Tíminn - 22.02.1989, Side 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
■S 4|
Bílastyrkir, sem ríkið borgar fyrir akstur á einkabílum, samsvara því að ríkisstarfsmenn aki tvöfalt lengra en 130 strætóbílstjórar SVR á 20 leiðum 18 tíma á sólarhring og bílstjórar 180 rútubifreiða
á 42 sérleiðum. Á sama tíma fækkar farþegum með SVR og því eðlilegt að spyrja hvort ekki sé hægt að borga hluta bílastyrkjanna í strætómiðum. Tímamynd: Ami B|arna
Ríkiö borgaöi 1.380 milljónir í bílastyrki og feröakostnað fyrir starfsmenn sína og rekstur 920 ríkisbíla:
Bílastyrkir fyrir rúmlega
hnattferð á degi hverjum
Það eru fleiri en læknar sem ríkissjóður greiðir ríflega
bílastyrki. Greiddir bílastyrkir til ríkisstarfsmanna námu
alls um 232 milljónum króna árið 1987 - eða sem svarar til
þess að þeir hafi ekið rúmlega 17 milljónir kílómetra á
einkabílum sínum í þágu ríkisins. Sú vegalengd svarar til
24 tunglferða, eða 430 ferða umhveifis jörðina á 365
dögum. Bílastyrkur fyrir hverja „hnatíferð“ er því um
540.000 krónur (sem gefur m.a. til kynna hve margfalt
dýrara væri að aka á bílnum sínum en fljúga sömu
vegalengd).
Ekið á við 600
strætó/rútubílstjóra?
Þessi 17.110.000 kílómetra
akstur, sem ríkið borgar fyrir með
bílastyrkjum, er um tvöfalt lengri
vegalengd heldur en bílstjórar 180
rútubíla (með 7.000 sæti) á öllum
42 sérleyfum landsins og 130
strætóstjórar SVR (á 20 leiðurn 18
stundir á sólarhring) leggja að baki
samtals á ári hverju. Yfir 300
strætó- og rútubílstjórar á sérleið-
um ná „aðeins“ að aka tæplega 8,5
milljónir kílómetra á ári og eru því
aðeins hálfdrættingar á við það
sem ríkisstarfsmenn aka fyrir ríkið
á einkabílum sínum.
1.060 miiljóna
ferðakostnaður
Þetta er þó aðeins smáhluti þess
1.060 milljóna (rúmlega 1,4 millj-
arðar á núvirði) fcrðakostnaðar
sem ríkið þurfti að borga fyrir að
koma starfsmönnum sínum stað úr
stað árið 1987. Auk bílastyrkjanna
greiddi ríkissjóður fyrir akstur
leigubíla, leigu á bílaleigubílum og
annan ósundurliðaðan aksturs-
kostnað (aðkeyptur akstur á sendi-
ferða- og vörubílum þar ekki með-
talinn enda ekki talinn með „bif-
reiðakostnaði" í yfirliti Fjárlaga-
og hagsýslustofnunar). t>á er enn
ótalinn mörg hundruð milljóna
króna annar ferðakostnaöur innan-
lands og erlendis, þar sem m.a. er
verið að að borga fyrir fargjöld
ásanrt dvalarkostnaði og dagpen-
ingum.
Nær 1,4 milljarðar
Kostnaður sem ríkissjóður hafði
af því að koma starfsmönnum
sínum frá einum stað ti! annars
skiptist í grófum dráttum sem hér
segir árið 1987:
BÍLAKOSTNAÐUR
OG FERÐAKOSTNAÐUR
Bílastyrkir Leigubílar Bílaleigubílar Annar akstur 232 millj. 37 millj. 46 njillj. 97 millj.
Akstur samtals: 12 millj.
Ferðakostn/innanl. 365 millj.
Ferðakostn/erlendis 280 millj.
Rekst/viðhald ríkisb. 322 millj.
Kostnaður samtals: 1.379 millj.
Aðeins vegagerðarmenn
skáka læknum
Bílastyrkirnir sem ríkið greiddi
starfsmönnum fyrir not á einkabíl-
um þeirra skiptast mjög mismun-
andi milli embætta og stofnana.
Stærstu upphæðirnar eru hjá eftir-
töldum aðilum:
Alþingi 6,2 millj.
Búnaðarfélag Isl. 3,0 millj.
Rala 2,9 millj.
Skógrækt ríkisins 2,1 millj.
Landgræðslan 2,7 millj.
Lögreglan í Rcykjav. 1,7 millj.
Prestaköll og próf. 12,0 millj.
Vinnueftirlitið 3,6 millj.
Ríkisspítalar 26,0 millj.
Heilsugæslustöðvar 19,5 millj.
Fasteignamat rík. 2,3 millj.
Innkaupastofnun 2,1 millj.
Vegagcröin 41,3 millj.
Siglingamálast. 3,7 millj.
Flugmálastjórn 4,7 millj.
Iðntæknistofnun 4,5 millj.
Orkustofnun 3,0 millj.
Áburðarverksmiðjan 3,0 millj.
RARIK 9,6 millj.
Alls hafa þarna verið taldar 154
milljónir króna - þannig að 78
milljónir skiptast þá á starfsmenn
allra annarra embætta og stofnana
ríkisins. Upphæð bílastyrkja hafði
hækkað unr 17% frá árinu áður,
eða nánast það sama og lánskjara-
vísitalan.
Mestu ferðagarparnir
Ferðakostnaður starfsmanna
hafði á hinn bóginn hækkað tals-
vert meira; innlendur um 31% og
erlendur um rúmlega 20% milli
ára. Mestu ferðagarparnir til ann-
arra landa hafa verið hjá eftirtöld-
um stofnunum:
ERLENDUR
FERÐAKOSTNAÐUR
Alþingi 14,6 millj.
Háskóli íslands 15,5 millj.
Utanríkisráðuneytið 34,1 tnillj.
RALA 4,6 millj.
Hafrannsóknast.
Ríkisspítalar
Vegagerðin
Siglingamálastofnun
Flugmálastjórn
Iðntæknistofnun
Orkustofnun
Ríkisútvarpið
Póstur og sími
4,0 millj.
33,2 millj.
5.8 millj.
4,5 millj.
6.8 millj.
5,7 millj.
5.9 millj.
10,9 millj.
10,8 millj.
Þessi upptalning nær til 56% alls
erlends ferðakostnaðar, þannig að
44% skiptast á aðrar stofnanir og
embætti.
Þar sem alþingismcnn eru meira
en helmingi færri en Landspítala-
læknar gæti látið nærri að erlendur
ferðakostnaður væri álíka að með-
altali á hvern þingmann og lækni.
Innlendi ferðakostnaðurinn er
fyrst og fremst hjá stofnunum sem
hafa höfuðstöðvar í Reykjavík en
starfsemi um allt land, svo sem
Alþingi, rannsóknar- og eftirlits-
stofnanir og löggæsla, Vegagerðin,
Orkustofnun, Póstur og sími og
RARIK.
í ferðakostnaði er um að ræða
fargjöld og dagpeninga sem starfs-
menn þurfa ekki að gera grein
fyrir, ellegar dvalarkostnað sem
greiddur er samkvæmt reikning-
um.
Rekstur ríkisbíls
um 350 þúsund
Það vekur athygli, að rekstrar-
og viðhaldskostnaður ríkisbíla (alls
taldir 923) hækkaði aðeins um 8%
milli 1986 og 1987. Sfðara árið var
hann tæplega 300 þús. kr. að
meðaltali á bíl hjá fyrirtækjum og
stofnunum í A-hluta fjárlaga, en
um 387 þús.kr. hjá B-hluta fyrir-
tækjum, en þar eru afskriftir taldar
með rekstrarkostnaði.
Um 3/4 hlutar allra ríkisbíla (og
sönuileiðis alls rekstrar- og við-
haldskostnaðar) eru skráðir hjá
aðeins 6 aðilum, ásamt löggæslu-
og dómskerfinu:
Póstur og sími 183 b. 41 m.
Löggæsla/dómskerfi 166 b. 72 m.
Vegagerðin 130 b. 57 m.
RARIK 116 b. 58 m.
Flugmálastjórn 41 b. 7 m.
Ríkismat sjávaraf. 20 b. 2 m.
Orkustofnun 20 b. 2 m.
Rekstrarkostnaður hjá Pósti og
síma er að meðaltali 221 þús.kr. á
bíl, 434 þús. hjá Vegagerðinni og
496 hjá Orkustofnun. Þetta eru allt
B- hluta fyrirtæki, þannig að afsk-
riftir eru meðtaldar. Á lögreglubíl-
unum er rekstrarkostnaðurinn að
meðaltali 435 þús. krónur. Rekstr-
arkostnaður 9 bíla Lögreglustjóra
á Keflavíkurflugvelli (sem heyrir
undir utanríkisráðuneyti) var hins
vegar nær 9,1 milljón. eða 1.134
þús. að meðaltali á hvern bíl.
Metið virðist þó að finna hjá
Áburðarverksmiðjunni, 1.327 þús.
að meðaltali á hvern hinna 6 bfla
fyrirtækisins.
Bíla- og ferðakostnaður
Forseta íslands álíka
og Sinfóníunnar
Rekstrarkostnaður þeirra 3ja
bíla sem skráðir eru hjá Forseta-
embættinu var aðeins 566 þús.kr.,
eða tæplega 187 þús.krónur að
meðaltali á bíl. Annar bifreiða-
kostnaður embættisins var 789
þúsund. Innlendur ferðakostnaður
embættisins var 793 þús. og erlend-
ur 3.047 þús. krónur.
í heild hefur bifreiða- og ferða-
kostnaður á vegum embættis For-
seta Islands því verið um 5,1 millj-
ón króna árið 1987 - sem er t.d.
álíka og samsvarandi kostnaður
hjá Sinfóníuhljómsveitinni, ellegar
hjá Þjóðleikhúsinu. - HEI