Tíminn - 07.02.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 7. febrúar 1989
Viö ávöxtun sparifjár leitar fólk
til bankanna eða ríkisins:
Oryggið í
fyrirrúmi
Þetta kemur fram í könnun sem
Gallup stofnunin gerði fyrir
skömmu. Könnunin var um leið
vinsældakönnun varðandi fyrirtæki
og var Sól hf. í tvígang kosið
vinsælasta fyrirtækið.
Gallup á íslandi kannaði nýverið
viðhorf fólks til ávöxtunar sparifj-
ár. Spurt var: „Ef þú ættir eina
milljón króna og gætir ávaxtað
hana eftir nokkrum leiðum, hvern
af eftirtöldum kostum myndir þú
velja?“
Valið stóð á milli banka og
sparisjóða, skuldabréfa ríkissjóðs
og spariskírteina, verðbréfa í verð-
bréfafyrirtækjum eða einhvers
annars.
Langflestir, alls 40.7%, völdu
fyrsta kostinn, banka og sparisjóði.
30% völdu ríkisskuldabréf og
spariskírteini en ekki nema 23,2%
verðbréfin.
Fólk var einnig spurt hvers vegna
það veldi einhvern fyrrnefndra
kosta. Meirihluti svaranna var á þá
leið að öryggið sæti í fyrirrúmi við
val á ávöxtunarleiðum.
í þriðju spurningu var þess farið
á leit að fólk tilgreindi þá stofnun
sem það myndi leita til. En þar bar
Landsbankinn höfuð og herðar
yfir keppinauta sína.
Þessi könnun Gallup var einnig
vinsældakönnun varðandi fyrirtæki
í landinu. Spurt var hvort viðmæl-
andi gæti nefnt þrjú fyrirtæki sem
hann hefði jákvætt viðhorf til.
Samkvæmt niðurstöðum er Sól
hf. vinsælasta fyrirtækið. Sól fékk
afgerandi meirihluta, var nefnt í
helmingi fleiri tilfellum en fyrirtæk-
ið í öðru sæti sem var Hagkaup.
Einnig var viðmælandi beðinn
að nefna þrjú fyrirtæki sem hann
hefði neikvætt viðhorf til. Mun
dræmari undirtektir fengust við
þeirrí spurningu. Engu að síður
varð það afgerandi niðurstaða að
Samband íslenskra samvinnufé-
laga væri óvinsælasta fyrirtækið.
í þriðja lagi voru tíu fyrirtæki
sem mikið hafði verið fjallað um af
fjölmiðlum vikurnar á undan gerð
könnunarinnar, lesin upp. Þá var
fólk beðið að lýsa viðhorfum sínum
til þessara fyrirtækja. Sól hf. hlaut
aftur meirihluta sem vinsælasta
fyrirtækið. En Hótel Örk var það
sem fólk hafði neikvæðasta við-
horfið til. jkb
m FRA
BORGARSKIPULAGI
Kynning á skipu-
lagi við Tjarnargötu
Á vegum Reykjavíkurborgar hefur verið unnið að
endurskipulagi á Tjarnargötu og tjarnarbökkunum.
Ákveðið var að efna til kynningar þannig að
íbúðaeigendur og íbúar við Tjarnargötu ásamt
öllum almenningi væri gefinn kostur á að koma
með athugasemdir og ábendingar.
Sýning á tillögunum verður í glugganum á Gallerí
Borg frá 7.-14. febrúar og að því loknu hjá
Byggingarþjónustunni við Hallveigarstíg 1 út
febrúarmánuð.
Athugasemdir þurfa að hafa borist Borgarskipulagi
að Borgartúni 3 (3. hæð) fyrir 1. mars 1989.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygg
ingadeildar Borgarverkfræðings, óskar eftir tilboð-
um í nýbyggingu Hagaskóla. Um er að ræða
uppsteypu og fullnaðar frágang úti og inni á ca.
600 m2 einnar hæðar húsi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skila-
tryggingu frá og með miðvikudeginum 8. febrúar
n.k.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
21. febrúar 1989, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Árfari, flugvél Flugleiða.
ítarleg úttekt á rekstri Flugleiða:
Stefnt að hagnaði
upp á 700 milljónir
Til að standa undir fjárfestingum og eðlilegri arðgreiðslu
þurfa Flugleiðir að ná 700 milljón króna hagnaði á ári. Þetta
samsvarar því að vera 6-8% hagnaður af veltu sem er nú hjá
Flugleiðum um 8 milljarðar króna á ári en fjárfestingar sem
eru framundan hjá félaginu eru um 10-13 milljarðar.
Þetta kemur fram í tillögum um
nýja stefnumörkun fyrirtækisins á
næstu árum sem yfirstjórn Flugleiða
lagði fyrir stjórn fyrirtækisins ný-
lega. Tillögurnar voru unnar af
nokkrum hópum starfsmanna félags-
ins. Þar er lögð megináhersla á að
hver rekstrareining beri sig og hagn-
aður verði nægur til að standa undir
þeim miklu fjárfestingum sem teljist
nauðsynlegar til að Flugleiðir geti
tekið þátt í samkeppni í fluginu á
næstu árum.
í blaði starfsmanna Flugleiða,
Flugleiðafréttum, segir að þessi út-
tekt á rekstri félagsins sé sú ítarleg-
asta sem gerð hafi verið frá upphafi.
Þessi vinna starfshópanna var gerð í
beinu framhaldi af úttekt á Norður-
Atlantshafsfluginu í fyrra, en mark-
mið hennar var að snúa í hagnað 400
milljón króna rekstrartapi á því
flugi. í kjölfar þeirrar vinnu ákvað
stjórn Flugleiða í samráði við for-
stjóra að marka nýja og ákveðna
stefnu fyrir aðra þætti fyrirtækisins
sem nú eru stærri hlutur af heildar-
rekstrinum og framtíð Flugleiða
byggir fyrst og fremst á. í fyrrnefnd-
um Flugleiðafréttum segir Sigurður
Helgason m.a. að með þessari úttekt
hafi verið stigið skref í þá átt að
endurskapa Flugleiðir.
Sem fyrr segir unnu hópar starfs-
manna þetta verkefni en þeim til
aðstoðar voru fengnir sérfræðingar
frá The Boston Consulting Group.
Settar voru fram tillögur varðandi
einstakar rekstrareiningar og sem
dæmi um þær má nefna eftirfarandi:
Hvað varðar millilandaflugið er
m.a. lagt til að meiri áhersla verði
lögð á farþega sem gefa meira af sér
og þjónusta um borð í vélum og á
jörðu niðri verði bætt. Einnig að
fargjöld á þeim leiðum sem minnst
gefa af sér, einkum Norður-Atlants-
hafsflugi verði hækkuð.
Ein af forsendum starfshóps sem
vann að tillögum varðandi innan-
landsflugið var að endurnýjun flug-
flotans sé nauðsynleg og verði mögu-
leg 1991. Ein af tillögum hópsins var
að sameina meira af innanlandsflug-
inu, en með því eykst ferðatíðni til
Sauðárkróks, Húsavíkurog Patreks-
fjarðar. Einnig að hætt verði flugi
milli Færeyja og Norður Noregs -
Færeyja og Skotlands og dregið verð
úr flugi til Kulusuk.
Hvað málefni hótelanna varðar
var lagt til að ráðist verði í endurnýj-
un Hótels Loftleiða og því verki
verði lokið á næstu þremur árum.
Einnig er lagt til að auk þess að
öllum gestum verði veitt jöfn og góð
þjónusta. Þá verði sérstök áhersla
lögð á að sinna þörfum þeirra við-
skiptavina sem hæst gjöld greiða,
m.a. með opnun sérstakrar gistihæð-
ar fyrir þá hótelgesti.
SSH
Viðræður utanríkisráðuneytisins og Aðalverktaka
umframkvæmdirfyrirherinn. Stefán Friðfinnsson
aðstoðarmaður utanríkisráðherra:
„HEFJASTí
MÁNUMIW
„Viðræður við íslenska aðalverk-
taka um verktakastarfsemi fyrir her-
inn á Keflavíkurflugvelli eru á
dagskrá þótt dregist hafi vegna anna
hjá ríkisstjórninni að hefja þær við-
ræður,“ sagði Stefán Friðfinnsson
aðstoðarmaður Jóns Baldvins Hann-
ibalssonar utanríkisráðherra.
Utanríkisráðherra lýsti því yfir
fyrir nokkru að hann hygðist hefja
þessar viðræður til að kanna hvort
eitthvert annað fyrirkomulag en hið
núverandi hentaði á einhvern hátt
betur.
Stefán sagði að ætlunin væri að
viðræðurnar hæfust innan tíðar, eða
í þessum mánuði. Fyrsta skrefið
væri að ræða við Aðalverktaka um
málið í heild sinni.
Menn á Suðurnesjum og víðar
hafa gagnrýnt einokun Aðalverk-
taka á framkvæmdum fyrir herinn
og sagði Stefán það liggja ljóst fyrir
að ýmsir aðilar vildu gjaman vera f
sporum þeirra.
Af hálfu stjórnvalda hefðu menn
engar sérstakar fyrirætlanir um skip-
an þessara mála. Aðeins ætti að
kanna hvort annað skipulag gæti
hugsanlega komið til greina.
-sá
Endurgreida
söluskattinn
Tryggingarstofnun ríkisins
mun endurgreiða söluskatt af ið-
gjöldum ábyrgðartrygginga bif-
reiða í eigu fatlaðra.
Ellilífeyrisþegar sem voru ör-
orkulífeyrisþegar vegna 75% eða
meira örorkumats og örorku-
styrkþegar lífeyristrygginga og
slysatrygginga (50-74% örorku-
mat) áður en þeir urðu ellilífeyr-
isþegar, munu eiga rétt á endur-
greiðslu.
Gildir þetta um umsóknir sem
borist hafa eftir 08.12.88 og þurfa
þeir sem hafa fengið synjun að
endurnýja umsóknir st'nar. jhb
Leiðrétting
Þau mistök urðu í grein sem birtist
um daginn að matreiðslumeistari
sem vitnað var í var rangnefndur.
Leitað var upplýsinga varðandi
matreiðslu á sprengidag hjá mat-
reiðslumeistaranum Hilmari B.
Jónssyni, eiganda Matreiðsluskólans
okkar en ekki Sigmari B. Haukssyni.
Tíminn biður hlutaðeigandi velvirð-
ingar á þessum leiðu mistökum. jkb