Tíminn - 07.02.1989, Qupperneq 12
' . J .
12 Tíminn
Þriðjudagur 7. febrúar 1989
ÚTLÖND
Sovétmenn og Kínverjar jafna ágreiningsmál sín varðandi Kampútseu.
LBDTOGAFUNDUR
HALDINN í MAÍ
Deng Xiaoping
Dagsetning leiðtogafundar ráðamanna Kína og Sovét-
ríkjanna hefur verið ákveðin 15. tii 18. mai.
Tass og Nýja kínverska fréttastofan skýrðu frá því að
Mikhail Gorbachev hefði verið boðið til fundar við forseta
Kína, Yang Shangkung og myndi í leiðinni hitta Deng
Xiaoping.
Þetta er fyrsti fundur leiðtoga
þessara ríkja í þrjátíu ár. Til að af
honum mætti verða hafa þeir gert
með sér samning um að reyna að
jafna ágreiningsmál sín varðandi
setú Víetnama í Kampútseu.
Þessi samningur tók ekki til
neinna smáatriða og var ekki um
margt ólíkur fyrri samningum sem
gerðir hafa verið. Helsti munurinn
er sá að þetta er í fyrsta skipti sem
þeir hafa gert opinberan samning
sem greinilega lætur í ljós vilja
beggja aðila til lausnar deilunnar.
Samþykktina gerðu utanríkis-
ráðherrarnir Eduard Shevard-
nadze og Quian Qichen. Þar er
tekin fram nauðsyn strangs eftirlits
með brottflutningi víetnamsks her-
liðs frá Kampútseu fyrir september
árið 1989. En ekki er kveðið nánar
á um hvernig að honum skuli
staðið. Báðir aðilar fóru fram á að
allir erlendir herir hættu afskiptum
af innanríkismálum Kampútseu og
minntust á þörfina fyrir frið og
frjálsar kosningar.
Kínverjar litu á tíu ára setu
Víetnama í Kampútseu með stuðn-
ingi Sovétmanna sem helsta þrösk-
uld samvinnu þessara tveggja
kommúnísku risa og fundar leið-
toga þeirra. En úr síðustu yfirlýs-
ingum frá Peking má lesa mikla
ánægju Kínverja með þá áherslu
sem Sovétríkin leggja á að herlið
bandamanna þeirra verði dregið til
baka.
Megin ágreiningur Kína og Sov-
étríkjanna stendur nú um framtíð-
ar stjórnskipulag Kampútseu.
Aðal ágreiningsefnið er, að sam-
kvæmt tillögu Kínverja verður nú-
verandi stjórn Víetnam leyst upp
en Sovétmenn vilja hafa hana
áfram við völd.
í samningnum sem ríkin tvö
gerðu er gert ráð fyrir að Samein-
uðu þjóðirnar hafi aðild að stjórn-
skipun Kampútseu og að alþjóð-
legur fulltrúafundur verði haldinn
þar um leið og aðstæður leyfa.
Benazir Bhutto um Afganistan:
Friður útilokaður
Benazir Bhutto forsætisráðherra
Pakistans lýsti því yfir í gær að
friður á forsendum sovéskra stjórn-
valda, þar sem gert er ráð fyrir
áframhaldandi þátttöku Kabúl-
stjórnarinnar, væri í raun úr sög-
unni. „Hvað geta þeir í raun gert
meira?“, sagði forsætisráðherrann
skömmu eftir að utanríkisráðherra
Sovétríkjanna fór frá Pakistan þar
sem hann hafði rætt við Bhutto um
málið án sýnilegs árangurs.
Pakistanski forsætisráðherrann
sagði ennfremur að það hlyti að
koma í hlut ráðgjafaþings skæru-
liða, svokallaðs „shura“, að mynda
bráðabirgðastjórn, en ráðgjafa-
þingið á að koma saman þann 10.
febrúar. Einnig sagði hún að ekki
bæri að taka alvarlega yfirlýsingar
Najibullah forseta um að Kabúl-
stjórnin myndi berjast áfram eftir
15. febrúar ef ekki hefði náðst
samkomulag um stjórnarhætti eftir
brottför sovéska hersins.
Námskeið
Landssamband framsóknarkvenna hyggst standa fyrir
eftirfarandi námskeiðahaldi á næstunni.
Námskeiðin munu hefjast í byrjun febrúar og standa
fram að páskum.
Eru þau öllum opin og verði stillt í hóf að venju.
Staðsetning námskeiðanna fer eftir þátttöku á hverjum
stað.
1. Félagsmálanámskeið.
Grunnnámskeið fyrir byrjendur í fundarsköpum,
ræðumennsku og eflingu sjálfstrausts. Kennarar verða:
Unnur Stefánsdóttir, Ragnheiður Sveinbjömsdóttir, Inga
Þyrí Kjartansdóttir, Ásdís Óskarsdóttir.
2. Framhaldsnámskeið.
Raddbeiting og framsögn.
Kennari: Baldvin Halldórsson, leikari.
Undirstaða í ræðutækni fyrir sjónvarp, hljóðvarp og
ræðustól. Kennari: Kristján Hall
3. Námskeið fyrir framkomu í fjölmiðlum.
Framkoma í hljóðvarpi og sjónvarpi.
Undirstöðuatriði í greinarskrifum og blaðaútgáfu.
Kennari: Amþrúður Karlsdóttir, fjölmiðlafræðingur.
Þátttaka tilkynnist til Ingu Þyrí Kjartansdóttur í síma:
91-24480 sem fyrst
L.F.K.
Rodrigues sem er einn ríkasti maður Paraguay nýtur ekki trausts þrátt fyrir:
Fögur loforð um lýð-
ræðislegar kosningar
Hershöfðinginn Andres Rodrigues kveikti meö íbúum
Paraguay von um lýðræði á sunnudaginn var. Tæpum 48
stundum eftir valdatökuna tilkynnti stjórn hans að innan 90
daga yrði efnt til lýðræðislegra kosninga.
Kosningarnar sem verða. að öllum
líkindum seint í apríl verða ef að
líkum lætur fyrstu lýðræðislegu
kosningar landsins frá upphafi 178
ára sögu þess.
Rodrigues, stuttur, þéttvaxinn, 64
ára gamall maður með andlitsfall
indiána, er fyrrverandi riddaraliðs-
foringi.
Rodrigues er þekktur sem einn
ríkasti maður Paraguay. Hann er
stífur á meiningunni og var næstæð-
sti valdamaður hersins þetta lengsta
einræðistímabil sögu Latnesku-Am-
eríku. Búgörðum hans fylgja gríðar-
leg landflæmi sem metin eru til
milljóna dollara og yfir 40 þúsund
nautgripir.
BILALEIGA
með utibú allt í kringurri
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Ðíialeiga Akureyrar
Rodrigues hafði aldrei látið neitt
frá sér sem túlka hefði mátt sem
gagnrýni á stjórn Stroessners eða
stuðning við lýðræði. Hann var frá
upphafi dyggasti stuðningsmaður
forsetans en einræðistímabil hans
spannaði 34 ár.
Þeir eru einnig tengdir traustum
fjölskylduböndum því ein þriggja
dætra Rodrigues er gift yngsta syni
Stroessners. Ungu hjónin flugu frá
Paraguay á sunnudaginn var til að
leita hælis í Brasilíu.
Heyrst hefur að valdatökuna megi
tengja aðgerðum stjórnarinnar sem
síðastliðinn janúar lokaði mörgum
gjaldeyrisverslunum í þeim tilgangi
að taka fyrir gróðabrall. Rodrigues
er eigandi einnar stærstu gjaldeyr-
isverslunar landsins og kunnugir
segja daglegan gróða þar vera á milli
tuttugu og þrjátíu þúsund dollarar.
Þá urðu á árinu 1987 árekstrar
innan eina stjórnarflokks landsins
milli þeirra sem hneigðust í átt til
lýðræðis og þeirra sem höfðu að
einkunnarorðum „eftir Stroessner,
annar Stroessner". Rodrigues var
kunnur að því að hafa samúð með
fyrrnefnda hópnum og segir sagan
að þess vegna hafi Stroessner haft
uppi áform um að setja hann á
eftirlaun og því hafi Andres Rod-
rigues gripið til valdaráns.
fbúar Paraguay eru um fjórar
milljónir manns mestmegnis indián-
ar sem tala mál sem heitir Guarany.
Á föstudaginn var flykktust þeir á
götur út til að fagna valdatökunni.
Þeir kölluðu hana uppreisn lýðræðis-
ins og hylltu Rodrigues.
Vestrænir sendiherrar eru engu
að síður ekkert allt of trúaðir á fögur
loforð Rodrigues. „Hann hefur ríkt
með Stroessner frá upphafi. Hvers
vegna skyldi einhver trúa því að
hann eigi eftir að verða blóm lýð-
ræðisins" sagði einn þeirra. jkb
Alfredo Stroessner fyrrv. forseti.Hann er nú landflótta í Brasilíu.