Tíminn - 07.02.1989, Page 3
,r/ i.-. , i /
Þriöjudagur 7. fébrúar 1989
v.r.V, s
Tíminn 3
Frá blaðamannafundinum í gær. Á myndinni má sjá stærstan hluta Samstarfsnefndar Visa fsland og Félags íslenskra ferðaskrifstofa. Tímamynd Ámi Bjama.
Visa fsland og Félag íslenskra feröaskrifstofa gefa út FARKORT á sviði
ferðalaga og lífsnautna:
Opnar fyrir félags-
bundin greiðslukort
Nú hefur verið stigið fyrsta skrefið hjá Visa ísland til að
opna fyrir útgáfu félags- og samtakakorta, en tilkynnt var
formlega í gær frá Farkortinu sem væntanlegt er á næstu
mánuðum. Farkort verður gefið út af Visa ísland í samstarfi
við Félag ísienskra ferðaskrifstofa (FÍF) og viðkomandi
viðskiptabanka. Tíminn greindi frá þessu korti í laugardagsbl-
aði sínu og var haldinn blaðamannafundur í gær til að
staðfesta fréttir af þessu samstarfi FÍF og Visa.
Farkort er gefið út að fyrirmynd
„affinity card“, eða fríðindakorta,
sem þekkst hafa í Bandaríkjunum í
um tveggja ára skeið. Þar þekkist að
félög og samtök standi að slíkri
útgáfu í samstarfi við viðkomandi
viðskiptabanka Visa. í þeim tilfell-
um rennur árgjald fríðindakortsins
sem framlag til viðkomandi félags og
einnig er þekkt að sérstakt gjald sé
lagt á hverja úttekt til styrktar við-
komandi félagi. Þannig getur fríð-
indakort þjónað sem klúbbkort eða
kort fyrir styrktarmeðlimi félags. í
þessum tilfellum geta greiðslukortin
orðið allmörg í seðlaveskjum neyt-
enda. T.d. mætti sjá fyrir sér
skákkort, óperukort, leikkort eða
líknkort. í samningi FÍF og Visa ,
ráð ^,,nr oA hlnti órítiolrlci,
renni
ort. I samnmgi FIF og Visa er
ráð fyrir að hluti árgjaldsins
til FlF.
Stuðningur
við V.S.
Starfsmannafélög Kópavogs,
Hafnarfjarðar, Selfoss og Félag
opinberra starfsmanna á Suður-
landi hafa lýst yfir fullum stuðn-
ingi við Verslunarmannafélag
Suðurnesja í deilu þess við Flug-
leiðir.
Þetta var samþykkt á sameigin-
legum fundi bæjarstarfsmanna-
félaganna sem haldinn var í Hafn-
arfirði nýverið.
I ályktuninni segir „félögin
fordæma óbilgirni Flugleiða og
vara við afleiðingum þess að
málssókn þessari verði haldið til
streitu".
Þegar hafa ASÍ og BSRB sam-
þykkt svipaðar ályktanir en hjá
Flugleiðum er engrar stefnu-
breytingar að vænta. jkb
A sviði lífsnautna
Fríðindakort FÍF og Visa mun
veita öll sömu réttindi og almenn
Visakort um heim allan. Til viðbótar
mun handhöfum Farkortsins bjóðast
ýmis hlunnindi á sviði ferðalaga,
skemmtana og lífsnautna. Handhafi
Farkorts verður sjálfkrafa féiagi í
Farklúbbi FÍF. Þar með er m.a.
tryggður aðgangur að sérstöku
bónuskerfi, sveigjanlegri greiðslu-
kjörum, einstökum ferðatilboðum,
afslætti í skoðunarferðum og á veit-
ingastöðum og áskrift að fríu ferða-
blaði. Erþessi flokkur fríðindakorta
þekktur erlendis og gengur undir
heitinu Travel and entertainment
card. Þannig var t.d. upphaflegt
notagildi American Express, sem
þróast hefur í vinsælt alhliða
greiðslukort.
Aukagjöld
Til að öðlast þessi fríðindi þarf
stofnfélagi að greiða stofngjald
(1.200 kr.) og árgjald (2.800 kr.). Sé
hann hins vegar þegar handhafi
Visakorts þarf hann að greiða hálft
stofngjald en árgjaldið hækkar.
Gullkorthafar öðlast sjálfkrafa öll
réttindi sem Farkortið býður uppá
án þess að bætt sé við árgjaldið,
enda er það helmingi hærra en á
almennu korti. Að sögn Einars S.
Einarssonar, framkvæmdastjóra
Visa ísland, er alveg eins mælt með
því að menn hafi tvo til reiðar og eigi
bæði almennt Visa- og Farkort, til
öryggis á ferðalögum erlendis. Við-
komandi væri þá ekki strand þótt
annað kortið tapaðist. Sagði hann
ótrúlega algengt að greiðslukort
týndust og nefndi að um fimm þús-
und Visakort hefðu tapast á síðasta
ári.
95% ferðamarkaðsins
Meðal þess sem gert verður til að
reka á eftir ferðaglöðum einstakling-
um til að fá sér Farkort, er að bjóða
ferðavinninga. Verða þeir á gjaf-
verði, eða bilinu 20-50 krónur.
Tryggingar verða meiri en á almenna
kortinu, en það er þó einn af þeim
þáttum sem ekki hefur verið gengið
frá til hlítar af samstarfsnefndinni.
Samstarfsnefnd þessi er skipuð
fulltrúm FÍF og Visa ísland, en
aðilar að FÍF veita um 95% alls
ferðamarkaðsins þjónustu. Alls eru
um 20 ferðaskrifstofur í FÍF af um
þrjátíu sem til eru á firmaskrá.
Rannsókn rannsóknarlög-
reglu á umfangsmiklum
vændishring stendur yfir:
RLR gefur
ekkert upp
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
yfirheyrt 51 árs gamlan mann um
helgina, vegna gruns um skipulagða
vændisstarfsemi. Tíminn skýrði ítar-
lega frá máli þessu í laugardagsblaði
og vitnuðum við í heimildamenn
okkar víðsvegar.
Jón H. Snorrason deildarstjóri
hjá RLR, sem stjórnar rannsókn
þessa máls, hefur varist allra frétta
af rannsókninni og svo gerði hann
einnig í gær þegar Tíminn leitaði
upplýsinga varðandi hvort játning
hins grunaða lægi fyrir. Sagði hann
upplýsingar þær er fram komu í
Tímanum um helgina vera á ábyrgð
blaðsins og hann ætlaði ekki að tjá
sig um innihald fréttarinnar. Tíminn
ítrekar hinsvegar að hann stendur
við allt það er fram kom í þeirri frétt,
þó einstök útvarpsstöð hafi gert sitt
til að gera fréttaflutning Tímans af
máli þessu tortryggilegan. -ES
Bláttað lit
Farkortið verður blátt að lit, en
ekki hefur enn verið gengið frá
endanlegri hönnun þess. A framhlið-
inni verður orðið FARKORT efst
og mest áberandi, en þar verður
einnig merki Visa ísland og viðkom-
andi viðskiptabanka getið.
Þess má geta að þóknun Visa er
hin sama þrátt fyrirþennan samning,
en á móti kemur ákveðin tekjulind
fyrir FÍF sem ætlað er að vega þar
upp á móti. Einnig er búist við að
Farkortið verði ferðahvetjandi og
verði jafnvel til þess að festa við-
skipti meir í sessi en verið hefur til
þessa. KB
Nýlega var gefiö út
fræðslurit varðandi:
Undirbúning
vörusýninga
Útflutningsráð íslands hefur í
samvinnu við Iðnlánasjóð gefið
út fræðslurit sem heitir „Vörusýn-
ingar; markmið, skipulag,
framkvæmd“.
Tilgangur þessa rits er að
leiðbeina starfsmönnum fyrir-
tækja við skipulagningu og undir-
búning starfs á alþjóðlegum vöru-
sýningum. En íslensk fyrirtæki
verja árlega um tvö til þrjú hundr-
uð milljónum króna til sýningá-
þátttöku og heimsókna á sýningar
erlendis.
Við samningu fræðsluritsins
sem kostað er af Iðnlánasjóði var
byggt á íslenskri og danskri
reynslu og þckkingu fyrirtækja
og þjónustuaðila af sýningastarfi.
Ritið er vinnubók með minnis-
listum yfir öll þau atriði sem þarf
að uppfylla og framkvæma þegar
sýning á vörum og þjónustu er
undirbúin. Efnisatriðum er raðað
eftir framkvæmdastigum frá því
að ákvörðun er tekin um að
þátttaka í sýningum skuli vera
liður í markaðsaðgerðum fyrir-
tækisins. jkb
BOKMRllR
ZZ ARNARogÖRLYGS zz
lllllÍISÍB: •-f
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
FRAMLENGJUM VIÐ HINUM GLÆSILEGA
BÓKAMARKAÐI OKKAR TIL 11. FEBRÚAR.
ALLT AÐ 90% AFSLÁTTUR
á hundruðum bókatitla i takmörkuðu upplagi
ÖRN OG
ÖRLYGUR
SÍÐUMÚLA 1 I - SÍMI 84866