Tíminn - 07.02.1989, Blaðsíða 1
Haukarunnu
Njarðvíkinga
íFirðinum
I Blaðsíður 10 og 11
Hraktir ferða-
langar víða um
landí óveðrinu
• Baksíða
Einvígi Jóhanns
og Karpovs lauk
meðsigriKarpovs
• Blaðsíða 2
afiiHimi
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
kynnti nýjar efnahagsaðgerðir á Alþingi í gær
Lítil gengisfelling og
lækkun raunvaxta
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra kynnti
nýjar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar á Alþingi í
gær. Þar var kveðið á um gengisfellingu um 2,5 af
hundraði og Seðlabanka heimilað að láta gengið síga
um annað eins á næstu mánuðum.
Raunvaxtalækkun verður á ríkisskuldabréfum nið-
ur í 5 prósent og er það vilji ríkisstjórnarinnar að
þessi lækkun verði til viðmiðunar hvað aðrar vaxta-
ákvarðanir áhrærir.
Næstu sex mánuðir verði umþóttunartími, að aflok-
inni verðstöðvun, þar sem fylgst verður grannt með
verðþróun í einstökum greinum og viðurlögum beitt
ef um óeðlilegar hækkanir verður að ræða.
• Blaðsíður 4 og 5
Borgarar í stjórn
I
Ailt útlit er nú fyrir að fimm af sjö þingmönnum
Borgaraflokks muni ganga tii liðs við stjórnar-
flokkana. Tíminn hefur fyrir því öruggar heimiidir
að borgarafiokksmenn séu komnir með annan
fótinn í ríkisstjórn. Ekki mun lengur vera um að
ræða ágreining hvað varðar málefni, heldur deili
menn nú um orðalag í væntanlegum málefna-
samningi.
Ekki er Ijóst hvenær smiðshöggið verður rekið
á stjórnarmyndunarviðræður, en Ijóst er að það
verður bráðlega. ^
• Baksiða