Tíminn - 07.02.1989, Page 15
Þriðjudagur 7. febrúar 1989
Tíminn 15
B
Auglýsing
um styrki Evrópuráðsins á sviði læknisfræði
og heilbrigðisþjónustu fyrir árið 1990
Evrópuráðið mun á árinu 1990 veita starfsfólki í
heilbrigðisþjónustu styrki til námsferða í þeim
tilgangi að styrkþegar kynni sér nýjungar í starfs-
greinum sínum í löndum Evrópuráðsins og Finn-
landi.
Stjórnunarnefnd heilbrigðismála í Evrópuráðinu
ákvað að á árinu 1990 skuli lögð áhersla á
verkefnið:
„Mat á arðsemi heilbrigðisþjónustunnar“.
Styrktímabil hefst 1. janúar 1990 og lýkur 1.
desember 1990. Um er að ræða greiðslu ferða-
kostnaðar og dagpeninga skv. nánari reglum.
Hvorki kemur til greiðslu dagpeninga né ferða-
kostnaðar af hálfu ríkisins. Umsækjendur skulu
ekki vera eldri en 55 ára, hafa gott vald á tungumáli
þess lands, sem sótt er um og ekki vera í launaðri
vinnu í því landi.
Umsóknareyðublöð fást í heilbrigðis- og tryggingar
málaráðuneytinu. Nánari upplýsingar um styrkina
veitir Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri.
Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 10.
mars n.k.
Ákvörðun um styrkveitingar verður tekin í Evrópu-
ráðinu í byrjun desember 1989.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
3. febrúar 1989.
höfðum við allsnægtir. Nú höfum
við ekkert,“ sagði einn menntaður
maður. M.a.s. er Sovétmönnum
kennt um eldflaugaárásirnar sem
stöku sinnum eru gerðar á Kabúl.
Þó að Rússar hafi lagt sér til
vingjarnlegri framkomu um það
leyti sem þeir eru á förum eiga þeir
líka erfitt með að dylja fyrirlitningu
sína á fólkinu sem þeir eru að
yfirgefa. Þeir kalla afganska herinn
„græningja“ og „svartrassa". Að-
spurðir hvort stjórnin muni halda
völdum yppta háttsettir menn í
sovéska hernum öxlum og segja
bara: „Við höfum staðið við al-
þjóðlega skyldu okkar“.
Najibullah kokhraustur
Enn leikur enginn vafi á því að
Najibullah hefur yfirráðin. Hann
hefur bælt niður andstöðu innan
síns eigin flokks, og samhliða því
að ógnunin utan frá eykst vex
samstaða ráðamanna. Miðnefndin
kemur saman til fundar á hverjum
degi til að ræða um hvernig halda
skuli völdunum og hernaðaráætlun
fyrir „virkið Kabúl". Najibullah
hefur að undanförnu átt daglega
fundi í höll sinni f miðborg Kabúl,
sem sovéskir hermenn standa vörð
um, með Yuli Vorontsov, aðstoð-
arutanríkisráðherra og sendiherra
Sovétríkjanna.
En þó að Najibullah sýni þrjósku
er auðvelt að koma auga á merki
um óró. Fjölskyldur háttsettra
flokksmanna hafa verið sendar á
öruggari staði í grennd við landa-
mæri Sovétríkjanna. Hin fjöl-
mörgu skilti í Kabúl með slagorð-
um þar sem fólk er hvatt til að
„berjast til að verja borg sína“ eru
örvæntingarmerki. Afgani nokkur
benti hæðinn á það að áður hefði
almenningur verið hvattur til að
verja land sitt.
Greinilega er fæðuskorturinn
brýnasta vandamálið sem Najibull-
ah þarf að kljást við. Vorontsov
hefur heitið að „Kabúl skuli ekki
falla". En það er ekki auðvelt að
sjá hvernig Rússar geta haldið við
flutningalestunum og rándýrri
loftbrú eftir að hermennirnir þeirra
eru farnir.
Engum virðist detta í hug annað en
að mujaheddin-skæruliðar nái
Kabúl fyrr eða síðar á sitt vaid.
Sovéski og afganski herinn hafa
safnað saman stórskotaliði og flug-
vélum í lokaátak til að halda völd-
um á Salang-þjóðveginum, sem er
ákaflega mikilvægur. Þær aðgerðir
hafa kostað mörg hundruð
óbreyttra borgara lífið, ef marka
má fregnir sem hafa borist vestræn-
um stjórnarerindrekum í Pakistan.
Það er eitt af óvenjulegum sjón-
arhornum á þessu stríði að fregnir
hafa borist af vopnahléi af og til
meðfram Salang-þjóðveginum.
Þar hefur jafnvel sést til skæruliða
þar sem þeir hafa hallað sér að
sovéskum skriðdrekum á leið
norður, og stýrt vegartálmunum
með samþykki Sovétmanna. Síðar
bárust svo fréttir af því að vegurinn
og þorpin í grenndinni hafi verið
stráð líkum.
Loftbrú yrði óhemju dýr
En jafnvel þó að Rússum hafi
tekist að ná veginum aftur á sitt
vald kunna skæruliðar að hindra
umferð um hann fljótlega aftur
eftir að Rússar eru farnir. Við þær
kringumstæður gætu risastórar IL-
76 flugvélar orðið að fljúga allt að
15 sinnum á dag með matarbirgðir
til Kabúl. Sú loftbrú yrði óhemju
kostnaðarsöm og hættuleg á nokkr-
um mánuðum. En það eru engin
merki sjáanleg um að ríkisstjórnin
geti komið í veg fyrir aðflutnings-
bann til höfuðborgarinnar á annan
hátt. Pað er þrátefli og á meðan
skæruliðarnir berjast ekki innbyrð-
is er sigur þeirra tryggður.
Sultur er yfirvofandi - Samein-
uðu þjóðirnar álíta 350.000 manns
á hungurmörkum - og búast má
við að fall ríkisstjórnarinnar verði
þá hratt. Hungur kann að reka fólk
út á stræti borgarinnar í fjölda-
göngur til að mótmæla ástandinu,
þó að mörgum sé enn í fersku
minni þegar uppþot voru bæld
niður harðneskjulega 1980.
Stjórnarerindrekar frá Asíu og
Vesturlöndum segja þó miklu lík-
legri byltingu lágt settra liðsfor-
ingja sem ekki tengist flokki Naji-
bullah. Nýr leiðtogi gæti komið
fram sem gæti rætt við mujaheddin
og e.t.v. samið um vopnahlé.
En ef Najibullah vill ekki gefast
upp má mjög trúlega búast við
öflugum eldflaugaárásum á Kabúl,
bílasprengjum og innrásum skæru-
liða. Margir búast við að menn
berjist í návígi á götum borgarinn-
ar, en enginn reiknar með allsherj-
arárás á hana.
Má treysta
afganska hernum?
Mujaheddin-skæruliðar gorta af
því að þeir séu í minna en tveggja
kílómetra fjarlægð frá Kabúl. Alit-
ið er að þeir hafi 35.000 til 40.000
bardagamenn í hæðunum um-
hverfis höfuðborgina. Najibullah
getur kannski kallað út 30.000
hermenn til að verja borgina þó að
erlendir diplómatar haldi því fram
að þeir séu helmingi færri sem
líklegir séu til að vilja berjast.
Afganski herinn hefur áður sýnt
tilhneigingu til liðhlaups til skæru-
liðanna strax við fyrstu púðurlykt.
Najibullah hefur safnað um sig
úrvalsliði sem hefur notið hárra
launa og margs konar hlunninda.
En ekki einu sinni hollusta þeirra
er trygg. Sumir þeirra hafa verið
dregnir í herinn nauðugir viljugir
og margir eiga þeir ættingja í
röðum mujaheddin. Eins og gerist
í öllum borgarastyrjöldum hafa
fjölskyldur klofnað. Afganskar
heimildir herma að margir her-
mannanna styðji í leyni íslamskar
hugsjónir skæruliðanna.
„Hvort Kabúl kemst af er undir
baráttuvilja kornið," segja vest-
rænir erindrekar. Fáum dylst að
lokun sendiráðanna eykur óvissu-
ástandið og skaðar ríkisstjórnina
þar sem hún gefur í skyn að
stjórninni sé ekki treyst til að halda
uppi lögum og reglu.
Eina von stjórnvalda er sú að
þegar Rússar hafa loks haft sig burt
komist skæruliðarnir að þeirri
niðurstöðu að „Jihad“, heilögu
stríði gegn trúleysingjum, sé lokið.
Vilt þú verða
skiptinemi í sumar?
AFS býður ungu fólki 6 vikna sumardvöl og
málanám sumarið 1989 í:
★ Danmörku, Finnlandi, Spáni, Sviss, Þýskal-
andi, Portúgal, Túnis: 15-18 ára.
★ Bretlandi, sjálfboöavinna: 16-21 árs.
★ Noregi, sveitastörf: 18-20 ára.
★ Bandaríkjunum, enskunám: 15-25 ára.
Umsóknartíminn er frá 9. janúar til 15. febrúar.
Skrifstofan er opin kl. 14-17 vikra daga.
Ert þú að missa af lestinni?
>1FS Á ÍSL4NDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
Skúlagötu 61, Pósthólf 753 -121 Reykjavík, sími 91-25450
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Rafmagnseftirlit
Starfsmaður óskast til rafmagnseftirlitsstarfa á
orkuveitusvæði Rafmagnsveitunnar.
Menntun rafmagnsiðnfræðings nauðsynleg.
Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til 13.
febrúar n.k. og ber að skila umsóknum til starfs-
mannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum, sem
fást á skrifstofu Rafmagnsveitunnar að Suður-
landsbraut 34.
Upplýsingar um starfið veitir starfsmannastjóri í
síma 686222 á milli kl. 10.00-12.00 f.h.
Starfsmannastjóri.