Tíminn - 04.02.1989, Síða 11
Laugardagur 4. febrúar 1989
rv'
Tíminn 23
UTLOND
Þaulsætnasti haröstjóri Rómönsku Ameríku fallinn:
Stroessner steypt af
valdastóli í Paraguay
Alfredo Stroessner sem ríkt hefur með harðri hendi í
Paraguay síðastliðin 34 ár var steypt af stóli í fyrrinótt. Það
var herforinginn Andres Rodriguez sem leiddi byltinguna
sem gerð var af stórum hluta hersins og andófsmönnum
innan stjórnarflokks Stroessners. Rodriguez sór embættis-
eið sinn sem forseti um eftirmiðdaginn í gær.
Hermenn undir stjóm Andres Rodriguez herforingja steyptu Stroessner af stóli í Paraguay.
Þúsundir manna flykktust syngj-
andi og dansandi út á göturnar
þegar ljóst var að harðstjórinn
hafði gefist upp fyrir herliði Rodri-
guez sem nú hefur tekið tímabund-
ið við stjórn landsins.
Hins vegar höfðu ekki allir tæki-
færi til að dansa því að minnsta
kosti tólf manns féllu í átökum
milli hermanna hollra Stroessner
og hermanna sem veltu honum af
stóli. Orðrómur hefur verið á
kreiki um að rúmlega hundrað
manns hafi látist í byltingunni, en
herinn þvertók fyrir að svo mikið
mannfall hafi orðið.
Stroessner var hafður í haldi í
búðum hersins í höfuðborginni As-
uncion, en honum var gefinn sól-
arhrings frestur að pakka saman
föggum sínum og halda í útlegð til
nágrannaríkisins Chile þar sem
annar hægrisinnaður harðstjóri,
Augusto Pinochet hershöfðingi,
hefur ríkt undanfarin ár.
Viðbrögð Bandaríkjamanna og
ríkja Rómönsku Ameríku við bylt-
ingunni hafa verið jákvæð enda
boðaði Rodriguez aukið lýðræði í
kjölfar byltingarinnar.
Stroessner hefur ríkt af mikilli
hörku þessi 34 ár sem hann hefur
verið við völd í Paraguay og hefur
flokkur hans, Coloradoflokkurinn,
verið eini leyfilegi stjórnmála-
Alfredo Stroessner var steypt af
stóli í fyrrinótt eftir 34 ára valda-
tíma þar sem stjómunaraðferðir
hans vora yfirleitt með harkaleg-
asta móti.
flokkur landsins. Hins vegar klofn-
aði flokkurinn á síðastliðnu hausti,
annars vegar í svokallaða hernað-
arsinna sem vildu að herinn stjórn-
aði landinu og hins vegar í svokall-
aða íhaldsmenn sem vildu borgara-
lega stjórn og margir hverjir stór-
aukið lýðræði.
Rodriguez mun að líkindum
gegna forsetaembættinu til bráða-
birgða næstu þrjá mánuði, en þá er
gert ráð fyrir að Coloradoflokkur-
inn velji mann til að gegna forseta-
embættinu út fimm ára kjörtímabil
Stroessners, en því lýkur 1993.
Talið er að Stroessner hafi ætlað
að setja Andres Rodriguez af sem
hershöðingja á næstu dögum þar
sem Rodriguez hafði ekki tekið
opinbera afstöðu með Stroessner
og stuðningsmönnum hans sem
hugðust dubba elsta son Stroess-
ners upp í forsetaembættið þegar
sá gamli væri orðinn of veikburða.
Því voru íhaldsmenn algerlega
mótfallnir og virðast þeir styðja
heilshugar við bak Rodriguez.
Þess má geta að dóttir Rodri-
guez, sem leiddi byltinguna, er gift
yngsta syni Stroessners.
ÞÚSUNDRÚSSAR
EFTIR í KABÚL
Vel fer á með Frökkum og Indverjum nú
er Mitterrand heimsækir Indland:
Hyggja á samstarf
í kjarnorkumálum
Nú eru aðeins um fimmtán hundr-
uð sovéskir hermenn eftir í Kabúl,
höfuðborg Afganistans, og munu
þeir fljúga heim til Sovétríkjanna
fyrir 15. febrúar. Stór herflutninga-
lest hélt frá Kabúl í fyrrinótt áleiðis
heim til Sovétríkjanna. Er gert ráð
fyrir að hersveitirnar verði komnar
til Úbekistans á þriðjudag ef veður
og árásir skæruliða hamla ekki för,
en stórhríð ríkti er herflutningalestin
hélt út í sortann.
Sovéskir hermenn í herflutninga-
lestinni skýrðu fréttamönnum frá
því að sovéskar hersveitir, sem enn
eru á svæðinu kringum Kabúl,
ÚTLÖ
UMSJÓN:
Maqnússon
BLAÐAMAÐ
myndu safnast saman við þjóðveginn
70 km norður af Kabúl áður en lagt
væri á brattann við Salang skarðið,
en það liggur í 3600 metra hæð.
Við Salang skarðið eru margir
staðir sem ákjósanlegir eru til laun-
sáturs og er greinilegt að Sovétmenn
eru smeykir um að lenda í bardögum
við skæruliða þar. Reyndar hafa
Sovétmenn undanfarna daga lagt
fjölda þorpa á þeim slóðum í rúst
með loftárásum og stórskotaliðs-
hríð, eflaust með það í huga að
tryggja öryggi hersveitanna sem eru
á heimleið.
Þeir hermenn sem enn eru eftir í
Kabúl eru flestir við gæslustörf við
flugvöllinn, en þeir munu afhenda
Afgönum flugvöllinn innan skamms
og fljúga heim til Sovétríkjanna.
Um fjörutíu vestrænir fréttamenn
eru nú í norðurhluta Afganistans og
í Kabúl til að fylgjast með brottflutn-
ingi sovéskra hermanna. Blaðamað-
ur franska dagblaðsins L'Expressa
var skotinn í fótinn í Kabúl í gær.
Hann var á ferð með Ijósmyndara
sem tók mynd af sovéskum her-
mönnum sem voru að versla við
Afgana. Það fór í skapið á her-
mönnunum sem hófu skothríð í
jörðina, en ein kúlan lenti í fót
mannsins cins og áður er getið.
Frakkar eru reiðubúnir til að
hjálpa Indverjum við uppbyggingu
kjarnorkuvera til raforkufram-
leiðslu, en vilja fá tryggingu fyrir því
að kjarnorkan verði eingöngu notuð
í friðsamlegum tilgangi. Þetta kom
fram í máli Frangois Mitterrands
Frakklandsforseta en hann er í opin-
berri heimsókn í Indlandi.
- Við neitum að taka þátt í við-
ræðum um uppbyggingu sem gefur
möguleika á framleiðslu kjarna-
vopna, sagði Mitterrand á blaða-
mannafundi í Bombay í gær á síðasta
degi heimsóknar sinnar.
- Það er okkar skilyrði að öryggis-
atriðum sé fylgt út í ystu æsar, sagði
Mitterrand einnig.
Líkur eru á að þessi tvö ríki geri
samning um byggingu tveggja kjarn-
orkuvera á Indlandi. Það er þó ekki
frágengið og sagði Mitterrand ýmis
atriði enn vera í veginum.
Indverjar gangsettu kjarnakljúf
árið 1974 og segjast ekki hafa þróað.
og smíðað kjarnavopn. Hins vegar
hafa þeir ekki viljað undirrita samn-
ing sem kveður á um að kjarnavopn-
um verði ekki beitt.
Frakkar og Indverjar undirrituðu
samstarfssamninga á sviði líftækni-
iðnaðar, ýmiskonar vísindastarfsemi
og lyfjaþróunar á meðan á heimsókn
Mitterrands stóð, en ekki var gert
neitt samkomulag um kjarnorkuver.
Heróínfylltir menn
frá Nígeríu gripnir
Tuttugu og einn Nígeríumaður
liggur nú í strangri öryggisgæslu á
sjúkrahúsi í Róm eftir að tollayfir-
völd tóku mennina höndum grun-
aða um að hafa gleypt þrjú kíló af
heróíni.
Tollverðir stöðvuðu Nígeríu-
mennina eftir vísbendingu frá
starfsmönnum ítalska flugfélagsins
Alitalia sem skýrðu frá því að
nokkrir farþegar hefðu í tvígang
neitað mat á leiðinni frá Karachi til
Rómar, en þeir voru á leið til
Lagos.
Lögreglan handtók Nígeríu-
mennina á flugvellinum í Róm þar
sem þeir biðu flugs til Lagos vegna
þess að sumir þeirra voru rauð-
eygðir og með útblásna maga.
Lögreglan sagði að röntgen-
myndir sýndu að eitthvað undar-
legt væri að velkjast í maga sumra
mannanna.