Tíminn - 07.02.1989, Page 2

Tíminn - 07.02.1989, Page 2
2 Tíminn Þriðjudagur 7. febrúar.1989 Mjög djúp lægð torveldaði samgöngur á landinu á sunnudag og í gær: Hrakningar í illviðri Óvenju djúp um 930 millibara lægð, sem gekk yfir landið um helgina, gerði víða allmikinn usla og olli miklum vandræðum. Hún dýpkaði mest á sunnudaginn þegar hún fór meðfram suð-austur ströndinni og gekk yfir Vestmannaeyjar. Lægðin var í gær komin norð-austur fyrir landið en skildi eftir sig lægðardrag. Ekki láta allir óveðrið aftra sér við útiveruna eins og þessi mynd sem tekin var í sundlaugunum í Laugarda! ber með Ser. Tímamynd: Ámi Bjarna í gær vorum við stödd í vesturj aðri þessa drags eins og éljagangurinn bar vitni. Með kvöldinu í kvöld fer veðrið skánandi en upp úr fimmtu- degi megum við búast við annarri Sægð. Þrjú skip fengu á sig brot og I Leitað að fertugum karlmanni Mikil leit var gerð að 41 árs gömlum manni í Þorlákshöfn og í grennd við bæinn í gærkvöldi. Maðurinn heitir Þorvaldur Elís- son. Ekkert hafði spurst til mannsins frá því klukkan 15 á sunnudag. Hafði hann ætlað á bíl sínum til Stokkseyrar en fest bílinn í skafli og yfirgefið hann. ÍFékk hann far með bíl til baka og síðan hefur ekki spurst frekar til hans. ; Maðurinn var ekki vel i klæddur, í svörtum buxunt og i spariskóm, íklæddurgráyrjóttum * iakka. Lögreglan í Árnessýslu biður alla þá er veitt geta upplýs- í ingar, að hafa samband við lög- Í reglu. L___________________ misstu út björgunarbáta um helgina. Þórhallur Daníelsson frá Þorláks- höfn fékk á sig brot út af Austfjörð- um með þeim afleiðingum að gúm- björgunarbátur slitnaði úr festing- um. Sama kom fyrir Sjóla frá Hafn- arfirði sem einnig var á veiðum úti fyrir Austfjörðum en sá björgunar- bátur fannst aftur. Þá missti græn- lenskur togari björgunarbát frá sér, skammt vestur af Látrabjargi. Björgunarsveitir landsins stóðu einnig í ströngu. í Reykjavík rétti Hjálparsveit skáta lögreglunni hendi við að aðstoða borgarbúa sem sátu fastir í bílum sínum. Mikið var um að fólk tefðist vegna veðurs frá sunnudegi til mánudags á hinum ýmsu stöðum landsins. Til að mynda var hópur unglinga veður- tepptur á Úlfljótsvatni. Björgunar- sveitirnar selfluttu fólkið frá Úlf- Ijótsvatni til írafoss þar sem rúta tók á móti þeim og flutti í bæinn í gærmorgun. Fjörutíu manns lögðu af stað frá Hvolsvelli á laugardag en komust ekki lengra en til Hellu þar sem þeir þurftu að gista. Ferðalangarnir gátu haldið áfram förinni snemma í gærmorgun. Ríflega sjötíu manns eyddu nótt- inni í Herjólfi frá sunnudegi til mánudags í Þorlákshöfn. Skipið lagði af stað til eyja rétt fyrir þrjú í gærdag. Lögreglan í Vestmannaeyj- um sagði að á sunnudaginn hefði verið stanslaus stormur, eða 15 vindstig. Á nokkrum stöðum fuku steinar á rúður húsa og brutu þær en annað teljandi tjón varð ekki. Held- ur hafði veðurofsann lægt í gær og var vindurinn að sögn kominn niður í 8 eða 9 vindstig. Rúta með nemendur úr Iðn- skólanum í Reykjavík lenti í hrakn- ingum á Holtavörðuheiði og hafði hópurinn nokkur fjarvistarstig upp úr krafsinu. Hjá lögreglunni í Borg- arfirði fengust þær upplýsingar að hópur unglinga á vegum KFUM og -K hefði verið veðurtepptur í skálan- um Ölveri en þau voru sótt í gær- morgun og væsti ekki um þau. Um fjörutíu jeppaferðalangar sem gist höfðu í Þórsmörk festu bílana rétt sunnan við jökullónið á leiðinni til baka. Fólkið hélt til í bílunum heilan sólarhring. Hjá lög- reglunni á Hvolsvelli fengust þær upplýsingar að Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Björgunarsveit Slysa- varnadeildar Hvolsvallar hefðu farið um hádegi í gær með bíla og snjó- sleða til bjargar fólkinu. Það átti að selflytja til Hvolsvallar og var búist við að því yrði lokið um kvöldmatar- leytið í gær en bílana, sem voru tólf til fimmtán talsins, þurfti alla að skilja eftir. Rúta frá Landleiðum betur þekkt undir nafninu Hafnarfjarðarstrætó fór í gær út af Hafnarfjarðarvegi við Silfurtúnið. Þá fór einnig olíubíll út af veginum. Þegar Tíminn hafði samband við lögregluna í Hafnar- firði gátu þeir engar frekari upplýs- ingar gefið um málið og sögðu það reyndar ekki vera innan síns verka- hrings, þeir hefðu nóg að gera við að hjálpa til við litla bíla sem sætu fastir út um allt. Lögreglan í Reykjavík sagði að umferðin hefði gengið treglega í gær og austur-hluti borgarinnar hefði verið ófær. Snjóþyngslunum var þó ekki einum um að kenna heldur einnig því að í dimmustu éljunum sást ekki út úr augum og bílar sem á annað borð stoppuðu náðu sér ekki af stað aftur og tepptu umferðina. Engin meiriháttar óhöpp urðu þó, hvorki á bílum né fólki sem Tíminn hafði spurnir af í gær. jkb Jóhann tapaði 1,5-3,5 í fyrrinótt var fimmta og síðasta • ..ikin íeinvíginu.Jóhann Hjartar- i) gegn Anatoly Karpov tefld. rirhugaðar voru sex skákir í þ ssu einvígi, en þar sem Karpov ’• ggði sér 3'Á vinning nteð jafn- t 'flinu í fimmtu skákinni var ein- , þnu lokið. Eflaust munu Jóhann og hinir islensku stórmeistararnir búa lengi þeirri reynslu sem einvígi sem ; tta gefur. Þeir hafa nú kynnst því hvernig er að tefla við mann scm hélt heimsmeistaratitlinum í 1 ,ik í ellefu ár og hefur teflt mjög mórg einvígi. Það kont enda á d .ginn að í byrjun var Karpov W'irleitt á undan að koma Jóhanni . >vart. 'Þetta leiddi svo af sér að íohann þurfti að eyða miklum tiTia og orku á fyrstu leikina. H agsanlega er það svo ástæða þess Jóhann tefldi verr í miðtaflinu hann á að sér. Hinu má samt ,i gleyma að Karpov sem skák- ,ður er að öllum líkindum næst- kasti ef ekki sá sterkasti í öllum minum. Og að hann og Kaspar- hafa mikla yfirburði yfir þá sem na næstir að ELO stigum. Þetta vígi staðfesti þetta álit enn i tur. óhann er enn ungur að árum og v. má segja að það hafi verið í óláni að lenda á Karpov í átta nna úrslitum. Lán að því er ðar reynslu og þekkingu sem vígi við Karpov gefur. Ólánið hins vegar að alla hina skák- nnina sem komust í átta manna lit þ.e. Portisch, Timman, >rt, Speelman, Jusupov og aggett hefði Jóhann vel getað , að. g er viss um að Jóhann á eftir ná lengra í skákinni, kannski i alveg á toppinn, en hann verður þar í grenndinni. Og hver veit Itvað getur gerst ef lánið verður með honum. Hvað Karpov varðar, bera fæst orð minnsta ábyrgð. Maðurinn er ótrúlegur. í skáksögunni verða nokkrir kaflar helgaðir hans tíma. Og ég tel næsta víst að hann fari alla leið í heimsmeistaraeinvígi við Kasparov. Um úrslit í því einvígi vil ég ekki spá nú, en geta Karpovs er síst lakari nú en hún var áður en Kasparov vann af honum titilinn í hörkueinvígi. Að því er varðar þessar tvær lokaskákir sem tefldar voru um helgina má segja að þær hafi verið eins og svart og hvítt. Fjórða skákin sem tefld var að- faranótt laugardagsins var mjög daufleg og eftir níu leiki var strax farið að spá jafntefli sem varð raunin eftir 39 leiki. Fimmtaskákin var hins vegar fjörleg og full af möguleikum á báða bóga. Staða Jóhanns var vænleg en snilldarleg drottningarfórn Karpovs tryggði honum jafntefli. Lítum á skákirnar. Fjórða einvígisskákin Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Jóhann Hjartarson Móttekið drottningarbragð 1. Rf3-Rf6. 2. c4-e6. 3. Rc3-d5. 4. d4-dxc4. Jóhann hefur ekki beitt þessari byrjun mikið og vafalaust hefur þetta komið Karpov á óvart. Karp- ov tekur því enga áhættu og teflir ákaflega varfærnislega. 5. e3-a6. 6. a4-c5. 7. Bxc4-Rc6. 8. 0-0-Be7. 9. dxc5. Eftir þennan leik Karpovs er nánast allt líf úr stöðunni, það er Ólafur Helqi Árnason SKÁKSKÝRANDI auðvitað Karpov í hag. En Jóhann hefur varla möguleika á að flækja þetta tafl eitthvað 9. - Dxdl. 10. Hxdl-Bxc5. 11. Bd2. Hugsanlega var betra að leika b3 og leika biskupnum svo á b2. 11. -b6! Jóhann kemur í veg fyrir að hvítur geti leikið a5. Peð hvíts á a4 stendur illa, og í framhaldinu snýst allt um það og reitinn b4. 12. Hacl-Bb7. 13. Ra2. Karpov finnst sitt tafl of þröngt og virðist ætla að leika b4 til að losa um sig. En af einhverjum ástæðum hættir hann við það. 13. - 0-0. 14. Bel-a5. Kemur í veg fyrir b4. 15. Rc3-Hfd8. 16. Kfl-Kf8. 17. Bb5- Hxdl. 18. Hxdl-Ke7. 19. h3-h6.20. Rd2-Hd8.21. Hcl-Rb4. Svarta staðan er þægilegri. Nú hótar svartur að koma riddara á d3 og ná með því uppskiptum á hvít- reita biskup hvfts. Ef hvítur leyfði þetta fengi svartur mikið betra tafl. 22. Rb3-Bd6. 23. Rd4-Hc8. 24. Rce2-Hxcl. 25. Rxcl-Rfd5. 26. Bc4-Be5. 27. Rcb3-Rc6. 28. Bd2- Rxd4. 29. Rxd4-Bxd4. 30. exd4- Kd7. 31. Ke2-Bc6. 32. Bb3-Re7. 33. f3-Rf5. 34. Bc3-g5 35. Bc2- Re7. 36. Bd2-Rd5. 37. h4-f6. 38. g3-Re7. Þá loks kemur sá leikur sem Karpov undirbjó í 13. leik. 29. b4-Rf5. Jafntefli samið. Eftir Bxf5 eru komnir upp mislitir biskupar „misl- ingar“ sem leiða til jafnteflis. Fimmta einvígisskákin Hvítt: Jóhann Hjartarson. Svart: Anatony Karpov. Spænskur leikur I. e4-e5. 2. Rf3-Rc6. 3. Bb5-a6. 4. Ba4-Rf6. 5. 0-0-Be7. 6. Hel-b5. 7. Bb3-d6. 8. c3-0-0. 9. h3-He8. 10. d4-Bb7. 11. a4. Jóhann velur hér hvassari leið í þriðju skákinni en hann lék a3. Nú á að láta sverfa til stáls. En hér líkt og endranær er ekki komið að tómum kofanum hjá Karpov. II. - h6. 12. Rbd2-Bf8. 13. Bc2- exd4.14. cxd4-Rb4.15. Bbl-bxa4. Karpov vill ekki sjá hvað Jóha.nn hefur í pokahorninu eftir 15. - c5 sem er nú algengast. 16. Hxa4-a5. 17. Ha3. Hrókurinn stendur ágætlega þarna. Hægt er að renna honum í sóknina eftir þriðju reitaröðinni og einnig styður hann við miðborðs- peðin. 17. - Ha6. 18. Rh2-g6. 19. tRg4- Rxg4. 20.Dxg4. Hugsanlega hefði verið betra að drepa meðh-peðinu. A.m.k. hefðu fleiri möguleikar opnast. Sá leikur hefði einnig komið í veg fyrir næsta leik svarts. 20. - c5!. Nú er ekki unnt að leika d5 því e-peðið er leppur. Ef drottningin stæði enn á dl væri hrókurinn valdaður sbr. næsta leik á undan. 21. dxc5-dxc5. 22. e5-Dd4. 23. Dg3. Jóhann vill halda sem mestu liði á borðinu og fer því ekki í drottn- ingarkaup. 23. - Hae6. 24. Hae3-c4. 25. Bf5. Nú virðist hvíta staðan mjög ógnandi. Eftir t.d Hbe7 kæmi e6 og svarta staðan væri afar viðsjár- verð svo ekki sé meira sagt. En Karpov hefur séð lengra. 25. - Rd3. Nú gengur ekki að drepa á e6. Því eftir 26. Hxe6 stendur á hrókn- um á dl. Eftir t.d. 27. RD-Bxf3. 28. Dxf3-Rxdl. 29. Hxdl fellur peðið á e5 óbætt. 26.. Bxd3-cxd3. 27. Hxd3. 1 A A Er Jóhann að ná peði? Það virðist vera en þá kemur snilldin. Karpov hirðir eigi um drottninguna, og skil- ur hana eftir í dauðanum. 27. - Hxe5!! 28. Hxd4-Hxelt. 29. Kh2-Hxcl. Karpov hefur hrók og mann fyrir drottningu. Stöðumat hans segir að það dugi. Og matið bregst honum eigi. 30. RD-Hc5. 31. Hd7-BxD. 32. DxD-Hf5. Hér bauð Jóhann jafntefli, sem Karpov þáði samstundis og þar með hafði hann sigrað í einvíginu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.