Tíminn - 22.02.1989, Page 12
12 Tíminni
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
FRETTAYFIRLIT
Otlönd
KA(RÓ - Utanríkisráðherra
Sovétríkjanna Eduarde Shé-
vardnadze leitaði leiða til að fá
israelsmenn til að láta af and-
stöðu sinni við alþjóðlega ráð-
stefnu erfjalli um frið í Miðaust-
urlöndum. Þetta gerir Shévar-
dnadze í samvinnu við Esmat
Abdel-Maguid utanríkisráð-1
herra Egyptalands, en Shévar-
dnadze er nú í Egyptalandi í!
heimsókn. Hann mun að lík-!
indum hitta Moshe Arens utan-;
ríkisráðherra ísraels í dag, en j
Arens kom til Egyptalands í!
gær. Þá mun Yasser Arafati
einnig ræða við Shévardnadze [
í Kaíró í dag.
WASHINGTON - For-j
maður bankastjórnar seðla- j
bankans í Bandaríkjunum j
Alan Greenspan sagði að!
verðbólgustig í Bandaríkjun-
um væri óviðunandi og að1
seðlabankinn muni halda |
áfram strangri aðhaldsstefnu
sinni.
PARIS - Forsætisráðherra
Israels, Yitzhak Shamír kom til
Parísar í fyrstu opinberu heim-
sókn sinni eftir að ný ríkisstjórn
tók við í Israel.
OAXTEPEC - Stjórnmála-
menn frá El Salvador sögðu að
nokkur árangur hefði orðið af
viðræðum við fulltrúa vinstri
sinnaðra skæruliða, en skæru-
liðar hafa boðist til að binda
enda á borgarastyrjöldina í
landinu ef kosningum sem eiga
að fara fram í El Salvador í
mars verði frestað og skærulið-
um gert kleift að taka þátt í
kosningunum.
JÓHANNESARBORG
Tveir lífverðir Winnie Mandelaj
konu Nelsons Mandela hins
þekkta baráttumanns fyrir rétt-
indum blökkumanna í Suður-
Afríku voru leiddir fyrir rétt,
sakaðir um morð á hinum 14
ára blökkudreng Stpmpie
Seipei.
SÁRAJÉVO - Dagblaðið
Borba hætti að fjalla um hina
umdeildu bók „Söngvar
Satans" á meðan Ali Khameini
forseti írans er í opinberri
heimsókn í landinu.
MOSKVA - Sérfræðingar í
Sovétríkjunum þar sem eyðni
var eitt sinn skilgreind sem
kapítal ískur sjúkdómur telja að
þar í landi séu um 15 milljónir
smitaðir af eyðni. Telja þeir að
árið 2000 verði 200 þúsund
Sovétmenn látnir af þessum
óhuggulega vágesti.
„Söngvar satans“
trylla írana og
Evrópubandalagið
Salman Rushdic höfundur búkarinnar Söngvar satans, sem hefur tryllt írana
og aðra múslíma.
Khomeini erkiklerkur í hægindum sínum. Hann heldur fast við þann ásetning
sinn að Rushdie skuli drepinn.
Eftir bætt samskipti írana
við hinn vestræna heim
undanfarna mánuði eru Iran-
ar nú á hraðri leið til algerrar
einangrunar á ný frá ríkjum
Vesturlanda vegna ítrekaðra
morðhótana Khomeinis erki-
klerks í garð breska rithöf-
undarins Salman Rushdie.
Þrátt fyrir að Rushdie hafi lýst því
yfir að hann harmi þau áhrif sem bók
hans „Söngvar satans" hafi haft á
múslíma og beðist velvirðingar á að
hafa móðgað trúarvitund þeirra, þá
ítrekaði Khomeini erkiklerkur
„dauðadóm'" sinn, en hann hvetur
alla múslíma til að drepa Rushdie og
alla þá er tengjast útgáfu bókar
hans. Ali Khamenei forseti írans
hafði áður gefið í skyn að afsökunar-
beiðni yrði til þess að „dauðadómi"
yrði aflétt.
Evrópubandalagið gaf út mjög
harðorða yfirlýsingu gegn írönum
vegna þessa máls og kölluðu heim
sendiráðsmenn sína í Teheran. Þar
eru einungis lágt settir fulltrúar Evr-
ópuríkjanna. Bretar gengu enn
lengra og lokuðu sendiráði sínu í
íran, en einungis eru liðnir þrír
mánuðir frá því Bretar og íranar
tóku upp stjórnmálasamband að
nýju.
íranar svöruðu yfirlýsingu Evr-
ópubandalagsins með því að kalla
sendinefnd sína hjá Evrópubanda-
laginu heim, en íranar hafa að
undanförnu átt í viðræðum við Evr-
ópubandalagið um viðskipti og auk-
in samskipti. Þeirri þróun virðist því
lokið.
George Bush forseti Bandaríkj-
anna tók undir hina hörðu gagnrýni
Evrópubandalagsins og gagnrýndi
Khomeini erkiklerk harðlega.
Javier Perez de Cuellar gaf út
yfirlýsingu þar sem hann hvetur
írana um að taka dauðahótanirnar
yfir Rushdie aftur.
Athygli vekur að þrátt fyrir að
miklu moldviðri hefur verið rótað
upp í kringum dauðahótun Khom-
einis og átök hafi orðið í Pakistan og
Indlandi vegna „Söngva satans“, þá
hefur þetta mál farið mjög hljótt í
arabalöndunum, þar sem íslam
stendur styrkum fótum.
Maren Torp
lést í gær
Hin norska öðlingskona Maren
Torp lést í gær. Það væri ekki í
frásögur færandi ef hún hefði
ekki verið 112 ára gömul og
þriðja elsta manneskja veraldar
er hún lést.
Maren lést í værum svefni á
borgarspítalanum í Osló, tveimur
mánuðum eftir að hafa haldið
upp á afmælisdag sinn með pomp
og prakt.
Næst elsta núlifandi manneskja
h'eimsins er Jeanne Calment.
Hún varð 114 ára í gær, sama dag
og Maren hélt á vit forfeðra
sinna. Jeanne dvelur nú á hjúkr-
unarheimili í heimalandi sínu
Frakklandi.
Calment sem fæddist 21. febr-
úar árið 1875 segist elska súkku-
laði og púrtvín auk þess sem hún
segist ekki slá hendinni á móti
vindlingi endrum og eins.
Calment var 39 ára gömul þeg-
ar fyrri heimsstyrjöldin braust út
og hitti hinn þekkta málara Vinc-
ent van Gogh er hann kom í búð
frænda Calments einhvern tíma
fyrir aldamótin síðustu.
Calment er farin að daprast
sjónin, en hún staulast enn um á
tveimur jafnfljótum sem dugað
hafa vel í rúma öld. Hún hlustar
alltaf á fréttir í ferðaútvarpi sínu
og er annt um útlit sitt, puntar sig
dag hvern.
Elsta manneskja heimsins mun
hins vegar vera Carrie White.
Hún fæddist 18. nóvember 1874
og er því 114 ára að aldri.
Illa byggð
gasleiðsla
banaði 15
Handvömm við frágang gasleiðsl-
unnar miklu frá Sovétríkjunum til
Vestur-Evrópu varð fimmtán manns
að bana á dögunum. Fyrsta áfangan-
um í lagningu gasleiðslunnar frá
Síberíu til Vestur-Evrópu var hastað
fyrir árlega ráðstefnu sovéska
kommúnistaflokkins á síðasta ári.
Leiðslan frá Yamburg olíusvæð-
unum í Síberíu til bæjarins Tula
sunnan við Moskvu var tekin í
notkun við hátíðlega athöfn í júní-
mánuði síðastliðnum.
Kapp var greinilega án forsjár í
framkvæmdunum sem gerðu þetta
kleift því fimmtán manns hafa látið
lífið vegna lélegs frágangs leiðslunn-
ar. Enda þróuðust málin svo að
aðeins sex vikum eftir að leiðslan var
tekin æ notkun varð að loka henni
vegna viðgerða.
Um þetta mátti lesa í dagblaðinu
Izvestia um helgina.
Tékkóslóvakía:
Haveldæmdur
í einangrun
Tékkneski andófsmaðurinn og
leikritahöfundurinn Vaclav Havel
var í gær dæmdur í níu mánaða
einangrunarfangelsi. Havel var.
handtekinn 16. janúar fyrir aðild
sína að mótmælaaðgerðum gegn ■
stjórnvöldum. Hann var fundinn,
sekur um meinsæri og niðurrifsstarf-
semi.
ökum
ávallt með tllllti tll
aðstæðna ekkl of hægt
— ekki of hratt.
lUMFEFEKF!.
Irad
Ríkisstjórnin í Suður-Afríku að linast:
FIMMTfU HUNGUR
FONGUM SLEPPT
Stjórnvöld í Suður-Afríku eru
að gefa sig í baráttunni við and-
stæðinga aðskilnaðarstefnunnar
eftir vellukkað hungurverkfall
pólitískra fanga á dögunum. Að
minnsta kosti fimmtíu pólitískir
fangar sem tóku þátt í hinni miklu
föstu voru leystir úr haldi í gær.
Það var í samræmi við samkomulag
stjórnvalda Suður-Afríku og hinna
sveltandi fanga á sínum tíma þegar
fangarnir ákváðu að hefja át sitt á
ný.
Lausn fanganna fimmtíu var til-
kynnt á sama tíma og fimmtán
fangar voru fluttir á sjúkrahús til
meðferðar vegna þess hve illa
hungurverkfallið fór með þá.
-Það má ekki líta á þetta sem
vott um veikleika. Ef þeir misnota
frelsi sitt mun ég ekki hika við að
beita valdi mínu gegn þeim að
nýju, sagði Adriaan Vlok lögreglu-
málaráðherra landsins í málstofu
hvítra manna í suður-afríska þing-
inu þegar föngunum var sleppt.
Ríkisstjórnin liggur mjög undir
ámæli frá hinum hægrisinnaða
íhaldsflokki, en þingmenn hans
segja lausn fanganna vera veik-
leikamerki og undanfara þess að
lögreglan veikist.