störfum á fimmtudag-
inn og búist er við að hann taki við
stjómtaumunum hjá sínu gamla fé-
lagi Bradford.